Alþýðublaðið - 01.06.1978, Síða 2

Alþýðublaðið - 01.06.1978, Síða 2
Fimmtudagur 1. júrvf 1978 stssr 2 Umræðuhópur um máiefni Breiðholts: 1 vetur hefur verið starfræktur umræðuhópur i Breiðholti um „Hið nálæga samfélag” á vegum Norrænna fræðslusambanda um fullorðins- fræðslu og Framfarafélags Breiðholts III. Þátttakendur hafa verið almennir borgarar hverfisins og hefur hópurinn tekið fyrir málefni þau sem alla varðar i hverfinu, rætt um mögu- leika einstaklingsins til að hafa áhrif á gang ein- stakra mála, samið ályktanir um það sem miður er jafnt sem jákvætt má teljast, og loks gert til- lögur til úrbóta í einstökum atriðum. Tilgangur umræðuhópsins hefur verið tviþætt- ur. Annars vegar að fá yfirsýn yfir þessi mál i Breiðholti, og skila skýrslu til hinna norrænu fræðslusambanda um þessi mál (Sams konar umræðuhópar eru starfandi á 10 stöðum á Norðurlöndunum). Með þessu á að vera hægt að bera saman vandamál sem tengjast ,,Hinu ná- læga samfélagi” i einstökum borgum og kaup- stöðum á öllum Norðurlöndunum. Hins vegar að vekja beint athygli á vandamál- um Breiðholts með þvi að senda ályktanir og úr- bótartillögur til allra þeirra aðila, sem hafa með hin einstöku málefni að gera. Heildarstefna i þessum mál- um þarf að vera i þá átt að ibúar i fjölmennum úthverfum geti notið fjölbreyttrar opinberrar þjónustu innan hverfisins. Slikt hefur jákvæð áhrif á ýmsa aðra þætti t.d. samgöngur og fleira og dregur einnig úr „svefn- bæjarblæ” slikra úthverfa. Umræðuhópurinn vill vekja athygli á eftirfarandi tillögum til úrbóta i Breiðholtshverfum: 1. Fullnægt verði dagvistunar- þörf ihverfunum, a.m.k. hvað varðar leikskóla (hálfs dags vistun), fyrir börn á aldrinum 2-6 ára. t hverfunum voru um siðast- liðin áramót 527 börn á bið- listum leikskóla, auk barna á biðlistum skóladagheimila og dagheimila. 2. Aðstöðu til iþrótta og útivist- ar þarf að stórbæta, sérstak- lega i Breiðholti I og II. Aðeins tvö skólaiþróttahús eru i hverfunum. Þau full- nægja ekki einu sinni þörf skólanna til leikfimi- og iþróttakennslu, t.d. er engin slik kennsla i Fjölbrauta- skólanum. Leggja þarf áherslu á að al- menningssundlaug við Aust- urberg verði tilbúin hið allra fyrsta og lokið verði frágangi iþróttavalla og opinna svæða i hverfunum. 3. Tafaríaust þarf að taka i notkun heilsugæzlustöð i Breiðholti. Bráðabirgðahúsnæði hefur verið tilbúið um nokkurt skeið við Asparfell en einhver tregða i „kerfinu” hefur kom- ið i veg fyrir opnun hennar. 4. Brýnt er að löggæzla verði efld og endurskipulögð i hverfunum, og lögreglustöð risi i hverfinu. Þessi mál eru i miklum ólestri enda aðeins þrir lögreglumenn á vakt hluta úr sólarhring. 1 Kópa- Þau málefni sem hópurinn hefur tekið til umfjöllunar i vet- ur eru: 1. Skipulagsmál 2. Menntamál og menntunarað- staða 3. Félagsmál 4. Opinber þjónusta. Þátttakendur i umræðuhópn- um voru þessir: Asgerður Ágústsdóttir frú Keilufelli 9 Birgir Jónsson jarðfræðingur Dúfnahólum 2 Elfas ölafsson kennari Krummahólum 4 Elis H. Helgason verslm. Vest- urbergi 21 Gisli B. Björnsson teiknari Asparfelli 4 Gyða Sigvaldadóttir forstöðu- kona Urðarstekk 2 Hrafn Haraldsson rafvirki Vest- urbergi 26 Ragnar Magnússon prentari Unufelli 31 Sigurður Bjarnason sölustj. Þórufelli 8 Sjöfn Sigurbjörnsdóttir kennari Keilufelli 8 Þórður H. Hilmarsson kennari Frakkastig 11. Stjórnandi hópsins var Þórður H. Hilmarsson kennari Starfshópurinn hefur nú sent frá sér ýmsar ályktanir, sem margar eru mjög eftirtektar- verðar. Hér á eftir verður getið ályktana um opinbera þjónustu og skipulagsmál, en i blaðinu á morgun verður greint frá tillög- um i félags- og skólamálum. Opinber þjónusta. íbúar Breiðholtshverfa hafa nokkra sérstöðu, vegna fjar- lægðar hverfanna frá eldri borgarhverfum Reykjavikur hvað varðar möguleika til að notfæra sér opinbera þjónustu, sem að miklu leyti er i elstu hverfum borgarinnar. Færir nýrri borgarstjórn fjölbreytileg verkefni Tillögur i skipulagsmálum, menntamálum, mennt- unaraðstöðu, félagsmálum og opinberri þjónustu vogi eru 24 manna lögreglu- lið, þó ibúar séu u.þ.b. 10 þús. færri en i Breiðholtshverfum. 5. Bygging og starfræksla slökkvistöðvar er nauðsynleg við núverandi aðstæður. Bygging slikrar stöðvar er ekki fyrirhuguð i Breiðholti, en slökkvistöð i Arbæjar- hverfi á að þjóna Breiðholts- hverfum. Þetta kemur þó að litlu gagni vegna ófullnægj- andi akstursleiða milli hverf- anna. Til greina kæmi. að reisa slökkvistöð i tengslum við fyrirhugaða lögreglustöð i Breiðholti (Mjóddinni) og gætu þessar stöðvar einnig þjónað hluta Kópavogs. 6. Hefja þarf byggingu fyrir- hugaðrar menningarmið- stöðvar. Reykjavikurborg er aðili að þeirri byggingu, ásamt Framkvæmdanefnd Bygg- ingaráætlunar, enda á húsið að rúma m.a. bókasafn, að- stöðu til æskulýðsstarfs, leik- listar o.fl. 7. Mikilvægt er að strætis- vagnasamgöngur Breiðholts við önnur borgarhverfi séu góðar. Einnig er brýnt að leiðakerfi strætisvagna sé miðað við staðsetningu þjón- ustu og skóla og hina miklu flutningsþörf milli miðbæjar Reykjavikur og Breiðholts sem alltaf verður nokkuð mikil. Strætisvagnar þurfa að vera fljótir i ferðum og mætti veita þeim enn frekari for- gang i umferð. 8. Útibú ýmissa opinberra stofnanna mætti setja á stofn (jafnvel á einum stað) i- hverfunum eins og gert hefur verið hjá Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar. Skipulagsmál Út frá þeirri reynslu sem þeg- ar er komin á þær skipulagsað- ferðir sem beitt hefur verið i Breiðholtshverfunum má ljóst vera að breytinga er þörf. Hópurinn bendir sérstaklega á eftirfarandi atriði i þessu sambandi: a) Reynslan sýnir að mikið hefur verið um eftirskipulagn- ingu og breytingar þar sem ibú- ar nærliggjandi umhverfis hafa ekki verið ráðspurðir og það þar af leiðandi leitt tilýmisskonr ar óþæginda fyrir hlutaðeigandi aðila. b) Oeðlilegt er að nýtingar- hlutfall ibúasvæða hækki eftir þvi sem fjær dregur miðbæ borgarinnar. c) Engin trygging er fyrir þvi við timaröðun á uppbyggingu opinberrar þjónustu i hverfun- um að mið sé tekið af þörfum ibúanna sjálfra heldur ráða þar önnur og óskyld atriði. d) Það er ljóst að uppbygging Breiðholtshverfanna er að 2/3 hlutum byggð á útþynningu eldrihverfa borgarinnar, en slik þróun er hvorugum ibúahóp- anna til hagsbóta m.a. vegna þess að öll þjónusta verður að dreifast yfir miklu stærra svæði en eðlilegt og hagkvæmt mætti teljast. Umræðuhópurinn skorar þess vegna á Borgarstjórn og aðra hlutaðeigandi aðila að taka eft- irfarandi tillögur til rækilegrar umfjöllunar. 1. a) Skipulagskerfi og skipu- lagsaðferir verði gerðar sveigjanlegri þannig að skipulagsramminn og ýmsir þeir möguleikar er kunna að rúmast innan hans verði kynntir opinberlega með þeim hætti að íbúum svæðis- ins verði gefinn kostur á að tjá sig um fyrirliggjandi skipulagsdrög áðuren til end- anlegrar samþykktar er kom- iö. b) Gerð verði grein fyrir for- sendum hinnar endanlegu ákvörðunar þannig að ljóst megi verða hvaða tillögur hafi náð fram að ganga og jafnframt hverjar forsend- urnar séu fyrir því að öðrum var hafnað. Bent gkal á i þessu sambandi aðmýmargar hliöstæður að sliku fyrir- komulagi finnast á hinum Norðurlöndunum. 2. a) Tryggt verði að mið sé tek- ið af þörfum ibúanna hvað varðar uppbyggingu allrar þjónustu i borgarhverfunum. b)Iþessusambandiskorar um- ræðuhópurinn á hlutaðeigandi aðila að koma á fót lögvernd- uðum hverfisráðum, sem hafi bæði tillögurétt og ákvörð- unarrétt i þessum efnum, þannig að tryggt verði að opinber þjónusta komi i þeirri röð sem ibúarnir sjálfir telja eðlilega. 3. a) Stöðvuð verði útþynning eldri borgarhverfanna meö breytingum á ibúðalánakerf- inu. b) Hópurinn telur hina öru út- þenslu borgarinnar óæski- lega og stafa m.a. af stjórn- leysi og stefnuleysi i lánamál- um.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.