Alþýðublaðið - 19.04.1978, Page 4
4
sSSwAu1
Miðvikudagur 19. apríl 1978
(Jtgefandi: Alþýöuflokkurinn.
Rekstur: Reykjaprent h.f. Ritstjóri og ábyrgöarmaöur: Árni Gunnarsson. Fréttastjdri: Éinar Sigurös-
son. Aðsetur ritstjdrnar er i Siðumúla 11, sfmi 81866. Kvöldsimi fíéttavaktar: 81976. Auglýsingadeild,
Alþýöuhúsinu Hverfisgötu 10 —simi 14906. Áskriftar- og kvartanasimi: 14900. Prentun: Blaöaprent h.f.
Áskriftaverö 2000 krónur á mánuöi og 100 krdnur I lausasölu
Tvær ólíkar ríkisstjórnir
Morgunblaðið og
Tíminn hafa undanfarna
daga skýrt nákvæmlega
frá ýmsum þeim efna-
hagsráðstofnunum, sem
norska ríkisstjórnin
hefur gripið til vegna
hættu á vaxandi verð-
bólgu og atvinnuleysi.
Blöðin tvö hafa lagt á það
áherzlu, að rauntekjur
launþega muni ekki
aukast næstu árin og að
opinber útgjöld verði
skorin niður.
Siðan hafa stjórnar-
blöðin borið saman
starfshætti íslenzkrar
verkalýðshreyf ingar,
sem nú reynir að endur-
heimta þær kjarabætur,
sem af henni voru teknar
með lagaboði, og afstöðu
norsku verkalýðshreyf-
ingarinnar til efnahags-
ráðstafana norsku ríkis-
stjórnarinnar.
Blöðin tvö láta þess að
engu getið, að
kaupmáttur launaverka-
manns í Noregi er mun
meiri en hér á landi, og að
laun hans eru auk þess
hærri. Viljandi gleyma
Morgunblaðið og Tíminn
aðalatriði málsins. I
Noregi er við völd stjórn
Verkamannaf lokksins.
Það er því sjálf verka-
lýðshreyfingin, sem
tekur ákvörðun um þær
aðgerðir er gripið hefur
verið til.
Síðustu mánuði hafa
verið nær daglegir f undir
forystu norska Alþýðu-
sambandsins og ríkis-
st jórnarinnar. Norski
forsætisráðherrann,
Odvar Nordli, og forseti
Alþýðusambands Noregs,
Tor Halvorsen, hafa
haft forystu um þær
efnahagsaðgerðir, er ís-
lenzku st jórnarblöðin
hafa sagt frá. Norska
ríkisstjórnin og verka-
lýðshreyf íngin eru
greinar af sama meiði.
Þessa staðreypd mættu
stjórnarf lokkarnir og
kjósendur þeirra gera sér
Ijósa. Hér skilur á milli
feigs og ófeigs: íslenzku
ríkisstjórnarinnar, sem
engin tengsl hefur við
verkalýðshreyf inguna,
og norsku ríkisstjórnar-
innar, sem á rætur í
verkalýðshreyf ingunni.
Aðgerðir norsku
stjórnarinnar eru ekki
mælikvarði á ,,ábyrgðar-
leysi" íslenzkrar verka-
lýðshreyfingar. Þær eru
miklu f remur mælikvarði
á getuleysi íslenzku rikis-
stjórnarinnar, sem ekki
hefur borið gæfu til að
leita samráðs eða sam-
vinnu við verkalýðs-
hreyfinguna í stjórnartíð
sinni. Lausn norskra
efnahagsvandamála
byggist á nánu samstarfi
ríkisstjórnar og laun-
þega. Vandinn í
íslenzkum efnahags-
málum stafar meðal
annars af sambandsleysi
rikisstjórnar við þegna-
ana.
Glæpaverk öfgahópa
Glæpamenn og öfga-
fullir hópar ungs fólks,
sem hefur mótað lífs-
skoðanir sínar sam-
kvæmt kommúnískum
fræðum, fremja nú
glæpaverk víða um heim,
er vekja viðbjóð og hryll-
ing,- Alda hryðjuverka,
mannrána og morða
gengur yfir Vestur-
Evrópu og ógnar sam-
félagi manna.
Til eru þeir, sem mæla
þessum glæpaverkum
bót: segja þau þátt í
auðvaldsskipulaginu. —
Staðreyndin er hins vegar
sú, að öfgar og óhæfu-
verk af þvi tagi, sem
heimurinn hefur orðið
vitni að að undanförnu,
eru aðeins til þess fallin
að veikja lýðræðisskipu-
lagið. Ofbeldi hvetur til
ofbeldis, kröfur um meiri
áhrif lögreglu og hers
verða háværari og and-
stæðir öfgahópar vaða
uppi. Lög og regla í anda
lýðræðis getur á
skömmum tíma snúist í
ofurvald stjórnenda lög-
regluríkis.
Það er engin fásinna að
hvetja Islendinga til að
vera á varðbergi gagn-
vart hverskonar öfga-
hópum til hægri og
vinstri. Leiðin til betra
þjóðfélags liggurekki um
blóðdrifnar götur og of-
beldi flýtir ekki fyrir.
Ofbeldis- og glæpaverk
fámennra hópa öfga-
manna eru af sama toga
spunnin og ógnarstjórn -
Idi Amins í Uganda og
, herforingjanna í Suður-
Ameríku. Verk þeirra
sýna og sanna hversu
skammt maðurinn er
kominn á þroskabraut
sinni, hversu örðugt
uppdráttar hún á, hug-
sjónin um frelsi, jafnrétti
og bræðralag.
—AG
Tekst að koma á staðgreiðslu skatta um
IISDCtll — ekki eru allir jafnbjartsýnir á það þótt frumvarp
IICC9III €Mm CllllUI ■ stjórnarirmar verði að lögum
Svo scm frá var skýrt i Alþýöu-
blaöinu i gær, lagði fjármálaráö-
herra fram skattalagafrumvörp
sin á mánudagskvöldið. Annars
vegar lagði hann fram frumvarp
til laga um tekjuskatt og eigna-
skatt og hins vcgar frumvarp um
staðgreiðslu opinberra gjalda.
Frumvarpiö um tekju- og
eignaskatt er að siofni til byggt á
frumvarpi til laga um tekjuskatt
og eignaskatt sem flutt var á
siðasta þingi, en náði ekki af-
greiðslu. Hafa siðan veriö gerðar
margvislegar breytingar á frum-
varpinu á grundvelli þeirra um-
ræðna og athugasemda sem
gerðar voru við frumvarpið sem
flutt var i fyrra.
Helstu stefnubreytingar frá
gildandi tekjuskattslögum sem i
frumvarpinu felast eru:
1. Frádráttarliðum frá tekjum
manna utan atvinnurekstrar ér
fækkað verulega og skatt-
aðilum heimilað að eigin vali
að nota fastan frádrátt, sem er
ákveðinn hundraðshluti af
launatekjum, i staö frádráttar
vegna iðgjalda af lifeyri,
iðgjalda til stéttarfélaga,
vaxtagjalda og gjafa til
menningarmála. Að þessu leyti
er frumvarp þetta þvi verulega
frábrugðið frumvarpinu i fyrra
en þar var lagt til að flestir frá-
dráttarliðir væru felldir niður
með öllu eða þeim breytt i af-
slátt frá skatti.
2. Aðferð við skattlagningu hjóna
er breytt. Tekin er upp tak-
mörkuð sérsköttun hjóna með
heimild til millifærslu þess
hluta persónuafsláttar sem
öðru hjóna nýtist ekki yfir til
hins hjóna. Sérstakur frá-
dráttur gildandi laga vegna
launatekna giftrar konu er
felldur niður. Skattstigi og
persónuafsláttur er hinn sami
fyrir alla menn án tillits til hjú-
skaparstöðu þeirra. Barna-
bótum er skipt til helminga
milli hjóna.
3. Skattmeðferð einstaklinga,
sem fást við atvinnurekstur, er
breytt verulega. Rekstrarút-
gjöld atvinnurekstrar og þar
með tap af slikum rekstri yrði
samkvæmt frumvarpinu ekki
frádráttarbært frá öðrum
tekjum mannsins. Hann gæti
þannig t.d. ekki nýtt fyrningar i
atvinnurekstri sinum til að
firrasig skattgreiðslu af launa-
tekjum sem hann kann að hafa.
Aðauki gerir frumvarpið ráð
fyrir þeirri breytingu frá gild-
andi lögum, að maður, sem
stundar atvinnurekstur i eigin
nafni eða sjálfstæða starfsemi,
verði án tillits til afkomu
rekstrarins skattlagður eins og
honum væru greidd laun frá
öðrum. Er með þessum hætti
stigið skref til aðgreiningar á
atvinnurekstrinum sjálfum og
þeim sem hann rekur.
4. Veruleg breyting er ráðgerð á
fyrningarreglum og reglum um
skattlagningu söluhagnaðar.
Að þvi er varðar fyrningar
munar mest um þá ráðgerðu
breytingu að' reikna fyrningar
af endurmatsverði með lægri
hundraðshlutum en samkvæmt
gildandi lögum. Endurmatið er
byggt á breytingum á visitölu
byggingarkostnaðar og reikn-
ast eins fyrir allar eignir.
Fyrningarákvæðum frum-
varpsins er ætlað að koma i
stað fjölmargra fyrningar-
ákvæða gildandi laga, þ.á.m.
verðstuðulsfyrninga. Þá eru i
frumvarpinu ákvæði um
skerðingu fyrninga þegar f jár-
mögnun fyrnanlegra eigna
byggist að nokkru eða öllu á
lánsfé.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
söluhagnaður verði alltaf
skattskyldur án tillits til
eignarhaldstima, en við
ákvörðun söluhagnaðar er
upphaflegt kaup- eða kostn-
aðarverð framreiknað til sölu-
árs eftir verðbreytingarstuðli.
Hagnaður af sölu ibúðarhús-
næðis verður þó áfram skatt-
frjáls eftir ákveðinn eignar-
haldstima. Söluhagnaður sam-
kvæmt gildandi lögum er yfir-
leitt skattfrjáls eftir tiltekinn
eignarhaldstima.
Breytingum á fyrninga- og
söluhagnaðarreglum er m.a.
ætlað að koma i veg fyrir að
unnt sé að skapa nýjan
fyrningargrunn með kaupum
og skattfrjálsri sölu eigna eftir
tiltekinn tima með mála-
myndagerningum milli aðila.
5. t þeim köflum laganna sem
fjalla um framkvæmd skatt-
lagningar og viðurlög eru
gerðar nokkrar veigamiklar
breytingar. Framlagningu
skattskrár er seinkað þar til
meginhluti úrskurða skatt-
stjóra um kærur hefur farið
fram, þannig að skattskrá
verði réttari en sú frumskatt-
skrá sem lögð er fram sam-
kvæmt gildandi lögum.
Rikisskattanefnd er breytt
samkvæmt frumvarpinu i
fastan úrskurðaraðila, eins
konar skattadómstól þriggja
manna sem ætlað er að hafa
setu i nefndinni að aðalstarfi.
Loks eru viðurlög við skatt-
svikum samkvæmt frum-
varpinu verulega þyngd, t.d.
ákveðin há sektamörk. Veiga-
mesta stefnubreytingin i þessu
efni er þó að heimilað er, við
i'trekuð brot eða miklar sakir,
að dæma auk sektar varðhald
eða fangelsi allt að 6 árum eins
og nú gildir um þjófnað, fjár-
drátt og önnur auðgunarbrot
samkvæmt almennum
hegningarlögum.
Ætlast er til að frumvarpið öðl-
ist gildi þann 1. jan. 1979 og koma
til framkvæmda við álagningu á
tekjur og eignir þess árs á árinu
1980.
Framhald á 14. siðu
t mm * '
* 4 % V*