Alþýðublaðið - 01.05.1981, Page 12

Alþýðublaðið - 01.05.1981, Page 12
12 Föstudagur 1. maí 1981 Aiþýðublaðið Hallgrimur Kristinsson (1876—1923). Hann stjórnaöi KEA frá 1902 og gegndi trúnaöarstörfum fyrir Sambandiö frá 1908. hitt i Sambandsverksmiðjunni á Akureyri (SFS Akureyri). Þessi félög eru ekki stéttarfélög, þ.e.a.s. þau semja ekki um kaup og kjör félagsmanna sinna, held- ur fást þau eingöngu viö málefni, sem sérstaklega snerta hagsmuni Sambandsstarfsmanna sem slikra og hafa einnig meö höndum fræöslustarfsemi um sam- vinnumál. Má þar til nefna sem dæmi, aö félögin halda árshátiöir, skipuleggja orlofsdvalir og ferða- lög o.s.frv. Starfsmannafélög eru starfandi hjá flestum, samstarfsfyrirtækj- unum og hjá velflestum kaup - félögunum. Þessi félög hafa meö sér landssamtök Landssamband islenzkra samvinnustarfsmanna (LIS). Auk starfsmannafélag- anna eru I þvi nokkur kaupfélög, einkum hin smærri, þar sem vegna fámennis er ekki grund- völlur fyrir starfi sérstakra starfsmannafélaga. Einnig hafa fleiri félög gengiö I LIS, og er þar aö nefna tvö framleiöslusam- vinnufélög iönaðarmanna. Sam- virki svf. og Rafafl svf, en þau hafa hins vegar ekki gengið i Sambandiö. Verkefni LtS eru margvisleg, en m.a. hefur >aö haft talsveröa forgöngu um smiöi orlofshúsa aö Bifröst, þar sem nú er risiö myndarlegt hverfi slikra húsa. Húsin eru I eigu einstakra starfs- mannafélaga og til afnota fyrir félagsmenn þeirra. LIS hefur einnig skipulagt feröir til útlanda fyrir samvinnustarfsmenn og boöiö þær á hagstæöum kjörum. Þaö tekur þátt I samstarfi norrænna samvinnustarfsmanna innan KPA (Kooperativa Personal Alliansen). E inni g gefur LIS út timarit, „Hlyn” sem kem- ur út annan hvern mánuð. Aö Hávallagötu 24 i Reykjavik er féiagsheimiliö Hamragaröar, þar sem er miöstöö fyrir félags- starf samvinnustarfsmanna. Eins og fyrr getur var hús þetta áöur heimili Jónasar Jónssonar frá Hriflu, sem lengst af var skólastjdri Samvinnuskólans og ritstjóri Samvinnunnar, en 1971 afhenti Sambandiö samtökum samvinnustarfsmanna þaö til af- nota fyrir félagsstarfsemi sina. Aöild aö rekstri þess eiga félög samvinnustarfsmanna I Reykja- vik, og einnig LIS og Nemenda- samband Samvinnuskólans. 1 Hamragöröum er haldiö uppi margskonar félagsstarfi, einkum yfirveturinn, en þar er m.a. gufu- baö og aöstaöa til margs konar tömstundaiökana. Þar er llka haldið uppi margs konar les- hringastarfsemi, auk fyrirlestra og fundahalda af margvislegu tagi. 1 Hamragöröum er lika góö aðstaöa til smærri listsýninga, og hafa margir myndlistarmenn fengiö þar inni fyrir sýningar siö- ustu árin.. Þaö hefur mjög færzt I aukana á siöustu árum, aö fulltrúar starfsmanna tækju sæti I stjórn- um samvinnufélaga, oftast meö málfrelsi og tillögurétti. Eins og áöur getur sitjanú tveir fulltrúar starfsmanna Sambandsins i stjórn þess með slikum rétt- indum, og sami eöa svipaöur háttur hefur veriö tekinn upp i allmörgum öörum samvinnu- félögum. Alþjóðasamstarf Samband Isl. samvinnufélaga eraðili aö margs konar samstarfi samvinnufélaga á alþjóðlegum vettvangi. Er þar annars vegar um aö ræöa samstarf samvinnu- sambanda á Noröurlöndum og hins vegar alþjóölegt samstarf samvinnusambanda. Samvinnusambönd neytenda starfa á öllum Noröurlöndunum. Auk Sambandsins eru þau FDB (Fællesforeningen for Danmarks Brugsforeninger) i Danmörku, NKL (Norges Kooperativa Landsforening) i Noregi, KF (Ko- operativa Förbundet) 1 Sviþjóö, og SOK (Suomen Osuuskauppoj- en Keskuskunta) og OTK/KK (Osuustukkukauppa/Kulutus- osuuskuntien Keskusliitto) i Finnlandi. Þessi sambönd hafa meö sér margvislegt samstarf, og fer mest af þvi fram innan Norræna samvinnusambandsins (NAF, Nordisk Andelsforbund). Það var stofnaö 1918, en Sam- bandiö gekk I þaö 1949. Megin- hlutinn af starfsemi NAF beinist aö þvi aö annast innkaup á heims- markaöi fyrir aöildarsamböndin, og hefur Sambandið m.a. notiö margvislegra hagsmuna af þvi starfi á liðnum árum. I þessum tilgangi rekur NAF innkaupa- skrifstofur viöa um heim, sem sérhæfa sig i þvi að ná sem hag- stæðustum innkaupum hver á sinu markaössvæði. Þessar skrif- stofur eru i Valencia á Spáni, Santos I Brasiliu, San Fransisco I Bandarikjunum, Buenos Aires i Argentinu og Bologna á ítaliu. Þaö annast innkaup á fjölda- mörgum vöruflokkum, en nýir ávextir og kaffi eru þær vöruteg- undir, sem NAF kaupir langmest af. Þá eru iönaðarmál einnig ofar- lega á baugi innan NAF. 1 eigu aðildarsambands þess eru nú tvö samnorræn iönfyrirtæki, Nord- choklad, sem rekur verksmiöjur til aö framleiöa sælgæti og skyld- ar vörur i Kalmar og Alstad i Svi- þjóö, Kolding i Danmörku og i Osló, og Nordtend, sem rekur efnaverksmiöjur I Stokkhólmi, Hdsingfors, Stafangri og Viby i Danmörku. Sambandið á 1% eignarhluta i fyrr nefnda fyrir- tækinu, og 0.7% I hinu siöar nefnda, sem er nálægt þvi að samsvara þvi hlutfalli, sem tslendingar eru áf Ibúafjölda Noröurlandanna allra. Systursamband NAF er Norræna útflutningssambandið (NAE, Nordisk Andels-Eksport), sem sömu aöilar standa aö. Þaö var stofnað 1954 og hefur að meg- inverkefni aö annast útflutning á ýmsum vörum fyrir aöildarsam- böndin. Meöal annars hefur það annazt allmikinn útflutning á húsgögnum til Bandarikjanna frá Norðurlöndum. Arsfundir NAF og NAE eru haldnir til skiptis I aöildarlöndun- um fimm. Þannig hafa þeir verið fimmta hvert ár á íslandi, siöast sumarið 1975. Varöandi þátttöku Sambands- ins I alþjóölegu samstarfi sam- vinnufélaga er fyrst og fremst aö nefna Alþjóöasam vinnusam- bandið (ICA, International Co- operative Alliance). Þaö var stofnaö 1895, og Sambandiö gekk i þaö 1928. Eins og getiö var hér að framan hefur þaö á liönum árum fyrst og fremst veriö vettvangur fyrir umræöur og upplýsinga- miölun á milii samvinnusam- banda I hinum óliklegustu heims- hlutum. Þaö gefur út timarit og margskonar fréttabréf um ýmis efni og innan þess starfa einnig allmargar nefndir og samstarfs- hópar, sem fjalla um samræm- ingu á samvinnustarfinu innan afmarkaðra sviða Þannig starfa innan ICA sérstakar nefndir um bankamál, tryggingar, iðnað, landbúnað, fiskveiöar, húsbygg- ingar, smásölu og vörudreifingu, neytendamál og hlut kvenna i samvinnufélögum. Samstarfs- hópar starfa um málefni bóka- varöa hjá samvinnusamtökum, samvinnublaöamanna, kennara og skólastjóra samvinnuskóla, og þeirra sem vinna aö upplýsinga- söfnun innan samvimiusamtaka. A árunum 1971—80 stendur yfir sérstakur samvinnuþróunarára- tugur á vegum ICA, en á þeim tima leggur sambandiö áherzlu á aö efla sem mest samvinnufe'lög i þróunarlöndunum. Þessi starf- semi beinist aö almennri upplýs- ingasöfnun og upplýsingamiölun um starfsemi samvinnufélaga I þessum löndum og reynsluna af henni. I þeim tilgangi er m.a haldiö uppi margs konar dreif- ingu prentaös og f jölritaös máls, og einnig gengst ICA fyrir ráö- stefnum, þar sem fjallaö er um einstaka málaflokka, sem snerta samvinnufélög i þriöja heimin- um. Lika leggur ICA sig fram viö að beina kröftum aöildarsam- banda sinna til hjálpar, þar sem þörfin er brýnust, en allt þetta starf fer fram i nánu samstarfi viö Sameinuðu þjóöimar. Þróun- arstarfsemi ICA fer bæöi fram frá aðalskrifstofunni I Lundúnum og eins frá tveimur svæöaskrif- Kaupfélag Néraðsbúa Egilsstöðum árnar íslenskri alþýðu til lands og sjávar allra heilla á hátíðisdegi verkalýðsins 1. maí t

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.