Vísir - 27.01.1969, Side 8
8
V1 S IR . Mánudagur 27. janúar 1969,
VISIR
Útgefan#: Reykjaprent h.f.
Framkvæmdastjóri Sveinn R. Eyjó’fsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aöstoöarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingar: Aðalstræti 8. Slmar 15610 11660 og 15099
Afgreiösla: Aðalstræti 8. Simi 11660
Ritstjórn: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur)
Áskriftargjald kr. 145.00 á mánuði innanlands
1 lausasöJu kr. 10.00 eintakiö
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f.
Cta^—3RÍL’".,'"--1 '■“nWTWEM——g——————————
Fullvinnsla aflans
]\ýlega birtist ágæt grein eftir Eyjólf ísfeld Eyjólfs-
son, framkvæmdastjóra Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna. Sýnir hann þar fram á, að með sam-
stilltu átaki allra, sem hlut eiga að máli, sé hægt að
auka árleg verðmæti afurða frystihúsanna um 375
milljónir króna, fyrir utan þá möguleika, sem eru í
niðursuðu og annarri fiskvinnslu, þótt ekki sé gert
ráð fyrir neinni aukningu aflans.
Eyjólfur segir, að allt of mikill hluti freðfisksins
á bezta markaðinum, í Bandaríkjunum, sé seldur í
fiskblokkum, en of lítið í neytendaumbúðum. Síðar-
nefnda varan er miklu verðmeiri og óháðari verð-
sveiflum, auk þess sem hún nýtur hraðvaxandi eftir-
spurnar. í verðhruni fiskafurða á undanförnum tveim-
ur árum hefur freðfiskur í neytendaumbúðum haldizt
í nokkurn veginn óbreyttu verði. Og í fyrra jókst
sala hans um 60% á þessum markaði.
Nú fara 30—35% af ýmsu helztu fisktegundunum
frystihúsanna í neytendaumbúðir. Ef þetta hlutfall er
hækkað upp í um það bil 70%, telur Eyjólfur, að verð-
mætisaukning muni nema um 375 milljönum króna.
En hér er sá hængur á, að gæði fisksins eru ekki nógu
mikil.
„Er það hvort tveggja, að fiskurinn er illa farinn, er
hann kemur að landi, og frekari gæðarýrnun á sér
stað við löndun og í vinnslustöðvunum, áður en fisk-
urinn hefur verið unninn. Stafar það af ófullnægjandi
geymsluaðstöðu, skorti á ís og oft og tíðum vöntun á
nægilegu vinnuafli, sérstaklega þegar mikið berst að
af fiski.
Úr þessu verður ekki bætt nema með samstilltu
átaki allra þeirra, sem að þessu standa, sjómanna,
útgerðarmanna og starfsfólks vinnslustöðvanna. Að
þessu geta einnig opinberir aðilar unnið, eins og t.d.
Fiskmatið með strangara eftirliti með gæðum og
gæðamati, enda raunar sjálfsagt, þegar verðmunur
milli gæðaflokka er aukinn.
Þá ætti að gera stórt átak til að koma á notkun
kassa í bátum og vinnslustöðvum á næstu sumarver-
tíð, t.d. með því, að Fiskimálasjóður greiddi þriðjung
kassaverðs og lánastofnanir veittu vinnslustöðvum
lán til þessarar fjárfestingar. Mætti þá skipuleggja
slík innkaup í stærra magni og ná þannig hagkvæmari
kjörum. Loks gætu blöð, hljóðvarp og sjónvarp sýnt
þessum málum meiri áhuga en verið hefur.“
Þessi ummæli Eyjólfs sýna, að sömu reglur verða
að gilda í fiskiðnaði og öðrum iðnaði, — natni og vöru-
vöndun verða að koma í stað afmoksturs. Ef það
tekst að efla hið nýja hugarfar í frystiiðnaðinum er
hægt að auka árleg útflutningsverðmæti hans um
375 milljónir króna, þótt afli aukist ekki. Og takist að
efla þetta hugarfar í öðrum fiskiðnaði og í öllum
íslenzkum iðnaði, getum við horft bjartsýnir til fram-
tíðarinnar.
\S
«
ii
Vopnaútflutningsbanni de Gaulle til fsraels mótmælt í Tel Aviv.
ísrael og kjarnorkuvopnin
— „Frumkvæði Sovétleiðtoga" og samkomu-
lag i deilu Israels og Arabarikja
• Eru ísraelsmenn komnir vel
á veg með framleiðslu kjam-
orkuvopna? Um þetta hefir
verið mikið rætt síðan er banda-
ríska sjónvarpsstööin NBC
birti frétt um það, að innan
tíðar yrði israel kjarnorkuveldi.
Vitað var, að kjarnorkurann
sóknir áttu sér stað í ísrael, og
þaö hafði verið látið í þaö
skína í ýmsum fréttum, að
ísraelskir og þýzl.ir kjarnorku-
sérfræðingar. sem starfa í Is-
rael, væru svo langt komnir f
rannsóknum sínum og tilraun-
um að það væri aöeins tíma
spursmál, hvenær þeir gætu
farið að framleiða kjarnorku-
vopn. Ekki skal sagt um hvort
það rætist, aö þeir hafi slík
vopn tilbúin eftir 1—2 ár eins
og komið hefur fram, en um
það ber mönnum saman að það
geti oröið fyrr en ætlað var, ef
ísraelsmenn sneru sér aö fram-
leiöslu slíkra vopna. Og er nokk
uö annað líklegra en aö þeir
ætli sér aö hafa slik vopn
reiðubúin sér til varnar, þar sem
landið er umkringt fjandþjóð-
um, sem vilja tortímingu þess.
ísrael mun að minnsta kosti
áreiöanlega gera allt sem unnt
er sér til varnar, nema landa-
mæri þess verði alveg örugg-
lega tryggö, siglingaréttur við
urkenndur — og sennilega
munu þeir f lengstu lög halda
yfirráðum í allri Jerúsalem. Og
skammt er að minnast, aö
Moshe Dayan landvarnaráð-
herra kvaöst vilja breytt landa
mærj (frá þvi sem var fyrir
6 daga styrjöldina).
En víkjum nánar að kjarn-
orkuvopnunum. Fréttaritari
NBC kvaöst hafa vitneskju
sína frá bandarísku upplýsinga
þjónustunni eða að minnsta
kosti af þeim vettvangi — og
að þar „útiloki menn ekki þann
möguleika, aö Israel hafi þegar
kjarnorkuvopn."
En vi -.lega var staðhæf*»a
unum varðandi kjarnorkuvoþn-
in neitaö í Tel Aviv. „Við erum
ekki stórveldi og óskum ekki
eftir aö verða það‘‘, sagðj opin
ber talsmaöur f r. Hann sagði
þetta í tilefni af fréttum, sem
nú voru birtar i útvarp’ sjón-
varpi og blöðum, og neitaði
hann við sama tækifæri orörómi
um. að ísrael myndi fyrir árslok
1970 geta framleitt eldflaugar,
sem setja mætti á kjarnorku-
odda.
ísraelskir talsmenn létu í það
skína, að upplýsingarnar væru
ekki frá bandarísku leyniþjón-
ustunni, heldur frá Rússum
komin, sem hefðu „gróðursett
fræ, sem allt í einu hefði skot
iö upp“, og tilgangurinn hjá
þeim sé að áfram kraumi í pott
inum, jafnvel þótt þeir vilji ekki
aö upp úr sjóði, — og Rússar
vilji umfram allt ekki umræður
um fjórvelda-átak renni út í
sandinn, — fjórvelda-átak til
þess aö knýja ísrael og Araba
löndin til að fallast á tillögur
þeirra.
Þessar tillögur, sem ekki hafa
verið birtar opinberlega, eru enn
til umræöu. Frá því var sagt
i gær að Stewart utanríkisráð
herra Bretlands heföi sagt, að
stjórnin teldi tillögurnar gagn-
legar, en óskaði frekari upp-
lýsinga. Hann sagöi þetta eftir
aö hann afhenti settiim sendi-
herra (chargé d’affaires) Sovét-
ríkjanna í London, svar brezku
stjórnarinnar.
Eigi minni athygli vakti, að
Wilson forsætisráðherra og
Stewart rædru þar næst sameig
inlega við Hussein Jórdaníu-
konung, sem hefur verið i Lon-
don —,að sögn til framhalds
lækninga — frá janúarbyrjun.
Af arabískum leiötogum er
Hussein sennilega fremstur í
flokki arabískra leiötoga, sem
vilja samkomulagslausn í Líban
on, þar hafa flestir og viljað
samkomulag, — þar spillti árás
ísraels á, alþjóöaflugvöllinn í
Beirut — mjög miklu, svo að
til stjórnarkreppu kom, eru
deilur nú svo miklar í landinu
og svo erfitt um samstarf stjórn
málaleiðtoga, aö eftir að Karami,
slyngum samningamanni tókst
aö mynda stjórn, hangir sam-
starf ráðherranna á svo veik-
um bláþræði, aö slitnað getur
þá og þegar. Það hefur næstum
gerzt annan hvern dag, að ein
hverjir ráðherrar færu frá, en
til þessa hefur Karamj þraukað
og ekki sagt af sér.
Það er margt, sem hefur á-
hrif á það. sem er að gerast.
Ekkert skal fullyrt hér um, að
rétt sé það sem Israelsmenn
segja um Rússa. Þaö má ekki
gleyma, aö það er ekkj bara um
ísrael og Arabaríkin, nágranna-
ríkin að ræða, — þaö er um að
ræöa áhrifaaöstööuna viöskipta-
lega og hernaöarlega á öllu
þessu hnattsvæði, sem oft er
kallað nálæg Austurlönd, og
innifelur önnur lönd f grennd
viö Miðjarðarhafsbotn, Grikk-
land, Tyrkland, Kýpur, Irak,
Saudi-Arabiu og lönd enn aust-
ar, og siglingar á þessu svæði
(Suezskurður), flugferöir (rétt-
indi til aö fljúga yfir lönd),
o. fl.
Allir vita hve Rússar hafa
byggt upp flota og flugflota-
styrk sinn á austanverðu Mið-
jarðarhafinu, og það er feikna
fjármagn, sem þeir hafa ausiö
í Egyptaland og fleiri lönd, til
vígbúnaöar og líka efnahags-
legra framkvæmda, en Rússar
eiga við sin eigin vandamál að
stríða heima fyrir, efnahagsleg
og pólitísk, og Rússar eru eng
an vegin áhyggjulausir vegna
risans í austri (Kúia) og verða
að vera þar hernaðarlega við
búnir öllu. Og það er margt
sem bendir til, — hvaö svo
sem gerast kann á næstu dög-
um og vikum, að augu margra
í Sovétríkjunum hafi opnazt
og menn s;á, af hve mikilli
skammsýni var ákveðið að ráð
ast/ftín í Tékkósióvakíu. Það er
jafnvel álit margra merkra
mánna nú, að innrásin og allt
henni tengt, sé aðeins forleikur
að drama, sem sé rétt í byrjun,
þótt f upphafj átt að beygja
Tékka svo, að allt væri fljótlega
klappaö og klárt.
Eitt meginmark Sovétleiðtoga
með öllu saman er aö treysta
sem rammlegast allt efnahags-
og viðskiptanet samstarfs
kommúnistaríkjanna í Austur-
Evrópu, en þess sjást ótal merki,
að þaö gengur erfiðlega. Sein-
ast f fyrradag fréttist, að á fundi
sammarkaös kommúnistaríkj-
anna (Comccon) hafj tillögur
Sovétfulltrúanna verið lagðar á
hilluna í bili — og að þar hafi
hjálpaö til afstaða Ungverja;
sem studdu Rúmena.
Allt þetta er vert að hafa i
huga, þegar um stefnu Sovét-
ríkjanna er aö ræða. Það er aag
an veginn víst, aö hún sé svo
sterk á Miöjarðarhafi sem marg
ir ætla, og svo vita þeir af
reynslunni, aC það er ekkj nóg
að leggja til vopnin, begar ekki
þarf nema tæpa viku til aö
knosa fjandþjóðina, og eyði-
leggja ; að verðmætasta sem
henni hafði verið lagt upp 1
hendur til varnar.