Alþýðublaðið - 19.04.1978, Síða 7
sss- Miðvikudagur 19. apríl 1978
7
Sumarstarf á vegum
Reykjavíkurborgar
fyrir börn og unglinga
Reykjavikurborg
boðaði til blaðamanna-
fundar i gær til að kynna
sumarstarfið fyrir börn
og unglinga þetta árið.
Það er með svipuðu
sniði og verið hefur
undanfarin ár. Einu
nýjungarnar eru þær að
haldin verða dagnám-
skeiði siglingum i Naut-
hólsvik og opnaðir verða
starfsvellir á barna-
skóla völlunum við
nokkra barnaskóla
borgarinnar. Þar gefst
börnunum m.a. tækifæri
til að föndra og smiða.
Þegar skólanum lýkur ávorin,
vantar börnin sem dvelja i borg-
inni yfir sumartimann, eitthvað
til að stytta sér stundirnar við.
Borgin býður upp á þó nokkuð
fjölbreytta starfssemi s.s.
siglinganámskeið, reiðnámskeið,
sundnámskeið, iþrótta- og leikj-
anámskeið, svo eitthvað sé nefnt.
Námskeiðaformið virðist vera
mjög heppilegt form fyrir starf- -
semina og eftir að skipulagningin
varð fastari i sniðum, nýtist
starfiðmunbetur bæði fyrir þátt-
takendur og stjórnendur nám-
skeiðanna.
Börnunum er boðið upp á
kynnisferðir út i sveit, svoeru
Skólagarðarnir með sína starf-
semi eins og undanfarin sumur og
Vinnuskólinn tekur við eldri
börnunum i unglingavinnuna. Þá
mun einnig verða haldið uppi
skemmtunum fyrir unglingana
t.d. diskótek á föstudagskvöldum,
að Bústöðum og i Fellahelli.
Starfsemi borgarinnar nær til
barna allt frá tveggja ára aldri og
uppi 14 ára, en litið til þeirra sem
eldri eru. Reiknað ermeð að það
fólk sé komið út á almennan
vinnumarkað. Það er oft erfitt
fyrir þessa krakka að fá vinnu
yfir sumartimann, sérstaklega
fyrir stelpurnar. Einhvern veginn
rætistþó úr og endar yfirleitt með
þvi að allir fá eitthvað að gera.
Þátttakan í sumarstarfinu-
hefur verið mjög góð undanfarin
ár og ekki ástæða til að ætla
annað en svo muni einnig verða í
þetta sinn. Borgin gefur út bæk-
ling um sumarstarfið, og verður
honum dreift i skólana á höfuð-
borgarsvæðinu i dag. Þar eru
nánari upplýsingar um nám-
skeiðin, á hvaða tima þau verða,
kostnað og þvi um likt, en inn-
ritun i sumarstarfið hefst 2. mai.
Það er mjög heppilegt að for-
eldrar innriti börn sin sem fyrst.
E.I.
List þeirra sem
standa höllum
fæti á einnig
erindi til okkar
— sérstæð sýning á Lauga-
vegi 42 á Sumardaginn fyrsta
í Sumardaginn fyrsta verður
lialdin listsýningað Laugavegi 42,
þriðjuhæð. Sýningin opnar kl.
15:00 og stendur aðeins yfir þenn-
an eina dag. Um kvöldið kl. 20:30
verða einnig flutt þarna frum-
samin Ijóð og leikið á ýmis hljoð-
færi. Að sýningunni stendur hop-
ur sem kallar sig RAWA.
Ahugamenn um list hafa mynd-
að hóp sem þeir kalla RAWA
(Reanissance Artists and Writers
Association). Hópurinn var
myndaður að erlendri fyrirmynd,
en slikir hópar munu vera starf-
andi i Þýzkalandi, Hollandi, Ind-
landi, Astraliu og viðar. Markmið
þessara hópa er að gefa öllum
möguleika til að koma list sinni á
framfæri, sérstaklega þeim sem
einhverra hluta vegna standa
höllum fæti i samkeppninni t.d.
vegna fjárskorts. Það kostar sitt
að koma upp sýningu á verkum
sinum hér á íslandi sem annars
staðar, og vill RAWA með sýn-
ingu sinni á Sumardaginn fýrsta
Mumð •
alþjóðlegt
hjálparstarf
Rauóa
krossins.
RAUÐI KROSS tSI.ANDS
gefa áhuga- og listamönnum
tækifæri til að kynna þar list sina
fyrir almenningi.
Guðrún ösp er ein þeirra sem
tekur þátt i sýningu þessari en
hún er búin að fást við að mála I
20 ár. Guðrún er mikill náttúru-
unnandi og þykir gaman að mála
myndirúr þjóðlifinu ogmyndir af
horfnum búskaparháttum. Hún
málaði mikið af náttúrumyhdum i
fyrstu en lenti siðan i slysi sem
hefur gert það að verkum að ferð-
irnar út i náttúruna urðu erfiðari
viöureignar.Þáfórhún að mála á
silki og málar hún bæði eftir tón-
list og ljóðum, sinum eigin og
annarra skálda s.s. Hannesar
Hafstein og Einars Ben. Ljóðin
fylgja myndunum á sýningunni.
Myndir Guðrúnar eru yfirleitt
náttúrumyndir þar sem hlfinn-
ingin fyrir náttúrunni og landinu
kemur sterklega i ljós. Sjálf segir
Guðrún: „Stærsta áhugamál mitt
er verndun islenzkunnar, ég
safna sjálf islenzkum orðum og
tala við herrana sem vinna að
Orðabók Háskólans, i svo til
hverri viku. Þeir eru svo
skemmtilegir og fróðir. það er
andleg hressing að tala við þá.
Það sem ég elska heitast er ts-
land, islenzk tunga og allt sem
islenzkt er”.
Meðfylgjandi myndir eru af
verkum Guðrúnar.
E.I.
33. leikvika —leikir 15. april 1978
Vinningsröð: 1 1 X- 12 2'— 2X1 — 1X1 —
1. vinningur: 10 réttir — kr. 31.000.-
79 6000 31087 33002 33584 40736
166 6497 32142 33145(2/10) 40075 40921
1363 8738 32211 33374(2/10) 40188(2/10) 41145
4065 9214 32649 33462 40429(2/10) 41257
4931 31026 32972 33580 40630 41273
2. vinningur fellur niður, þar sem vinningsupphæð á röð
með 9 réttum féll niður fyrir lágifiarksvinning. Vinningsupphæð-
inni er jafnað á raðir með 10 réttum.
Kærufrestur er til 8. mal kl. 12 á liádegi. Kærur skulu vera
skriflegar Kærueyðublöö fást hjá umboösmönnum og aðalskrif-
stofunni. Vinningsupphæðir geta lækkað, er kærur verða teknar
til greina.
GETRAUNIR — 1 þróttamiðstööin — REYKJAVIK
Vornóttin kallar vinina aila,
voldug er orka hins komandi lifs
Hundasýning
í haust
Þann 1. april s.l. var aðalfundur
Hundaræktarfélags íslands hald-
inn i Tjarnarbúð. Þar var lýst yfir
stuðningi við varnarorð yfirdýra-
læknis um hættu þá sem stafar af
óleyfilegum innflutningi hunda til
landsins. 1 ráði er að hefja útgáfu
fréttabréfs til félagsmanna um
ýmis mál er varða hundaeigend-
ur, s.s. heilbrigðismál o.fl. Einnig
hyggst félagið halda hundasýn-
ingu i haust.
Markmið félagsins er að stuðla
að hreinræktun þeirra hunda-
kynja sem til eru i landinu. 1
félaginu eru 59 manns og formað-
ur þess er Guðrún Sveinsdóttir.
Nýtt söng-
lagahefti
eftir Sigurd
Águstsson
Út er komið sönglagahefti sem
nefnist „Sönglög 1” og er eftir
Sigurð Agústsson i Birtingarholti.
1 hefti þessu eru 20 lög, 18 ein-
söngslög og 2 tvisöngslög. Fyrir-
hugað er að gefa út annað söng-
lagahefti með lögum eftir Sigurð
„Sönglög 2”. Það eru lög fyrir
samkóra og karlakóra og kemur
það væntanlega út næsta haust.
„Sönglög 1” er til sölu i bóka-
verzlunum i flestum kaupstöðum
landsins. t Reykjavik fæst það hjá
Islenzkri Tónverkamiðstöð, Lauf-
ásvegi 40.
Getraunaspá Alþýdubladsins:
Kr. 100
© The Football League
Hæsti
vinningur
vannst á
10 rétta
Lolklr 22. april 1978
Blrmingham - Man. City
Chelsea - Wolves.......
Coventry - Nott'm Forest
Derby - Lelcester ..
Ipswlch - Bristol Clty
Leeds - Arsenal .....
Llverpool - Norwlch .,
Man. Utd. - West Ham
Middlesbro - Everton
Newcastle - Q.P.R. .
W.BA. - Aston Vllla .
Luton - Southampton
i siðustu leikviku fékk enginn 12 rétta og tieiaur
enginn 11 rétta. Hins vegar voru 34 raðir með 10
rétta Vinningur fyrir hverja röð voru 31.000 krónur.
Sérfræðingur Alþýtublaðsins fékk aðeins 6 rétta
og hefur hann fengið miklar ákúrur fyrir. Hann
hefur nú stundað sjálfsgagnrýni um skeið og hyggst
bæta ráð sitt. Enda ekki seinna að vænna/ því nú eru
aðeins tvær leikvikur eftir.
Birmingham-Manchester City.
Birmingham hefur staðið sig með ágætum undanfarið en samt
sem áður getur sérfræðingur vor ekki setið á sér að spá liðinu
tapi. Útisigur.
Chelsea-Wolves.
Skyndilega er Wolves komið i mikla fallhættu. West Ham og
QPR sem hingað til hafa barizt mikilli innbyrðis baráttu um að
lenda ekki i 34ieðstasætinu vinna nú hvern leikinn á fætur öðrum
og skyndilega situr Wolves á botninum með Leicester og
Newcastle. Auk annars leikur liðið illa og á þvi skilið að falla.
Heimasigur
Coventry-Nottingham Forest
Þetta verður leikur vikunnar. Forest er nú svo gott sem búið
að sigra i 1. deildarkeppninni. Leikmennirnir eru þvi ef til vili
með kærulausasta móti. Auk þess er lið Coventry með mjög
sterktlið. Viðspáum þvi jafntefli en útisigri til vara. (Fyrsti tvö-
faldi leikurinn)
Derby- Leicester.
Leicesterer þegarfallið i aðra deild. Leikmenn eru þvi áhuga-
lausir og Derby innbyrðir auðtekin stig. Heimasigur.
Ipswich-Bristol City.
Þessi leikur er mjög tvisýnn, flest bendir þó til jafnteflis. Þetta
veiðurkennir sérfræðingur vor fúslega en hann sættir sig ekki við
að gefa Bristol liðinu stig. Heimasigur.
Leeds-Arsenal.
Arsenal leikur nú beztu knattspyrnuna i Englandi Leeds er
einnig sterkt lið, sérstaklega á heimavelii og er erfitt að hirða
stig af liðinu þar. Við spáum þvi útisigri en jafntefli til vara.
(Annar tvöfaldi leikurinn)
Liverpool-Norwich.
Arangur Norwich á útivelli er ótrúlega lélegur. Liverpool bérst
nú fyrir að ná öðru sætinu i deildakeppninni en það veitir liðinu
rétt til að leika i Evrópukeppninni. Allt stefnir i öruggan heima-
sigur.
Manchester United-West Ham.
West Ham hefur verið i miklum ham (Ham) undanfarið og
hefur liklega bjargað sér frá falli. Liðið er þvi til alls liklegt og
við spáum útisigri en jafntefli til vara. (Þriðji tvöfaldi leikurinn)
Middlesbro-Everton.
Þessi leikur er erfiður. Middlesbro er ekki auðunnið lið á
heimavelli og Everton hefur heldur fatast flugið. Samt gerumst
vér svo djarfir að spá útisigri.
Newcastle-QPR.
Newcastle er þegar fallið i aðra deild. QPR hefur leikið vel að
undanförnu og halað inn stig. Við spáum útisigri.
WBA-Aston Villa
Getraunasérfræðingur voru spáir WBA sigri i þessum leik með
grátstafinn i kverkunum, þvi eins og kunnugt er er hann mikill
Villa-aðdáandi. Rétt svona til málamynd spáir hann jafntefli til
vara. (Fjórði og siðasti tvöfaldi leikurinn)
Luton-Southampton.
Southampton má helst ekki tapa þessum leik vilji liðið vera
öruggt um sæti i fyrstu deild að ári, þvi Brighton fylgir fast á eft-
ir. Luton er sterkt lið og við spáum þvi að liðið nái að krækja i
annað stigið. Jafntefli. —ATA
Starf íþróttafulltrúa
Starf iþróttafullrúa Siglufjarðarkaupstað-
ar er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur
er til 1. mai n.k. Laun samkvæmt launafl.
S.M.S. Æskilegt er að umsækjandi hafi
starfað að iþrótta- og félagsmálum.
Upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstof-
unni i sima 96-71315 og hjá Bjarna Þor-
geirssyni i sima 96-71662.
Bæjarstjórinn Siglufirði.