Alþýðublaðið - 01.05.1981, Side 10

Alþýðublaðið - 01.05.1981, Side 10
10 Föstudagur 1. maí 1981 Alþýöublaöiö Aöalfundur fer meö æösta vald Sambandsins. Þessi mynd er tekin á 74. aöalfundi Sambandsins. SAMVINNUHREYFINGIN A SLANDI samvinnuhugsjón í framkvæmd eða einokun? Því er oft haldið fram að umsvif Sam vinnufélaganna í landinu séu óeðlilega mikil. Sumir ganga svo langt að halda því fram, að Samvinnufélögin/ kaupfélögin og önnur fyrirtæki í tengslum við Sambandið séu einokunarhringur af verstu gerð. Þeir sem gerst þekkja til telja að þetta sé alrangt, Sambandið haf i einungis þróast með eðlilegum hætti í takt við breyttar aðstæður. í fljótu bragði er það erfitt að gera sér grein fyrir umsvifum Sambandsins og því auðvelt að fara villur vega í dómum sínum um þetta stærsta fyrirtæki landsins. Samvinnuhreyfinginog verkalýðshreyf ingin áttu samleið í upphafi og vafalaust er margt sem tengir hreyf ingarnar bæði skipulagslega og sérstaklega hugmynda- lega. Það er því eðlilegt að veita lesendum innsýn í starfssemi Sambandsins á bar- áttudegi verkalýðsins. Með því geta menn myndað sér skoðanir á fyrirtækinu og dæmt um það sjálfir hvort Sambandið sé einokunarhringur í höndum fámennrar stjórnar, eða hvort Sambandinu hef ur tekistað ná þeim markmiðum sem sett voru i upphafi. Efni það sem hér fer á eftir eru hlutar af bók Eysteins Sigurðssonar, Samvinnuhreyfingin á (slandi. Efnið birtist með leyfi höfundar. Uppruni Samvinnufélögin á Islandi rekja uppruna sinn aftur til seinna helmings siðustu aldar, þegar fór aö rofa til i verslunar- málum þjóöarinnar eftir langa áþján erlendra einokunarkaup- manna og verzlunin að færast á ný á innlendar hendur. Þá hreyf- ingu, sem aö baki þessum félögum lá má reyndar rekja allar götur aftur til siöari hluta á- tjándu aldar, en þá varð talsverö vakning hér á landi i almennum þjóömálum. Upplýsingarstefnan var þá áhrifamikil i landinu, og leiðtogar hennar hvöttu þjóöina óspart til að risa upp, rétta sig úr kútnum og brjóta sér leiðir til betri lifskjara. I ritum og skáld- skap þessara tima er að finna margvislega hvatningu og örvun, og einnig bein heilræöi varðandi endurbætur á búskaparháttum. Kröfurnar um innlent þinghald og siöar sjálfstæöi þjóöarinnar, sem upphófust hér á landi af alvöru með innreið rómantisku stefn- unnar (nálægt 1830), uröu og vita- skuldeinnigtiliaðýtaundir þaö, aö menn tækju sig saman um að leita endurbóta i verzlunarmál- unum. Meö réttu var litiö á þau sem einn mikilvægasta þáttinn i baráttu þjóðarinnar fyrir lifvæn- legum afkomumöguleikum i landi sinu, og fyrir aðstööu til að geta staöið á eigin fótumog ráöiö mál- um sinum sjálf til lykta. Innlendur uppruni Samtök um verzlunarrekstur koma til sögunnar þegar snemma á siöustu öld, þvi aö strax á fýrstu áratugum aldarinnar má finna dæmi þess, aö bændur taki sig saman og stofni meö sér verzl- unarfélög. Þessi félög voru fyrst og framan af gjarnan stofnuð utan um harösnúna forystumenn sem treyst var til þess aö knýja fram hagstæða samninga viö óbilgjarna fulltrúa erlendra verzlunarfyrirtækja. Sameigin- legt einkenni þessara félaga var þaö, aö þau tóku ekki sjálf aö sér verzlunarrekstur, heldur samein- uðu einungis kaupmátt félags- manna sinna i viðskiptum viö kaupmennina. Þessi félög hlutu þó aö eiga erfitt uppdráttar fram an af, og þaö var ekki fyrr en eftir 1854, þegar verzlunin var gefin frjáls, aö fyrir þau skap- aöist raunverulegur starfsgrund- völlur. Þegar lesnar eru heimildir um verzlunarsöguna fráþessum tima er þaö langmest áberandi, og reyndar átakanlegast, hvaö fá- fræði jafnvel beztu bænda um verzlunarmálefni er mikil og al- menn. A þessum tima hvarflar það naumast að nokkrum manni, nema sem f jarlæg draumsýn, aö þaö eigi fyrir islenzkri alþýöu aö liggja aö stofna með sér fjölda- samtök til aö reka eigin milli- rikjaverzlun, þ.e. stofna eigin fyrirtæki, sem jöfnum höndum kaupi inn nauðsynjar fyrir lands- menn frá öörum löndum og selji £ifuröir þeirra á hagstæðustu markaði. Fram hjá þeirri stað- reynd veröur ekki komizt, að mestalla nitjándu öld voru for- feður okkar svo háöir hinum dönsku kaupmannaverzlunum, aö án þeirrar þjónustu sem þær óneitanlega veittu hefðu lands- búar vægast sagt veriö ákaflega illa á vegi staddir. Það viröist greinilegt, aö Norö- lendingar hafi veriö einna fyrstir til i baráttunni fyrir innlendri verzlun og endurbótum á verzl- unarkj«-um, þótt hægt gengi framan af. Breytir þar litlu, þótt vitað sé um framtak um verzl- unarsamtök á Suöurlandi snemma á öldinni, og i Reykjavik laust fyrir miöbik hennar. Einna elzt af þeim mörgu félögum, sem Norölendingar stofnuðu til aö bæta verzlun sina, munu hafa veriö verzlunarféiögin I Háls- og Ljósavatnshreppum i Suður-- Þingeyjarsýslu, sem stofnuö voru 1844, en önnur komu siöan i kjöl- far þeirra. Þessi félög urðu mis- munandi langlifen runnu þó öll út isandinn fyrr eöa síöar. Hin sömu örlög fyrstu innlendu félaganna, sem tóku sér fyrir hendur að reka verzlun beint frá tslandi til ann- arra landa. Þau voru Gránu- félagið og Félagsverzlunin við Húnaflóa, sem bæði voru stofnuð 1869. Félagsverzlunin hætti starf- semi skömmu fyrir 1880, og um svipað leyti hvarf Gránufélagiö úr sögunni sem innlent verzlunar- fyritæki. Ein helzta orökin fyrir skammlifi þessara félaga var reynsluleysið, sem m.a. kom fram i þvi, að þau leyfðu félags- mönnum sinum að safna skuldum úr öllu höfi og komust siöan ekki hjá þviað safna sjálf skuldum hjá erlendum verzlunarfyrirtækjum. Var það i þeim mæli, aö það reið þeim loks aö fullu. A hinn bóginn kom annað i kjöl- far verzlunarfrelsisins, sem var að enskir kaupmenn fóru aö kaupa hér sauöfé á fæti I stórum stil og fiytja til slátrunar út til Englands auk þess sem þeir keyptu hér allmikið af hrossum. Um 1880 voru þeir farnir aö stunda þessi viöskipti i allrikum mæli, og þessi markaöur i Bret- landi varð þess valdandi, að auknir starfsmöguleikar sköp- uðust fyrir verzlunarsamtök bændanna. Með þvi aö mynda samtök um útflutninginn fengu þeir þarna jafnframt aðstöðu til aö gera innkaup erlendis frá án milligöngu dönsku kaupmann- anna. Er reyndar taliö, varöandi fyrsta kaupfélagiö, Kaupfélag Þingeyinga, að sauðasalan til Bretlands hafi greitt mjög fyrir þvi i byrjun, og höfuðástæðan fyrir velgengni þess fyrstu árin mun hafa verið hátt verð, sem félaginu tókst að fá fyrir sauði á markaöinum þar. Með þvi var hættunni á skuldasöfnun félags- manna að mestu bægt frá. Elzta kaupfélagið innan Sam- bands islenzkra samvinnufélaga erKaupfélag Þingeyinga á Húsa- vik, sem stofnaö var aö Þverá i Laxárdal 20. febrúar 1882. Aö stofnun þess stóðu þingeyskir bændur, sem, eins og getið var, höföu þegar aflað sér talsverörar reynslu af félagsrekinni verzlun. Hins vegar er þaö hin viðtekna skoöun, aö þeir hafi ekki haft fyrir sér neinar erlendar fyrir- myndir um slika starfsemi, heldur stuözt i einu og öllu viö eldri reynslu sina heima fyrir. Félag þeirra var lika I fyrstu nán- ast með hreinu pöntunarfélags- formi, þ.e. það annaöist útflutn- ing á sauöfé bændanna og keypti i staðinn vörur, sem skipt var upp á milli þeirra á kostnaðarveröi. Sölubúö var engin, né heldur sjóðamyndun, og vitaskuld var ekki um aö ræða neina endur- greiðslur á tekjuafgangi, þegar vel gekk. Um þetta leyti gekk mikil hreyfing yfir ýmsa hluta landsins um aö endurbæta verzlunina. Voru þvi allmörg félög stofnuö á svipuöum tima i hliöstæöum tU- gangi. Ýmis þeirra hurfu fljót- lega Ur sögunni, en önnur uröu langlífari. Meðal þeirra eru nokkur af öflugustu kaup- félögunum innan Sambandsins i dag, en eftirtalin aðildarfélög þess eru næst Kaupfélagi Þingey- inga að aldri: Kf. Eyfiröinga, Akureyri ....1886 Kf. Svalbaröseyrar, Svalbarös- eyri.......................1889 Kf. Skagfiröinga, Sauöár- króki......................1889 Kf. Noröur-Þingeyinga Kópa- skeri......................1894 Kf.HUnvetninga, Blönduósi.. 1895 Kf.Saurbæinga.Skriöulandi .1898 Kf. Steingrimsfjaröar, Hólma vik........................1898 Kf.Hrútfiröinga,Borðeyri... 1899 Kaflar úr bók Eysteins Sigurðssonar um Samvinnuhreyfinguna á íslandi

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.