Alþýðublaðið - 26.09.1981, Síða 10

Alþýðublaðið - 26.09.1981, Síða 10
10 Laugardagur 26. september 1981 Kjördæmisráðstefna Alþýðuflokksins í Vesturlandskjördæmi: Fjölmenni og baráttu- hugur í fundarmönnum Alyktað um samgöngumál, orkumál, hafnamál, iðnaðarmál, kjaramál, innri mál fllþýðu- fíokksins, sveitarstjórnarmál, Alþýðublaðið og fleira Um siðustu helgi var haidin kjördæmisráöstefna Alþýðu- flokksins i Vesturiandskjör- dæmi. Ráðstefnan var haldin að Laugum i Dalasýsiu og var hún fjölsótt. t upphafi ráöstefnunna r voru flutt þrjú framsöguerindi. Eiður Guðnason, a lþingi s ma öur, ræddi um stjörnm álaviðhorfið og kjördæmismál, Ágúst Einarsson gjaldkeri Aiþýðu- flokksins ræddi tiliögur til Eiður Guðnason breytinga á lögum flokksins og flokksstarfiö og Guömundur Vésteinsson bæjarfulltrúi á Akranesi fjallaði um sveitar- stjórnarmál. Fram fóru almennar umræður og starfshópar störf- uðu og skiluðu áiitsgerðum. Formaður k jördæmisráðs Alþýðuflokksins í Vesturlands- kjördæmi, Sveinn G. Hálfdánar- son setti ráöstefnuna, en ráðstefnust jóri var Bragi Nielsson læknir, Akranesi. A ráðstefnunni voru samþykktar eftirfarandi ályktamr: Samþykktir kjördæmisráð- stefnu Alþýöuflokksins að Laug- um i Dalasýslu, 19. og 20. september 1981. Kjördæmisráðstefna Alþýðu- flokksins i Vesturlands- kjördæmi telur einsýnt aö á undanförnum árum hafi Vestur- landskjördæmi verið verulega afskipt að þvi er varöar úrbætur i vegamáium. Ráöstefnan minnir á að ástand vega i kjördæminu s.l. vor og fram eft- ir sumri hafi veriö með eindæm- um slæmt, og það svo aö heil- brigðismálaráð Vesturlands hafi fundið sig knúiö til að gera sérstaka samþykkt um hiö alvarlega ástand i vegamálum. Ráðstefnan minnir á að um Vesturlandsk jördæmi liggja aöalsamgönguleiðir til Vest- fjarða og Norðurlands. Ætti þvi ekki að þurfa sérstakan rök- stuðning fyrir nauðsyn umbóta. Enn fremurminnir ráðstefnan á að (31 önnur kjördæmi landsins utan Reykjavikur hafa fengið sérstaka fyrirgreiðslu i vega- málum og fé til framkvæmda i þeim efnum, utan við vega- áætlun. Ráðstefnan fagnar þeim áfanga sem Borgarfjarðarbrú vissulega er i samgöngukerfi þjóðarinnar, en minnir á að brúargerðin var nær eingöngu fjármögnuö með vegafé Vestur- landskjcrdæmis á kostnaö ann- arra framkvæmda i kjördæm- inu. Kjördæmisráðstefnan telur óhjákvæmilegt að nú þegar verði undirbúin sérstök fram- kvæmdaáætlun, sem miði að þvi að koma vegamálum kjördæmisins i viðunandi horf, og minnir sérstaklega á eftir- talin verkefni: 1) Byggja þarf upp að nýju þjóöveginn vesturá Snæfellsnes um Mýrar, svo og þjóðveginn i Nffl'ðurárdal. 2) Endurbæta þarf veginn um Bröttubrekku, þannig að hann geti gegnt eðlilegu hlutverki. 3) Hefjast þarf handa um lag- færingu vegarins undir ólafs- vikurenni, þarsem vegfarendur eru istöðugri hættu vegna grjót- hruns og skriðufalla. 4) Þá telur ráðstefnan brýnt að hafist verði handa um athug- un á brúargerð yfir Hvalfjörö og verði sú framkvæmd fjármögn- uð sem sérverkefni á vega- áætlun. Orkumál Ráðstefnan fagnar hversu vel hefur miöaö framkvæmdum við Hitaveitu Akraness og Borgar- fjarðar og þeim hagsbótum sem sú framkvæmd hefur i fór með sér fyrir stóran hluta ibúanna i suðurhluta kjördæmisins. Hins vegar er minnt á að ibúar á Snæfellsnesi og i Dölum verða enn að una óeðlilega háum orkukostnaði. Ráðstefnan átelur að yfirvöld orkumála skuli enn ekkert hafa aðhafst til að greiða fyrir framkvæmdum við fjarvarmaveitur i þéttbýli á norðanverðu Snæfellsnesi og i Dölum, og leggur áherslu á aö þar er um að ræða eitt mesta hagsmunamál ibúa þessara svæða, mál sem ekki má lengur dragast að hrinda i fram- kvæmd. Hafnarmál Ráðstefnan minnirá að góðar og öruggar hafnir eru undir- staða atvinnulifs i flestum þétt- býlisstöðum kjördæmisins. Itrekuð er nauðsyn þess að sem fyrst verði lokið þeim framkvæmdum sem hafnar eru, þannig að þær geti komið að fullum notum en séu ekki hálf- karaðar langtimum saman eng- um til gagns. Iðnaðarmál Það er skoðun kjördæmisráð- stefnu Alþýðuflokksins að á komandiárum hljóti iðnaðurinn að verða að taka við langstærst- um hluta þess unga fólks sem kemur á vinnumarkaðinn. Þvi ber að leggja höfuðáherslu á eflingu iönaðar i Vesturlands- kjördæminu.Rikáhersla er lögð á nauðsyn þess að stuðla að skipulegri uppbyggingu nýrra iðnaðartækifæra i Dölum og á norðanverðu Snæfellsnesi, þar sem margvislegir möguleika til nýiðnaðar geta verið til staðar. Kjördæmisráðstefna Alþýðu- flokksins i Vesturlands- kjördæmi leggur rika áherslu á að Alþýðuflokkurinn einbeiti sér að þvi að bæta kjör hinna lægst launuðu i þjóðfélaginu, bæði með þvi aö tryggja mannsæm- andi laun og vinna að úrbótum i skattamálum i samræmi við tillögur Alþýðuflokksins frá siöasta ári. I þessum efnum má það ekki gerast enn einu sinni að niður- staða væntanlegra kjarasamn- inga verðisú að þeir sem meira höföu fái mest, og þeir sem Ágúst Einarsson minnst höfðu verði enn einu sinni settir hjá. Ráðstefnan itrekar að árum saman hefur verið talað um að bæta kjör hinna lægst launuðu, en niðurstaðan ævinlega orðið sú að þeir hafa borið skarðan hlut frá borði. Ráðstefnan leggur höfuðáherslu á að þetta gerist ekki enn einu sinni og skorar á forystumenn Alþýðu- flokksins að gera það sem i þeirra valdi stendur til að standa vörð um lifshagsmuni láglaunafólksins i samræmi við grundvallarstefnu og sjónarmiö Alþýðuflokksins. Ráðstefnan telur að þær deilur, sem uppi hafa veriö inn- an Alþýðuflokksins i sumar, hafi valdið flokknum skaða og skorar á þingflokkinn að starfa einhuga ogifyllstueindrægniað framgangi grundvallar- sjónarmiða lýðræðisjafnaöar- stefnunnar. Samþykkt um sveitarstjómarmál: Fundúrinn skorará öll flokks- félög á hverjum stað I kjördæminu, að hefjast nú handa um undirbúning að sveitartjórnarkosningum að vori. Fundurinn bendir á mikilvægi þe ss að flokkurinn hafi ávallt sem mest áhrif í sveitarstjórn- um. Fundurinn bendir á að æskiiegt væri að sveitar- stjórnarframbjóðendur sam- einist um sameiginleg hags- munamál, sembaráttumál fyrir kjördæmið. Fundurinn vekur athygli á reglum flokksins um prófkjör og að vel verði vandað til undir- búnings prófkjörs á hverjum stað. Fundurinn beinir þeim til- mælum til flokksstjórnar, að sveitarstjórnarmál verði tekin fastari tökum og aukin verði aðstoð og ráðgjöf varðandi þau mál. Þá var gerð svofelld ályktun um um Alþýðublaðið: Meðan Utbreiðsia og fjármál Alþýðublaðsins eru ekki i betra horfi en raun ber vitni, ályktar kjördæmafundur i Vesturlands- kjördæmi, haldinn dagana 19. og 20. september 1981, að athug- andi sé að aðiid að flokksfélagi sé jafnframt bundin við áskrift að Alþýðublaðinu. Þá ályktaði ráðstefnan cinnig um tillögur milliþinganefndar Alþýðuflokksins um lagabreyt- ingar, en eins og kunnugt er mun verða tekin afstaða til þeirra tillagna og fleiri, er snerta uppbyggingu og innviði Alþýöuflokksins á aukaflokks- þingi f næsta mánuöi. Tok ráð- stefnan afstöðu til þessara framlögðu tillagna og verður nánar greint frá þeirri umfjöll- un kjördæmisráðsins i Alþýðu- blaðinu eftir helgi. SKYTTURNAR 114. — Næsta mánudag? Þá ættum við að ná þvi, sagbi hertoginn og kallaöi á þjón sinn. — Patrice! sæktu gullsmiðinn minn og einkaritarann! Hertoginn settist og skrifaði niður fyrirskipanir. Hann sendi einkaritarann til kansl- arans, með skilaboð um að fyrirskipunum ætti að fylgja út I ystu æsar. — En hvað á ég að segja, ef hans hátign vill vita, hversvegna yöar náð vill grfpa til svoóvenjulegra aðgerða. Hversvegna þér viljið loka öllum höfnum? — Þér getið þá sagt kónginum að ég hafi ákveðið að hefja strið! — Nú, ef demantarnir eru ekki þegar komnir áleiöis til Frakklands, ná þeir ekki þangað fyrr en þér, sagði hertoginn. Ekkert skip fær aö yfirgefa breskar hafnir nema með minu sérleyfi. D’Artagnan starði á þennan mann, sem notaöi hið ótakmarkaöa vald, sem kóngurinn hafði gefið honum, til þess að verja ást sina. Hann var i þungum þönkum þegar gull- smiðurinn gekk inn. — Herra O’Reilly, sagði hertoginn, hvað eru þessir demantar mikiis virði? — Fimmtánhundruð gullpeninga viröi, hver, yöar náð. — Hvað tekur þaö yður marga daga að smiða hálsmen meö tólf slikum demöntum nákvæmlega eins og þessum? — Atta daga yðar náö. — Eg skal borga yður þrjú þúsund gullpeninga fyrir hvern demant, en ég verð að fá nteniö eftir tvo daga. — Þér fáið menið þá, yðar náö. — Það er gott, en þér verðiö að smiða meniö hér. Þér verðið fangi minr., O’Reilly • Segið mér hvaða læriinga þér þurfið með yöur, og hvaða verkfæri. eftir Alexandre Dumas eldri 115. Gullsmiöurinn skrifaði bréf tilkonu sinnar og gerði boð eftir duglegasta lærlingn- um sinum, og baö hann koma með úrval demanta sem fannst á verkstæðinu og nauð- synleg verkfæri. Hertoginn fylgdi gulismiðnum til herbergisins, sem átti að verða verk- stæði hans, og bannaði honum að yfirgefa það. Daginn eftir, klukkan ellefu, voru demantarnir tilbúnir, og eftirlikingin var svo full- komin og Buckingham gat ekki þekkt það nýja frá þvi gamla. Hertoginn kallaði á d’Atagnan og afhenti honum menið. — Og hvernig get ég þakkað yður? spuröi hertoginn. D’Artagnan roðnaði upp i hárs- rætur við tilhugsunina um að blóð hans og félaga hans yrði borgaö með ensku gulli. — Við verðum að skiija hvor annan, yðar náð, sagði d’Artagnan. Ég þjóna kóngi og drottningu Frakkiands en ekki yður! Nú, þegar strið er milli Englands og Frakklands, eruð þér, yöar náð, aöeins Englendingur i minum augum, og ég vildi heldur hitta yöur sem óvin á vigvellinum. — En það mun auðvitað ekki koma I veg fyrir að ég muni ljúka verki minu eins og best verður á kosið, hélt d’Artagnan áfram, og hneigði sig og ætlaði að fara. — Farið niður að höfn, og finnið þar skútuna „Sund”, og afhendið skipherranum þetta bréf. Hann mun flytja yður yfir sundiö, og setja yður á land I litilli höfn, sem eng- um dettur i hug að verði notuð. Þar, i Saint-Valery, skuluð þér halda tii fátæklegs veit- ingahúss sem er þar nærri, finna veitingamanninn og segja við hann „Forward”. Hann mun gefa yður hest meðfullum reiötygjum, og visa yður veginn.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.