Alþýðublaðið - 14.12.1979, Qupperneq 10
10 JÓLABLAÐ
Fjölskylduföndur á Álftanesi
„Þetta erskoalveg ferlega gaman"/ um það voru allir
sammála/ — krakkarnir, mömmurnar, pabbarnir, og
allir hinir sem líka komu.
— „Af hverju er svona ferlega gaman?"
— „Það er bara svo sniðugt að vera hérna og samt er
enginn skóli og mamma er hérna líka", var ein skýring-
in.
Foreldraráð Álftanesskólans stóð fyrir opnu húsi í
skólanum einn laugardaginn í byrjun desember. Allir
máttu koma og föndra, — eða bara leika sér. Föndurefn-
ið var afgangar, stakir sokkar, hnetur, bandspólur,
tvinnakefli... allt mögulegt, sem annars hefði farið i
súginn! Það voru búnir til jólasveinar, galdrakerlingar,
englar og alls konar skraut til að hengja á tréð eða út i
glugga, jólasveinahúfur, jólapokarog jólagjafir. Svo var
spilað á grammafón og sumir tóku dansspor, aðrir sungu
með. Það var kaffi fyrir fullorðna fólkið og gosdrykkir
fyrir þá yngri og smákökur. Og það kom jólasveinn. Já,
það var sko alveg ferlega gaman! Ms
Bjarki er nú ekki nema 1 og hálfs árs gamall, svo þaö er varla von á öOru en hann langi til að smakka á
þessum f reistanði hlutum!
Mömmurnar vóru ekki slður áhugasamar en börnin
bara
Kennslustofurnar þrjár voru allar undirlagðar og ef borðplássið nægði ekki, var
sest á gólfið.
„Hvað er nú verið aö ónáöa mann” er eins og Sigrún sé að hugsa. Hin mátti ekki vera aö Það voru engin vandræði með hjálparkokka
þvi aö lita upp fyrir Ijósmyndara.