Alþýðublaðið - 16.06.1981, Side 8

Alþýðublaðið - 16.06.1981, Side 8
alþýðu- blaöið Þriðjudagur 16. júní 1981 VSl spáir um verðhækkanir Verðbólgan um 50% milli ára 1980-1981 Vinnuveitendasamband ls- lands, VSl, hefur sent frá sér jiim-spá um þróun verblags og gengis. Eins og kunnugt er hefur hagdeild VSt spáö áður um þróun verðlags og oftast verið býsna nærri þvi sem raunin hefurorðið. 1 spá þeirri sem nú hefur verið birt kemur m.a. fram, að verðbólgan, eða meðaltalshækkun vcrðhækk- ana milli ára 1980 og 1981 veröur nálægt 50%, en verð- hækkanir á árinu 1981 verður um 42%. 1 athugasemdum með spá VSI segir svo: ,,NU liggur fyrirþróun verö- lags fyrstu5 mánuði ársins. Sé spá VSÍ frá þvf i janúar skoðuð með hliösjón af reynslunni kemur iljós að litlu munar það sem af er árinu. Þannig var gert ráð fyrir að F-visitala hækkaði um 15% á tfmabilinu nóvember 1980 — febrúar 1981 en reynslan var hins vegar 14,3%. Næstu þrjá mánuði þar á eftir var gert ráð fyrir 9,5% hækkun en raunin varð 8,02%. Samsvarandi launahækkanir voru áætlaðar 5,5% i mars og 9,5% í júni. Raunin varö 5,95% og 8,10%. Spá VSl frá janúar hefur nú verið endurskoðuð með hlið- sjón af þessari framvindu og stöðu sjávarútvegsins. Niður- staðan er i meginatriðum sú að verðlagshækkanir verða heldur hægari en þá var spáð. Minni frávik eru hinsvegar i gengisspá. Nú sýnast likur á að verðlagshækkun yfir árið 1981 verði um 42%, en meðal- talshækkun milli áranna 1980 og 1981 veröi um 50%. Það sem telja má aö valdi mestu um frávik er gengisþró- uninþað sem af er árinu. Eftir kjör nýs forseta Bandarikj- anna um siðustu áramót tók gengi dollars að styrkjast verulega á alþjóðamarkaði. Ekki er enn að sjá aö sú þróun hafi stöðvast. Jafnframt hafa þýðingarmestu Evrópugjald- miölar veikst. Fyrir islenska þjóðarbúskapinn er þessi þró- un afar hagstæð þar sem út- flutningur fer að mestu leyti fram með dollaraviðskiptum en innflutningur er meira bundin evrópskum gjaldmiðl- um. Þrátt fyrir að spár um gengi dollars hafi þannig i meginatriðum gengið eftir kann að vera að áhrif innflutn- ingsgengis haf i verið ofmetin i fyrri spá. Hin óvænta gengis- þróun veldur þvi að innflutn- ingsverð hefur ekki hækkað eins og búist var við i ársbyrj- un. Ný efnahagsstefna i Banda- rlkjunum hefur komið is- lenska hagkerfinu til góða á fleiri sviðum. Aukin bjartsýni rikir nú með bandariskt efna- hagslif og hefur árangur þar jafnvel verið meiri en búist varvið. M.a. af þessum sökum var taliö fært að hækka verð á freöfiski i'Bandarikjunum fyr- ir skemmstu sem aö sjálf- sögðu kemur islenskum frysti- húsum til góða i bættri af- komu, léttir greiðsluskyldu af rikissjóði og dregur úr gengis- lækkunarþörf. Þrátt fyrir augljósan árang- ur af veröbótaskerðingum má þó ekki lita fram hjá því að nú- gildandi skipan kaupgjalds- visitölu veldur þvi aö ársfjórð- ungslegar breytingar á F-visi- tölu hækka stöðugt þegar á ár- ið liður. Án frekari aögerða sem miöa að niöurskuröi Mitterrand og sjónvarpstæknin Fráfarandi forseti Giscard, heilsar Mitterrand nýkjörnum forseta, á þrepum Elysee-hallarinnar. Sjaldan i sögu Frakklands, hefur kosningabaráttan milli forsetaframbjóðenda verið jafn hörð isjónvarpi og hún var milli Mitterrands og Giscard. Reyndar má með sanni segja að þetta hefi verið i fyrsta sinn, sem raunveruleg barátta hafi farið fram á sjónvarpsskermin- um i Frakklandi. Við upphaf sjónvarps i Frakk- landi, 1958, kom de Gaulle ein- mitt til valda. Einmitt þegar sjónvarpið var að fá einhverja útbreiðslu. DeGaulle, sem hafði sterka tilfinningu fyrir hinu dramatiska i stjórnmálum, sá strax, að þarna var miðill, sem vert var að rækta. Hann gerði þaölika kerfisbundið. Hann fór i tima til leikara til að læra hvernig ætti aö koma fram fyrir framan sjónvarpsvél. Hann var með lélega sjón og notaði svo sterk gleraugu, að séð i gegn um þau virtist hann hafa ugluaugu. Hann lagði þvi gleraugun frá sér fyrir framan sjónvarps- myndavél, og lærði sinar ræður við slík tækifæri utanaö. Honum tókst aö skapa sér sjónvarps- persónu, sem átti sér i raun enga hliðstæðu. De Gaulle stjórnaöi i gegn um sjónvarp. titsendingar hans voru einskonar stjórnmálaleg list. En hann einn gerði það. Enginn gat beitt sömu aðferðum og hann án þess að verða hlægi- legur. Andstæöingar de Gaulle, og sérlega á vinstri vængnum litu á sjónvarp, sem eitthvað syndugt. Þeir litu á sjónvarp, sem miðil fyrir lýöskrum afturhaldsins, sem menningarfjandsamlegan og lygin miðil. Þessvegna stilltu þeir sér upp fyrir framan myndavélarnar og hreinlega lásu upp langar ræður, oft mjög þungar og torskildar. Þannig höfðu nefnilega ræöur franskra vinstrimanna veriö frá þvi i tið Marx. Þannig náði de Gaulle einokun á sjónvarpinu. Pompidou forseti lærði aldrei að fara með sjónvarp. Hann reyndi að apa eftir de Gaulle, en það gekk ekki vel. Hinsvegar stjórnaði Pompidou sjónvarp- inu pólitiskt mjög vandlega. Það gekk svo langt, að hann hringdi sjálfur i fréttaþjónustu sjónvarpsins, þegar honum mislikuöu fréttir eða frétta- menn létu þannig að honum þótti réttast að reka þá. En fjár- málaráðherra Pompidou, Giscard, kunni að fara með sjónvarp. Hann skapaði sér eig- in sjónvarpspersónu, sem upp- fyllti þær kröfur, sem hann gerði. Hann lék nútimamann, mann með mörg áhugamál, víða heima, hinn bráðgreindi efnahagsmálasérfræðingur. Hann var maður, sem lék tennis ifritimum, og lét kvikmynda sig i sportinu. Hann lagði upp sitt pólitiska prógram i sjónvarpi, með sama elegansa. 1 kosningabaráttunni 1974 rak hann sina kosninga- baráttu, og hún var meistara- stykki. HUn var öll miðuð við sjónvarp og hann haföi hersingu af sérfræðingum, kvikmynda- tökumönnum og fleirum, sem lögðu honum ráö. Mitterrand var hinsvegar allsóvanur sjón- varpi og kom aldrei mjög sann- færandi Ut Ur þvi. Hann er i eðli sinu hálf feiminn og hlédrægur maður og það kom Ut i sjón- varpi, sem hann væri annað- hvort geövondur, eða stifur og þver. Hann tapaði kosningunum 1974, meö hársbreidd og sjón- varpið átti stóran þátt i þvi. Eitt fyrsta verk Giscards, þegar hann varð forseti, var að endurskipuleggja franskt út- varp og sjónvarp. Stofnunin, sem haföi áður veriö heljarstór einstrengingslegur risi, var skipt upp i margar smærri ein- ingar. Rásirnar þrjár hjá sjón- varpi skyldu nú keppa sin á milli. Giscard var einnig i upp- hafi mun frjálslyndari en de Gaulle eöa Pompidou höfðu ver- ið. Hann hafði ekki nærri jafn mikil afskipti af sjónvarpinu i upphafi v.aldaferils sins. En svo skipti yfir. Siðustu þrjú ár sln i embætti, gerði hann franska sjónvarpið aö einkamiðli sinum. Það gekk svo langt, að franska þjóðin gerði sér aldrei grein fyr- irþví, af sjónvarpsumfjöllun, að franski Sósialistaflokkurinn var orðinn stærsti og sterkasti flokkur Frakkland. Mitterrand sást næstum aldrei á skermin- um og þá sjaldan hann sást, kom hann ekki vel fyrir. Hins- vegar var mikið af fréttum af formanni KommUnistaflokks- ins, Marchais. Marchais hafði einnig skapað sér sfna sjónvarpspersónu. Hann kom fram sem blanda af jarðýtu og alþýöulegum húmor- ista. Hann bæði hræddi og skemmti frönskum kjósendum. Hann hræddi kjósendur með hinni ógurlegu kommúnisku maskinu, og skemmti þeim, með hörðum og beinskeyttum árásum á andstæðinga sina. Það var pólitiskur skemmti- þáttur. Og Marchais fékk mik- inn ti'ma i sjónvarpi. Að sumu leyti vegna þess aö fréttamenn sáu að þetta var gott efni. En einnig vegna þess, að þaö átti að koma þvi inn hjá þjóðinni, að Mitterrand yrði alltaf _ háður kommúnistunum. [7 Boöskapur- V A RATSJÁNNI Það fór sem fór. Auðvitað var leiöindaveður á sunnudag, þvi þá átti aö halda hátið utanhúss. Þag- all ber mikla virðingu fyrir sjó- mönnum, en ein ástæðan fyrir þvi, aö Þagall fór aldrei til sjós, var sú, að hann þolir ekki vont veður. Þessi skortur á umburðar- lyndi i garð veðurguðanna réð þvi einnig á sunnudag, að Þagall lét sig vanta við hátiðahöldin i Naut- hólsvilc. Vegna veðursins um helgina, má segja að Þagall hafi legið undir feldi. Hann fór ekki á mannamót, eöa hafði sig á annan hátt i' frammi, heldur sat heima og sleikti sár sin, eftir átakamik- inn hversdagsleika vikunnar á undan. Að visu kveikti hann öðru- hverju á sjónvarpi, en slökkti yf- irleitt jafnharðan á þvi aftur. Eitt skiptið kveikti Þagall á sjónvarpi á sunnudagskvöld, og þóttist þá AKRÓPÓLIS OG BERNHÖFTSTORFAN sjá Guörúnu Helgadóttur bregöa fyrir. Heilsa Þagals þaö augna- blikið leyfði þvi miður ekki aö hann færi að fylgjast með pólitik, svo sjónvarpið náði aldrei að hitna almennilega. Skömmu siðar var Þagli tjáð, að þetta hefði ekki verið GuðrUn Helga, heldur Mel- ina Mercouri! Þagal setti hljóðan um stund. Hver gat veriö skýringin á þess- um mistökum. Þaö verður að taka fram hér og nú, absalútt, al- fariö og kategóriskt, að Þagall er allsekki neitt á móti Melinu eöa GuörUnu. Hreint ekki! En hvers- vegna tók Þagall feil á Melinu og GuörUnu? 1 fyrstu datt Þagli i hug, aö þar sem Melina var nú að fjalla um borgarmálefni Aþenu, en Aþena er hennar kjördæmi, heföi það verið þessi alþjóðlegi borgar- málatónn, sem gerði feilinn. Sem sagt, að þarna sá Þagall konu vera að tala um borg, i þeim tón, aö greinilegt var aö hún átti hags- muna aö gæta, og einhvernveginn datt honum þar meö ekki önnur kvenpersóna I hug, en Guðrún Helgadóttir. En er þetta nægilega góð skýring? Að sönnu eiga þessar gagn- merku konur sitthvað sameigin- legt. Þær eru báöar þingmenn. Þær eru báðar listamenn. Þær eru báðar þingmenn fyrir höfuð- borgir sinna ríkja. En það er sitthvað ólikt með þeim llka. Melfna býr svo vel, að sitja þing fyrir vinstrisinnaðan flokk, sem ekki er aöeins vinstri sinnaðurskv.stefnuskrá, heldur i raun. GuðrUn situr á þingi fyrir flokk,sem er vinstrisinnaður skv. stefnuskrá (ef ekki marxiskur) en réttvfsandi framsóknarflokkur iframkvæmd. (Ef hægt er að tala um „réttvisandi” framsóknar- flokk. Þetta virðist vera dulitið þversagnakennt.) Og vandamálin og baráttumál- in eru mismunandi. Eins og i allt- öðru hlutfalli. Melina og sam- borgarar hennar i Aþenu verða nU að skrapa saman fé, til að vernda menningarveröm æti á borö við Partenon á Akrópólis- hæð. Það er mikil barátta. Guð- rUn og hennar samborgarar berj- ast við að skrapa saman smá- munum til að bjarga Bernhöfts- torfunni. Og þó hefur það verið ekki minni barátta. Það má því sjá, að að sönnu er sitthvað likt með GuðrUnu og Melinu. En það er sitthvað sem skilur á milli lika! Hver er skýringin á feilnum? Er hún kannski svo einföld, að GuðrUn og Melina séu likar? Eða er Þagall farinn að tapa sjón? Eða er sjónvarpið hans orðið svona lélegt? Þetta er ein af mörgum lifsgát- um! — Þagal)

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.