Alþýðublaðið - 22.09.1979, Page 8
HVERSU LENGI SKAL HÚN LIFA?
Sú spurning hefur
brunnið á vörum þjóðar-
innar í heilt ár, allt frá því
að núverandi ríkisstjórn
var mynduð, hvenær
stjórnin hrykki upp af. Og
mönnum er vissulega ekki
láandi, þegar íhugað er,
hvernig stjórnin var til
komin og mynduð.
Strax i upphafi var tortryggni
svo mikil milli flokkanna, aö hún
gat ekki boðaö langlifi I sam-
starfi. Og nú er svo komiö, aö
stjörnarflokkarnir keppast viö aö
bera blak af sér fyrir ýmsar meiri
háttar stjórnarathafnir, svo sem
buvoruhækkunina síðustu,
raunvaxtastefnuna — og raunar’
efnahagsstefnuna I heild. Slikt
getur aö sjálfsögöu ekki gengiö til
lengdar i samstarfi. Nauöugir
viljugir hljóta allir stjórnarflokk-
arnir aö bera fulla ábyrgö á
stjórnaraögeröum.
Höfuömarkmiö núverandi rikia
stjórnar var, eins og kunnugt er,
aö stuöla aö hjöönun veröbólg-
unnar, koma efnahagsmálum á
traustan grundvöll og tryggja
efnahagslegt sjálfstæöi þjóöar-
innar. En engum dylst, aö hún
hefur meö vinnubrögöum sinum
og aögeröum, aukinni skatt-
heimtu, skuldasöfnun rikissjóös,
erlendum lánum, stefnuleysi i
peningamálum og fjárfestingum
meö tilheyrandi gengisfellingum
og gengissigi, gert illt verra, svo
aö veröbólgan er nú talin á ári
milli 50-55% og ýmislegt ber þess
órækt vitni, aö veröbólgustigiö
muni enn hækka, ef svo fer fram
sem horfir. Stjórnin talaöi um
breytta efnahagsstefnu, þar sem
langtimasjónarmiöin væru ávallt
látin ráöa feröinni, en reynslan
sýnir aö þetta er stjórn skamm-
timaráöstafana, Þar sem vand-
anum er ýtt á undan sér og hann
magnaöur frá mánuöi til mánaö-
ar.
Allt þetta getuleysi á sér staö,
þegar sjávarafli er mikill,- verö-
lag gott á sjávarafuröum og
skattar auknir. Aö visu er skylt aö
geta þess, aö oliukreppan hefur
magnaö vandann, og ljósiö i
myrkrinu er full atvinna, en
hvernig sem viö veltum þessu
fyrir okkur, er ljóst, aö veröbólg-
an er að langmestu leyti heimatil-
búinn vandi
Þetta er þjóðfélag milli-
liða, braskara og eigna-
manna.
Þjóöfélag meö 50-55% verö-
bólgu er ekki þjóöfélag jafnaöar-
manna. Þetta er þjóöfélag milli-
liöa, braskara og eignamanna,
sem hagnast á verðbólgunni, en
eftir situr iaunafólkiö meö sárt
enniö. Þetta er þjóöfélag ójafnaö-
ar, þar sem milljaröa fjárfúlgur
eru færöar frá verkalýö og launa-
fólki til eignamanna og fjármála-
manna. Um leið viröist nánast
loku fyrir þaö skotiö, aö unnt sé
aö halda uppi heilbrigöum at-
vinnurekstri.
Ég hygg, aö engir hafi orðiö
fyrir jafnsárum vonbrigöum meö
þessa rikisstjórn og einmitt
Alþýöuflokksfólk, þvi aö þar gerir
sér fulla grein fyrir þvi sem jafn-
aðarmenn aö án hjöðnunar
veröbólgunnar veröur ekki unnt
aö bæta kjör almennings og
stuðla aö félagslegum og efna-
hagslegum jöfnubi eða sagt með
einni setningu: skapa heilbrigt
þjóðfélag.
Af hverju hafa málin þróast
svona? Ég hygg, aö Alþýöuflokk-
urinn hafi reynt eftir mætti aö
sporna gegn þessari þróun. Má
minna helst á tillögur hans til
samræmdra abgerða i efnahags-
málum, sem birtast skemmdar
og illa leiknar, i þeim lögum, sem
nú eru kölluö Olafslög. Ef tillögur
Alþýöuflokksins hefðu náð fram
aö ganga fyrir siðustu áramót,
heföi ég trú á þvi, aö staöa efna-
hagsmála væri önnur en raun ber
vitni. Og ég tel, að Alþýðubanda-
lagiö eigi verulega sök á þvi,
hvernig komið er. Þeim flokki
tókst meö þófi aö koma mörgum
merkum umbótum fyrir kattar-
nef, svo aö flestar till. Alþýöu-
flokksins komu fyrir litiö.
Alþýðubandalagið virðist
ekki hafa pólitískt þrek til
að takast á við verðbólg-
una að neinu gagni.
Alþýöubandalagiö viröist ekki
hafa pólitiskt þrek til aö takast á
viö veröbólguna aö neinu gagni.
Sá flokkur stundar látlaus yfirboð
og metur mest stundarhagsmuni
og atkvæðaveiðar. Sá flokkur
yfirbýöur framsóknarmennskuna
i landbúnaðarstefnunni. Formaö-
ur flokksins viöurkennir ekki aö
um offramleiðslu sé aö ræöa,
heldur þvert á móti er boðorðiö:
framleiöiö meira.
í sjávarútvegi er stefna for-
mannsins sú aö kaupa fleiri fiski-
skip, þótt of mörg skip séu aö
veiöa og ofveiddir fiskistofnar.
Alþýöubandalagiö er á móti
verötryggingu sparifjár. Sá
flokkur telur rétt, aö veröbólgu-
hákarlarnir eigi aö geta fengiö
sparifé landsmanna til umsvifa á
vægu veröi til aö raka saman
verðbólgugróöa og flytja þannig I
skjóli laga og réttar fé frá litil-
magnanum til fjármálamanns-
ins. Um leið vill þessi flokkur
þannig tryggja, aö allar fjár-
festingar, hversu vitlausar sem
þær eru skili aröi, og er þaö aö
vonum, þvi aö hann er einn
Kröfluflokka. Striðsmenn Þjóö-
viljans viröast hafa gleymt orö-
um foringja sins, Magnúsar
Kjartanssonar, sem skrifaöi
ágæta grein i blaö þeirra (10. okt.
1978) einmitt um raunvaxta-
stefnuna sem hann nefndi „kom,
kom, kom i frelsisherinn”.
Þar sem hann leiðir skýr rök aö
nauösyn hávaxtastefnu (verö-
tryggingar) i baráttunni gegn
veröbólgunni. Hann lauk grein-
inni á þessum oröum: „Hitt skipt-
ir meginmáli, aö menn átti sig á
markmiöinu, stefnu aö þvi vit-
andi vits, en haldi ekki á þveröf-
uga átt, eins og mér virtist gert
meö sumum athöfnum núverandi
Bjarni Guðnason skrifar
rikisstjórnar og hjálpræöis-
hersöngvum I forustugreinum
Þjóðviljans.”
Þaö er skarö fyrir skildi, aö
Magnús skuli vera horfinn úr for-
ystusveit Alþýöubandalagsins.
Nú er öldin önnur, er ihaldiö Lúö-
vik Jósepsson ræöur þar rikjum.
En eitt er vist, acö flokkur Lúö-
vlks þjónar ekki meö þessari af-
stöðu hagsmunum þeirra, sem
verst eru settir I samfélaginu.
Svo furöulegt sem það kann aö
virðast er ein sjónskekkja
Alþýöubandalagsins sú aö fjár-
munir vaxi eins og epli á trjánum.
Þeir eru alltaf fúsir til hvers kon-
ar fjárútláta ekki sizt, ef þeir
halda, aö sllkt afli þeim fylgis og
láta sig þá jafnan litlu varöa,
hvort fé sé fyrir hendi eöa ekki.
Gott dæmi er ákvöröun bú-
vöruverðsins. Alþýöubandalagiö
vildi láta greiöa niöur hluta af
veröinu meö fé, sem var ekki til i
rikissjóði og firra sig þannig þeim
óvinsældum, sem af hækkuninni
leiddi. Þeir höföu lausnina! Og nú
kennir Þjóöviljinn Alþýöuflokkn-
um um hækkun búvöruverðsins.
Aö sjálfsögöu, enda þótt Alþýöu-
flokkurinn hafi staöiö gegn henni.
Alþýöubandalagiö er þvi miöur
meö afstöðu sinni til ýmissa efna-
hagsmála lausbeizlaður og
draumórakenndur ihaldsflokkur.
Krafan um þjóönýtingu oliufélag-
anna breytir þar engu.
Samt er haldið þannig á
málum að þjóðinni er ýtt í
faðm íhaldsins.
A meöan Alþýöubandalagið vill
ekki takast á viö veröbólguna i
neinni alvöru, er ekki von, aö vel
fari. Hitt er hörmulegt, aö þessir
tveir flokkar, sem eiga rætur sin-
ar i verkalýös- og launþegahreyf-
ingum, skuli ekki geta unnið sam-
an af einlægni og eindrægni.
Þessir tveir flokkar hafa aldrei
áöur veriö jafnsterkir á Alþingi
meö tæpan helming allra þing-
manna. Og samt er haldið þannig
á málum aö þjóöinni er ýtt I faöm
ihaldsins. Og ömurlegt er á aö
horfa, hvernig Framsóknar-
flokknum tekst aö ota þessum
flokkum saman til skiptis og leika
sér aö sundurlyndi þeirra. A-
flokkunum hefur auönast aö gefa
Framsóknarfiokknum nýtt llf.
Alþýöuflokkurinn vann meiri
sigur I siöustu Alþingiskonsingum
en nokkur annar flokkur fyrr og
siöar I sögo.. islenzkra stjórn-
mála, m.a. vegna þess aö hann
var ekki veröbólguflokkur eins og
hinir. Hann setti á oddinn
baráttumál, sem fengu mikinn
hljómgrunn meö þjóöinni, og
hann hét um leiö aö fylgja þeim
eftir. Þar var efst á blaöi barátt-
an gegn verðbólgunni og breytt
efnahagsstefna. Viö vit-
um, hvernig þar hefur til tek-
ist. Og hvaö um hreingerningar-
málin: Skattamálin, bankamálin,
dómskerfiö og Framkvæmda-
stofnunargreyiö, svo aö eitthvaö
sé nefnt? Allt þetta hefur horfið I
skuggann fyrir vindmyllubar-
daga stjórnarinnar viö veröbólg-
una.
Sigur Alþýöuflokksins lagöi
honum á heröar miklar og þungar
skyldur gagnvart sjálfum sér,
kjósendum slnum og þjóöinni
allri. Undan þeim skyldum má
Alþýöuflokkurinn undir engum
kringumstæöum vikjast.
Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur ekkert fram að færa
nema bitra reynslu af úr-
ræðaleysi hans í síðustu
stjórn.
Ef til væri einhver raunveru-
legur valkostur I Islenzkum
stjórnmálum, teldi ég, aö Alþýöu-
flokkurinn ætti umsvifalaust aö
hverfa úr þessari rikisstjórn. En
stjórnarandstaöan hefur engin
úrræöi — og hvaö tæki viö? Sjálf-
stæöisflokkurinn hefur ekkert
fram aö færa þjóöinni, nema bitra
reynslu af úrræðaleysi I siöustu
stjórn og barnalegt frjálshyggju-
tal. Þráttfyrir það tútnar hann út
um þessar mundir eins og púkinn
á fjósbitanum, og segir þaö sina
sögu.
Hins vegar leyni ég þvl ekki, aö
ég tel engu aö siöur aöild Alþýöu-
flokksins aö þessari rlkisstjórn
meö öllu óverjandi að óbreyttu
vinnulagi og stefnuleysi i efna-
hagsmálum. Alþýöuflokkurinn
var ekki kosinn til aö efla verö-
bólgu og ýta undir ójöfnuö i þjóö-
félaginu. Hann á aö styrkjast af
verkum slnum, en ekki koöna niö-
ur vegna undansláttar, eöa ótta
viö Alþýöubandalagiö, sem getur
ekki. fyrirgefið Alþýöuflokknum,
aö hann skuli ekki þegar vera
steindauöur og reynir þvl við öll
tækifæri aö koma höggi á hann.
En þvi má ekki gleyma aö hver er
sinnar gæfu smiður. Næstu vikur
hljóta aö skera úr um framhald
þessa stjórnarsamstarfs og jafn-
framt um stööu Alþýöuflokksins
og styrk I náinni framtið.
Yfir Islendinga hafa duniö og
dynja verðhækkanir svo örar og
miklar, aö almenningur veit ekki
sitt rjúkandi ráö. Fólk hristir höf-
uðið og segir: „Þeir eru allir
eins.” Er til verri dómur um
þessa stjórn? Alþýöuflokkurinn
er á góöri leiö meö aö veröa einn
af veröbólguflokkunum, einn af
Kröfluflokkunum. Viö jafnaðar-
menn lútum höföi og spyrjum: Er
vert, aö hún lifi lengur?
SJAnni 1
Hve lengi er vinnubjart?
Ég man þá daga æsku i/ ég
ætiaöi aö gera margt/ en fram-
kvæmt hef ég fæst af þvi/ hiö fáa
tæpt og vart/ nú llöur á dag og
lækkar sól/ hve lengi er vinnu-
bjart?
Þetta gamaikunna stef heyröist
rauiaö á siðkvöldi í Arnarhvoli,
nánar tiitekiö á göngum Viö-
skiptaráöuneytisins. Kunnugir
þóttust kenna þar þreytulega
rödd viöskiptaráöherra, sem las
þaö I ritstjórnargrein Þjóöviljans
þá um morguninn, aö nú iægi viö
uppreisn alþýöu gegn óstjórninni
I iandinu.
öðru visi mér áður brá.
Annars bjuggust menn viö þvi,
aö hann væri sem óöast aö pakka
niöur i töskurnar sinar og halda i
austurveg, meö fríöu föruneyti,
til aö sjá hagsmunum okkar
borgiö i oliusam ningum viö
Rússa. En skv. viötali Morgun-
blaösins viö ráöherrann i gær,
telur hann sig ekki eiga heiman-
gengt (sem út af fyrir sig er skil-
janlegt, þegar byitingaástand er í
iandinu) og kýs aö fara hvergi,
þótt samráöherrar leggi hart aö
honum.
Oghverjum skyldi hann treysta
bezttil aö sjá hagsmunum okkar
borgiö? Jú, góökunningjum
sínum frá ritstjórnartiö hans á
Þjóöviljanum forstjórum ollu-
félaganna. En hann segir aö þeir
hafi aldrei fariö jafnvel nestaöír á
vit Rússa. Og hver skyidi hafa
búið þá meö nesti og nýja skó?
Hver annar en Jóhannes Nordal.
Bissness gengur sumsé sinn
vanagang Viöskiptaráöu:neytinu.
Skyldi þeim ekki þykja ieggjast
litiö fyrir kappann, gömlum
félögum Svavars? Aldrei slógu
þeir hendinni á móti tækifæri til
aö frelsa þjóöina gegnum (viö-
skiptaisambönd sln I Sovét þótt
gaffalbitar veröi aö teljast
þunnur þrettándi hjá heilii oliu-
kreppu. Hins vegar hefur ekki
staöiö á Svavari aö endasendast á
fundi EFTA og Alþjóöagjald-
eyrissjóösins, i sjálfri háborg
auövaldsins. ööruvisi mér áöur
brá.
Lögspeki.
Þjóöviljinn segir aö hiö nýja
„kratagengi” vilji láta banna
veröbóigu meö lögum. Þetta er
dálitill misskilningur. Kratarnir
vildu láta banna rikisstjórninni
meö lögum aö magna upp verö-
bóigu meö skuldasöfnun utan-
lands og innan, hallarekstri og
sláttumennsku, sem er aö koma
okkur öllum á vonarvöl. Og sýnist
nú engum vanþörf á.
En i staö lagasetningar, sem
átti aö binda hendur rikis-
stjórnarinnar, þannig aö hún iéti
ekki freistast út I bruöl og óráö-
siu, sættust ráöherrarnir aö
lokum á málamiölun, sem kennd
hefur veriö viö Ólaf forsætisráö-
herra (Hvarer hann annars niöur
kominn nú?) Þar segir einatt, þar
sem mikiö liggur viö: ,Frá
þessum markmiöum má þá
vikja...” Þaö hefur líka veriö gert
ótæpilega. Dæmi: I staö þess aö
greiöa niöur skuldir, hefur rikis-
sjóöur tvöfaldaö yfirdrátt sinn
hjá Seölabanka. 1 staö greiösiu-
afgangs er kominn halli á fjár-
lögin, sem siöan er brúaöur meö
nýjum sköttum. Lánsfjáráætlun
var bundin viö 40 milljaröa ný
erlend lán. Nú þegar er rikis-
stjórnin komin eina iitla 16
milljaröa fram úr þvi, sem
heimilt var.
Þetta er sannkölluö grútar-
bræösluhagfræöi, ef nokkuö er.
Skyldi vera nokkur vanþörf á aö
koma lögum yfir svona fjármála-
stjórn?
Lúpus.
í hrein-
skilni sagt
Fréttamat og fram-
setning
Þaö voru merkilegar fréttir-
nar sem birtust I dagblööunum I
gær, af átökum lögreglunnar og
herstöðvaandstæðinga. Þær eru
athyglisveröar fyrir þaö, hvaö
vel þær sýna pólitlska afstööu
blaöanna. Til dæmis segir
Timinn ekkert af átökunum. Hin
blöðin hafa hinsvegar mis-
stórarfrásagniraf atburöunum.
Síðdegisbloðin
Dagblaöiö vitnar I Þjóö-
viljann sem segir þrjá hafa
meiðst I átökunum, en vitnar
siöan i Bjarka Eliasson yfir-
lögregluþjón um aö ein stúlka
hafi meiöst og maöur veriö
fluttur á slysavaröstofu en ekki
reynst meiddur.
Vísir segir á baksíöu aö
nokkrir hafi siasast i átökum en
nefnir ekki tölur. Asmundur
Asmundsson formaöur Sam-
taka herstöövaandstæöinga
segir aö þaö hafi verið þeir
sjálfir sem stilltu til friöar en
ekki lögreglan og segir hana
hafa komiö lltilmótlega fram.
Bjarki segir I sama blaöi. „Viö
böröum frá okkur þvl er ekki aö
neita, en viö þaö hörfaöi
hópurinn og viö héldum kylf-
unum á lofti til aö hræöa fólkiö.”
Morgunblöðin
Þjóöviljinn hefur á forsiöu
frásögn ungrar stúlku sem tók
þátt I átökunum. Þaö er greini-
lega sama stúlkan og Bjarki
nefnir I Dagblaöinu, upphaflega
leit út fyrir aö hún væri hand-
leggsbrotin, en svo reyndist
ekki vera. Þjóöviljinn segir frá
öörum manni, og segir fleiri
hafa þurft læknishjálpar eftir
átökin. A annar-i siöu er svo
grein með myndum, þar sem
átökunum er lýst, þar segir aö
varnarmúr lögreglunnar hafi
rofnaö, ekki sagt afhverju og
siðan að þorskhausum hafi
veröi hent 1 herskipin.
Morgunblaðið segir frá þessu
á slöu 20, í stuttri grein með
myndum. Þar er ekki nefnt aö
fólk hafi meiöst, og lítið gert úr
átökunum yfir höfuö.
Litum
Þaö sem gerir fréttaflutning-
inn og áhrif hans svo mismun-
andi er, sérstaklega, val mynda
i Þjóðviljanum og Morgun-
blaöinu. 1 Morgunblaöinu eru
þrjár myndir, ein tekin ofan fr'a
og úr fjarlægö, sem sýnir sviöiö
áöur en til átaka kom. önnur
sýnir fjóra lögreglumenn halda
aftur af miklum fjölda her-
stöðvaandstæðinga, og sú þriðja
sýnir ungan mann meö neöri
hluta andlits hulinn, á stjákli á
berangri og ber myndin titilinn
„Safnaö grjóti”. I engri frásögn
er sagt aö grjóti hafi verið
kastað. 1 raun er ekki hægt að
sjá aö myndin hafi verið tekin á
sama tíma og staö og hinar. 1
Þjóöviljanum er myndasería
sem sýnir lögreglumenn lemja
herstöövaandstæöinga ósleiti-
lega, og beita þá ýmsum fólsku-
brögöum. 1 Dagblaöinu er sýnd
mynd af einum lögreglumanni
sem rekur flótta herstöövaand-
stæöinga og önnur sem sýnir
lögreglumann stumra yfir liggj-
andi manni.
Þetta val myndefnis litar frá-
sagnir svo mikiö aö þaö eina
sem hægt er að vera viss um
eftir lestur þeirra er aö þaö var
eitthvaö um aö vera niöri viö
Sundahöfn á miövikudag, en
hverjir geröu hvaö viö hvern
meö hverju, það er ljóst.