Alþýðublaðið - 14.04.1978, Blaðsíða 7
sssr Föstudagur 14. apríl 1978
7
1 '
Heftið ekki sköpunar-
gleði barnsins
Foreldrar og aðrir uppalendur
ættu að sjá um að barnið hafi
nógan efnivið til skapandi starfs
og varast að eyðileggja
sköpunargleði þess, (barns-
ins ) með þvi aö gagnrýna
verk þess með þvi að tala um
hvernig þetta „eigi” að vera.
Hestar eru ekki bláir, fólk hefur
ekki marga fætur o.s.frv. Slik
gagnrýni getur dregið úr kjarki
barnsins og trúnni á eigin getu.
Sem dæmi um efni sem veita
barninu mikla möguleika á að tjá
sig i skapandi starfi má nefna:
sand, leir, vatn og ýmis konar liti.
Þessi efniviður er aðgengilegur
og barnið uppgötvar eiginleika
hans. Það vinnur einnig meö
pappir, garn, efnisafganga, deig
og pappamassa. Barnið fær að
sauma, vefa, klippa, lima, smiða
og mála. Ymislegt má nota sem
hægt er að finna úti i náttúrunni
t.d. skeljar, steina, lauf, fræ
og ber.
Þaö er mjög mismunandi
hvernig hinir ýmsu aldurshópar
nota efniviðinn. Yngstu börnin
eru ánægð að fá að kynnast
honum, koma við, þreifa á,
kreista, klipa og smakka.
Snertingin við efnið er aðal-
atriðið. Stærri börnin ráða yfir
fingerðari hreyfingum, meiri ein-
beitingu og úthaldi. Þau nota
imyndunaraflið og hafa oft
ákveðið markmið i huga i
sköpunarstarfi sinu. Uppalendur
verða að reyna að skilja og virða
athafnaþrá barnsins og beina
henni á þá leið sem vænlegust er
til þess að það vaxi upp sem sjálf-
stæður einstaklingur með jákvætt
viðhorf til lifsins.
Heftið ekki sköpunargleði
barnsins. Virðið rétt barnsins til
þess að skapa að eigin vild, a-u
hvatningarorð frá fóstrum i
þessari grein.
' .. ................................................... ............ 1 ....................................................
hópinn i vélinni. „Þarna voru
minnst 150 sovéskir hermenn i
herklæðum”, sagði hann. „Ég
hélt að við værum á leið i strið”.
En barist er á fleiri stöðum en i
suðurhlutanum. 1 hinu auðuga
héraði Cabinda er nú sögð
„mannfrek barátta”. Þar munu
vera yfir 4000 kúbanskir hermenn
til að verja eigur ameriska auð-
hringsins Gulf Oil(!)gegn árás-
um skæruliða frelsishreyfinga.
Bann
Hvað eftir annað staðhæfir
Neto-stjórnin i Luanda að borg-
arastyrjöldin myndi vinnast á
augabragði — ef ekki kæmi til
aöstoð erlendra rikja við UNITA.
Þar er UNITA fjrst og fremst
sökuð um að þiggja stuðning frá
Suður-Afriku, Vestur-Þýzkalandi
og Frakklandi.
En svo einfalt er málið ekki.
Frelsishreyfing dr. Savimbis hef-
ur traustar rætur meðal
ovimbundu-manna og i her
UNITA erua.m.k. 8.000 manns og
á hennar valdi eru geysistór
landssvæði.
Þá herma fregnir að i Angóla
eigi stjórnin einnig i höggi við
liðsmenn FNLA, frelsishreyfing-
ar sem Holden Roberto leiðir.
Talið er að báðar þessar hreyf-
ingar gætu auðveldlega sent lið
inn i höfuðborgina, Luanda, til að
skapa þar ringulreið. Stjórnin er
við öllu búin og hefur mjög
strangt útgöngubann i Luanda —
nokkuð sem minnir á að þriðja
frelsisstrið Angóla er i fullum
gangi.
Neto, sem haldið er uppi af
Sovétrikjunum og Kúbu, mun
varla tapa landinu á næstunni i
hendur frelsishreyfingana. En
spurningin er: getur hann heldur
unnið striðið gegn þeim, munu
Sovétmenn þrýsta á um sigur yfir
„uppreisnarmönnum” eða mun
Neto ákveða að fara fram á
samningaviöræður við Savimbi —
sem myndi örugglega ekki verða
þegið af UNITA nema að þvi til-
skyldu að Sovétmenn og Kúba'nir
snautuðu heim frá Angóla.
(Endursagt eftir Per Nyhom,
fréttaritara Aktúelt f Luanda,
Angóla)
Alþýduflokknum
Alþýðuflokkurinn er að hefja sókn til að auka félagatölu
slna og þar með styrk og fjárhagslegt sjálfstæði flokksins.
Lýðræðið er ekki aðeins ókeypis hlunnindi. Það kallar á
virka þátttöku þeirra, sem vilja hagnýta það til áhrifa á
landsstjórn og mótun þjóðfélagsins.
Gert hefur verið sérstakt skráningarkort fyrir nýja
félaga I flokknum. Það gildir jafnt fyrir flokksfélög, kven-
félög og félög ungra jafnaðarmanna. Þessi spjöld hafa
verið send formönnum allra flokksfélaga um land allt.
Þeir, sem vilja hjáipa til að safna nýjum félögum, geta
fengið spjöldin hjá formönnum eða skrifstofum flokksins.
A efri hluta kortsins er skráð nafn hins nýja félaga og
það félag, sem hann gengur I. Þar er undirskrift formanns
þess, og þennan hiuta fær hinn nýi félagi sem skirteini.
Jafnframt greiðir hann 1.000 krónu félagsgjald.
A neðri hluta spjaldsins eru skráðar frekari upplýsing-
ar, áritun hins nýja félaga og tveggja meðmælenda. Þessi
hluti fer I spjal'dskrár viðkomandi félags. Allir þeir, sem
vilja efla Alþýðuflokkinn á raunhæfan hátt, eiga að litvega
sér spjöld og safna nýjum féiögum. Það er það, sem gildir.
Alþýðuflokkurinn er flokkur
okkar tíma
Gerizt virkir félagar
SKAPANDI
Öllum börnum er það
nauðsynlegt að tjá sig á
einn eða annan hátt.
Rannsöknarhvöt og
starfsþrá leiðir barnið
til þess að kanna um-
hverfi sitt og afla sér
þekkingar á hlutum og
fólki. Fjölbreytt og
örvandi umhverfi eykur
þroskamöguleika
barnsins en fábreytt og
einhæft umhverfi dregur
úr þeim.
t>ess vegna þarf að
búa svo í haginn fyrir
barnið að það öðlist sem
fjölbreyttasta reynslu.
Barnið þarfnast ástúð-
ar, festu og reglu. i
Foreldrar og aðrir |
uppalendur verða að
þekkja þarfir barnsins
og stuðla að þvi að það
fái athafnaþörf sinni
fullnægt.
Hrósið barninu fyrir
verk sin.
Nauðsynlegt er að barnið fái
uppörvunogstuðningt.d. með þvi
að hrósa þvi fyrir myndina sem
það var að lita eða eitthvað sem
þaðvill sýnaaðþað geti. Viðslika
jákvæða afstöðu vex öryggis-
tilfinning barnsins. Það öðlast
fremur trú á getu sina og verður
sjálfstæðara.
Barnið er ávallt að
skapa.
Á dagvistarheimilum er reynt
að sjá til þess að barnið þroskist á
jákvæðan hátt i leik og skapandi
starfi.
Þegar talað er um skapandi
starf, er erfitt að draga mörk.
Barnið er ávallt að skapa
eitthvað, einungis á mismunandi
hátt. Þegar barnið byggir úr
kubbum, myndar ný orð og leyfir
imyndunaraflinu að leika þá er
það að skapa. Þegar það teiknar,
málar, mótar i leir eða saumar er
það einnig að skapa.
Fyrir barn undir skólaaldri er
þaðathöfnin sjálf sem hefur gildi
en ekki árangurinn. Barnið
þroskar með sér ýmsa eiginleika
og öðlast nýja reynslu.
Hugkvæmni þess og imyndunar-
afl eykst. Barnið öðlast meiri
þekkingu og upplifir gleði og
ánægju i félagsskap annarra. Það
fær tiifinningalega útrás og
losnar við innri spennu. Frum-
kvæði og sjálfstraust eykst. Smá
saman vex einnig skilningur þess
á orsök og afleiðingu.