Alþýðublaðið - 22.09.1979, Síða 5
Laugardagur 22. september 1979
AKUREYRI
5
Vöruhús KEA
Býður yður vörur
á hagstæðu verði
í sjö söludeildum.
SKÓDEILD
HERRADEILD O
SPORTVÖRUDEILD
HLJÓMDEILD
JÁRN- OG
GLERVÖRUDEILD
VEFNAÐARVÖRUDEILD
TEPPADEILD
Póstsendum um land allt
HAFNARSTR. 91-95 - AKUREYRI
n p
Lopa- peysur Tökum á móti heilum lopapeysum. Óskum eftir Ijósgráum, hvítum og mórauðum peysum. Hækkað verð. Iðnaðardeild SÍS
□ HBS u
AKUREYRARBÆR AUGLÝSIR Vy
Tilkynning
til hundaeigenda á Akureyri
Hér með er eigendum og eða umráðamönnum
óskráðra hunda á Akureyri fyrirskipað að láta skrá þá
á skrifstofu heilbrigðisfulltrúa fyrir 1. október 1979.
Eftir þann tíma verða óskráðir hundar fjarlægðir hvar
sem til þeirra næst.
Jafnframt er öllum hundaeigendum bent á að
óheimilt er að láta hunda ganga lausa á almanna-
færi og varðar það leyfissviftingu.
Heilbrigðisfulltrúinn Akureyri.
Akureyrarbær auglýsir
Starfsmaður óskast að skóladagheimilinu Brekku-
koti sem fyrst. Starfið felst m.a. í umsjón meö
smíðum og föndri og þurfa umsækjendur helst að
hafa bíl til umráða. Umsóknum sé skilað á Félags-
málastofnun Geislagötu 5, fyrir 20. þ.m. Nánari
upplýsingar fást í síma 25880 og 25881 milli kl. 10
og 12.
AKUREYRARBÆR
Starfsmaður óskast
Akureyrarbær óskar að ráðá starfsmann til gang-
brautarvörslu á Þingvallastræti frá 24. september.
Umsóknum ber að skila til Gunnars H. Jóhannes-
sonar á bæjarskrifstofunum og veitir hann allar
nánari upplýsingar um starfið.
Bæjarstjórinn á Akureyri
r
flugmálastjórn Könnuii á áhuga
Pósthólf 350 Reykjavík r r m r
a nami i flug-
umferðarstjórn
Til greina getur komið, ef fjárveiting fæst, að bæta við
1 til 2 mönnum í nám í flugumferðarstjórn til starfa á
Akureyrarflugvelli og til afleysinga á flugvöllum úti á
landi. Aðeins þeir er lokið hafa stúdentsprófi í ensku,
stærðfræði og eðlisfræði eða öðru hliðstæðu námi
að mati flugmálastjórnar, og hafa gott vald á íslensku
máli, koma til greina.
Þeir er áhuga kunna aö hafa á slíku námi, sendi
undirrituðum skriflegar (eiginhandar) upplýsingar
um fyrri störf og nám fyrir 1. október n.k.
Flugmálastjóri
Reykjavíkurflugvelli - Pósthólf 350 - Reykjavík
_________________________________________________„
AKUREYRARBÆR JM
Akureyrarbær
Starf heilbrigðisfulltrúa
hjá Akureyrarbæ er laust til umsóknar. Áskilin er
sérmenntun í heilbrigðiseftirliti sbr. 30. gr. heil-
brigðisreglugerðar frá 8. febrúar 1972. Laun og
kjör verða í samræmi viö kjarasamninga Akureyr-
arbæjar. Allar frekari upplýsingar um starfiö veitir
undirritaður, sem jafnframt veitir umsóknum við-
töku. Umsóknarfrestur er til 1. nóv. n.k.
Akureyri, 13. september 1979.
Bæjarstjórinn á Akureyri.
Auglýsing
Hér með úrskurðast lögtök fyrir ógreiddum en gjald-
föllnum, útsvörum, aðstöðugjöldum, fasteignaskött-
um, holræsagjöldum, vatnsskatti, lóðarleigu og
hafnargjöldum til bæjar- og hafnarsjóðs Akureyrar
álagt 1979.
Gjöld þessi má taka lögtaki á ábyrgð bæjar- og
hafnarsjóðs Akureyrarbæjar, en kostnað gerðar-
þola að liðnum átta sólarhringum frá birtingu úr-
skurðar þessa.
13. ágúst 1979.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
• amen
Ýmsir vilja halda þvi fram
aö eins konar dekur ráöa-
manna viö flugsamgöngur
hafi kippt rekstrargrundvelli
undan skipaútgerö innaniands
og skert verulega fólks- og
vöruflutninga á landi. Þetta
hafi sett afskekktari byggöar-
lög I samgöngusvelti og sé
þeim næsti vágestur á eftir
haffs og haröæri. t sllkum
þönkum er gott aö fá heim
blaöaauglýsingu frá Skipaút-
gerö rikisins þar sem boöuö er
ný og frábær þjónusta, heim-
sendingaþjónusta, sem sparar
30-70% af sambærilegum
flutningskostnaöi. Nema, aö
Ibúum hinna afskekktu byggö
arlaga til mikillar raunar er
þess getiö aö þessi nýja þjón-
usta útgeröarinnar gildi aö-
eins á höfuöborgarsvæöinu!
• Þaö er sjaldgæft aö ráöa-
menn þjáist af skopskyni. Til
dæmis mátti ekki á sinum
tima, viö sameiningu Tóbaks-
og áfengisverslunar rikisins
skammstafa stofnunina TÁR,
eins og b einast lá viö. t sigti er
aö hundraöfalda gildi krón-
unnar (nær væri aö þúsund-
falda þaö, eigi minnstu mynt-
einingar aö veröa einhvers
viröi), en ekki mátti sam-
þykkja tillögu um nýtt nafn á
nýjan gjaldmiöil. Tillagan
hljóöaöi á MÖRK, sem hina
nýju mynteiningu, en þaö
heföi haft eftirfarandi ný-
merkingar oröa I för meö sér:
gjaldkeri: markvöröur,
blankheit: markleysa, fjár-
streyni: markarfljót, kapital-
istar: dýr merkurinnar. Og
svo mætti lengi telja.
Þaö gengur misvel aö halda
Akureyrarblööunum úti. Or-
sakirnar eru margvislegar, og
hjá einu þeirra króniskt rit-
stjóraleysi. A fjórum árum
hefur blaöiö fimm sinnum orö-
iö aö sækja ritstjóra tii
Reykjavikur. Nafn blaösins:
Noröurlar.d.
Heyrt: Aö bókaútgefendur
séu meö sist færri titla á
prjónunum fyrir komandi jól
en aö undanförnu. Þrátt fyrir
veröbólgna tiö er reynt aö
handa söluveröi bókaílág
marki, þvi útgefendur óttast
tiuþúsundkróna markiö. Má
þvi ætla aö 99,5% jólabókanna
muni kosta 9.995 krónur.
Oft er kvartaö undan þvi aö
önnum kafnir menn veljist til
opinberra trúnaöarstarfa.
ööru máli gildir um bygg-
ingarnefnd Akureyrarbæjar,
sem sá ástæöu til aö koma sér-
staklega saman, sjö menn
ásamt fundarritara, föstudag-
inn 17. ágústsiöastliöinn, til aö
fjalla um aöeins eitt mál.
Kona nokkur haföi i leyfisleysi
hafiö breytingar á glugga á
húsi sinu. Hinir vösku em-
bættismenn fólu byggingafull-
trúa aö sjá til þess aö frekari
framkvæmdir viö giuggann
væru stöövaöar þar til tilskilin
leyfi væru fyrir hendi. „Fleira
ekki gert, fundi slitiö”. Betur
aö fleiri vaktmenn samfélags-
ins væru jafn vel á veröi um
stórmál þjóöarinnar og bæjar-
félagsins.
Ein KORN ... 3
stjórnar eru mest og þvi óger-
legt fyrir mig aö sinna þeim
sem skyldi og fundardagar bæj-
arráös eru einu sinni i viku. Var
þetta þvi fullt samkomulag milli
okkar Freys og er mér óskiljan-
legt hvernig höfundur getur
komiö Siguröi óla inn i dæmiö.
Tafsiö I greininni um óánægju
innan Alþýöuflokksfélagsins út
af þessum málum visa ég til
fööurhúsa, enda efast enginn,
sem til þekkir, um hæfni Freys
til aö gegna báöum þessum
störfum, bænum og okkur al-
þýöuflokksmönnum til sóma.
Minnast má tslendingur þess
aö Jón G. Sólnes gengdi störf-
um forseta bæjarstjórnar jafn-
framt setu i bæjarróöi um árabii
og þótti eigi ámælisvert. Aö lok-
um skal ég geta þess aö ég var
ekki i bænum þegar nefndar
kosningar fóru fram af þeim or-
sökum, sem aö framan er getiö
og allar hugleiöingar dálkahöf-
undar um orsakir fjarveru
minnar eru i sama dúr og ann-
aö I þessari makalausu klausu.
Þorvaldur Jónsson.