Alþýðublaðið - 11.04.1978, Side 6
Þriðjudagur 11. apríl 1978 SSSS"
Vestur-
Þýzkaland
Hreyfing nýnazista
lætur nú æ meira á sér
bera i Vestur-Þýzka-
landi, en fram að þessu
hefur ekki svo mikið á
henni borið. Áróður
nýnazista gerist
ismeygilegri, en kunn-
ugir þykjast þó þekkja
þar innanum gamlar
lummur. Þá eykst umtal
um vald og vald-
beitingu. Fjöldi hópa
viðurkennir naziskan
grundvöll sinn. Þrátt
fyrir að hópar þessir fari
ekki lengur dult með
nazisk stefnumið sin
starfa þeir með öllu
óhindrað.
í bæklingi nokkrum
útgefnum af fyrirtæki
stofnuðu af leiðandi rit-
höfundum og blaða-
mönnum
vestur-þýzkum, segir
frá vaxandi hreyfingu
þýzkra nýnazista.
Fyrirtæki þetta Pressdi-
ents Demokratische
Initiative (PDI) er I
nánu sambandi við
vestur-þýzka sósíal-
demókrataflokkinn og
v er ka lýðs hr ey f inguna
þýzku.
Þúsundir
Nú eru starfandi u.þ.b. 45
samtök ofstækismanna. í fyrra
voru skipulagðir a.m.k. 300stórir
fundir á vegum nazistasamtaka
þessara. Stundum stóðu fundir
eða mót þessi yfir i nokkra daga.
Tókstsamtökunum þá þ.e. meðan
á fundarhöldunum stóð að afla
þúsunda nýrra stuðningsmanna.
Sérstaklega i Suður-Þýzkalandi
þar sem hægriflokkarnir eru
öflugir þ.e. þingflokkarnir
CDU/CSU fá nýnazistar að koma
fram ótruflaðir, og stundum
undir lögregluvernd. Akveðin
tengsl munu vera milli samtaka
nýnazista og hægrisinnuðustu
flokksmanna CDU/CSU. Einn
háttsettar-i dómara sambands-
rikisins Bayern (Bæjaralands) í
Suður-Þýzkaiandi, en það
sambandsriki lýtur stjórn hægri-
manna, er leiðtogi eins hóps
hægri ofstækismanna.
Sameinast að nýju
Allir þeir hópar nazista er nú
starfa i Þýzkalandi reyna eftir
megni að bæta hlut fyrir-
rennara sinna i sagnfræðinni.
T.d. halda þeir þvi stift fram að
hrein lýgi sé ^ð sex milljónir
gyðinga hafi verið myrtar af
na^zistum. Takmarkið er að
Þyzkaland verði sameinað að
nýju, héruð þau er fyrrum til-
heyrðu Þýzkalandi en eru nú
undir stjórn Pólverja eða Tékka
er hugmyndin að ná aftur á vaid
Þjóðverja. Mæla nýnazistar og
fyrir um einræðisskipulag og
berjast opinberlega gegn
stjórnarskrá Vestur-Þýzkalands.
Samkvæmt vestur-þýzkri mál-
hefð skilgreinast þeir þvi sem
„stjórnarskrárfjendur”. En þó
munu hingað til fleiri sósialdemó-
kratar hafa sætt atvinnu-
ofsóknum sakir „fjandsemi”
gagnvart stjórnarskránni, en
nýnazistar.
Karl-Heinz Hoffmann einn forystumanna nýnazista útdeilir hér i tilefni jólahalds (um siðustu jól) orðum til
manna sinna. Að sjálfsögðu eru þeir eliir einkennisklæddir, enda undir vopnum og við heræfingar.
Nýnazistar skreid-
ast úr fylgsnum sín-
um
TTEkki einn einasti gyðingur myrtur
í gasklefum nazista”
Nýnazistarnir þýzku reka
ákveðinn áróður kynþáttahaturs.
Reka skal erlenda verkamenn af
landi brott. Þvi er haldið fram að
Hitler hafi eytt, þeim mestum
vágesti, atvinnuleysinu. Reikna
má með að slikur áróður muni
falla i góðan jarðveg i landi þar
sem fyrirfinnast tvær miljónir
atvinnulausra og hafa reynd
ar gert siðastliðin fimm ár.
Nazistar biðla til hins mikla
fjölda ungs fólks er litla stjórn-
málalega þekkingu hefur eða
orðið hefur „hægri-straumi” 8.
áratugs aldarinnar að bráð. Einn
helsti forystumaður nazista
Gerhard Frey, búsettur i
Miinchen, er útgefandi viku-
ritsins Nationa-Zeitung. Eintaka-
fjöldi vikurits þessa hefur mjög
aukist siðustu misseri. Það er
nú stærsta vikublað stjórnmála-
legs efnis sem út er gefið i
Vestur-Þýzkalandi. Upplagið er
130.000 eintök, eða stærra en
upplög málgagna sósialdemó-
krata og alþýðusambandsins til
saman.
Gerhard þessi hefur myndað
ráð sex hópa nazista, og hafa
hópar þessir samtals á sinum
snærum 5000 virka félaga. Kallast
ráð þetta „Frjálslynda ráðið”.
Fjölmennastur nazistahópa
þeirra, sem aðild eiga að ráðinu,
er „Þýska þjóðsambandið”
skammst. DVU, en formaður
þesser einmitt Gerhard Frey. t
kosningum sem og oftar hefur
Gerhard hvatt fylgismenn sina til
þess að veita lið flokki Franz
Josef Straus, hægri flokknum
CSU.
Komið var i veg fyrir s.l. haust
að fjöldafundir nokkrir á vegum
DVU þ.e. ráðs Gerhards Freys
yrðu haldnir. Fundir þessir
skyldu bera keim kenningum
nazista og kynþáttastefnu. Var
það fyrir tilstilli DPi þ.e. Press-
dients Demokratische Initiative
að i veg fyrir fundi þessa var
komið. Frey og ráð hans hafa
m.a. efnt tÚ fundarhalda ásamt
með gömlum „hetjum” þriðja
rikis Adolfs Hitlers.
Einn nazistahópa þeirra er
aðild eiga að „Frjálslynda
ráðinu” er „Ungmenna-
hreyfingin Vikingur” þ.e.
Wiking-Jugend. Er hreyfing þessi
uppbyggðá sama hátt sem hin al-
ræmda æskulýðshreyfing nasista
á timum þriðja rikisins,
Hitler-Jugend. Fá ungmennin
,,kennslu”i „fræðum” nasismans
sem fyrrum. Þar tiðkast og
einkennisbúningar og likamleg
þjálfun ásamt fleiru. Wiking
Jugend hefur sem fyrirrennar-
arnir staðið fyrir uppþotum jafnt
sem ofbeldisaðgerðum. Aðrar
slíkar hreyfingar finnast og, t.d.
„Ungmennasamband ættjarðar-
vina”. Lofar sambandið væntan-
legum fylgismönnum, æfintýrum
og félagsskap, á sama hátt og
Hitlersæskan, á 4. áratugunum.
,,Þý zkir fram-
kvæmdamenn”.
„Baráttusamband
þýzkra hermanna”
o.s.frv., o.s.frv.
Einn forystumanna nýnazista
er lögfræðingurinn Manfred
Roeder fyrrum félagi i hægri-
flokki Josefs Straus CDU. Annar
er Erwin Schöiborn, en sá lofar
hverjum þeim er sannað geti að
einn einasti maður hafi verið
myrtur i gasklefum nazista 10.000
mörkum. Báðir hafa þeir undir
höndum mikið magn áróðursrita
ogá sinum snærum ofbeldismenn
nokkra gangandi um með járn-
stangir berjandi fólk jafnt með
járnstöngum sem með knýttum
hnefum.
Manfred Foeder er foringi
„Þýzkra framkvæmdamanna”,
svo nefnist enn eitt nazista-
félagið, Erwin Schönborn er aftur
á móti forystumaður „Baráttu-
sambands þýzkra hermanna”,
félagsskapur i likum dúr og Man-
freds.Félög þessier höfuðstöðvar
hafa i Munchen, munu eiga góð
samskipti við „Varðturnssveitina
HofEmann” i Niirnberg.
Vel vopnum búnir
1 sambandsrikinu Bayern eða
Bæjaralandi er lýtur stjórn
hægrif lokksi ils CSU getur
Karl-Heinz Hoffmann ótruflaður
sprangað um með lið sitt
„Baráttusamband þýzkra
hermanna” 20-30 manns.
Sambandið er vel vopnum búið,
undir höndum hafa liðsmenn þess
nýtizku striðstæki. Hópur þessi
ásamt fleiri slíkum hefur
marserað um heilsandi eða að
nazistasið. Nlaziskar kveðjur og
tákn eru bönnuð i lögum, en
enginn virðist láta sig það nokkru
skipta. Hoffmann og liðsveit hans
hafa ljáð lið sitt i götubardögum
og tekið þátt i svo kölluðum hús-
hreingerningum á fundum
vinstrimanna á sama hátt og
SA-sveitir Hitlers á 3. og 4. ára-
tugnum.
Hlutfall hakakrossmálninga
nazista hefur aukist. Mála þeir nú
hakakrossinn gleiðir á legsteina,
kirkjur, samkunduhúsgyðinga og
verzlanir. Vopnagey mslur
nazista hafa fundist auk lista yfir
þá sem hugmyndin er að rææna.
Þá fjö gar árásum á flokksskrif-
stofur og stjórnmálaflokka og
skrifstofur verkalýðsfélaga.
Vaxandi órói
Risisstjórnir sambandsrikj-
anna i Hamborg og Neðra-Sax-
landi gerast nú æ órólegri vegna
ört vaxandi ofbeldisaðgerða
nazista. Sömu sögu er að segja
um forystumenn trúarstofnana
jafnt kristinna sem gyðinglegra.
Upplag and-semitiskra (gyðingar
og frændur þeirra arabarar eru
semitar) rita vex og eru þau nú
jafnvel seld i sjoppum. Við þetta
bætist alda naziskra áhrifa i sölu-
varningi. Hitler hefur nú verið
gerður að „söluvöru” likt og Bitl-
arnir eða Abba. Þetta nota nýnaz-
istar sér að sjálfsögðu úti yztu
æsar.
Stjórnmálaflokkur nazista, oft
nefndur nýnazistaflokkurinn
NPD mun einungis hafa fengið
um 130.000 atkvæði i siðustu
kosningum (ibúatala
Vestur-Þýzkalands er um 60
milljónir). Mussgnug leiðtogi
flokksins, þess sem nú er nær
gjaldþrota pólitiskt séð, skýrir
hrakfarir flokksins i siðustu
kosningum með þvi að fyrrum
kjósendur hans hafi ákveðið að
veita flokki Franz Josef Straus
fylgi sitt þ.e. CDU/CSU.
Samkvæmt upplýsingum
vestur-þýsku leyniþjónustunnar
hefur æskulýðshreyfingu
NPD/JNÞ, þ.e. eina naziska
stjórnmálaflokksins aukist mjög
ásmegin upp á siðkastið. Muss-
gung forsprakki flokksins skýrir
vaxandi gengi æskulýðs-
hreyfingarinnar með tilliti til at-
vinnuleysisins.
Samtökin HIAG hafa innan
sinna vébanda 40.000 félaga. Aliir
eru þeir fyrrum SS-menn. í Nurn-
berg-réttarhöldunum 1946-1947
voru SS-sveitir Hitlers yfirlýstar
hrein ogbein glæpasamtök. Þrátt
fyrir yfirlýsingu þessa fá félagar
HIAG óáreittir komið saman á
svo kölluðum,,minningarfunaum”
A „minningarfundum” þessum
(menn geta án mikilla erfiðleika
gert sér i hugarlund hvers er þar
minnst) koma fram gamlir
SS-sveitungar klæddir með pomp
og prakt að naziskum sið. Meðal
SS-sveitunga þessara má og hitta
fyrir Hans Wissbach, en hann á
nú sæti ávestur-þýska s.ambands-
þinginu tyrir hönd hægriflokksins
CDU. Ræður hans á fundum
HIAG bera að sjálfsögðu keim
kenninga nýnazista.
Sú hefð, ef hefð skyldi kalla,
viðgengst innan vestur-þýzka
hersins að gráta ósigra en gleðj-
ast yfir sigrum nazista i siðari
heimsstyrjöldinni. Ein skýrsla
PDI þ.e. Pressedients Demokrat-
Frh. á 10. siðu
And-nazistar spyrna
vid fótum
i nokkrum stærri
borgum Vestur-Þýzka-
lands hafa þegar veriö
myndaöar and-nazískar
nefndir. Oft er það verka-
lýðshreyfingin á
viðkomandi stöðum er for-
göngu hefur haft um stofn-
um nefnda þessara.
Ein slík nefnd var stofn-
uð í febrúar s.l. í borginni
Hannover, höfuðborg
sambandsríkisins Nieder-
sachen (Neðra-Saxlandi)
En einmitt þar hafa nýnaz-
istar verið sérstaklega
„starf ssamir" upp á
síðkastíð. Sem dæmi má
nefna að í bænum Celle, i
Neðra-Saxlandi en þar búa
um 60 þúsund manns, er
útgefið eitt einasta dag-
blað og er það mjög svo
hliðhollt nýnazistum.
Stuðningur frá
verkalýðshreyfingunni
Deild vestur-þýzka alþýðusam-
bandsins i Hannover hefur i
boðskap sinum hvatt almenning
til þess að veita baráttunni gegn
nýnazistum stuðning sinn. I and-
nazistanefndinni i Hannover eru
m.a. leiðandi stjórnmálamenn
innan sósialdemókrataflokksins
vestur-þýzka, listamenn og lög-
fræðingar. Nefndin hefur m.a.
sönnunargögn er sanna að lög-
reglan hefur látið vera að stöðva
svokallaðar minningarstundir
nazista i miðborg Hannover þar
er nazistar hafa opinberlega
heilsao með nazistakveðju.
Notkun kveðjunnar er þó bönnuð
með lögum i Vestur-Þýzkalandi.
Eitt sinn er nazistar höfðu sett
upp bókaborð opinberlega þar
sem til sölu voru nazisk rit og
ritlingar hafði lögreglan neitað að
aðhafast nokkuð i málinu. Þrátt
fyrir að sala naziskra áróðurs-
bæklinga og hverskonar áróðurs
þeirra sé bönnuð með laga-
setningu. Lögregluvarðstjóri sá
er kvartað var við kvaðst ekki
vilja gera neitt i málinu þar eð
það gæti „skapað vandræði og
deilur milli hans og yfirmanna
hans innan lögreglunnar.”
Ef Pinichet er góður þá
hefur Hitler varla verið
miklu verri
Að áliti Egon Lutz, sá er þing-
maður sósialdemókrata i Bonn,
félagi i PDI (félagsskapur and-
naziskra rithöfunda og blaða-
manna) auk þess — að vera einn
helsti sérfræðingur sósialdemó-
krata i atvinnumálum, að áliti
hans, gefa hægri flokkarnir CDU
og csu, er að flestu leiti leika
lýðræðislegum leikreglum, þá er
þeir reyna að afla sér fylgis
meðal hægri sinnaðra kjósenda,
gefa þeir nazistumtýlliástæðu til
þess að fótumtroða leikreglur
lýðræðisins. Þetta mun Egon hafa
skrifað i formála skýrslu einnar
er PDI hefur útgefið um naz-
ismann.
Nazistar sem og aðrir hægriof-
stækismenn lita svo á að þá er
Franz Josef Strauss hægrileið-
toginn réttlætir kúgun og harð-
stjórn Pinochets sé engin ástæða
til annars fyrir þá sjálfa en að
gera tilraunir til þess að réttlæta
athafnir Hitlers og þriðja rikisins.