Alþýðublaðið - 11.04.1978, Page 7

Alþýðublaðið - 11.04.1978, Page 7
bKSö’ Þriðjudagur 11. apríl 1978 7 Brýn þörf að endurskoða lög um Fósturskóla íslands Fósturmenntun hefur verið veitt á íslandi sið- an 1946, er Bamavina- félagið Sumargjöf stofn- aði Uppeldisskóla Sumargjafar, sem siðar fékk nafnið Fóstmskóli Sumargjafar. Árið 1973 var skólinn gerður að rikisskóla undir nafninu Fósturskóli íslands. Fyrstu fóstrurnar brautskráðust árið 1948, aðeins 9 að tölu. Þrjátiu árum siðar s.l. vor brautskráðust 56 fóstr- ur. í skólanum eru i vet- ur 172 nemendur. í allt hafa brautskráðst 550 fóstrur. Fósturskóli ís- lands er til húsa i Skip- holti 37. Hlutverk Fósturskóia íslands: llögum um Fósturskóla Islands frá 1973 segir að hlutverk hans eigi að vera „að mennta fólk til uppeldisstarfa á hvers konar upp- eldisstofnunum fyrir börn frá fæðingu til 7 ára aldurs, svo sem vöggustofum, dagheimilum, vist- heimilum, leikskólum, forskóla- bekkjum barnaskóla og leikvöll- um.” Starfsvettvangur fóstrunnar er þvi mjög fjölbreytilegur og við- tækur, enda eru fóstrur eftirsóttir uppalendur á öllum barnaheimil- um, bæði fyrir heilbrigð börn og þroskaheft. Atvinnuhorfur fyrir fóstrumenntað fólk eru þvi fram- úrskarandi góðar, þvi að mikill fóstruskortur er enn i landinu. Núgildandi inntökuskil- yrði: Inntökuskilyrði i Fósturskóla Islands samkvæmt lögum skólans frá 1973 eru stúdentspróf eða gagnfræðapróf að viðbættu tveggja ára námi í framhalds- deild gagnfræðaskóla, eða öðrum sambærilegum skólum. Heimild er til þess að vikja frá þessum menntunarkröfum. Þessi heimild hefur verið notuð i nokkr- um tilfellum til þess að veita inn- töku fullorönu og þroskuðu fólki (25 ára ogeldri), sem unnið hefur um árabil við uppeldisstörf og hefur að mati skólanefndar næga undirstöðuþekkingu ogreynslu til þess að geta tileinkað sér náms- efni skólans. Skólinn er að sjálfsögðu opinn jafnt körlum sem konum, en hingað tilhafa karlmenn þvi mið- ur ekki stundað nám við skólann eins og tiðkast i vaxandi mæli á hinum Norðurlöndunum. Nám, námstimi og námstilhögun: Námstimi i skólanum er 3 ár. Námið er bæði bóklegt og verk- legt. Verklega námið er um 1/3 af öllu námstimabilinu. Bóklega námiðskiptist i upp- eldis- og sálfræðigreinar, félags- greinar, list- og verkgreinar, móðurmálsgreinar og náttúru- og heilsufræðigreinar. Kennslan byggist á þvi, að nemendur hafi raunhæfan áhuga á uppeldisstörfum, geti lesið Norðurlandamálin (aðallega dönsku og norsku), helst einnig ensku, og hafi þroska til að vinna sjálfstætt. Kennarar reifa kennsluefnið, aðallega i fyrirlestrum eða i sam- ræðum við nemendur. Nemendur fá siðan margvisleg verkefni til umfjöllunar og úrlausnar, ýmist einstaklingsverkefni eða hóp- verkefni. Verklegt nám fer fram aðal- lega á dagvistarheimilum i Reykjavik og i stærri kaupstöðum úti á landi. Nemendur taka virkan þátt i starfsemi heimilanna undir hand- leiðslu fóstru og undir eftirliti og leiðsögn verknámskennara frá Fósturskólanum. Fá nemendur einnig ýmiss konar raunhæf verk- efni til athugunar og Urlausnar i sambandi við starfið á dagvistar- heimilunum til þess m.a. að tengja verklegu kennsluna sem bezt bóknáminu eða hinu fræði- legu námi. Menntun og staða fóstr- unnar i framtiðinni. Brýn þörf er á að endurskoða inntökuskilyrði i Fósturskóla Is- lands og reyndar lögin frá 1973 i heild, þareð skólakerfið, sem þau byggðustá, hefur tekið gagngjör- um stakkaskiptum eftir gildis- töku grunnskólalaganna. Þessi endurskoðun getur þó ekki farið fram fyrr en frumvarp til laga um samræmdan framhaldsskóla hefur verið afgreitt. Kennarar og skólastjóri Fóst- urskóla tslands telja það eðlilega þróun, að 4 ára framhaldsskóla- menntun veröi inntökuskilyrði i Fósturskólann strax og slikir skólar verða starfræktir. Við telj- um fráleitt, aö fósturmenntun farifram hingað og þangað i skól- um fyrir óþroskaða og óráðna unglinga á aldrinum 16-19 ára eins og lagt er til i greinargerð þeirri, er fylgir frumvarpinu um samræmdan framhaldsskóla, sem lagt var fyrir Alþingi i fyrra. Við álitum, að fósturmenntun eigi að vera sémám sem fari fram i sérskóla eins og Fósturskóla ts- lands eða/og i sérdeild við Kennaraháskóla tslands svo að farið sé að dæmi Norðmanna. Að lokum vil ég leggja áherzlu á þá stefnu, sem mörkuð hefur verið á ráðstefnum á vegum Evrópuráðs varðandi menntun og stöðu fóstrunnar (i Feneyjum 1971, Leyden 1973, Versailles 1975 og Bournemouth 1977). A þessum ráöstefnum hefur þeirri áskomn verið beint til aöildarrikjanna, að þau stuðli að þvi. 1) að vandað verði sérstaklega til inntöku neinenda i fósturskóla, bæði hvað snertir undirbún- ingsmenntun og alntennan andlegan þroska. 2) að gerðar verði santbærilegar menntunarkröfur til fóstru og kennara á grunnskólastigi. 3) að fósrur njóti söntu starfs. kjara og þjóðfélagsstöðu og kennarar Með þessa stefnumörkun að leiðarljósi vonast ég til að fóstur- menntun á Islandi verði byggð upp i framtiðinni. Valborg Sigurðardóttir skólastjori

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.