Alþýðublaðið - 19.04.1978, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 19. april 1978
9
ÍSKOÐUN Kjartan Jóhannsson skrifar
Starf og skýrsla veröbólgu-
nefndar er fyrir margra hluta
sakir merkilegt. Leitun mun
vera að jafn yfirgripsmikilli út-
tekt á ástandi efnahagsmála og
þeim verðbólguvanda, sem við
er að kljást. t starfi nefndarinn-
ar komu lika saman færustu
sérfræðingar landsins og full-
trúar allra helstu hagsmuna-
samtaka og allra stjórnmála-
flokka. Svo viðtæk umfjöllun er
án efa holl og nauösynleg.
Einkennilegast og merkilegast
af öllu þvi sem varðar störf
nefndarinnar, eru þó þau örlög,
sem niðurstöðurnar hlutu.
Meginhluti nefndarálitsins
fjallar um verðbólguvandann og
stjórn efnahagsmála til lengri
tima litið, en einungis einn kafl-
inn um möguleika á skamm-
timaaðgerðum. Um allt þetta
meginmál um framtiðartök á
efnahagsstjórn var full sam-
staða innan nefndarinnar meðal
-
allra fulltrúa, þótt nefndar-
menn greindi á um skamm-
timaaðgerðir, sem gripa ætti til
þegar i staö.
Að þvi er varðar frambúðar-
lausnir má draga efnisniöur-
stöður saman i tvær megin-
kenningar. í fyrsta lagi kemur
fram, að hagstjórnartæki séu
fyrir hendi til efnahagsstjórnar,
það þurfi að bæta aðstöðuna til
þess að beita þeim, en aðal-
atriðið sé að nýta þau á réttan
hátt. I þessu felst beinlinis sá
dómur aö það eigi að stjórna
landinu betur en gert hefur ver-
ið og með þekktum og tiltækum
ráðum og tækjum. Þetta er vita-
skuld harður dómur yfir stjórn-
arstörfum rikisstjórnarinnar,
en bæði hollur og hárréttur. I
öðru lagi má greina þann rauða
þráð i gegnum skýrsluna alla,
aö til þurfi að koma samvinna
og samstaða rikisvaldsins og
launþegahreyfinganna við úr-
lausn efnahagsmála, að öðrum
kosti sé ekki verulegs árangurs
að vænta. Að þessari nauðsyn er
itrekað vikið i skýrslunni. I
nefndarálitinu er beinlinis bent
á, að fræðilega betri lausnir,
sem séu gerðar i andstööu viö
verkalýðshreyfinguna, muni i
reynd verða verri en þær
aðgerðir sem teljast reiknings-
lega lakari en njóta atfylgis
verkalýðshrey fingarinnar.
Með þessi meginsjónarmiö að
bakhjarli eru reifaðar ýmsar
leiðir i skammtimaaögerðum.
Um meginsjónarmiðin rikti full
eining, en ágreiningur reis um
skammtimaaðgerðir.
örlög nefndarálitsins urðu
vægast sagt furðuleg og i
rauninni algert einsdæmi. t
þessu sambandi verða menn að
hafa i huga aðdraganda máls
ins. í fleiri misseri, áður en
álitið birtist skkutu ráðherrar
sér ævinlega á bak við nefnd-
arstarfið, þegar þeir voru
spurðir álits á efnahagsmál-
um. Viðkvæðið varævinlega, að
verðbólgunefnd væri að störfum
og þegar álit hennar lægi fyrir
skyldu þeir svara til um stefn-
una i efnahagsmálum, en fyrr
ekki. Þangað til var enga stefnu
að hafa af hálfu rikisstjórnar-
innar. Þess vegna hefði mátt
vænta þess, að strax og nefnd-
arálitið lá fyrir, yrði tekiö rögg-
samlega til hendinni við aö
fylgja fram tillögum nefndar-
innar. Þannig fór þó öldungis
ekki.
Blekið var varla þornað á
undirskriftunum, þegar rikis-
stjórnin boðaði stefnu sina. Hún
valdi bráðabirgðaráðstafanir,
sem gengu á ýmsa lund þvert á
umræöur og tillögur i verð-
bólgunefndinni. Og það sem
verra var, rikisstjórnin
þverbraut eins gjörsamlega og
hugsast gat annað meginboð-
orðið i aðalniðurstöðum nefnd-
arálitsins og hirti ekkert um hitt
boðorðið. Kenningin um betri
stjórn efnahagsmála var látin
lönd og leiö, en kenningin um
samráð við verkalýðshreyfing-
una var þverbrotin. í stað sam-
vinnu við launþegasamtökin
komu tilkynningar til þeirra um
ákvarðanir rikisstjórnarinnar.
A .elleftu stundu kvaddi for-
sætisráðherra forsvarsmenn
launþegasamtaka á sinn fund og
tilkynnti þeim,hvað rikisstjórn-
in hyggðist fyrir, og aðgerðirnar
reyndust á ýmsan hátt frá-
brugðnar þvi, sem rætt hafði
verið i verðbólgunefndinni og
mun harkalegri. Aðgerðirnar og
framferðið var ekki unnt að
skilja öðru visi en sem striðs-
yfirlýsingu. Þetta strið hefur
rikisstjórnin lika fengiö.
Rikisstjórnin hefur runnið
skeið sitt á enda. Það hefur
sannast átakanlega, að hún hef-
ur engin tök á landsstjórninni.
Kenningar verðbólgunefndar
munu hins vegar standa. A þeim
grunni veröur ný og þróttmikil
rikisstjórn, sem sýnir heilindi i
samskiptum við verkalýðs-
hreyfinguna, aö byggja endur-
reisnarstarf sitt.
Skátasamband Islands
efndi til blaðamannafund-
ar s.l. mánudag til að
kynna tilhögun hátíðar-
haldanna sem þeir gangast
fyrir í tilefni Sumardags-
ins fyrsta. Verður hátíðin
með nokkuð öðru sniði en
tíðkast hefur undanfarin
ár.
Sumargjöf sá lengi vel um há-
tiðarhöldin i bænum á Sumardag-
inn fyrsta, en undanfarin tvö ár
hefur Skátasamband íslands
gengizt fyrir hátiðarhöldum við
Austurbæjarskólann, en i ár ætla
þeir að færa út kviarnar og halda
skemmtun með nokkurs konar
Karnevals-sniði i miðbænum.
Þykir mönnum hjá Skátasam-
bandinu heldur dauft yfir bæjar-
lifinu þarna i hjarta borgarinnar
og skal nú bætt úr. Hvetja þeir
foreldra til að klæða börn sin
skrautlegum grimubúningum i
tilefni dagsins til að setja enn
meiri svip á bæinn.
Fyrirhugað er að koma upp
þremur pöllum á hátiðarsvæöinu,
á Lækjartorgi, i Pósthússtræti og
á Hallærisplaninu. A Lækjartorgi
verða skemmtiatriði i gangi og
koma þar fram fjölmargir
skemmtikraftar s.s. Tóti trúður,
Söngflokkur, dansflokkur frá
Dansskóla Heiðars Ástvaldss.
o.fl. A pallinum i Pósthússtræti
munu 5 lúðrasveitir skÍDtast á um
að Jþeyta horn. Það verða Lúðra-
sveitin Svanur, Lúörasveit
Verkalýðsins og barnalúðrasveit-
Sumardagurinn fyrsti
HALUERíSaAN
sÉíÉr
hátídarhöld í miðbænum
ir Laugarnesskóla, Melaskóla og
Árbæjarskóla. A pallinum á Hall-
ærisplaninu mun hljómsveitin
Octupus leika poppmúsik á með-
an á hátiðinni stendur. Skátasam-
bandið telur að meö þvi að hafa
3 palla i stað eins, eins og venj-
an hefur verið, megi dreifa fólk-
inu meira og gera sem allra flesta
að virkum þátttakendum i hátið-
arhöldunum. Það væri ekkert þvi
til fyrirstööu að virkja sem allra
flesta hópa og félagssamtök i þvi
að gera þennan dag að enn meiri
hátið en nú er og hver veit nema
það takist á næstu árum.
Þarna verður boðið upp á ýms-
ar skemmtanir og verða þarna
ýmsir frumlegir tivolipóstar, svo
sem skotbakkar, spákonur, bolta-
spil, veðbrautir og margt fieira.
Aðgangur að svæðinu kostar
ekkert, en til að taka þátt i tivoli-
inu þurfa menn að kaupa sér sér-
staka peninga svokallaðar sum-
arkrónur og kosta þær 50 krónur
stykkið. Þá verða einnig á boð-
stólum veitingar sem -seldar
verða i tjöldum.
Tvær skrúðgöngur verða og fer
önnur frá Hlemmi kl. 13.30 en hin
frá Melaskóla á sama tima.
Fánaborg skáta og Lúðrasveitin
Svanur og Lúðrasveit Verkalýðs-
ins leiða göngurnar. Gengið verð-
ur niður á Lækjartorg.
Skátasambandið hefur unnið
ötullega að undirbúningi hátiðar-
haldanna, og það er nóg að gera.
Munu um 300 manns veröa að
störfum á svæðinu á sumardag-
inn fyrsta. Svona hátiö kostar
geysilega mikla peninga og fjár-
magnar Skátasambandið þetta að
mestu leyti sjálft. Borgin hleypur
þó undir bagga og lánar hátalara-
kerfi og palla og eins mun hún sjá
um hreinsun svæðisins að hátið-
inni lokinni. Bankarnir i Austur-
stræti munu einnig hafa lagt til
eitthvert fé til að kosta skemmti-
krafta sem munu væntanlega
troða upp á bankatröppum við-
komandi banka.
Skátasambandið vonast eftir
góðri þátttöku i hátiðarhöldunum
og ætti ekkert að vera þvi til fyr-
irstöðu að fólk sæki skemmtun-
ina, nema það verði rigning. Þaö
má þó alltaf reikna meö þvi að
svo geti orðið, en þá eru Islend-
ingar svo heppnir að hafa mikia
reynslu i rigningarprógrömmum.
Viö skulum samt vona að þeir
þurfi ekki að gripa til hennar
þetta árið.
Blaðamönnum var sýndur upp-
dráttur af hátiöarsvæðinu og
fylgir hanntgreininni. Þetta er
eins og menn sjá miðbærinn i
Reykjavik og mætti kannski i þvi
sambandi minna á þær hugmynd-
ir sem verið hafa uppi, um aö
gera allt Austurstræti að göngu-
götu, gera hana að lifæð borgar-
innar bar sem höfð væri ýmiss
konar starfsemi sem lifgað gæti
upp á miöbæinn.
E.l.
Orðsending
til rafiðnaðarmanna
Tekið verður á móti umsóknum um dvöl i
orlofshúsum rafiðnaðarmanna i sumar i
skrifstofu Sambandsins, Háaleitisbraut
68, simi 81433, frá og með miðvikudegi 19.
april.
Orlofshús Sambandsins eru á eftirtöldum -
stöðum:
Suðurlandi: ölfusborgir
Vesturlandi: Svignaskarði
Norðurlandi: Illugastöðum
Austurlandi: Einarsstöðum
Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn
12. mai.
Rafiðnaðarsamband íslands