Alþýðublaðið - 01.05.1981, Síða 7
Alþýðublaðið Föstudagur 1. maí 1981
7
vonbrigðum af enska þinginu,
eins og það var þá skipað.
Nil telja flestir, aö atvinnuleysi
og allt það böl, sem þvi fylgir, sé
vandamál, sem rikisvaldiö
veröur að leysa. Samvinnumenn
hafa einnig horfiö frá hugmynd
um um sérstakar samvinnu-
byggðir (nema i Israel) og telja
að baráttu fyrir ýmsum málum,
sem frumherjar hreyfingarinnar
tóku sér fyrir hendur, verði nú að
heyja á vettvangi stjórnmála og
með samningum milli vinnu-
kaupenda og vinnuseljenda.
Hins vegar hefur samvinnu-
hreyfingin fundið ærin verkefni
og vaxið ört um allan heim. Hún
stendur vörð um hagsmuni
neytenda með umfangsmikilli
verzlun og framleiðslu I hundruð-
um verksmiðja. Hún selur afurðir
bænda, fiskimanna og annarra
framleiðenda. Hún veitir hvers
konar þjónustu, annast sam-
göngur og veitir margvislega
fræðslu. Samvinnufélög eiga
meira að segja fjölda veitinga- og
gistihúsa, sem flest selja ekki
áfenga drykki.
Til er Alþjóðasamband sam-
vinnumanna, sem hefur aðal-
stöðvar i London. Innan vébanda
þess eru um 500.000 samvinnu-
félög I yfir 50 löndum. Skiptast
þeir i neytendafélög, sem eru fjöl-
mennust, framleiöendafélög
lánafélög, tryggingafélög og fleiri
flokka eftir þeim verkefnum, sem
félögin sinna.
Innan þessa alþjóöasambands
eru allmörg samvinnusambönd
svokallaöra alþýðulýövelda, þar
sem kommúnistaflokkar ráða
rikjum. I þessum löndum hefur
rikisvaldið svo mikil og náin
afskipti af samvinnusamtökun-
um, að þau geta ekki kallazt
frjáls i skiningi manna i lýðræðis-
rikjum. Hefur það verið mikiö
deilumál.
1 hinum frjálsu löndum er sam-
vinnustarf öflugast i Norðvest-
ur-Evrópu, á Norðurlöndum öll-
um, i Bretlandi, Niðurjöndum,
Þýzkalandi og Sviss en þar að
auki I ísrael. Hreyfingin er
allsterk I Bandarikjunum, sér-
staklega meöal bænda, I trygg-
ingarstarfi og oliuvinnslu, en hef-
ur hlutfallslega miklu minni
þýöingu en I Vestur-Evrópu. Þá
er vaxandi samvinnustarf i hin-
um nýfrjálsu löndum Asiu og
Afriku. Leggja samvinnumenn
um heim allan mikla alúö við að
hlúa að samtökunum I þeim lönd-
um, en þar virðist vera frjór jarð-
vegur fyrir hugsjón samvinnunn-
ar.
Nú vikur sögunni um sinn aftur
til vefaranna i Rockdale. Stefnu-
skrá þeirra, sem þegar hefur
verið lýst, gaf til kynna vonir
þeirra um framtiö samtakanna.
En þeir settu sér einnig starfs-
reglur, og eru þær merkasti arfur
þessa félegs til samvinnuhreyf-
ingarinnar i heild. Þeir völdu
nokkur meginatriði, sem höfðu
verið reynd eitt og eitt meö mis-
jöfnum árangri, geröu úr þeim
heil.steyptan grundvöll, sem
reynzt hefur svo traustur, að
hann má enn i dag kalla kjarna
samvinnuhugsjónarinnar um
heim allan.
Höfuðreglur Rochdale félgsins
voru þessar:
1) Lýðræöisleg stjórn. Hver
félagsmaður skyldi hafa eitt
atkvæði án tilits til viöskipta.
2) Félagið sé opið öllum.
3) Fastir, lágir vextir af fjár-
framlögum til félagsins.
4) Agóði skiptist I árslok milli
félagsmanna i hlutfalli við
viöskipti þeirra.
5) Staðgreiðsla.
6) Góöar, ósviknar vörur, rétt
mál og vog.
7) Fræöslustarf.
8) Fullkomið hlutleysi um
stjórnmál og trúmál.
Samvinnumenn hafa mikið rætt
og ritaö um þessar reglur, og
vilja sumir bæta viö þær, en aörir
fella nokkrar þeirra niöur. Þó eru
allir sammála um fjórar fyrstu
reglurnar, enda eru þær höfuö-
einkenni allra samvinnufélaga og
ekki hægt aö kalla það samvinnu-
félag, er ekki fylgir þeim öllum.
Þessi fjögur einkenni skapa
reginmun á samvinnufélögum og
öörum samtökum i efnahagslifi.
Samvinnumenn leggja hvað
mesta áherzlu á fyrstu regluna
um lýðræðislega stjórn. Lýðræði i
efnahagsmálum, hlýtur að fylgja
I kjölfar hins pólitiska lýðræðis,
og samvinnustefnan er ein þeirra
leiða, sem bezt hafa gefizt á þvi
sviði.
I einkafyrirtæki ræður eigand-
inn öllu um rekstur og stjórn, en
viðskiptavinir engu. I hlutfélagi
hafa menn atkvæöastyrk á aðal-
fundum eftir þvi, hve mikið hluta-
fé þeir hafa lagt fram. Pening-
arnir ráða, en ekki mennirnir.
Aöeins amvinnufélög veita öllum
félagsmönnum jafnan rétt til
áhrifa, þar sem hver og einn hef-
ur eitt og aðeins eitt atkvæði,
hvort sem hann verzlar mikið eða
litiö. Maðurinn ræður en ekki
peningarnir.
Ef rikur maður er i samvinnu-
félagi og verzlar við þaö fyrir
hundrað þúsund krónur, en
fátækur maöur verzlar við sama
félag fyrir tiu þúsund, hafa þeir
eftir sem áöur jafnan atkvæöis-
rétt á fundum og til stjórnar I
félaginu. Ef einn maður á 100.000
kr. hlutabréf og annar aöeins
10.000 kr. I hlutafélagi, þá hefur
sá rikari tiu atkvæði gegn hverju
einu hins fátæka. Þarna er regin-
munur á samvinnurekstri og
einkarekstri, og þessa
meginreglu festu vefararnir I
Rochdale i sessi.
Onnur reglan er sú, að sam-
vinnufélag sé öllum opið. Hvaða
borgari, sem vill, getur gerzt
félagsmaður. t fyrstu þurftu
félagsmenn að visu að leggja
fram fjárupphæðir, sem voru lág-
ar en þó nokkur fórn, eins og
sterlingspund vefaranna, sem
þeir greiddu meö tveim pensum á
viku. Nú á dögum eru slik gjöld
svo lág, að engum manni veldur
erfiðleikum og þau geta ekki kall-
azt takmörkun á inngöngu I félög-
in.
Engin önnur félög standa
almenningi opin á þennan hátt.
Eigandi fyrirtækis er sjálfráður,
hvorthann býður nokkrum manni
félagseign við sig. Hlutafélög eru
lokuö, en þeir, sem inngöngu fá
veröa að leggja fram hlutafé eöa
kaupa hlutabréf fyrir mis-
munandi mikið fé. Þar má segja,
að maðurinn sé ekki tekinn I
félagiö, heldur peningar hans.
Þetta frelsi til þátttöku I
samvinnufélögum er að sjálf-
sögðu grundvallaratriði I
lýðræðisskipan þeirra og gerir
hvaöa borgara, sem vill, kleift aö
verða þátttakandi i starfi félag-
anna og hafa áhrif á stjórn þeirra
og stefnu.
Þriðja reglan er þess efnis, að
greiddir séu fastir lágir vextir af
þvi fé, sem félagsmenn leggja
fram. Það er háttur hlutafélaga
að greiða arð á hlutabréfin, mis-
munandi mikinn eftir afkomu
félagsins. Þannig er ágóðanum
skipt milli eigenda, og ágóöinn er
viðurkenndur höfuðtilgangur
manna, sem leggja fé sitt I slik
fyrirtæki. Þetta er algerlega
fyrirbyggt I samvinnufélögum.
Þar fá menn ekki hagnaö félags-
ins eftir fjárframlögum sinum,
heldur eftir viðskiptamagni.Með
þessari reglu drógu vefararnir
enn eina linu milli samvinnufé-
laga og annarra félaga, og var
þýðingarmikið i upphafi að gera
mönnum ljóst, hver munur væri á
stofngreiöslu I samvinnufélagi og
hlut I hlutafélagi.
Fjórða meginreglan er um
skiptingu arðs, sem verða kann af
starfsemi samvinnufélags. 1
þessari reglu felst þaö, að vara er
seld á gangverði staðar og
stundar, en ekki reynt að áætla
rétt verð strax, eins og pöntunar-
félög gera. Sfðan er þeim tekju-
afgangi, sem verður eftir árið,
skilað aftur til félagsmanna i
beinu hlutfalli viö þau viöskipti,
er þeir hafa átt viö félagið.
Þegar heildarkostnaöur og
skattar félags hafa verið dregnir
frá tekjum þess, kemur út ágóði
starfseminnar, sem samvinnu-
menn kalla tekjuafgang. I einka-
rekstri er ágóðinn eign þeirra,
sem félagið eiga. 1 samvinnu-
rekstri er tekjuafgangurinn eign
félagsfólksins, og skilað aftur til
þess. Þannig er tryggt sannvirði i
viðskiptum. Hér er enn einn
reginmunur á samvinnufélögum
og öðrum samtökum efnahags-
lifsins, munur, sem hefur haft
þær afleiðingar, aö stórum
fjárfúlgum hefur árlega verið
skilað aftur til samvinnufólks um
viða veröld.
Þetta eru fjögur höfuðatriði
sam vinnuskipulags, sem
einkenna hvert einasta sam-
vinnufélag, ef það er hugsjóninni
trútt. Um hin atriðin má deila,
hvort þau teljist höfuðeinkenni,
þótt öll hafi þau haft mikla
þýðingu.
Staðgreiðsla var fimmta regla
vefaranna I Rochdale og ekki sú
veigaminnsta á þeirra tlmum.
Þegar atvinnuleysi eöa önnur
óáran dró úr tekjum fólksins,
greip þaö til þess neyöarúrræöis
aö verzla við kaupmenn eða félög,
sem vildu lána. Voru margir
samvizkulausir menn, sem not-
færðu sér neyð almennings, veittu
lán en seldu vörur dýru verði eða
buðu lélega og svikna vöru.
Skuldirnar urðu aö hlekkjum,
sem erfitt var aö losna við. Mörg
af fyrstu samvinnufélögunum,
sem freistuöust til lánaviðskipta,
urðu gjaldþrota af þeim sökum.
Þessi spor hæddu. Vefararnir i
Rochdale þekktu máliö og tóku þá
veigamiklu ákvörðun að verzla
aðeins gegn staögreiöslu. Þeir
vissu, að með þessari reglu voru
þeir aö útiloka margt af
fátækasta verkafólkinu, sem var
bundið öðrum af skuldum eða
varð að leita á náðir kaupmanna,
þegar á móti blés. Fyrstu
kaupfélagsmennirnir voru þvi
ekki úr hópi allra fátækustu
verkamanna, heldur hinna, sem
gátu forðazt skuldasöfnun. Var
talið vænlegra að byrja á þennan
hátt en að hætta tilveru félagsins
þegar i öndveröu með skuldasöfn-
un, þar sem enginn varasjóöur
var til, er leyföi slikt. Þessi fasta
regla kaupfélaganna varð einnig
til að hvetja félagsmenn mjög til
aðgæzlu og hjálpa þeim að forðast
skuldir.
Nú á dögum er margt breytt I
fjármálum og slik skuldasöfnun
til að forðast skort orðin sjaldgæf.
Kapfélög eru mörg oröin
fjárhagslega sterk og geta íeyft
sér aö hjálpa þeim félagsmönn-
um, sem af einhverjum ástæðum
þurfa á lánsverslun aö halda. Þó
reynist skuldasöfnun félags-
manna ýmsum kaupfélögum,
sem ekki gæta sin I þeim efnum,
hinn hættulegasti vágestur.
Sjötta reglan um ósviknar
vörur og rétt mál var einnig mjög
nauðsynieg fyrir einni öld. Þá
voru mikil brögð að vörusvikum,
en almenningur varnarlaus gegn
þeim. Nú á dögum er allt annaö
ástand I þessum efnum, og talið
sjálfsagt I menningarlöndum, að
enginn ábyrgur aðili i verzlun
geri sig sekan um sviksemi i
þessum efnum, er jafnazt gætu
viö það, sem áður tiðkaöist.
Neytandinn er nú ekki varnarlaus
og getur gripið til ýmissa ráða, ef
hann er beittur misrétti á þessu
sviði. Þá þarf samvinnuhrpyfing-
in að gerast meiri neytendahreyf-
ing og sætta framleiöendur viö
það sjónarmið.
Hvort sem nauösynlegt telst nú
aö taka slikt fram i starfsreglum
eða ekki, beita samvinnufélög um
viöa veröld sér mjög fyrir
neytendafræðslu, er stefnir að
auknum kröfum á sviði vöru-
vöndunar og aukinni þekkingu á
vörugæöum. Leiöir af þvi, aö þau
reyna eftir föngum að selja
aðeins góða vöru og hafa vigt og
mál nákvæmt.
Sjöunda reglan var, að Roch-
dale-félagiö skyldi halda uppi
fræðslustarfsemi. Var þetta efnt
strax og félagiö hafði ráð á, og
opnuö lesstofa I húsakynnum þess
I Froskastræöti. Tilgangur þessa
ákvæðis var I upphafi að mennta
félagsfólkið i samvinnufræðum,
gera það að góðu samvinnufólki,
enda voru kenningarnar þá meiri
nýlunda en nú er. Þar að auki
hafa samvinnufélög ávallt reynt
að efla alþýðumenntun eins og
þau hafa getað. Þessu boðorði
fylgja samvinnufélög yfirleitt enn
þann dag I dag með margvislegri
útgáfu, skólahaldi og annarri
fræöslustarfsemi, en mættu mörg
gera það enn betur og vega
þannig að hættum sem jafnan
steðja aö stórfyrirtækjum.
Attunda og siöasta reglan var
algert hlutleysi i stjórnmálum og
trúmálum. Var tilgángur þessa
ákvæðis upphaflega að tryggja
hlutleysi Rochdalefélagsins i
baráttu milli ólikra umbótastefna
(sósialista, chartista og fleiri
slikra), þar sem aðrar
stjórnmálaskoðanir komu vart til
greina meðal samvinnumanna,
svo og að tryggja hlutleysi milli
hinna ýmsu sértrúarflokka, sem
áttu miklu fylgi að fagna meðal
alþýðu manna I Englandi. Siöar
hefur þessi regla hlotið allt aðra
og meiri þýðingu, og er hún
raunar umdeild. Til eru sam-
vinnufélög, sem hafa mjög náin
tengsl við pólitiska flokka (t.d. I
Englandi og Belgiu), og einnig
félög, sem hafa samband viö
ákveðna trúarflokka (t.d. I
Kanada). Viða um lönd hefur)
félögunum reynzt það algerlega
óraunhæft að vera afskiptalaus
um landsmál vegna stóraukinna
afskipta hins opinbera af efna-
hagslifi. Hafa félögin þá eölilega
hallazt að þeim, sem vildu veita
þeim stuðning, en gegn hinum,
sem sýndu þeim fjandskap.
Þetta voru Rochdale-reglurnar.
Er nú rétt að láta þessu sögulega
yfirliti lokið, og geta lesendur
hver á sina visu borið hugsjónina
saman við veruleika nútimans á
Islandi. Vafalaust ber eitthvaö á
milli, en þó er vandfundið það
land, þar sem samvinnuhreyfing-
in hefur áorkað jafn miklu og hér
á Islandi.
Benedikt Gröndal.
erió góð kaup
\
Eldhús og Borðstofuhúsgögn í úrvali, Greiðslu-
skilmálar Glæsilegt vöruval úr öllum deildum
Vöruhúss K.E.A. Aih: opið alla laugardaga til kl. 12
á hádegi.
Vöruhús K.E.A. býöur yöur fjöl-
breyti vöruval í 7 deildum
□ HERRADEILD: höfum mikiö af fallegum og
vönd'.'öum fatnaöi á herrana, ennfremur gott
úrval af herrasnyrtivörum
□ VEFNAÐARVÖRUDEILD: Kven og barnafatnaó-
ur i miklu úrvali
Q SKÓDEILD: Vandaöur skófatnaöur á alla fjöl-
skylduna
□ HL JÓMDEILD: Hljórnplötur, cassettur og plaköt
□ SPORTVÖRUDEILD Gott úrval leikfanga fyrir
alla aldurshópa
□ TEPPADEILD: Falleg gólfteppi, gólfmottur og
baömottusett
n JÁRN OG GLERVÖRUDEILD: Gjafavörur, eld-
húsvörur, matar og kaffistell Ög margt fl.
Góöar vörur gott verð.
k Póstsendum um allt land
Hafnarstræti & Hrísalundi 5
sími21400