Alþýðublaðið - 11.04.1978, Side 3
Þriðjudagur 11. apríl 1978
3:
Þekkirðu mann, sem þekkir marm, sem
Erfitt að fá
vinnu nema
gegnum
„kilku”?
Hvernig skyldu at-
vinnuhorfur hjá skóla-
fólki vera þetta sumar-
ið? Nú fer að liða að
sumri og þá streymir
skólafólkið út á atvinnu-
markaðinn. Blaðamenn
brugðu sér i nokkra
skóla á höfuðborgar-
svæðinu i gær til að
kynna sér hvernig ungl-
ingunum þætti horfa
með sumarvinnuna
þetta sumarið. ölium
bar saman um að það
væri enga vinnu að fá
nema í gegnum kunn-
ingsskap.
Það er mun algengara hér á Is-
landi en annars staðar á Norður-
löndum að unglingar vinni yfir
sumartimann, og er ekki nema
gott eitt um það að segja. Það er
holl reynsla og nauðsynleg að
bæta upp innisetu yfir skólabók-
um allan veturinn, með virkri
þátttöku i atvinnullfinu. Sumir
vinna af nauðsyn, fjárhagurinn
heima fyrir er kannski ekki of
góður, þannig að öll vinna heimil-
ismanna kemur sér vel. Svo eru
börn vel stæðra foreldra sem
vinna svona til að hafa eitthvað
fyrir stafni, fá sér aukapening og
bregða sér jafnvel til útlanda áð-
ur en skólinn byrjar aftur aö
haustinu. Meðan krakkarnir eru á
barnaskólaaldri er helst aö þau
reyni að komast I sveit, stelpurn-
ar fást kannski við að passa börn I
bænum. Þegar þau eru svo komin
á 14 ára aldurinn, þá fara þau að
sækjast eftir annarri vinnu.
Hvað álita svo unglingarnir
sjálfir um möguleika sina aö fá
vinnu i sumar? Aðal vandamálið
er hjá þeim sem aldrei hafa unniö
neitt áöur yfir sumartimann.
Eldri aldursflokkarnir eru betur
settiraðþvileyti að þeir sem hafa
unnið undanfarin sumur hafa
möguleika á að komast aftur aö á
sama vinnustað. öllum þeim sem
við töluðum við bar þó saman um
það að erfitt væri að fá vinnu
nema i gegnum kunningskap.
Yngstu unglingarnir sem ekki fá
vinnu i gegnum kunningsskap,
hafa ekki i mörg hús að venda,
það er helst að sækja um hjá
Reykjavikurborg.
Aslaug Pálsdóttir á ráðningar-
skrifstofu borgarinnar tjáði blað-
inu það að yfirleittreyndi borgin
að taka við öllum þeim sem þar
sækja um vinnu, yfir sumartim-
ann. Þaö. er þá unglingavinnan
fyrir 14 og 15 ára unglingana, en
þaö eru 4 timar á dag og i fyrra-
sumar var kaupið þar 180 kr. á
timann. Fyrir unglinga 16 ára og
eldri eru ýmiss konar garðyrkju-
störf og vinna þeir allan daginn.
Hjá þeim er timakaupið 200 kr. t
fyrrasumar fengu um 800 ungl-
ingar vinnu við þessi störf á veg-
um borgarinnar.
Ráðningaskrifstofa landbúnað-
arins er annar möguleiki. Að sögn
Guðmundar Jósafatss. starfs-
manns þar, er þó aldrei hægt
að koma öllum sem þangað
sækja, I vinnu. Það er að visu
sótzt eftir unglingum til aðstoðar
á sveitaheimilum yfir sumariö,
og þá einkum duglegum strákum.
Það kemur fyrir að unglingur sé
mörg sumur i röð á sama sveita-
bænum, ef vel tekst til með ráðn-
inguna. Kaupið sem unglingarnir
fá er yfirleitt samkomulagsatriði
milli bóndans og viðkomandi.
Menntaskólanrir og háskólinn
hafa starfrækt atvinnumiðlanir
fyrir sig, á sumrin, en sú starf-
semi mun ekki vara komin i gang
ennþá.
Auður Margrét óttars-
dóttir, 18 ára.
Ertu búin aö fá vinnu I sumar?
Já. Hvar ætlar þú að vinna?Hjá
Eimskip, ég vann þar lika i fyrra.
Færðu gott kaup? Það er alveg
sæmilega borgað, en maður fær
auðvitaö aldrei nóg. Vinnuröu allt
sumarið? Ég tek mér fri svona I
lok sumarsins. Ferðu þá til út-
landa? Já, kannski I Sólarlanda-
ferðir, það er gaman aö þvi. Held-
urðu aö það sé erfitt fyrir krakka
á þinum aldri að fá vinnu?Það er
algengt að fólk fái vinnu gegnum
kliku.
Gunnar Bachmann, 13
ára.
Ertu búinn að fá vinnu i sumar?
Já. Hvar ætlar þú aö vinna? Hjá
pabba. Hvar er það? Hjá Kjöt-
miðstööinni. Vannstu eitthvað I
fyrrasumar? Já, lika I Kjötmið-
stööinni.
Guðmundur Asmunds-
son, 18 ára.
Ertu búinn að fá vinnu i sumar?
Kannski, ég á að fara núna milli
eitt og tvö og athuga það. Hvar
sóttirðu um? Hjá Borginni viö
götumálningu. Ég hef unniö hjá
borginni áður, hjá Garðræktinni.
Tekur þú þér eitthvert sumarfrl?
Nei, það er nú litið um það.
Hulda Hjartardóttir.
Ertu búin aö fá vinnu I surnar? Ég
er að sækja um vinnu út á landi.
Ef ég fæ það ekki vinn ég hjá tJt-
varpinu. Heldurðu að það sé erfitt
að fá sumarvinnu? Það fær eng-
inn vinnu nema i gegnum kliku.
Söngleikar ’78
900 manna kór í Laugar
dalshöll á laugardaginn
Landssamband blandaðra kóra 40 ára
Um næstu helgi verða
haldnir i Reykjavik, í tíI-
efni 40 ára afmælis Lands-
sambands blandaðra kóra,
svonefndir söngleikar, þar
sem fram koma um 1000
söngvarar, karlar og konur
úr 20 kórum viðsvegar að
af landinu.
Söngleikarnir hefjast á föstu-
dagskvöldið kl. 21.00 i Háskólabió
og veröur framhaldið I Laugar-
dalshöll á laugardaginn kl. 15.
Fimmtán kórar flytja sjálfstæða
söngskrá en Söngleikunum lýkur
með söng 900 manna samskórs
L.B.K. Þá mun Sinfóniuhljóm-
S.veit Isl. ásamt hljóðfæraleik-
urum úr Hljómsveit Tónlistar-
skólans og Sinfóniuhljómsveit
Reykjavikur, samtals um 100
manns standa aö flutningi
tveggja tónverka. Þá er von á
blönduöum kór frá Þrándheimi I
Noregi ásamt hljómsveit, sam-
tals um 100 manns sem taka
munu þátt i Söngleikunum.
Engin vafi er á að þetta eru
fjölmennustu tónleikar sem
haldnir hafa verið á Islandi bæði
fyrr og siðar. Söngleikunum lýkur
siðan aö kvöldi laugardags með
veglegum afmælisfagnaði, þar
sem veröur sameiginlegt borð-
hald og fjölbreytt skemmtan
fram eftir nóttu með þeim brag
sem söngfólki einu er lagið.
—KIE
Anna Sigriður Jóhanns-
dóttir, 14 ára.
Ertu búin að fá sumarvinnu?Nei.
Ertu búin aö sækja um einhvers
staðar?Ég ætla kannski að sækja
um i Unglingavinnunni. Vannstu
eitthvaö I fyrra? Já, ég var að
passa hjá systur minni. Helduröu
að það sé erfitt fyrir krakka á þln-
um aldri að fá sumarvinnu? Það
er ekki nema unglingavinnan og
svo ef maður þekkir einhvern.
Særún Gunnarsdóttir, 15
ára.
Ertu búin aö fá vinnu I sumar?
Nei . Vannstu eitthvaö I fyrra-
sumar? Já, ég var i unglinga-
vinnunni. Kvernig líkaöi þér það?
Illa. Æ'íarðu ekki að reyna að fá
vinnu I sumar? Jú, ég ætla að
sækja um I Pennanum.
Magnús Þór Jónsson 15
ára.
Hvað ætlar þú aö gera I sumar?
Vinna hjá Skeljungi. Vannstu þar
ífyrra Hka?Já ég hef alltaf unniö
þar. Þegar ég var 13 ára byrjaði
ég í unglingavinnunni, en gafst
upp eftir viku, það var alveg til-
gangslaust að ráfa um og reyta
arfa. Heldurðu að það sé erfitt
fyrir krakka á þlnum aldri að fá
sumarvinnu? Það veröur at-
vinnuleysi i sumar, og erfitt að fá
vinnu nema maður hafi unnið ein-
hvers staðar áöur. Það er alls
staðar klika. Þú færð ekki vinnu
nema igegnumkliku. e.I.
Munió
alþjóólegt
hjálparstarf
Rauða
krossins.
RAUÐl KROSS lSI.ANDS
YÓur
er boðið
að skoða nýtt DAS hús að Breiðvangi 62
Hafnarfirði. Húsið verður til sýnis
virka daga frá 6—10, laugardaga,
sunnudaga og helgidaga frá 2—10.
Húsið er sýnt með öllum húsbúnaði.
HappdrættiE