Vísir - 14.03.1969, Blaðsíða 1

Vísir - 14.03.1969, Blaðsíða 1
Sjónvarpsþáttur fluttur í óleyfi ■ Þjóðleikhúsið hefur einkarétt á lögunum úr „Fiðlaranum", segir Gublaugur Rósinkrans # Allmikið umtal hefur orðið út af sjónvarpsþættinum, sem fluttur var s.l. miðvikudag með söngvum úr „Fiðlaranum á þak- inu“, sem verður frumsýndur í kvöld. Hefur Guðlaugur Rósinkranz þjóðleikhússtjóri nú sent frá sér til- kynningu þess efnis, að þátturinn hafi ekki verið á vegum Þjóðleik- hússins, né á þess ábyrgö. Hefur Þjóðleikhúsiö einkarétt á flutningi á þessu verki fram til 8. júlí 1970, og öðrum óleyfilegt að flytja úr því á sviöi eða í gegnum fjölmiðlunar- tæki, nema með leyfi rétthafanna erlendls, eftir því sem Guðlaugur Rósinkranz sagði blaðinu í morgun. • „Það er óvíst, hvort nokkuð verður gert frekar í málinu, en að sjálfsögðu er það rétthafanna að ákveða það. Við megum ekki leyfa slíkan flutning, nema með leyfi að utan, en til okkar var ekki leitað," sagði Guðlaugur ennfremur. Byssan er talin vera morðvopnið — Njörbur Snæhólm kom heim i morgun frá rannsókninni á byssunni, sem fannsf i leigubilnum ■ Byssukúlunni, sem varð Gunnari Tryggva- syni leigubílstjóra að bana, reyndist hafa ver- ið skotið úr skammbyss- unni, sem fannst í fórum leigubílstjórans, er nú situr í gæzluvarðhaldi. Niðurstaða tilrauna, sem gerðar voru til saman- burðar á morðkúlunni og kúlum, sem skotið var úr skammbyssunni, sýndi þetta. Sakadómur gat ekki staðfest þetta í morgun, þegar blaöiö fór í prentun, samkvæmt áreiðan- legum upplýsingum, sem Vísir hefur aflað sér frá Washington, mun niðurstaðan hafa orðið þessi. Flugvél Loftleiða frá New York lenti á Keflavíkurflug- velli í morgun kl. 9.40. Meðal farþega var Njörður Snæhólm, rannsóknarlögreglumaður, sem fór utan á vegum sakadóms til þess að fylgjast með „ballistik“ rannsókn alríkislögreglunnar (FBI) í Washington á skamm- byssunni, sem fannst í fórum leigubílstjórans. Til samanburðar haföi Njörö ur með sér byssukúluna, sem varð Gunnari heitnum Tryggva- syni, leigubílstjóra, að bana. Lög regla Bandaríkjanna býr yfir full kominni tækni til þess að kanna hvort kúlunni hafj verið skotið úr þessari skammbyssu eða ekki. Einkum er henni auðvelt að ganga úr skugga um slíkt, þegar patrónan, sem kúlan kom að líkindum úr, fylgir með, en á henni er að finna far eftir sprengipinnann, sem lætur skot- ið ríða af. Það far hjálpar lög- reglunni oft við að finna og ákvaröa morðvopn. Blaðamaður VÍSIS náöi tali af Nirði, þegar hann var nýstiginn út úr flugvélinni og á leið inn í bílinn, sem flytja skyldi hann til Reykjavíkur, en Njörður vís- aði á yfirboðara sína og varðist allra frétta um málið sjálfur. Sagði aöeins að ferðimar og rannsóknin hefðu gengið fljótt og greiðlega fyrir sig. Hann var á leiðinni til að þess aö gefa yfirmönnum sínum skýrslu um rannsóknina. Sló / brýnu viB áyr Playboy-klúbbsins í nótt j kafi í snjó í fjósinu — Skriba kaffærbi hús á Þingeyri — Ætlið þið að láta þesra menn stöðva ykk- ur í því að komast inn? Hrindið þeim bara frá! Þannig hvatti „vertinn“ í Playboy klúbbnum gesti sína í nótt. En lögreglumenn höfðu tekiö sér stöðu við inngöngudyrnar og vöröu fólki inngöngu eftir kl. 1 á miðnætti. í skýrslu til yfirmanna sinna segir lögregluþjónn, að forstöðu maðurinn hafi hrópað að þeim ókvæðisorð og hafi hvatt fólk til þess að sýna lögreglunni mótþróa. Hins vegar kom ekki til átaka og enginn var hand- tekinn. Lögreglan skipti sér að þessu sinni ekkert af því fólki, sem komið var inn í klúbbinn, en beitti sér fyrir því, að enginn kæmist inn eftir lögboöinn lok- unartíma. Á daginn heitir klúbburinn, sem er til húsa í Borgartúni, Ásaklúbburinn og þá sækja hann meðlimir. sem eyða vilja tómstundum sínum yfir spilum eða tafli. Lfm miðnætti skiptir klúbburinn um nafn og heitir þá Playboy-klúbburinn. Við dyrnar á klúbbnum sáu lögreglumenn að hengd haföi verið upp tilkynning um, að klúbburinn væri opinn meðlim- um sínum og gestum þeirra frá kl. 01.15 til 5 að morgni, en það brýtur í bága við ákvæði lög- reglusamþykktar Reykjavíkur. 79. gr. samþykktarinnar fjallar um, að veitingastöðum, sem reiða fram heitan mat, sérrétti ýmsa og kaffiveitingar og J byggja rekstur sinn á því aðal- • lega, sé heimilt að hafa opið • frá kl. 6 á morgnana fram að J venjulegum lokunartíma um mið • nættið. Byggi viðkomandi veit- J ingastaður ekki rekstur sinn á J slíkum veitingum aðallega þá • fylgir hann ákvæðum um opn- J unartíma venjulegra sölubúöa. • Svo er til sérstök undantekning • •fyrir staði, sem eru miðstöðvar J ferðamanna, eins og t. d. á flug- • vellinum. J í nótt tók lögreglan sér varð- • stöðu við alla klúbbana, en • Appollo-klúbburinn haföi lokaö, J Klúbbur 7 lokaði um miðnætti • og Startklúbburinn einnig og • þar bar ekkert til tíðinda. J Lögreglan mun endurtaka • varðstöðuna í nótt og kannski J jafnvel næstu nætur, ef þurfa • þykir. • Snjóskriðan féll á fjósið og hlöðugaflinn, sem er um fjórir metrar á hæð. Krafturinn var það mikill á skriðunni, að hún keyrði inn gaflinn, beygði þar 6 tommu stólpa. Skriðan braut glugga í fjósinu og var metra- djúpur snjór í fóðurgeymslunni. Innsta kýrin og tveir kálfar stóðu á kafi í snjó. — Ég vaknaði klukkan sex um morguninn, sagði Þóröur Jónsson bóndi í Múla í Dýrafirði, þegar Vísir ræddi við hann í morgun. — Þá var svona umhorfs. Skriðan hafði hlaupið ofan úr gili, sagði hann. Svellbunki var undir svo að skriðan rann óvenju greiö- lega niöur giliö og tók með sér mikið af giröingum. Þetta var aöeins ein af mörgum skriðum, sem féllu á Vestfjöröum í stórrigningunni í gær. Þórður sagði að víða hefðu fallið smáskriður úr hlíðinni fyrir ofan bæinn og alls sagði hann að girðingar hefðu sóp- azt burtu á rúmlega eins km kafla. Skriða féll úr svo til hverju ein- asta gili í fjallinu ofan við Þing- 'eyri. Úr Kárastaðagili féll stór skriða á hús Davíðs Kristjánssonar. Davíð sagði þegar Vísir ræddi við hann í morgun: —Krökkunum fannst þetta anzi ónotalegt. Sjálfur var ég á sjó. Kon an var ein heima með börnin. Það er furðulegt að ekki skyldi fara gluggi í húsinu. Skriðan féll á gafl hússins og náði alveg upp í þakskegg. Á leiðinni niður hlíðina hafði skriðan með sér girðingar og ýmislegt drasl. Meðal annars setti hún um reykkofa sem stóð hér skammt fyrir ofan. Bílskúrsdyrnar opnuðust upp á gátt undan farginu og slettist snjórinn þangað inn. Víða urðu skemmdir á Vestfjörð um af skriðuföllum og vatnagangi. Innanverður Arnarfjörður er gjör- sanilega ófær, skriður féllu á Bíldudal og skemmdu vegi víða. Vatn komst í vélarhús íshússins á Isafiröi og skemmdi þar mótora, svo aö ekki var hægt að vinna í húsinu í gær. Úrkoman stóö fram undir miðjan dag. Þá tók skyndilega að frysta. — Eftir það fór að kyngja niður snjó og er nú mikill jafnfallinn snjór á Vestfjörðum. Suðurlandsvegurinn var ófær við Lögberg í morgun. Þar flæddi vatn alveg yfir veginn, og var hann aðeins fær stórum bílum. Vatn flæddi einnig yfir veginn á Sandskeiði, en flóðið er í rénun. stóðu á Njörður Snæhólm, rannsóknarlögreglumaður kemur með sönnunargögnin á Reykjavíkurflugvöll í morgun. Kýrin og kálfarnir

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.