Alþýðublaðið - 28.11.1981, Side 12

Alþýðublaðið - 28.11.1981, Side 12
(Jtgefandi: Alþýbuflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guömundsson Stjórnmálaritstjóri og ábm.: Jón Baldvin Hannibalsson. Ritstjórnarfulltrúi: Guómundur Árni Stefánsson. Blaöamenn: Einar Gunnar Einarsson, ólafur Bjarni Guönason og Þráinn Hallgrimsson. Útlitsteiknari og Ijósmyndari: Einar Gunnar Einarsson. Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir. Auglýsingar: Sigríöur Guömundsdóttir. Dreifingarstjóri: Siguröur Steinarsson. Laugardagur 28. nóvember 1981 RitstjórnogauglýsingareruaöSiöumúlall,Reykjavik,simi81866. alþýðu I.H hT'jT'J Áskriftarsíminn er 81866 Verkakonur á Suðurnesjum mótmæla full- yrðingum Svavars Gestssonar Félagsfundur i Verkamanna- félagi Keflavikur og Njarö- vikur, haldinn 23 nóvember 1981 minnir á aö konur eru stærsti hópur, sem vinnur aö verö- mætasköpun i þjóöfélaginu. Allar þessar konur eru lág- launahópar. Þetta er einn rétt- minnsti hópur samfélagsins og i sumum tilfellum litiö á þær sem varavinnuafl. Hjá konum i fisk- iðnaöi gilda ekki landslög um uppsagnarfrest, þannig að fyrirvaralaust er hægt aö láta þær hætta störfum vikum og jafnvel mánuöum saman. Nú sem stendur eru um 70 konur á atvinnuleysisskrá i Keflavik og Njarövik. Fundur- inn minnir á, aö þaö er ætiö svo þegar kreppir að i atvinnulifinu, aö atvinnuleysiö bitnar fyrst á kvenfólkinu. Fundurinn telur, aö stórátak þgrfi að gera i at- vinnumálum á þessu svæöi til að koma i veg fyrir ástand sem nú rikir. Fundurinn minnir á það loforð rikisstjórnarinnar, að stórátak skuli gert i atvinnu- uppbyggingu á Suöurnesjum. Kaupmáttur hefur verið skertur meö lagaboöi sbr. 7% skeröinguna, sem ákveöin var umáramótog gengisfellinguna i október. Fundurinn átelur rikis- stjórnina fyrir slæmt eftirlit meö veröhækkunum sem áttu sér staö i skjóli myntbreyt- ingarinnar. Fundurinn mótmælir harö- lega þeim ummælum Svavars Gestssonar, félagsmálaráð- herra, um aö kaupmáttur verkafólks hafi aldrei verið betri hjá verkafólki en nú. Fundurinn skorar á rikis- stjórnina aö hleypa ekki um- sömdum kauphækkunum út i verðlag og þjónustu, sem magni upp veröbólguna i landinu og skilji þá lægst launuöu eftir enn verr stadda en áöur. Fyrrnefnd samþykkt var gerð á fundi hjá Verkakvennafélagi Keflavikur og Njarövikur, eins og áöur sagöi þann 23. nóvem- ber og var hún samþykkt meö 43 atkvæöum gegn 6. Auöir seðlar voru 11. Boli er alveg þrumu lostinn. Fyrst sameinast Dagblaöiö og Vlsir og mynda nýja gula pressu og svo eru uppi sögur um þaö aö Alþýðublaöið, Þjóö- viljinn og Timinn sameinist strax og prentarar fara 1 verk- fall aftur. Og hvaö haldiöiö aö getn- aðurinn eigi aö heita? Nú, AL- ÞJÓÐATÍMINN! Er nema von aö Jónas Kristjánsson sé brosleitur og kankvis á svip, þegar hann hefur nú innlimaö gamla keppinautinn undir slagoröinu al- kunna: FRJALST OG ÓHAD. Þrú andlit Evu? Sameining Vísis og Dagblaðsins: Ritstjórarnir vissu ekki um málið fyrr en ákvörðunin hafði verið tekin fllmenn óánægja meðal starfsmanna Þaö voru kaldar kveöjurnar sem starfsmenn siödegisblaö- anna Vi'sis og Dagblaðsins fengu á fim mtudagsmorgun, þegar þeir mættu til vinnu. Var þeim þá tilkynnt aö vinnustaður þeirra væri ekki lengur tii sem slikur, Dagblaöiö og Vfsir tii- heyröu fortiðinni, en nýtt dag- blaö heföi séö ijós — nefnilega Dagblaöiö og Visir. Og um þaö bil fjóröungi starfsfólks var tii- kynnt þaö kurteislega, aö ekki væri lengur þörf fyrir starfs- krafta þess. 25% starfsmanna var beinlinis sagt aö taka pok- ann sinn og hypja sig. Þvi starfsfólki sem þannig var sagt upp störfum fyrirvaralaust, var jafnframt greint frá þvf, aö þaö fengi sin umsömdu þriggja mánaöa laun, en engu aö siöur var þessu starfsfólki sagt aö þaö ætti ekki aö vinna þann tíma, heldur aö drlfa sig á dyr — og þaö hiö snarasta. Sameining Dagblaðsins og Vísis hefur átt sér nokkurn aö- draganda, enda þótt ákvörðun i þeim efnum hafi komiö flatt upp á allflesta síöastliöinn fimmtu- dag. Vitaö var aö framkvæmda- stjórar blaöanna, Hörður Einarsson á Visi og Sveinn Eyjólfsson á Dagblaðinu höfðu átt viöræöur sin á milli á undan- förnu misseri og tilgangur þeirra fundarhalda, var sam- eining blaðanna. Fjárhagskröggur Menn velta nokkuö fyrir sér tilgangi sameiningarinnar. Þaö er ljóst að bæði Visir og Dag- blaðið hafa átt i miklum fjár- hagskröggum undanfarið. Engu að slður liggur það fyrir aö desembermánuður er tekju- drýgsti mánuður ársins fyrir blöðin og þvi kom þaö ef til vill enn meir á óvart en ella, að sameining biaðanna skyldi verða að veruleika einmitt nú. En eins og Höröur Einarsson mun hafa sagt: „Fyrst sam- komulagiö liggur nú fyrir, þá er ekki eftir neinu aö biöa með framkvæmd þess.” — Þessi um mæli Harðar haf a verið túikuð á þennan veg, þar sem vitað var um megna andstöðu á ritstjóm- um þessara tveggja blaða gagn- vart sameiningarhugmyndinni, og peningamennirnir bakvið Visi og Dagblaöið hafi haft um það fullvissu, að sameining yrði aldrei að veruleika, ef ritstjórn- ir blaöanna fengju tækifæri til aö íliuga og taka afstöðu. Þess vegna var sá háttur hafður á, aö eigendur blaðanna tóku ákvörö- un, tilkynntu hana og geröu jafnframt starfsfólki ljóst (þ.e. þvisem ekki var sagt upp störf- um), að ákvörðun lægi þegar fyrir, henni yrði ekki breytt eða hnikað og enginn annar valkost- ur væri fyrir starfsmenn, en búkka sig og beygja, ella hverfa á braut. „Frjálsa, óháða” grínið Þannig liggur fyrir vitneskja um það, að ritstjórar blaðanna beggja, þeir Jónas Kristjánsson og Eliert Schram, hafi ekki fengið að vita af sameiningunni fyrr en nokkram klukkustund- um áöur en opinberlega var greint frá henni. Bæði Ellert og Jónas munu vera litt hrifnir af þessum ráöahag, en geta ekki neitt viö ráðið. Megin niðurstaöa þessa máls er þvi sú, að peningamennirnir á bakvið þessi blöö, hafa þar töglin og halgdirnar „Frjálsa, óháða” blaðamennskan sem þessi siðdegisblöð hafa skreytt sig meö verður grin eitt viö þessar aöstæður. Hvernig ætla ritstjórar og aðrir á ritstjórn þessa nýja blaðs, að kynna sig sem frjálsa og óháða, þegar það er jafnframt borðliggjandi aö þeir fá ekki einu sinni aö ráöa þvi hvaöa blað þeir skrifa I? Skyndibrotthitarf Visis Ur Blaðaprentssamstarfinu er sið- an sérkapituli i þessu máli öllu og ljóst er að Blaðaprent mun höfða skaðabótamál á hendur Visi vegna þessara aðfara. Hinn Islaiski blaðamarkaöur tekur óneitanlega talsverðum breytingum við þessa samein- LÍF OG LIST FATLAÐRA Dagana 28.11. - 4.12. veröur haldin menningarvaka, sem ber nafnið Líf og list fatlaöra. Vak- an fer fram á Hótel Borg og i Félagsheimili Seltjarnamess. Hún er loka-átak Alfa-nefndar i tilefni Ars fatlaöra. Flutt verður tónlist, ljóð og leiklist og sýndar myndir eftir fatlaða, ýmist flutt af þeim sjálfum eða ófötluðum. Efnt verður til umræöna um sýning- ar, sem nú standa yfir i leikhús- um og tengjast málefnum fatl- aðra, þaö verða kvikmyndasýn- ingar, bar naskemmtanir, brúðuleikhús o.fl. Sjónvarpið leggur f ram sinn skerf m eð dag- skrárliöum, sem tengjast Lifi og list fatlaöra. í hjarta Reykjavíkur. Eins og þegar er getið, fer menningarvakan einkum fram á Hótel Borg, I hjarta Reykja- vlkur, þar sem allir, bæði fatl- aöir og ófatlaöir geta hist og unað sér saman i frjálslegu umhverfi. Fyrstu fimm daga vökunnar verður þar „Opið hús” siðdegis: leikin verður létt kaffihúsamúsik, þar verður leiksvæði fyrir börnin og lista- menn koma fram. Einnig verð-. ur sýning á listaverkum og al- menn kynning á starfsem i hinna ýmsu samtaka og stofnana. Laugardaginn, sem vakan verð- ur sett, sunnudag og föstudag veröur sýnt nýtt brúöuleikrit, sem kynnir lif fatlaöra barna. Sunnudagurinn og föstudagur eru sérstaklega tileinkaöir öll- um börnum. Nýtt islensk leikrit, „Uppgjörið” eftir Gunnar Gunnarsson, sem Þjóðleikhúsið hefur verið að æfa að undan- förnu, veröur frumsýnt á mánu- dagskvöld, en önnur sýning leikritsins verður 1 Félagsheim- ilinu, Seltjarnarnesi siðar I vik- unni. A þriðjudagskvöld veröa umræður um leikrit. Kvöldvaka og lokahóf. Á fimmtudeginum færir mainingarvakan sigum set, því það kvöld verður kvöldvaka i Félagsheimili Seltjarnarness. Þá verður aftur sýnt leikritiö „Uppgjö’ið” og þroskaþjálfa- nemar eru með skemmtidag- skrá. Barnahátið sunnudagsins verður endurtekin á föstudag og þá i Félagsheimilinu. A bama- skemmtununum verður brúðu- leikhús, Tóti trúöur kemur i heimsókn, lesiö verður upp, far- ið i iþróttaleiki o.fl. Sunnudaginn 29. nóvember verður sérstök guðþjónusta i Langholtskirkju og veröur hún túlkuöá táknmál. Guðþjónustan er kl. 11. Háskólabió tekur þátt I menn- ingarvökunni með sýningu kvikmyndarinnar „Tómas — fatlað barn” eftir dönsku leik- konuna Lone Hertz, en sú kvik- mynd hefurvakið mikla athygli. Myndin verður sýnd á ölium sýningartimum bæöi mánudag og þriðjudag. i umræöunum að Hótel Borg veröur komið inn á efni þessarar kvikmyndar. Þá má einnig benda á, að I barnatima sjónvarpsins á sunnudaginn 29. nóvember, veröur efni tengt vökunni og á miðvikudagskvöld sýnir sjón- varpið annan dagskrárlið sem tengist málefnum fatlaðra: á- stralska verðlaunakvikmynd, sem lýsir undirbuningi að dans- og leiksýningu þroskaheftra I ó- peruhöllinni i Sidney. I vikunni hefsteinnig dreyfing á kennsluefni, sem gert var að frumkvæði Alfa-nefndar um fötluð börn I leikog starfi. Þetta eru litskyggnur meö texta á snældu og er ráðgert að dreyfa efni þessu til allra grannskóla landsins. En menningarvökunni Lif og listfatlaðra lýkur meðhófi, sem haldið verður á Hótel Loftleið- um, I Vikingasal og er það höf, likt og menningarvakan öll, opið öllum almenningi. Markmið þessarar vöku er fyrst og fremst aö efla mannleg tengsl fatlaðra og ófatlaðra. Listin, sem oft er eini tjáningarmiöill hins fatl- aða, getur opnað hugarheima og aukið tengslin á milli fólks með nýjum skilningi. Yfirbragð vökunnar er létt og ætti aö geta orðið öllum, bæöifötluöum og ó- fótluðum, til ánægju og yndis- auka.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.