Vísir - 27.01.1969, Blaðsíða 7
V í S I R . Mánudagur 27. janúar 1969.
7
útlönd í mórgun
Lögregía sveifíandi kylfum dreifði
ungmennum í gær í Prug
útlönd í roorgun
útlond
roorgun’
útlöncP
Frankd.
Bandaríkin „skyld að
verja tilveru ísraels"
Shaw-málið tekið fyrir
eftir árs drátt
Shaw-málið hefir riú verió tekið
fyrir i rétti í New Orleans eftir
meira en árs biö. Fyrir réttinum
er Clay T. Shaw kaupsýslumaður
sakaður um þátttöku í samsæn til
að ráða Kennedy forseta af döfcum.
Shaw var handtekinn fyrir hart-
nær tveimur árum. Þegar málið
var tekið fyrir rétt þótti það ein-
kennileg tilviljun að fyrsti kviðdóm
arinn, sem vann eió sinn, heitir
John Kennedy. — Shaw var eftir
handtökuna látinn laus gegn trygg
ingu, er hún enn í gildi. — Sak-
sóknari leiðir 20 vitni. Réynt verð
ur að sanna, að Kennedy hafið beð
ið bana af skotum, sem komu aö
minnsta kosti úr tveimur áttum.
Meðal vitna verður frú Marina
Oswald Porter, ekkja Lee Harveys
Oswalds.
New York: Jaeob Javitz öidttnga
deildarþingmaður á þjóðþingi
Bandaríkjanna, en hann er republik
ani, hefir stungið upp á, aí Banda-
ríkin og Sovétríkin beiti sér fyrir
beinum samkomuiaKSumleitunum
miili ísraeis og Arabaríkjanna.
Javitz kvað ekki uhnt að ná sam
komulagi fyrir atbeina Sovétrfkj-
anna og Bandaríkjanna, jafnvel
þótt Bretiand og Frakkland iegð-
ust á sömu sveif. Aðeins bemar
samkomulagsumleitanir myndu
ski+a árangri, en þær ættu.fram að
fa við forustu og leiösögn Gunn-
ars Jarrings, samningamanns Sam-
einuðu þjóðanna. — Javitz er af
Gyðingaættum. — Javitz sagði
ennfremut, að Nixon og aðrrr leið-
togar repubiikana hefðu firtlvissaö
sig um. að þeir teldu Bandaríkj-
unrnn skyit að vernda tftvem ísra-
els. Hann kvaðst og þeirrar skoðun
ar, 'að ísracrt myndi fá Bhajrtcwn-
þot«r frá Bar*tter9^jjuo».
í fréttum frá Prag segir, að
það hafi verið rðið Ijóst þegar
fyrir útförina, að ef til frekari mót-
mælaaðgerða kæmi yrði tekið hart
á því, og fyrir útförina voru land-
vamaráðh. og innanrikisráðherr-
Juan Cnrlos ú
konungsstól eftir
(ífför Jan Palachs / fyrradag fór virdulega fram
og án jbess til árekstra k3emi
3 manudi? j
i
London: Madrid-fréttaritari .
landbúnaöarblaðsins The Daily- '
telegraph, segir, að trúlega verði
prins settur á konungsstói á
Spáni í vor, að ioknu þriggja
mánaða undanþáguástandinu, er
gekk í gildi á laugardag og á að
gilda þrjá mánuði. Þá — eða í
apríllok — mun Frankó afsala
sér völdum og fá þau í hendur
prinsinum. Juan Carlos prins er
31 árs.
ÚÉför tékkneska stúdents-
ins Jan Palachs s.l. laugar-
dag f ór fram með virðu- og
hátiðleik og kom ekki til
óeirða, eins og stjórnar-
völdm höfðu óttazt, en í
gær kom til átaka í mið-
hhzta Prag milli verka-
manna og ungra náms-
manna annars vegar og lög
reglurmar hins vegar.
ann búnir að fá sérstök fyrirmæli
þar að lútandi — landvamaráð-
herrann um að hafa herinn við-
búinn, og innanríkisráðherrann að
gera allt sem unnt væri af hálfu
ráðuneytis hans til þess að halda
uppi lögum og reglu.
Allan daginn á föstudag og til
kl. 11 um kvöldið héldu menn á-
fram að ganga aö kistu Jans
Palachs, þar sem hún hvíldi á
börum í garði Karls-háskóla, en
það var á slaginu kl. 11, sem garð-
inum var lokað. Hermenn og lög-
reglumenn voru hvarvetna á verði
í hliðargötum [ miðhluta borgarinn-
ar og við aliar sovézkar stofnan-
ir,' og nærri hvarvetna í miðbæn-
um.
Útfararathöfnin hófst kl. 11.45
að íslenzkum tima. Hún fór fram í
heimspekideild háskólans. þar sem
Jan Palach stundaði nám, og flutti
aðalræöuna dr. Oldrich Starry há-
skólarektor, en einnig talaði
menntamálaráðherra V. Vezdicek,
stúdentaleiðtoginn M. Dymacek og
.1. Khafiva, forseti heimspekideiid-
ar.
Háskólarektor kvað Jan Palach
hafa látið líf sit>t, vegna þess að
hann elskaði fööurland sitt, sann-
leikann, frelsió og lýðræðið, og
voru minningarorð rektors eftir
honum höfð í útvarpinu.
Mikill sorgarbragur var á öllu,
svipur manna í hinum mikla fjölda
á götum twrgarinnar bar því vitni,
að menn voru harmi lostnir. Marg-
ir héldu á logandi kertum og kerti
loguðu f gluggum.
Átökum þeim, sem urðu í gær,
er lýst svo í NTB-fréttum:
Lögregla með sveiflandi kylfum
dreifði ungmennahóp á Verceslás-
torgi í gær, er þau héldu að stytt-
unni með logandi kerti í höndum
og gekk hópurinn undir tékknesk-
um fána.
Lögregla, sem var á verði á torg-
inu, dreifði þegar ungmennunum
og í sviptingum þeim, sem urðu
brotnaði fánastöngin. Mörg ung-
menni voru handtekin, en flestum
sleppt fljótlega.
Mörgum vestrænum fréttaritar-
anum hefur verið vísað úr landi í
Tékkósióvakíu.
í mörgum borgum Italíu lýstu
stúdentar andúð sinni í gær á
sovétstjórninni vegna hernámsins
með því að fara mótmælagöngur.
Kom til átaka milli róttækra og
hægri stúdenta og stúdenta og lög-
reglunnar.
í Rómaborg fóru nemendur nokk-
urra skóla í fylkingu að sendiráði
Sovétríkjanna, en lögreglan hrakti
þá burt. Grjóti var varpað og sov-
ézkur fáni brenndur.
Undanþáguástand á
Spáni næstu 3 mánuði
Háskólum lokad. Fjöldahandtókur sagðar byrjaðar
Undanþáguástand, gekk í gildi á
Spáni s.l. iaugardag. Gaf einræðis-
stjórn Spánar út tilskipun þar um
og er aðeins stigmunur, að full
herlög hafi verið sett.
Er nú heimilt að handtaka menn
án sérstakrar handtökuheiruildar
og hafa menn í haldi án þess að
taka mál þeirra fyrir. Undanþágu-
ástand hefir verið í gildi frá í
nóvember i Baskahéruðunum, en
þar er þaö sjálfstæðishreyfing, sem
rey. er að bæla niður, en það
er vegna vaxandi byltingaranda
gegn einræðinu meðal háskóla-
stúdenta aðallega, að undanþágu-
ástandslög hafa verið sett. Háskól-
unum í Madrid og Barcelona var
fyrr í vikunni lokað og tilkynnt,
að þeir yrðu lokaðir ótakmarkaðan
tíma.
Frjáls fundahöld eru algerlega
bönnuð í landinr
Aftökur í Bugdud
I írak hafa 15 menn verið daemd-
ir til lifiáts fyrir njósnir í þágu
ísraels en aðrir fengu allt frá miss-
eris og upp í æviiangt fangelsi.
Dómunum var framfylgt þegar
eftir uppkvaðninguna og líkin lát-
in hanga á aftökustaðnum öðrum
til viðvörunar.
Neyðurrúðstafanir
í Kaliforníu
vegna flóða
Nixon forseti Bandarikjanna hef-
ur lýst Kaliforníu neyðarráðstaf-
anasvæði vegna mikilla flóða og
jarðhruns, en flóðin eru hin mestu
um þriggja áratuga skeið. Þau urðu
eftir fádæma úrkornu og hafa vald-
ið mestu tjóni í Suður-Kaliforníu.
Forsetinn hefur fyrirskipað að
verja þremur miiljónum dollara til
hjálparstarfsemi á flóðasvæðinu.
• Samkvæmt nýbirtum skýrslum
hafa þjóðir heims aldrei varið eins
miklu fé til vígbúnaðar og nú nema
þegar hernaðarútgjöld voru í há-
marki í síðari heimsstyrjöld. Þau
námu 160.000 milljónum dollara
1966 og hafa aukizt mikið siðan og
er varið tvöfalt meira fé í heim-
inum til vígbúnaðar en menntunar.
• Enn hefur brezkum fréttarit-
ara verið vísað úr landi í Rhödesíu.
Hann símaði fréttir þaðan tíl biaös-
ins Guardian á Bretlandi og til
suöur-afrískra blaða. Engar ástæð-
ur fyrir brottvísaninni voru til-
greindar.
• Svar brezku stjórnarinnar við
tillögum sovétstjórnarinnar til
lausnar deilum ísraels og Araba-
rikja hefur verið afhent. Það var
Stewart utanríkisráðherra, sem af-
henti það settum sendiherra Sov-
étríkjanna í London. Þar næst
ræddu þeir Stewart og Wilson for-
sætisráðherra við Hussein Jórd-
aníukonung, sem hefur verið í Lon-
don frá því 5. janúar.
• Skipherrann á könnunarskipinu
Púebló, sem hertekið var við strend
ur Norður-Kóreu, sagði fyrir rétti
í San Ðíegó, að miðað hefði verið
skammbyssu að höföi sér, og sagt,
aö hann yrði skotinn, ef hann ját-
aði ekki á sig njósnir. ITann neit-
aði og var þá hleypt af, en skotiö
var púðurskot. Síðar var honurn
hótað, aö allir sjóliöarnir yrðu tekn
ir og byrjað á þeim yngsta, ef hann
skrifaði ekki undir skjal þess efnis,
að skipiö hefði verið að njósnum
Heföi hann verið sannfærður um,
að sú hótun yrði framkvæmd og
því skrifað undir.
Viku vapnahlé í
S.V. í fehrúar
Saigon: Samkvæmt áreiðanlegum
heimiidum mun stjóm Suður-Víet-
nam stinga upp á vopnahléi 17.
febrúar, er Tet-hátíðahöldin
byrja. Ekki er kunnugt um hve
Jangt vopnahié stjómin hefur i
huga.
Samtímis tilkynnir blaðið Hoa
Dinh, að þjóðfrelsishreyfingin
muni stinga upp á 7 daga vopna-
hléi frá byrjun Tet-hátíðahaldanna.