Alþýðublaðið - 14.12.1979, Síða 15

Alþýðublaðið - 14.12.1979, Síða 15
Hlaupa, kaupa gefa, þiggja éta, drekka og sofa. Þaö er nokkuö kaldhæönislegt aö þaö skuli einmitt vera i nafni JesU Krists sem viö látum Mammon konung draga okkur á asnaeyr- unum milli kauphallanna, eyö- andi tugum þúsunda i glingur og dót. En eru þá ekki jólin aö ganga sér til hUöar sem fagnaö- arhátiö kristinna manna? Er þetta ekki bara oröin árleg fagnaöarhátfö kaupmanna? Viö Islendingar tilheyrum þeim fimmtungi mannkyns sem lifir i velmegun. Rlkidæmi okk- ar grundvallast aö meira eöa minna á auölindum þeirra þjóöa sem lifa viö sultarkjör. Viö, þessi fimmtungur, höfum sank- aö aö okkur meira en helmingi þess sem mannkyniö hefur til skiptanna. Ýmist er hér um aö tala náttúruauöæfi, fæöu eöa nautnalyf. Þaö væri sök sér ef menn gengjust almennt viö þvf aö jól- in séu fyrir löngu oröin sölu- varningur. Þvi er hinsvegar ekki aö heilsa. Þótt menn kann- ist betur viö diskó en sálma, þá hunskast þeir enn I kirkjuna. Og þótt börnin þekki strumpana betur en guöina, þá fara þau hispurslaust meö trúarjátning- una. Svo ljúgum viö þvi aö okk- ur edrú aö viö séum einhvers- konar útsendarar kærleikans sem þekkjum gleggst muninn á réttu og röngu. Inni í kirkjunni fylli’.mst viö dýpstu samiiö þegár klerkurinn minnir okkur á milljónir striöshrjáöra og vannæröra barna annarsstaöar á jöröinni. Til aö friöa samvisk- una gefum viö svo þúsundkall til hjálpar bágstöddum, og eftir þá miskunn getum viö meö góöri samvisku haldiö áfram aö full- nægja gerviþörfunum. 1 morgunútvarpi fyrir skömmu fór klerkur einn meö hugvekju, dag eftir dag, og baö heilagan guö aö gefa ráöamönn- um þjóöarinnar heilsu, þrdc, kjark og guö má vita hvaö, til þess eins aö minnka veröþensl- una i þjóöfélaginu. Heldur þótti undirrituöum þaö ömurlegt hlutskipti. — Hvernig er ástatt fyrirhinum almenna leikmanni þegar guösmennirnir hafa mestar áhyggjur af hagsæld þessa velferöarrikis. Þetta er sagt meö hliösjón af þeirri staö- reynd aö þrátt fyrir aukinn hag- vöxt ríku landanna, miöar þeim fátæku ekkert — nema siöur sé. Þaö kann aö vera erfitt aö sööla um þegar menn hafa tam- iö sér tryllingslegan lifsstíl. Viö höldum stöðugt áfram aö bera okkur saman við þá sem ,,bet- ur” mega sin, i staö þess aö gera hinn samanburöinn. En hvaö hefur velferðin fært okk- ur? Hún hefurt.a.m. fært okkur munaöarvörur, stórspillta nátt- úru, óheilnæma fæöu, aukin dauösföll vegna hjarta- og krabbameinssjúkdóma, vax- andi barnadauöa i umferðinni, og eiröarleysi, gifurlega aukn- ingu drykkjuskapar og ofbeld- isglæpa, vaxandi samkeppni, kvlöa og þunglyndi. Sjálfur Jesú sagöi vfst ein- hverntímann aö sá sem ætti meira en einn kyrtil skyldi gefa þeim sem engan ætti. En sam- kvæmt upplýsingum Alþjóöa matvælaráösins, frá þvf f janú- ar á þessu ári, er matvælafram- leiöslan f heiminum slik I dag, aö ef rétt væri skipt heföu allir nægan mat. Þetta er meö öörum oröum aðeins spurning um hve mikiö viö erum tilbúin aö leggja f sölurnar. Nei, skitt veri meö alþjóöa- hyggjuna. I byrjun næstu viku skal halda veglega veislu og spara hvergi. Allt er þetta gert I nafni þess manns sem örugg- lega heföi ekki viljaö strumpast meö okkur i hégóma diskó-lifs- ins. Veröiokkur svo öllum aö góöu —Garöar Sverrisson. Í77T~ SKIPAUTGCRÐ RIKISINS M.S. Coaster Emmy fer frá Reykjavfk f dag þriöjudaginn 18. þ.m. vestur um land fii Akureyrar og tekur vörur á eftirtaldar hafnir: tsafjörö, (Flateyri, Súgandafjörö, og Bolungar- vfk um tsafjörö) Siglufjörö, Akureyri, Sauöárkrók og Noröurfjörö. M.S. Baldur fer frá Reykjavik i dag, þriöjudaginn 18. þ.m. og tek- ur vörur á eftirtaldar hafnir: Þingeyri, Patreksfjörö. (Tálknafjörö og Bfldudaf um Patreksfjörö) og Breiöa- fjaröarhafnir. Frá Fjölbrautaskól- anum í Breidholti Skólaslit haustannar verða i Bústaða- kirkju fimmtudaginn 20. desember n.k. og hefst skólaslitaathöfninkl. 14 (kl. 2 e.h.) Á skólaslit eiga eftirtaldir hópar nemenda að koma. 1. Allir er lokið hafa eins og tveggja ára námsbrautum skólans. 2. Nemendur er lokið hafa bóknámi og verkþjálfun sjúkraliða. 3. Nemendur er lokið hafa sérhæfðu versl- unarprófi viðskiptasviðs. 4. Nemendur er lokið hafa sveinsprófum á iðnfræðslusviðsbrautum. 5. Nemendur er lokið hafa stúdentsprófi. Foreldrar nemenda og venslafólk svo og aðrir velunnarar skólans eru velkomnir á skólaslitin. Skólameistari ________________________jólablad!5 Hvernig hrekkjalómurinn slapp 7 hann að sitja alla nóttina, svo að Jakob léki ekki á hann. Undir miðnætti heyrði kóngurinn rjálað við gluggann og þegar hann opnaði, sá hann þar stiga og ofarlega i honum mann, sem datt alla leið niður í hallargarð, þegar kóngur- inn opnaði gluggann. Kóngurinn brá við er hann sá þetta og skipaði þjónum sinum að hjálpa vesalings manninum. En á meðan gat Jakob skotizt inn til drottningar og segir: ,,Nú hef ég gengið full- langt því manngarmurinn er líklega dauður. Það er bezt að þú farir að hátta gullið mitt, en gefðu mér fyrst giftingarhringinn þinn, svo ég geti verið viss um að Jakob nái ekki í hann. ,, Drottningin gerði það og Jakob hvarf. Rétt á eftir kemur kóngurinn og segir: Ég er hræddur um að mann- garmurinn sé dauður, en ekki var það nú ætlun mín" ,,Já, ég veit það, en af hverju segir þú mér þetta tvisvar?" „Tvísvar" hváði kóngurinn, ,,hvernig veizt þú það,ég er að koma neðan úr garðinum." Þú sagðir mér það áðan, um leið og þú fékkst hring- inn minn" segir drottning- in. „Nú, hrekkjalómurinn hefur þá snúið á okkur líka" sagði kóngurinn gramur. Og nú kom þjónn inn og sagði að þessi maður í garðinum hefði verið tuskubrúða. Þá skildi kóngurinn hvernig Jakob hafði undirbúið allt. Og hann gafst alveg upp við Jakob. Þegar Jakob kom daginn eftir til að skila hringnum, fékk hann ekki aðeins f yrirgef ningu, heldur rausnarlega gjöf og var gerður að ráðherra. Lausnir á skák og bridgeþrautum 1) Bridge: Þegar vestur hafði tekiö fyrsta slaginn á hjarta kóng spilaði hann tigli. Ekki kóngi, eins og flestir heföu gert, heldur ásnum. Þvi næst lét hann út tigulgosa’. Og suður gekk I gildruna, lagöi tiuna at þar eö hann hélt austur hafa kónginn, sem eðlilegt var. Vestur fékk þannig þrjá tigulslagi. Skák 1) 1. Kh2, h3, 2. Khl, h2, 3. Bf7, Kxh7 4. Dxh2 mát. Lausn á krossgátu Lárétt: 1. klofi, 5. prjál, 10. gnipa, 12.Tómas, 14. óraði, 15. sem, 17. tanka, 19. fet, 20. notfæra, 23. dis, 24. sitt, 26. grand, 27. asni 28. aðsig, 30. ýra, 31. kusan 32. plóg, 34. sáöi, 35. þyrmir, 36. skruma, 38. raus, 40. ánna, 42. linur, 44. gám, 46. ansar, 48. ál- un, 49. fægir, 51. strá, 52. Sám, 53. dálætis 55. joö 56. stela 58 att, 59. króna, 61. snóta, 63. hjörs, 64. natna, 65. fláki. Lóörétt: I. knattspyrnumenn, 2. liö, 3. opin, 4. fa, 6. RT, 7. Jóta, 8. áma, 9. landsimastjóri, 10. greiö, II. þefari, 13. skina, 14. ofsar, 15. strý, 16. mæna, 18. ásinn, 21. og, 22. RD, 25. tilraun, 27. Auö- unns, 29. gómur, 31. kárna, 33. gis, 34. ská, 37. pláss, 39. fá- gætis, 41. gráöa, 43. Iláts, 44. gæla, 45. mitt, 47. Arons, 49. FA, 50. RI, 53. datt, 54. skjá, 57. Lóa, 60. rök, 62. AN, 63. HL. Lausar stöður Umsóknarfrestur um nokkrar stööur viö Menntaskólann á Isafiröi, sem auglýstar voru I Lögbirtingablaöi nr. 100/1979, er framlengdur til 20. desember n.k. Um er aö ræöa störf dönskukennara, húsbónda og húsfreyju f heimavistogbókavaröar,allthálfar stööur. Nánri upplýs- ingar veitir skólameistari. Menntamálaráöuneytiö, 13. desember 1979 Akranes- kaupstadur Gjaldabókari Laust er til umsóknar hálft starf gjalda- bókara o.fl. á bæjarskrifstofunni á Akra- nesi frá n.k. áramótum að telja. Reynsla i skrifstofustörfum er nauðsynleg. Upplýsingar um starfið veitir bæjarritari i sima 93-1211. Skriflegum umsóknum er greini frá aldri, menntun og fyrri störfum sé skilað á bæjarskrifstofuna i siðasta lagi föstudaginn 21. desember n.k. Akranesi 13. desember 1979 Bæjarstjóri LAUS Staða deildarverkfræöings viö Heilbrigöiseftirlit rikisins er laus til umsóknar frá og meö 15. janúar 1980. Laun skv. launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir meö upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist ráöuneytinu fyrir 13. janúar 1980. I i Heilbrigöis- og tryggingamálaráöuneytiö 13. desember 1979.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.