Alþýðublaðið - 23.12.1981, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 23.12.1981, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 23. desember 1981 3 _________________________úr- klippan „Bullfrétt” — segir Mr. ó.R. Grimsson á forsíðu Þjóðviljans i gær um fréttaflutning Dag- blaðsins og Visis um örvænt- ingarfulla leit stjórnarliða að ein- hverjum efna hagsiirræðum. Siðan bætir Grimsson við: „Mér þykir leitt að svona áreiðaniegt blað, sem ÉG HEF VERIÐ AÐ VITNA TIL 1 SJÓNVARPINU skuli fara með svona vitleysu.” — Það er von að Grimsson kveinki sér. St jórnarandstaða Dag- biaðsins og Visis færist stöðugt i aukana, þótt enn hafi enginn af þingmönnum stjórnarand- stöðunnar tekið að sér að annast leiðaralestur þess i Sjónvarpinu. Hér koma nokkur dæmi úr leiður- um Dagblaðsins: „Rikisstjómin hefur hartnær náð fullkomnun i áráttunni að gera ekkert að varanlegu gagni, ef minnsti kostur er á timabundn- um sjónhverfingum. Þær hafa verið alfa og omega efnahags- stefnu hennar frá upphafi til þessa dags. Ráðherrar eru farnir að draga úr hattinum hugmyndir um efni áramótaskaupsins eða svo- kallaðra ráðstafana um áramót- in.Mester þar um gamalkunnar kaninur misjafnlega meinlausar, en þó skin I nokkrar alvarlegri.” Um tillögur Allaballa um að fella niður oliugjald af óskiptu fiskverði, segir Jónas Kristjánsson í leiðara: „Ráðherra nefndi hins vegar ekki, að kanina hans felur í sér 65 millj. kr. árlegt tekjutap Utgerðar.sem þegar er rekinmtí) tapi.” Um vaxtalækkunartillögu Tómasar frá Hánefsstöðum segir Jónas: „Ráðherrann nefndi hins vegar ekki, að kanina hans mun minnka framboð sparifjár og auka eftir- spurn lánsfjár. Er slíks þó sist þörfJ fjármagnshungrinu og útlánahömlunum, sem einkennt hafa siðustu mánuði.” Jónas kallar þessar patent- lausnirráðherra „ekki bara rugl, heidur hættulegt rugl.”0g bætir við: „Þessir ráðherrar hafa gam nað sér við hugmyndir um að útvega sárlega eftirsótt f jármagn meðþviaðauka svokallaða geng- isskyldu banka og lifeyrissjóði I 45%. Þar feta þeir sömu braut og fyrirrennarar þeirra I átt til 100% gengisskyldu. Aldrei nefna þessir eða fyrri ráöherrar að engir nýir peningar eru búnir til meö sjón- hverfingu af þessu tagi. Þeir eru bara teknirfrá aöilum, sem geta hugsanlega gert þá arðbæra og færðir til örugglega óarðbærra nota.” Niðurstaða Jónasar er þessi: „Stjórnmálamenn okkar virðast aldrei sjá nema mjög af- markaðan hlut dæmisins hverju sinni, og leysa hann með þvi aö búa til vanda, sem i bili er utan sjóndeildarhrings þeirra. Núverandi rikisstjórn hefur markvissar en flestar aðrar notað bráðabirgöalausnir og sjónhverf- ingar til að forðast sársauka varnalegra lækninga. Þess vegna er ekki ástæða til að hlakka til áramótaaðgerða hennar.” Og Haukur Helgason aðstoðar- ritstjóri, klykkir Ut með þessari lýsingu á ástandinu i stjórnarher- búðunum: „Vandinn nU getur reynzt stjórnarsamstarfinu hættulegri (en i fyrra). Svartsýnir menn i stjórnarliðnu eru farnir að tala um hugsanlegt þingrof og kosn- ingar á næsta leiti..Ein mein- semdinernú, aömargir stjórnar- liðar voru farnir aö hugsa meö tilhlökkun tilþess að nú gætu þeir imakindum stærtsig af árangri i baráttu við verðbólguna. Þess i stað er kominn upp harðasti ágreiningur frá myndun rikis- stjómarinnar.Menn voru ekki við þvi búnir. Almenningur mun ætlast til þess af ríkisstjóminni að hún hleypi veröbólgunni ekki aftur á fulla ferð. Fátt varanlegt liggur eftir þessa rikisstjórn, en óséð er, aö aðrir skárri kostir séu til staö- ar.” Þvilíkan leiðaraiestur mun Mr. Grimsson frábiðja sér að annast i Sjónvarpi, og lái honum hver sem vill. //Jafnaðarstefnan er í eðli sínu friðarhreyfing. Enginn getur aðhyllzt frelsi, jafnrétti og bræðralag í innanríkismálutTi/ án þess að vera jafnframt friðarsinni á alþjóðlegum vettvangi — annað væri rökleysa". (Benedikt Gröndal, fyrrv. utanrfkisráð- herra). kjarnorkulaust það svæði, sem enginn kjarnorkuvopn eru á (nema þegar sovéskir kafbátar sigla þar upp i kálgarða). þvi miður hafa kommUnistar og fylgifiskar þeirra látið mikið til sin taka i friöarhreyfingunum. Þeir eru samir viö sig, reyna að sveigja hreyfingar i áttina til Sovétrikjanna og hafa orðið uppvisir aö þvi aö þiggja sovéskt fé til starfseminnar. Þessi tengsl viö kommUnista hafa valdiö tortryggni margra Ut i friðarhreyfingarnar og þar með gert þeim óbætanlegt ógagn. Til að Jafnaðarstefnan er friðarhreyfing Benedikt Gröndal, fyrrv. utanrikisráðherra, lýsir afstööu sinni til friöarhreyfinga i grein sem birtist I blaði umbótasinnaðra stú- denta á fullveldisdaginn. Þar kemst hann svo að orði, að jafnaðar- stefnan sé i eðli sinu friðarhreyfing. Hann nefnir dæmi um friðar- stefnu jafnaðarmanna i verki, s.s. „Austurstefnu” Willys Brandts, sem lagði grunninn að slökunarstefnunni milli austurs og vesturs. Hann bendir ennfremur á, hversu tengsl kommúnista við friöar- hreyfinguna standi henni fyrir þrifum og að einhliða afvopnun sé ekki likleg til aö stuðla að auknu öryggi — og þar með friði. Þvi næst segir Benedikt: Jafnaðarstefnan er i eðli sinu friðarhreyfing. Enginn getur að- hyllzt frelsi, jafnrétti og bræðralag i innanrikismálum, án þess aö vera jafnframt friöarsinni á alþjóðlegum vettvangi — annað væri rökleysa. Uppruni stefnunnar er raunar sá, að hún afneitar bylting- unni — leið vopna og ofbeldis — og setur sér það markmið að vinna aö fylgi þjóðanna á friösamlegan og lýðræöislegan hátt. Þetta er enn það meginatriði, sem skilur jafnaðarmenn frá kommúnistum, svo sem sjá má um allan heim. Jafnaðarmenn eru menn friðarins og hirna friðsamlegu baráttuaðferöa. Friðarvilji jafnaðarmanna hefur viða komiö fram. Sem dæmi má nefna, að þeir stjórnuðu Norðurlöndum að mestu leyti frá striðs- lokum fram á siðustu ár. Á þessu timabili voru Norðurlönd kölluð „friðarhorn Evrópu”. Þar var friöurinn talinn tryggastur, enda tóku Norðurlöndin öil saman höndum um aö mynda hið norræna jafnvægi. Raunsæið olli þó þvi, aö þessi riki hafa öll sterkar land- varnir.ýmist i bandalagi við aðra eöa sem hlutlaus riki. Annað dæmi um friðarvilja jafnaðarmanna er hin svokallaöa „Austurstefna” Willy Brandts, kanslara V-Þýskalands. Hann braut isinn milli austurs og vesturs i álfunni, tók upp betri sambúð milli Vestur- og Austur-Evrópu, og lagði þannig grunninn að slökunar- stefnunni, friðsamlegasta timabili eftirstriðsáranna. En i öllum umræðum um öryggismál og varðveizlu friðar i okkar heimshluta, hafa jafnaöarmenn i V-Evrópu haldið sig við raunveru- leikann og krafizt afvopnunar eða minnkandi kjarnorkubúnaðar jöfnum höndum austan tjalds og vestan. Varðandi kjarnavopna- laust svæði á Noröurlöndum, sem hefur blandast þessari umræðu, segir Benedikt, „vilja jafnaðarmenn slikt svæði þvi aðeins, að það veröi I sambandi viö aðrar aðgerðir i álfunni sem leiða til raunveru- legrar fækkunar kjarnorkuvopna, en ekki að eingöngu veröi lýst bjarga hreyfingunum er bfyn nauösyn að afmá svikastarfsemi kommúnista undir merkjum friðarins og beina hreyfingunum jöfn- um höndum aö kröfunni um samdrátt I vigbúnaöi og afvopnun bæði i austri og vestri. Það er óraunhæft og óeðlilegt að ætlast til að Vesturveldin haldi aftur af sér á sama tima sem SS-20 eldflaugum Sovétrikjanna fjölgar jafnt og þétt. Ekki er þvi að neita segir Benedikt að ábyrgðarlausar yfirlýs- ingar Reagans Bandarikjaforseta og manna hans hafi átt þátt I aö efla verulega friðarhreyfingarnar. Nú vottar fyrir meira raunsæi vestur þar. Nú eru hafnar I Genf samningaviðræður, sem vonandi leiöa til nýs samkomuiags milli austurs og vesturs um takmörkun kjarnorkuvopna. Þar I liggur nú eina raunhæfa von allra sannra friöarsinna. Enn kemur þar jafnaðarmaður tii sögunnar, er Helmut Schmidt kanslari Vestur-Þýskalands, reyndi að eyða tortryggni Bréshnévs á fundi þeirra i Bonn áður en afvopnunarviðræöurnar hófust. Einhliða afvopnun er ekki raunhæfur möguleiki. Afvopnun verður að vera tvihliða — með einlægri þátttöku austurs og vesturs — til þess að koma aö gagni. Þvi verður ekki neitað að jafnvægið, jafnvel jafnvægi óttans, á meiri þátt i þeim friði, sem þrátt fyrir allt hefur rikt i okkar heims- hluta, en nokkuö annað. Sovétrikin og Bandarikin ná aldrei samn- ingum um fækkun kjarnorkuvopna, nema jafnvægi riki milli þeirra I þeim efnum. Það er athyglisvert við friöarhreyfingarnar, segir Benedikt, aö engar göngur eru farnar i Moskvu eða Prag eða nokkurri annarri borg, sem er á valdi kommúnista. Hvers vegna ekki? Yfirvöld i þeim löndum þora ekki fyrir sitt litla lif að leyfa slikar göngur og koma fólkinu þannig upp á mótmælaaögerðir. Þeir óttast, að þá kunni aö fara eins og i Póllandi. Þetta er mikill ljóður á ráði þeirra i austri, raunar meginmunur- inn á frjálsum þjóöfélögum og ófrjálsum. Þessa skyldi það fólk minnast, sem fer á hópfundi á Vesturlöndum. Vigbúnaður Sovét- rikjanna hefur aldrei veriö meiri en nú, og yfirvöld þar i landi þurfa ekki að spyrja þing eða þjóö um eitt né neitt, eins og tiðkast á Vesturlöndum. Lokaorö Benedikts voru þessi: „Höldum vöku okkar fyrir undirróöri fylgismanna heims- kommúnismans — en styðjum allar heiðarlegar friðarhreyfingar. Við kjarnavopnum er aðeins til eitt svar: Aö tryggja að þau veröi aldrei notuö”.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.