Alþýðublaðið - 16.06.1978, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 16.06.1978, Blaðsíða 3
3 Nýi borgarstjórnarmeirflilutinn Sérstök áherzla á atvinnumál, fé- lagslega þjónustu og skipulagsmál — mikil úttekt verður gerð á fjárhagsstöðu borgarinnar Sameiginlegir framboðsfundir — á Vesturlandi og Reykjanesi Frambjóöendur til Alþingiskosninga á Vesturlandi og Keykjanesi hafa ákveöiö nokkra sameiginlega framboös- fundi i kjördæmum sinum á næstunni. Þeir eru sem hér segir: Vesturland: Logaland, mánudaginn 19. júni kl. 21.00. Borgarnes, þriöjudaginn 20. júni kl. 21.00. Akranes, fimmtudaginn 22. júni kl. 21.00. Otvarpaö verður frá fundinum i Borgarnesi, á bylgju- lengd 198.6 metrum eöa 1510 kH (kilóhead), og frá Akra- nesi á bylgjulengd 212 metrum, eöa 1412 kH. Reykjanes: tþróttahús Garðabæjar, mánudaginn 19. júni kl. 20.00. Samkomuhúsið Stapa, Njarövik, þriöjudaginn 20.júni kl. 20.30. Ritstjórn Alþýðu- blaðsins er í Síðumúla 11 Málefnasamningur meirihlutaf lokkanna var birtur í gær< á öðrum fundi borgarstjórnar eftir hinar afdrifaríku kosningar 28. maí, er Reykjavik, höfuð- vígi íhaldsins, snerist á sveif með vinstri öflunum. Málefnasamningurinn er fyrst og fremst ramma- samningur um þau vinnu- brögð, sem flokkarnir hafa hugsað sér að viðhafa á kjörtimabilinu, en ekki framkvæmdaáætlun eða upptalning á þeim fjölda framkvæmda, sem þeir hyggjast beita sér fyrir. Slíkar framkvæmdir verða ákveðnar við gerð fjár- hagsáætlana fyrir hvert ár, og við gerð f járhagsá- ætlunar fyrir árið 1979 kemur í Ijós i hvað ráðist verður á næsta ári. Hin nýja borgarstjórn er bund- in af þeirri fjárhagsáætl- un, sem gerð var í vetur er leið, fyrir árið 1978. í inngangi málefnasamningsins koma fram þrir meginpunktar. Þar er kveöið á um aö flokkarnir muni i sameiningu vinna aö þvi aö treysta undirstööuatvinnuvegi borgarinnar. Ennfremur að bæta félagslega þjónustu og i þriðja lagi aö gæta þess viö skipulagsað- geröir, aö ekki verði spillt svip- móti borgarinnar. Þá kemur fram, að nú á næst- unni veröur gerö úttekt á allri fjárhagsstööu borgarinnar og stofnana hennar. Innheimtukerfi veröi tekiö til endurskoöunar og einfaldaö og innheimtuaöilum fækkaö. Þá er i ráöi aö stórefla endurskoðunardeild borgarinnar og aukiö veröur allt eftirlit meö fjárreiöum. I þvi skyni aö koma viö aukinni hagræöingu og sparn- aði i rekstrinum veröa til fengnir utanaökomandi aöilar sem reynzlu hafa i hagræðingu, til að kanna starfshætti og skipulag borgarrekstursins og gera þar tillögur til úrbóta. Akvæöi er um þaö i málefna- samningnum aö skuidbindingar um meiri háttar fjárútlát, sem ekki er gert ráö fyrir i fjárhagsá- ætlun viðkomandi árs, veröi þvi aðeins samþykktar aö gert sé ráö fyrir þvi hvernig mæta eigi þeim útgjöldum. Samkvæmt málefnasamningn- um verður unniö aö breytingum á sjálfu stjórnarkerfi borgarinnar. Borgarstjóri verður I framtiöinni framkvæmdastjóri, en ekki póli- tiskur leiötogi eins og veriö hefur. Staöa borgarstjóra verður aug- lýst. Stofnaö veröur 7 manna framkvæmdaráö, sem fara mun meö stjórn mála sem falla undir embætti borgarverkfræöings. Settar verða reglur um úthlutun lóða, sem tryggja eiga sem jafn- astan rétt borgarbúa. Ráöningar í nýjar stöður á vegum borgarinn- ar skulu hafa samþykki ráöa og nefnda kjörinna fulltrúa, nema þeir ákveöi annað. Embættis- mönnum veröa sett erindisbréf. 1 málefnasamningnum er kveö- ið á um, að borgaryfirvöld skuli taka upp aukið samráö og sam- vinnu við borgarana og starfsfólk borgarinnar. 1 gær var kosið i nefndir og ráö á vegum, borgarinnar. Meiri- hlutaflokkarnir hafa komiö sér saman um skiptingu flokks- manna sinna niöur á nefndirnar. I 7 manna nefndum fær Alþýðu- bandalag 2 fulltrúa en Alþýðu- flokkur og Framsóknarflokkur sinn manninn hvor. í 5 manna nefndum verður einn maöur frá hverjum meirihlutaflokkanna. I fjögurra manna nefndum fá Alþýðuflokkur og Alþýöubanda- lag sinn manninn hvort, og 1 þriggja manna nefndum er meg- inreglan sú að Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag fái sinn manninn hvort. Sjálfstæðisflokkur skipar siöan minnihluta nefndanna. Guðmundsson: „Engin tillaga um að ganga lengra” Alþýöublaöiö haföi samband viö Björgvin Guömundsson vegna bókunar Guörúnar Helgadóttur i stjórn BSRB þess efnis aö ekki hafi náöst samkomulag f meiri- hluta borgarstjórnar um aö ákvæöi samninga um visitölu- bætur kæmu aö fullu til fram- kvæmda nú þegar. Björgvin Guðmundsson tók fram aö borgarfulltrúar Alþýöubanda- lagsins heföu aldrei lagt fram til- iögur á viöræöufundum meiri- hiutaflokkanna um aö ganga lengra en samkomulag varö um. Sigurjón Pétursson var einn aöal- höfundur að þeirri tillögu aö visi- töluskeröingin yröi unnin upp i áföngum og féllst ég á þá lausn vegna erfiðrar fjárhagsstööu borgarsjóös, sagöi Björgvin Guömundsson aö lokum. Velkomin á Vitatorg. OLÍUVERZLUN ÍSLANDS HF. BOMSWSTUÐfO vrroroRGi I gamla austurbænum, við eina elstu götu borgarinnar: Lindar- götu. Nýir þjónustuhættir á gömlum og þekktum stað.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.