Alþýðublaðið - 19.04.1978, Page 13
i Miðvikudagur 19. apríl 1978
13
Allt ad verda vitlaust í f jósinu?
órói á kærleiksheim-
ilinu!
Timarit Máls og menningar
hefur nokkuð borið á góma og
verið opinberlega rætt undan-
farið. Sér nú á, að þar er ekki
lengur ein hjörð og einn hirðir!
Til eru þeir, sem fagna þessu,
en svo eru aðrir, sem þykir að
hlýrra hafi forðum verið undir
arnarins væng.
1 sjálfu sér er ástæðulítið að
blanda sér i þessar deilur, enda
eigist þar þeir einir við, sem
litlu máli skipti hverjir drepist
eða skrimti.
öðrumáli kann að skipta um
félagiðsjálft—Mál og menning
— sem á sínum tima var merki-
legt framtak og mætti vel verða
lengra lifs auðið, þó ekki væri
nema vegna fyrri gagnsemdar.
Engan þurfti að furða þótt
framgangur sliks félags yrði
talsverður i árdaga. bar gafst
mönnum kostur á að eignast
lesefni á bærilegu verði. Ýmsar
nýtilegarbækursáu þar dagsins
ljós, þó innanum fyndust aðrar
hrútleiðinlegar og næsta litils
virði, hvortheldurfræðilega eða
bókmenntalega séð.
Fyrst i stað gætti litt i vali út-
gáfú bókanna, að annað væri
markmið félagsins en að mæta
lestrarþörf almennings. Þó vár
ein útgáfubókin, sem strax hafði
nokkra sérstöðu, tímaritið.
Það þurfti ekki lengi að fletta
blöðum til að sjá, hvar skötu-
selur kommúnismans lá undir
steini.
Ritstjóri þess og aðalráða-
maður útgáfunnar var frá önd-
verðu Kristinn E. Andrésson.
Hann var vel að sér og ritfær i
bezta lagi, en á hinn bóginn svo
ofstopafullur kommúnisti, að
fyrir þá skuld eina reyndist
hann litil heillaþúfa um að
þreifa i' menningarmálum.
Eflaust mun sagan — þegar
lengra liður frá — eiga eftir að
kveða upp dóm sinn um þátt
hans.Ereinsættaðbiðaþess, þó
timabært sé nú þegar, að rekja
þar nokkur atriði. Þvi verður
ekki mótimælt, að með tilkomu
hans i dómarasæti um listir og
bókmenntir, urðu nokkur
straumhvörf.
bvi heldur varð það áberandi,
að slikir dómarar voru ekki á
hverju strái, en af þvi leiðir að
vandi þeirra varað meiri. Sjálf-
sagt er hógværð i þeim efnum
góður kostur að sama skapi og
afdráttarleysi til lofs eða lasts
er hið gagnstæða. Orkar og oft
tvimælis þá sagtereða gert.En
það kom fljótt i ljós i bók-
mennta- og listadómum Krists-
ins, að þar var alber einstefnu-
akstur.
Þannig hófst hin fræga — en
þó gamalkunna úr öðrum efnum
— flokkun hans á lista — eða
listiðjumönnum i sauði og
hafra. Brátt varð bert, að krafa
hans til sauðahópsins var engan
veginn sú, að þeir væru einstak-
lega „lagðprúðir né fagur-
hyrndir”! Þar skipti það eitt
máli að þeir hefðu einkað sér
hin einu sáluhjálplegu trúar-
brögð og væru meira en fúsir að
elta sinn góða hirði.
Gleggsta vitnið um þetta var
viðhorfið til höfuðskálda okkar,
sem meira mátu list sina en til-
beiðslu við hinn nýja páfadóm.
Nægir að nefna Davið frá
Fagraskógi og Tómas
Guðmundsson, sem urðu svo
hart úti, sem páfinn annars
þorði að láta á þrykk út ganga.
Og hverjar voru svo dómsfor-
sendurnar?
Jú þær, að þessir listamenn
hefðu ekki einkað sér hina
„endurfrjóvguðu list”
kom múnismans, enda væri
þeim einum sem það hefðu gert,
fært að sjá heiminn i réttu ljósi!
Helzt var svo að skilja, að ef
menn endurfrjóvguðust þannig,
kæmu listaverkin bunandi frá
þeirra höndum, rétt eins og bil-
arnir frá Fordverksmiðjunum
eftir að timi færibanda var
genginn i garð!
Hér þótti ýmsum ungum
mönnum, sem höfðu einhvern-
tima — þó ekki væri nema i
draumi — haft einhverskonar
mökvið bliðlega kvenveru, sem
þeir trúðu að væri skáldgyðjan
sjálf, hnifur sinn komast i feitt.
Undir þennan verndarvæng
safnaðist svo ærið mislit og all
eintakamörg hjörð. Formúlan
virtist heldur ekki svo ýkja
margbrotin. Hér kenndi alls-
konar grasa, svo sem eins og vel
okatækra manna og niður i alls-
konar stumparamenni en viðast
var gyðjan Leirgerður inni á
gafli. Af þvi leiddi auðvitað, að
þó framleiðslan ykist verulega
varð hún ekki að sama skapi
aðlaðandi.
Til eru þeir, sem enn lita svo á
— þeim mun nú raunar fara
fækkandi — að um þessar
mundir hafi orðið einskonarfsa-
brot f skáldferli landsmanna.
Um það má endalaust deila og
hrein þarfleysa að hengja sig i
orð. Hafi svo annars verið,
mætti sá þáttur vorieysinga,
þegar.stærri og smærri vatna-
föll blandast i meira lagi alls-
konar jarðefnum, hafa verið
aðaleinkennin!
Nú var tekið-að framleiða hin
svokölluðu órimuðu ljóð baki
brotnu innan þessarar hjaröar.
Og fjölda hinna nýju skálda
mátti helzt jafna við siðari tima
dæg urla gas öngvar a.
Allt var þetta hástöfum lofað,
svo fremi að hið aumkvunar-
verða merkingarleysi jaðraði
eitthvað við „endurfr jóvg-
unina”. En ekki nóg með þetta.
Auðvitað gat ekki hjá þvi
farið,að i kjölfar alls þessa flyti
ekki upp á yfirborðið ný stétt -
manna — hinir svokölluðu
menningarvitar — sem rembd-
ist eins og rjúpur við staura að
varpa glætu anda sins yfir leir-
hafið, helzt með skringilegu
orðafari og upphafinni innlifun!
Vissulega áttu og eiga allir i
þessum hópi ekki óskilið mál.
En eitt atvik má vera nokkuð
minnissamt um andlegan mátt
hinnar nýju stéttar.
Fyrir nokkrum árum tóku
tveir gamansamir ungir menn
sig til og höfðu að gamni og
dægrastyttingu að setja saman
„ljóðabók” samkvæmt þessari
nýju ljóðhefð. Varð sá afrakstur
allmörg „kvæði”, sem nema
mundi lengd á bók af þvi tagi
sem einkurti lengist við eyður.
Sendur vár maður á vit hinna
alvisu ritdómara, með bókar-
kornið, sem i skirninni hafði
hlotið nafnið Þokur, — og var
hið markvisasta af fram-
leiðslunni.
Við þessu agni ginu
menningarvitarnir i umsögnum
sinum aliflestir nema Sigurður
frá Brún. Létu þeir sem bókin
ætti gott erindi á þrykk og luku
yfirleitt á hana lofsorðum.
Þegar upp komst um þetta
bellibragð, varð siður en svo að
vitringarnir þættust ósvinnir
orðnir. Meir var, að þeir þættust
þurfa að berja höfðum við
steininn, að vist hefði dómur
þeirra verið réttmætur!
Verður nú frá þessu horfið um
sinn, en áður langir timar liða
þykir við hæfi að minnast nokk-
urra skálda undan handarjaðri
Kristins meistara.
í HREINSKILNI SAGT Oddur A. Sigurjónsson
Kjördæmisþing í Reykjavík
-
1. Formaður fulltrúaráðsins, Sigurður E. Guðmundsson setur ráðstefnuna
2. Stutt framsöguerindi um eftirfarandi málaflokka:
Atvinnumál, Björgvin Guðmundsson, félagsmál: Sjöfn Sigurbjörnsdóttir,
húsnæðismál: Sigurður E. Guðmundsson, skólamál: Helga Möller,
æskulýðsmál: Omar Morthens,atvinnulýðræði: Bjarni P. Magnússon
3. Hópstarf og matur snæddur á Esjubergi 4. Um kl. 14.00 umræður og ráðstefnunni síðan
slitið um kl. 16.00
Rétt til setu á þinginu eiga allir fulltrúaráðsmeðlimir, aðalmenn og varamenn, allir frambjóðendur flokksins til
Alþingis og borgarstjórnarkosninga. Fulltrúar Alþýðuflokksins i verkalýðsfélögum í Reykjavik sem sátu siðasta þing
ASÍ, svo og fulltrúar flokksins innan aðildarféiaga BSRB i Reykjavík, sem sátu siðasta þing sambandsins.
Formaður fulltrúaráðsins Sigurður E. Guðmundsson