Vísir - 14.03.1969, Blaðsíða 3
V1S IR . Föstudagur 14. marz 1969.
3
Frá hægri Magnús J. Brynjólfsson, Þorvarður Jón Júlíusson, Gísli Einarsson, Magnús L. Sveinsson, Guðmundur H. Garðarsson, Hjörtur Hjartarson og Árni
Gestsson. e
Aukið verzlunarfrelsi
Jpjárhagsörðugleikar verzlunar-
innar vegna verðbólguþró-
unar. Frjáls útflutningsverzlun.
Innganga í EFTA. Þetta voru
meðal annars þau málefni, sem
rædd voru á Verzlunarmálaráð
stefnu sjálfstæðismanna á Hótel
Loftleiðum í gær. Ráðstefnan
hófst hinn 11. Þar hafa veriö
flutt ellefu erindi og ávörp um
verziunarmál. Umræðuhópar
hafa fjallað um málefni ráð-
stefnunnar og í gær svöruöu ráð-
herrar Sjálfstæðisflokksins og
borgarstjórinn í Reykjavík fyr
irspumum frá þátttakendum.
Þegar fréttamenn Vísis litu
inn á ráðstefnuna í gær stóð yfir
álitsgerð um störf umræðuhóp-
anna, sem störfuðu á ráðstefn
unni. Var þar meðal annars f jall
að um fjármál fyrirtækja og hin
neikvæðu áhrif sem leiðir af
fjármunaskorti fyrirtækja, óhag
kvæmni f rekstri. Töldu umræöu
hópamir að eigið fé verzlana
væri hættulega lítið. Auka þyrfti
fé banka til kaupa á vöruvíxl-
um. Taka bæri fyrst og fremst
tillit til arðsemi, atvinnusjónar-
miða og framtíðarmöguleika fyr
irtækja, þegar um lánveitingar
væri aö ræða. Verzlunin væri
í dag háð veðurfarinu, rétt eins
og landbúnaðurinn. Dytti verzl
— Eins konar „motto" ráðstefnu sjálfstæðismanna um verzlunarmál
un niður eina viku vegna veð-
urs, 'gæti það riðið henni að
fullu. Svo væri jafnvel komiö
fyrir gömlum og grónum verzlun
arfyrirtækjum.
í þessari álitsgerð var einnig
fjallað um skattamál fyrirtækja,
afskriftir og verðlagsmál. —
Fræðslumál verzlunarstéttarinn
ar voru lítillega tekin á dagskrá.
Ennfremur var fjallað um út-
flutningsverzlunina og kom með-
al annars fram tillaga frá einum
umræðuhópanna að útflutnings
verzlunin yröi gefin frjáis. Hug
myndir um aukna hlutdeild stór
kaupmanna í útflutningsverzl-
uninni, sem verið hafa á döfinni
að undanförnu sýna og hvert
húgur verzlunarmanna stefnir i
þeim efnum.
Þá kom fram í þessum um-
ræöuhópum að stefna bæri að
því að leggja niður einkasölur
ríkisins og ennfremur innkaupa
stofnanir sveitarfélaga, sem gera
ætti fremur að útboðsfyrirtækj-
um, enda væru þær komnar út
fyrir sitt verksvið.
Guðmundur Magnússon, pró-
fessor, flutti greinagott og
skemmtilegt erindi, sem hann
nefndi „Hugvekja um EFTA“ og
setti þar fram rök, sem ekki
hafa ljóslega komið fram áður
um nauðsyn þess að Island gangi
í EFTA. Taldi hann að því fyrr,
sem íslendingar gengju í EFTA
því betra. — Taldi prófessor-
inn að innganga í EFTA gæti orð
ið til þess að styrkja mjög vérzl
unina í landinu og allan efnahag.
Þyrfti að vinda að því bráðan
bug að undirbúa þátttöku ís-
lands í bandalaginu með mark-
aðskönnun og aukinni tækni í
sölumennsku, þar sem við vær
um á margan hátt eftirbátar.
Gunnar Ásgeirsson flytur álitsgerð umræðuhópa, sem störfuðu á ráðstefnunni. Til vinstri
situr Birgir Kjaran, fundarstjóri, og tilhægri Haraldur Sveinsson, formaður framkvæmda
nefndar ráðstefnunnar og Hörður Einarsson, formaður fuiltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík.
Ráðherrar og borgarstjóri svöruðu fyrirspurnum þátttakenda á ráðstefnunni.
I
I
I
I
Frá vinstri: Rafn Johnson, Örn Jóhannsson, Ólafur Ó. John-
son, Friðrik Kristjánsson og Ingimundur Sigfússon.
Ýmsir kunnustu fulltrúar kaupmannastéttarinnar sátu fundinn. Hér sjást talið frá vinstri:
Þorsteinn Bernharðsson, Pétur Sigurðsson, Sigurliði Kristjánsson, Sigurður Ilalldórsson, Hln-
rik Thorarensen, Þórhallur Þorláksson og Þórður Júliusson.
!