Alþýðublaðið - 15.10.1981, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 15.10.1981, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 15. október 1981 3 FRETTIR í STUTTU MÁLI Sumarstarf eldri borgara Sumarstarfi Félagsmála- stofnunar Reykjavikur fyrir eldri borgara er nú nýlega lokiö. Mikil þátttaka var i sumarstarf- inu sem endranær. Farnar voru 12dagsferöir og i tveggja daga ferö aö Mývatni og til Akureyr- ar og fullskipaö i alla sumaror- lofsflokka aö Löngumýri. Auk þessa voru farnar 3 sól- arlandaferöir til Spánar, Júgó- slaviu og Mallorca. Vetrarstarf meöal aldraöra á vegum Félagsmálastofnunar Reykjavikurborgar er nú hafiö á 3 stööum i borginni, að Norö- urbrún 1, Lönguhlið 3 og Furu- gerði 1 þar sem félagsstarf hef- ur veriö á undanförnum árum. Mánudaginn 12.10 hófst svo nýr þáttur i félagsstarfi aldr- aðra i Oddfellow-húsinu viö Vonarstræti. Um tima hefur skort húsnæöi fyrir félagsstarf i miö- og vesturbæ og verður opiö hús á mánudögum kl. 13—17 fyrst um sinn. Er þaö von starfsfólks, aö aldraöir i austur- bæ og vesturbæ geti nýtt sér þessa aöstöðu, sem nú fæst meö tilkomu þessa húsnæöis. Dagskrá vestrarstarfsins liggurnú frammi i öllum húsum félagsstarfsins og nánari upp- lýsingar veittar hjá miðstöö félagsstarfsins aö Noröurbrún 1. Sjávarútvegsráðherra lofar að breyta verðákvörðun á síld Nefndin hefur átt fundi undanfarna daga með sjávarútvegsráðherra um verðlagningu á sild á yfir- standandi vertíö. í ljós hefur komið að veruleg mistök hafa átt sér stað við verð- lagninguna, þar sem byggt hefur verið á röngum upp- lýsingum opinberra aöila um stærðarflokkun á sild. Þessar röngu upplýsingar hafa valdið þvi, að verð- hækkun sildar varð verulega minni til sjómanna og út- gerðarmanna en tilefni var til. Á fundi i dag með sjávar- útvegsráðherra lofaði hann að beita sérfyrir þvi að verð- ákvörðunin verði tekin upp að nýju, ef aðilaí að Verð- lagsráði fallist á það. Nefndin vekur athygli á þvi, að mál þetta hefur enn ekki fengið endanlega afgreiðslu og hvetur þvi sjómenn og Ut- vegsmenn sildveiðibáta til órofa samstöðu þar til við- unandi lausn er fengin. Albert 1 unar og var nefndur Hilmar Helgason einnig aðal- hvatamaðurinn að tilurð Ataks, en nú vill Albert i krafti formennsku sinnar i Útvegs- bankanum stýra þessu sjálfur og láta sina gæðinga þar inn á gafl. Þeir ota viða sinum tota, sem standa i baráttunni fyrir völd- um á stjórnmálasviðinu og það er ráðskast með menn og sam- tök eftir hendinni, þegar tryggja skal pólitiska stöðu valdagráð- ugra stjórnmálamanna. Framsóknarfárið A s.l. áratug hafa Framsókn armenn veriö einráðir um mál- efni landbúnaðar á Islandi. Dómur reynslunnar er sá, að þeim hefur tekizt að gera land- búnaðinn að bónbjargarvegi. Gjaldþrot Framsóknarstefnunn- ar i landbúnaðarmálum er stað- fest i fjárlagafrumvarpinu. Skv. þvi eiga islenskir skattgreið- endur aö greiða 630 milljónir — 63 milljarða gkr. i niðurgreiðsl- ur og útflutningsbætur á land- búnaðarafurðum. Þetta er vitfirring. Sá fimmti hver kjósandi á Is- landi, sem á undanförnum árum hefur gefiðFramsóknarmönnum atkvæði sitt, ber fulla ábyrgð á þvi, aö lifskjör almennings á Is- íandi eru 63 milljörðum gkr. verri en þau ættu að vera, ef fylgt væri vitiborinni stefnu i landbúnaðarmálum. E n Framsóknarmenn ætla ekki að gera þaö endasleppt við þjóöina. A tæpum tveimur árum á stóli sjávarútvegsráðherra hefur formaður Framsóknar- flokksins unnið þaö einstæða af- rek að „millifæra” Framsókn- arkerfi landbúnaðarins yfir á sjávarútveginn llka. Þrátt fyrir eitt mesta góðæri sem yfir sjávarútveginn hefur gengið er nú svo komið, að það er hvorki hægt að gera út né reka frysti- hús hallalaust. Vandamálið, sem formaður Framsóknarflokksins fékk til að leysa i upphafi ráðherraferils sins var það, aö draga með kerfisbundnum hætti úr til- kostnaði útgerðarinnar við aö draga á land takmarkaðan afla. Lausn hans var i þvi fólgin að fjölga togurunum um 20. Þrátt fyrir góðan afla þyrftu þessir togarar að auka tekjur sínar að jafnaði um 30—40 prósent til þess að ná endum saman. Togaraflotinn er sokkinn i skuldir. Frystihúsin eru rekin með halla. Sildarflotinn liggur bundinn við bryggjur — vegna misskilnings, eftir á að hyggja. Loðnuflotinn er stopp. Fisk- verðsákvörðun er i allsherjar rembihnút. Allt gerist þetta á sama tima og gengisþróun er fiskvinnsl- unni óhemju hagstæð. Verölags- þróun á erlendum mörkuðum er hagstæð og afli er i hámarki. Samt tekst Steingrimi aö klúðra öllu. Starfshópur á vegum Rannsóknarráös rikisins (fyrr- verandi vinnuveitanda sjávar- útvegsráðherra) bendir kurteis- lega á, að timabært sé að ráð- herrann móti sér fiskveiðistefnu til frambúöar, I stað þess að hrekjast undan vandamálunum frá degi til dags. Þessi ábending getur ekki flokkast undir gifuryrði. Hún er á finu nótunum. Og nú ætlar formaður Fram- sóknarflokksins að fara aö snúa sér af alvöru að fluginu lika. „A að koma upp skrapdaga- kerfi i fluginu lika?” — spurði Erling Aspelund, einn af fram- kvæmdastjórum Flugleiöa, á fjölmennum fundi meö sam- göngumálaráðherra, starfs- mönnum Flugleiða og áhuga- mönnum um flugmál. Ræöa Erlings Aspelunds á umræddum fundi var samfelld- ur, en rökstuddur, áfellisdómur yfir stefnuleysi og hringlanda- hætti formanns Framsóknar- flokksins i flugmálum, þann tima sem hann hefur haft ráð flugmálanna i hendi sér. Boöskapur formanns Fram- sóknarflokksins og flugmála- ráöherrans á umræddum fundi var sá, aö á sama tima og rikis- stjórnin telur sig styrkja Flug- leiðir með umtalsverðum fjár- munum til þess aö halda uppi millilandaflugi, hyggst ráðherr- ann svipta félagið aðgangi að stærsta hluta meginlandsmark- aöarins, eftir áratuga starf viö aö ná fótfestu á markaðnum meö auglýsingastarfsemi, sölu- skrifstofum o.fl. Rökin gegn þessum áformum flugmálaráðherrans eru legio. Markaðurinn fyrir milli- landaflug Islendinga er ekki til skiptanna. Reynslan kennir okkur, að fyrri tilraunir til að skipta þess- um markaði milli margra smárra hefur ævinlega endað með uppgjöf og gjaldþroti. Ferill Iscargos, flugfélags Kristins Finnbogasonar, eins helsta ráögjafa ráðherrans I flugmálum, er viti til varnaðar. Ráðherrann skenkti þessum flokksbróður sinum og vini sér- stakt leyfi til Evrópuflugs. Nú er félagið sagt stórskuldugt. Það er með erlendar vélar á leigu, með erlendum áhöfnum, þaö skapar enga atvinnu fyrir islenzka flugmenn, flugvél- stjóra, flugfreyjur né flug- virkja. Nú er ráðherrann sagður beita aðra aðila þrýstingi til þess aö taka við afleiöingunum af þessu ráðleysi og sukki. Norðurlöndin treysta sér ekki til þess aö reka sjálfsiætt flug- félag hvert fyrir sig. Ef mark- aðurinn er of litill fyrii þá, getur hann tæplega verið of stór fyrir okkur. Eins og öll önnur flugfélög hafa Flugleiöir átt i miklum erfiðleikum á undanförnum ár- um. Af þeim ástæðum neyddist félagið til að segja upp um 700 starfsmönnum heima og erlend- is. Með þvi aö svipta Flugleiðir hluta af hefðbundnum mörkuð- um sinum er fyrirsjáanlega stefnt að frekari uppsögnum og atvinnuleysi. Ekki hefur Is- RITSTJÚRNARGREIN •//Á fimmtán árum hefur Framsóknar- mönnum tekizt að gera landbúnaðinn að bón- bjargarvegi. I nýfram- lögðu f járlagafrum- varpi er skattgreiðend- um sendur reikningur upp á 63 milljarða gkr. — vegna Framsóknar- fársins í landbúnaðin- um. Á tæpum tveimur árum á stóli sjávarút- vegsráðherra hefur for- maður Framsóknar- flokksins náð undra- verðum árangri í að koma landbúnaðarkerfi Framsóknarmanna á í sjávarútveginum. Þar er nú allt á hverfanda hveli i miðju góðærínu. Og nú ætlar Steingrimur formaður að snúa sér af alvöru að flugmálunum. Er til of mikils mælzt, að hann láti þau i friði?" cargo með sinum erlendu flug- freyjum og erlendu flugvirkjum skapað Islendingum atvinnu. Það skiptir ekki litlu máli, að Flugleiðir hafa verið að rétta við aö undanförnu. I hitteðfyrra var tapiö 20 m .$, I fyrra 7 m. $ en i ár standa reikningar sennilega á núlli. Úr þvi að félagiö er að ná sér upp úr öldudalnum, er þá til of mikils mælzt, að flugmálaráð- herrann láti félagið í friði? Hann ætti að hafa nógum öðrum hnöppum að hneppa. — jbh Þjóðhagsstofnun um þróun efnahagsmála fyrstu átta mánuði ársins: Batnandi viðskiptakjör — minnkandi kaupmáttur Þjóðhagsstofnun hefur sent frá sér skýrslu um framvindu efnahagsmála á timabilinu jan- úar—ágúst 1981. 1 skýrslunni er fjaliað um aflabrögð, viðskipta- kjör þjóðarbúsins, atvinnustig, þróun tekna og verðlags, utan- rikisviðskipti, gengi og rikis- fjármái. 1 kaflanum um viðskiptakjör er birt tafla, sem sýnir visitölur viðskiptakjara (með og án áls) og breytingar á þeim miðað við fast gengi. Sé útflutningsverðhækkunin frá ársmeðaltali til fyrri árshelm- ings metin i dollurum reynist hún i heild aðeins 1.8%. An áls er útflutningsverð á fyrra árs- helmingi 4.3% hærra i dollurum en að meðaltali 1980. Breytingar útflutningsverðs eru mjög mismunandi. I heild hafa sjávarafurðir hækkað um rösklega 5% i dollurum, en þ'eirri hækkun er m jög misskipt. Veruleg hækkún er á saltfiski og einnig nokkur á skreið og mjöli Batnandi viðskiptakjör Visitölur 60 B B C3 w bo tr C3 T- C CTJ W OO 0 05 s Jan.- 198 Brey m.v. A. Án áls % Útflutningur 100.0 144.9 11.6 Innflutningur 100.0 138.8 6.9 Viðskiptakjör 100.0 104.4 4.4 B. Meðáli Útflutningur 100.0 141.4 8.9 Innflutningur 100.0 139.5 7.5 Viðskiptakjör 100.0 101.3 1.3 hækkunará föstu meðalgengi. A hinn bóginn sýna útreikningar fyrir2. ársfjórðung 12% hækkun innflutningsverðs á föstu með- algengi frá meðaltali 1980. Þetta gefur visbendingu um örari hækkun innflutningsverðs en gert hefur verið ráð fyrir i spám á þessu ári, sem m.a. voru reistar á spám ýmissa alþjóða- stofnana. Þó þarf að hafa i huga, að ýmis atriði, svo sem breytingar á samsetningu inn- flutnings og útflutnings, geta valdið óeðlilegum sveiflum i ársfjórðungstölum, sem koma siður fram i hálfs árs og heils- árstölum. Tekjur Eftirfarandi yfirlit sýnii- verðbótahækkun launa að und- anförnu svo og hækkun kaup- taxta allra launþega frá sama tima árið áður. og 1. mars s.l. höfðu kauptaxtar hækkað álika mikið frá sama tima árið áður, en siðan hefur dregið nokkuð úr hækkun pen- ingalauna. Sá samdráttur kem- ur allur fram i júni, en 12 mán- aða breytingin til september er jafn mikil og til júnimánaðar. Kaupmáttur kauptaxta allra launþega, miðað við visilölu framfærslukostnaðar, var á öðrum fjórðungi þessa árs álika mikill og á sama tima i fyrra, en tvö prósent minni en á fyrsta fjórðungi ársins. Kjararannsóknanefnd hefur nú birt tölur um greitt timakaup á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Greitt dagvinnukaup verka- manna og iðnaðarmanna hækk- aði um 14.5% frá 4. ársfjórðungi 1980 til 1. ársfjórðungs 1981, en um 10.5% hjá verkakonum. Þessi hækkun er um 2% um- fram kauptaxtahækkun verka- 1) Gengi vegið með hlutdeild einstakra landa og mynta i utanrikis- og gjaldeyrisviðskiptum. « — -o £ * •g c U mj *-» cð n x u 3 cd 5- ■«-» >■» 8 *•« . . a .. Skv. þessum tölum reynast viðskiptakjörin á fyrri helmingi ársins 1.3% betri en á árinu 1980. Séu álviðskiptin frátalin er viðskiptakjarabatinn 4.4%. Viðskiptakjarabatinn á þessu ári stafar af hækkun á gengi dollars gagnvart Evrópumynt- um og verðhækkun á mikiivæg- um sjávarafurðum i dollurum. og lýsi, en meöalverð frystiaf- urða helst tæplega óbreytt. Þá hefurorðið mikil lækkun á verðiáls,kisilgúrs og kisiljárns, svo og á verði ýmissa iðnaðar- vara. Tölurnar fyrir fyrri helm- ing þessa árs sýna um 39% verðhækkun innflutnings i krón- um frá meðaltali ársins 1980, sem svarar til um 7% verð- l.desember 1980 1. marz 1981 1. júni 1981 1. september 1981 9.52 5.95 8.10 8.92 54 55 49 48 Minnkandi kaupmáttur Þessar tölur sýna, að eftir verðbótahækkun launa 1. des. manna og iðnaöarmanna á þessum tima, en á hinn bóginn er hækkun á timakaupi verka- kvenna rösklega 1% undir hækkun kauptaxta.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.