Alþýðublaðið - 22.09.1979, Síða 6
6
AKUREYRI
Laugardagur 22. september 1979
Kynning á starfsemi Aiþýðufhkksféiaganna á Akureyri
Reglulegir almennir fundir
um bæjarmál á mánudögum
— og svo sem verið hefur hjá Alþýðuflokksfélagi Akureyrar síðasta vetur
Starfsemi Alþýðuflokksfélags
Akureyrar verður i vetur hagað
með likum hætti og unanfarin
ár, að þvi er formaður félagsins
Hreinn Pálsson lögmaður sagði
I viðtaii við blaðið.
Bæjarmálafundir verða
haldnir i félagsheimili Alþýðu-
flokksfélaganna, Strandgötu 9
, á mánudagskvöldum fyrir
bæjarstjórnarfundi klukkan 8,30
e.h. Verður næsti bæjarmála-
fundur mánudaginn 24. þ.m. á
fyrrgreindum tima. Einnig eru
fyrirhugaðir fundir með Al-
Hreinn Pálsson
þingismönnum flokksins, eða
öðrum gestum eftir þvi sem til-
efni gefast til á hverjum tima.
Nokkur verkaskipting hefur
komist á milli Alþýðuflokks-
félagsins og Fulltrúaráðs Al-
þýðuflokksfélaganna á Akur-
eyri, varðandi skipulagningu
félagsstarfseminnar. Mun Al-
þýðuflokksfélagið einkum beina
kröftum sinum að þvi sem kalla
mætti hinar „alvarlegri” hliðar
hennar, en ætlunin er að Full-
trúaráðið sjái um „léttari” hliö-
ina, svo sem árshátið, skemmti-
kvöld og þviumlikt.
Nánar veröur skýrt frá starf-
seminni i vetur siðar, eftir þvi
efni og ástæður gefa tilefni til.
Ný sljóm vimur að því að efla
starfsemi félags ungra jafnaðarmanna
— opið hús i Strandgötu 9 öll mánudagskvöld klukkan 8—10
Heimir Sigtryggsson.
A aðalfundi Félags ungra
jaf naðarmanna á Akureyri
siðastliðið vor var kjörin ný
stjórn féiagsins, og er formaður
þess Heimir Sigtryggsson. Ný-
kjörin stjórn kom saman til
fundar strax að loknum aðal-
fundi og var þar ákveðið að
kanna grundvöll blaðaútgáfu á
vegum FUJ. Starfshópur tók að
sér að annast útgáfu eins tölu-
blaðs Alþýðumannsins, m.a. til
að greina frá 50 ára afmæli
Sambands ungra jafnaðar-
manna. Var blaðinu dreift i öll
hús á Akureyri.
Ekki þótti grundvöllur fyrir
frekara félagsstarfi yfir sumar-
timann, en litill hópur félaga i
FUJ fór i sumar til Sviþjóðar og
tók þar þátt i útihátið — eins
konar kosningaundirbúnings-
hátíð — sænsku ungkratasam-
takanna, SSU.
Vetrarstarf
Undirbúningur að vetrar-
starfi er nú nýlega hafinn af
fullum krafti. Ákveðið hefur
verið að efna til almennra funda
um tiltekin efni, og verður fyrsti
fundurinn, sem haldinn verður
að öllum likindum i næsta mán-
uði, helgaður umræðu um stööu
og stefnu islenskrar verkalýðs-
hreyfingar. Annar slikur fundur
kann að verða haldinn fyrir jól,
en ekki er hægt aö ákveða strax
hvert viðfangsefni hans verður.
Veröur fyrsti fundurinn ræki-
lega auglýstur i næsta tölublaði
Alþýöumannsins.
Veigamesta viðfangsefni FUJ
i vetur verður útgáfustarfsemi.
Stjórn félagsins hefur gert sam-
komulag við blaðstjórn Al-
þýðumannsins og formenn Al-
þýðuflokksfélags Akureyrar,
Kvenfélags Alþýðuflokksins og
kjördæmisráös um að FUJ taki
að sér útgáfustarfsemi fyrir
flokkinn, og er stefnt að þvi að
sameina útgáfu Alþýðumanns-
ins og sérstaks blaðs, sem FUJ
hafði ráðgert útgáfu á. Er nánar
gerð grein fyrir hugmyndum
um þá útgáfu neðar á þessari
siðu.
Nýir félagar
I viðtali sem Alþýðumaður-
inn átti við Heimi Sigtryggsson,
formann FUJ, lagði hann á-
herslu á að hvetja nýja félaga til
að koma til starfa. Þegar væri
margt ungt fólk komiö til starfa
og aðrir, sem reynslu hefðu úr
starfi FUJ, en svo mörg at-
hyglisverö og spennandi viö-
fangsefni og hugmyndir um
fjölbreytt félagsstarf hefðu ver-
iö reifuð á stjórnarfundum, að
einungis vantaði fleiri vinnu-
fúsar hendur til starfa.
Blómlegt félagsstarf Alþýðu-
flokkskvenna að vanda
— könnuð þátttaka kvenna í félagsstarfi almennt
Aslaug Einarsdóttir er
formaður félags Alþýöuflokks-
kvenna á Akureyri. Tiöinda-
maður blaösins tók hana tali á
dögunum og innti hana frétta af
félagsstarfinu.
„Það er óhætt að segja”,
sagði Áslaug, „að starfið hafi
verið fremur blómlegt á siöast-
liðnum vetri. Haldnir voru fund-
ir, skemmtikvöld og þvíum likt.
Einnig má geta um starfshóp er
I gangi var siðastliöinn vetur
innan félagsins og vann að
könnun á þátttöku kvenna 1
félagsstarfsemi á Akureyri. Er
þetta hluti af stærra verkefni á
vegum Landsambands Alþýðu-
flokkskvenna, og eru fleiri svip-
aðir stafshópar starfræktir við-
ar á landinu. Niðurstöður
þeirra verða svo ræddar á
landsfundinum I Reykjavik i
byrjun október.. Ólöf Jónsdóttir
var fulltrúi okkar á „Norræn-
um menningardögum”, sam-
bands norrænna sósialdemó-
kratakvenna sem að þessu sinni
voru haldnir á Laugarvatni og
varð sú för einkar fróðleg og
skemmtileg.
Hvað geturðu sagt okkur um
starfsemi á vetri komanda?
Starfsemin liggur af skiljan-
legum ástæðum að mestu leyti
niðri yfir sumarmánuðina en fer
svo i gang á ný er haustar. Ætla
má að hún veröi með svipuöum
hætti og veriö hefur undanfarin
ár. Haldnir verða fundir,
skemmtikvöld og föndurkvöld.
Við verðum með okkar árlega
basar og laufabrauössölu fyr-
ir jólin og starfshópur mun
Áslaug Einarsdóttir.
væntanlega einnig verða 1
gangi.
Hvað um ferðalög?
Fyrirhuguð var ferð til Sauð-
árkróks i boði Alþýðuflokks-
kvenna þar, en af ýmsum orsök-
um svo sem vegna ótiöar hefur
ekki enn orðið af henni. Ræðst
það mikið af veðri og færð hvort
úr þvi verður.
Þið sjáið um kaffiveitingar á
fundum annarra flokksféiaga i
bænum.
Já og okkur finnst að karlpen-
ingurinn innan flokksins megi
vera okkur þakklátari fyrir
þennan þátt starfsemi okkar.
Aö minnsta kosti þá kann hann
vel að meta sopann hjá okkur.
Þú ert einnig formaður
fulltrúaráðs Alþýðuflokksfélag-
anna á Akureyri. Hvaö geturðu
sagt okkur um starf þess?
Starf Fulltrúaráös Alþýðu-
flokksfélaganna á komandi
vetri er enn I mótun. Það mun
aö vanda sjá um hina hefð-
bundnu árshátið, og hugmyndir
eru uppi um að gera það að vett-
vangi fyrir upplifgun félags-
starfsins svo sem með þvi að
standa fyrir skemmtanahaldi,
spilakvöldum og þviumliku, eða
i einu orði þvi sem kalla mætti
hina „léttari hliö starfseminn-
ar”.
Auglýst eftir ungu fólki til að taka
þátt í skemmtilegu viðfangsefni
bæjar
pósturinn
Hugmynd að blaðheiti. Hverjir vilja koma til starfa viö aö móta
Eins og fram kemur í
frétt hér að ofan er hópur
innan FUJ á Akureyri nú
að undirbúa útgáfu nýs
blaðs, sem ætlunin er að
verði fjölbreytt og fræð-
andi bæjarblað, eins konar
lifandi mynd bæjarlífsins
og í senn gott uppsláttarrit
líðandi stundar.
Viö viljum hvetja ungt fólk til
að koma til starfa viö þetta blað.
þetta blað?
Pólitik mun ekki sitja i fyrirrúmi,
og við ætlumst til þess aö allir
sem að blaðinu starfa geti unnið
vel saman án tillits til stjórn-
málaskoðana eða annarra skoð-
ana.
Þótt ýmsar meginlinur varð-
andi blaöiö séu þegar ljósar, þá
er það þeirra sem koma til starfa
að móta blaöiö frá degi til dags,
ráöa efni þess og útliti.
Leiðbeinandi verður fenginn til
að starfa með hópnum, og viljum
við eindregið hvetja þá sem vila
kynnast af eigin raun blaöa-
mennsku og öllum hinum marg-
vislegu störfum við blaöaútgáfu,
að slást i hópinn.
Auk þess sem þátttakendur i
þessu starfi munu kynnast af
raun starfi við blaðamennsku og
útgáfu og fá tilsögn við slik störf,
er stefnt að þvi að hópnum verði á
næsta ári boðið i kynnisferð til
nokkurra blaða á Norðurlöndum.
Þeim sem áhuga hafa og vilja
leggja hönd á plóginn og taka þátt
I skemmtilegu samstarfsverkefni
er bent á að koma á Strandgötu 9,
2. hæð, eitthvert næstu mánu-
dagskvölda, milli klukkan 20-22,
eða hafa samband viö Ingvar G.
Ingvarsson I sima 22241, á kvöld-
in.
Undirbúningsnefnd.