Alþýðublaðið - 14.12.1979, Blaðsíða 7
JÓLABLAÐ 7
Hvernig hrekkjalómurinn slapp
Einu sinni var hrekkja-
lómur, sem hét Jakob og
alltaf var að gera öðrum
einhverjar brellur. Loks
keyrði þetta svo úr hófi, að
menn fóru á f und konungs-
ins sjálfs og kærðu Jakob
Kóngurinn ákvað að
refsa honum harðlega, en
þó lofaði hann að láta
Jakob sleppa, ef hann gæti
leyst þrjár þrautir.
Svo kallaði kóngurinn
Jakob fyrir sig og gaf
honum svohljóðandi
skipun: Farðu til mannsins
sem er að plægja akurinn
þarna niður við skóginn og
taktu bæði nautin frá
plógnum hans án þess að
hann verði var við, að það
sért þú, sem hafir tekið
þau.
Jakob hugsaði sig um
sem snö'ggvast og gekk svo
niður í skóginn. Þar fór
hann að syngja eins hátt og
hann gat. Bóndinn heyrði
þetta og langaði til að vita
hver syngi svona vel og fór
inn i skóginn. En undireins
og hann hafði skilið við
plóginn kom hrekkja-
lómurinn, skar halann og
hornin af nautunum og
gróf það ofan í jörðina
þannig að bláendarnir
stóðu upp úr, alveg eins og
nautin hefðu sokkið i jörð,
Þegar þetta var búið, flýtti
Jakob sér inn í skóginn og
þaðan heim í höllina með
nautin.
Þegar bóndinn gat ekki
fundið söngvarann sneri
hann aftur að plógnum og
varð nú býsna óttasleginn,
þegar hann sá hvernig
komið var. ,,Herra minn
trúr, það hlýtur að hafa
komið jarðskjálfti" sagði
bóndinn kjökrandi og fór
að réyna að draga nautin
upp á hornunum og róf-
unni. En hann hafði ekki
annað upp úr því en það, að
eftir dálitla stund stóð
hann þarna með fjögur
horn og tvo hala. Hélt hann
því, að þetta hefði slitnað
af, þegar hann var að toga.
Svo fékk manngarmurinn
sér skóf lu og fór að grafa,
en vitanlega hafði hann
ekkert upp úr því. Nautin
hljóta að hafa sokkið ofan í
iður jarðarinnar andvarp-
aði hann í öngum sínum og
hætti loks að grafa.
Kóngurinn ivarð steinhissa
á hrekkjalómnum, þegar
hann heyrði hvernig hann
hafði fariðað. En nú skyldi
hann svei mér fá annað
verkefni, sem verra væri
að glíma við.
Farðu út í hesthúsið mitt
í nótt og taktu bezta hest-
inn minn án þess að vinnu-
maðurinn verði þess var,
sagði hann við Jakob. En í
laumi hafði kóngur skipað
að láta helmingi fleiri
menn en venjulega vera í
hesthúsinu og auk þess
skipað aðalgæzlumannin-
um að sitja á hestinum alla
nóttina.
Undir miðnætti kom
Jakob að hesthúsinu með
dýrindis mat og drykk
handa varðmönnunum.
Þeir létu freistast af
krásunum, en gættu ekki
að þvi, að Jakob haf ði látið
svefnmeðul í þær. Eftir
dálitla stund voru þeir
steinsofnaðir, allir nema
Jakob, sem reið burt á
gæðingnum.
Undir morgun kom
kóngurinn í hesthúsið og
þið megið trúa að varð-
mennirnir vöknuðu við
vondan draum. En þarna
var ekkert að gera, reið-
hesturinn var á bak og
burt. En á meðan kóngur-
inn var að hýða varðmenn-
ina, kom hrekkjalómurinn
riðandi og fékk kónginum
hestinn. Kóngur hugsaði
sér nú gott til glóðarinnar
að hafa síðustu raunina
þannig að ómögulegt væri
að leysa hana. Svo Jakob
fengi réttláta refsingu að
lokum.
„Farðu upp í höllina í
nótt" sagði kóngurinn, ,,og
taktu giftingarhringinn af
fingrinum á drottningunni
án þess að hún viti, að það
ert þú sem tekur hann."
Um kvöldið settist
kóngurinn við hliðina á
drottningunni og þar ætlaði
Framhald á bls. 15.
SAPAFRONT + ál-forma-kerfiö (profilsystem) er hentugt
byggingarefni fyrir islenzkar aöstæöur. Einangraöir álformar í
útveggi, glugga og útihuröir. óeinangraöir álformar innanhúss.
Útlitiö er eins á báöum gerðunum. I sérstökum leiöbeininga-
bæklingi eru upplýsingar um burðarþol, varmaleiöni og hljóö-
einangrun álformanna, ennfremur vinnuteikningar, sem léttir
arkitektinum störfin.
Byggingarefni framtiöarinnar er SAPAFRONT +
SAPA — handriöiö er hægt aö fá I mörgum mismunandi útfærsl-
um, s.s. grindverk fyrir útisvæði, iþróttamannvirki o.fl. Enn-
fremur sem handrið fyrir veggsvalir, ganga og stiga.
Handriðiö er úr álformum, þeir eru rafhúöaöir i ýmsum litum,
lagerlitir eru Natur og KALCOLOR amber.
Stólparnir eru gerðir fyrir 40 kp/m og 80 kp/m.
Meö sérstökum festingum er hægt að nota yfirstykkiö sem hand-
lista á veggi.
SAPA — handriöiö þarf ekki aö mála, viöhaldskostnaður er þvi
enginn eftir aö handriöinu hefur veriö komiö fyrir.
Gluggasmiðj an
Gissur Símonarson Siðumúla 20 Reykjavik — Simi 38220
Þjónusta
Landsbankans
er í alfaraleió.
□ Utibu
• A/greiðslustaður
Hellissandur
lafsvlk
lAkranes
^REYKJAVlK
Sandgerð ÖfcKeflavik Selfoss
Grindav{k&^_--0»p^arbakki
Þorláksfiofn r-t
Stokkseyri
Reykholt
•Biskupstungum
Hvolsvðllur
Neskáugstaður
EskifjcrðurQ
Reyðarfjörðurf
PáskrúösfjöröurC
Djúpivogu
Höfn, Hornafirðil
Þjálfaö starfslið 30
afgreiðslustaða
Landsbankans í flestum
byggðum landsins leitast við
að uppfylla hinar
margvíslegu þarfir
viðskiptamanna hans.
Með aðstoð starfsfólks
Landsbankáns, getió þér
sparað yður tíma og
fyrirhöfn, - jafnt við innlend
sem erlend viðskipti.
Kynnið yður þjónustu
Landsbankans.
LANDSBANKINN
Banki allra landsmanna