Vísir - 14.03.1969, Page 6

Vísir - 14.03.1969, Page 6
6 VISIR . Föstudagur 14. marz 1969. Stórbrotin og snilldarvel gerö og leikin ný, amerísk stórmynd. íslenzkur texti. Kirk Douglas Robert Mitchum Richard Widmark. Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð innan 14 ára. KOPAVOGSBIO Sfmi 41985. Flugsveit 633 Víðfræg, hörkuspennandi og snilldar vel 0erð amerísk stór- mynd í litum og Panavision, er fjallar um þátt R.A.F. í heimsstyrjöldinni síðari. — ís- lenzkur texti. Cliff Robertson George Chakaris Endursýnd kl. 5.15 og 9. — Bönnuð börnum. HAFNARBIO Slmi 16444. Áhrifamikil og athyglisverð ný þýzk fræðslumynd tekin i litum Sönn og feimnislaus túlkun á efni, sem allir þurfa aö vita deili á. — Myndin er sýnd við metaðsókn víðs vegar um heim. tslenzkur texti. Sýnd kl. 5, 7 og 9. HÁSKÓLABÍÓ Sími 22140. Útför i Berlin (Funeral in Berlin) Bandarísk. Aöalhlutv.: Michael Caine, Eva Renzi. — íslenzkur texti. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð innan 16 ára. SL* iíTiTi^ ÞJODLEIKHUSID Gullæðið í Alaska endurtekur sig Að visu i breyttri mynd — nú er jboð olian Borturnar rísa í rökkri heimskautsnæturinnar. IJ játrú manna getur fundið sér fótfestu, þar sem rökvís- inni er ekki stætt. Og hjátrú manna getur birzt á svo marg an hátt, að yfir það veröur víst aldrei samin tæmandi greinar- gerð. Vissar kreddur geta aö vísu verið á mkum reistar. Dæmi um það er sú hjátrú að það sé ógæfu merki að ganga undir vinnupalla. Sú kredda kvað upprunnin suð- ur á Ítalíu, og er enn sögö í fullu fjöri, ekki einungis þar heldur í velflestum löndum, sem evrópskar þjóðir byggja. Sé bet ur að gáð, var það hættulegt að ganga undir vinnupalla, þar sem unnið var að byggingu húsveggja úr brenndum leirsteini, eins og tfökast suður á Ítalíu. Það gat alltaf átt sér stað að múrarinn glopraöi steini úr höndum sér, og væri vegfarandi fyrir neðan var eins víst að hann fengi stein inn f kollinn. Þannig má eflaust skýra ýmsar hjátrúarkreddur, en aðrar virðast torskýrðari — eins og trú manna eöa ótrú á vissum tölum. Skýrasta dæmi um þá kreddu er ótrú manna — eða trú sumra — á tölunni 13. Svo furðulegt sem þaö kann að viröast, halda Iæröir menn því fram, að hjátrú manna í tækniþróuðum og hámenntuðum þjóöfélögum sé sfzt minni nú, á tímum geimferða og rafeinda- heila, en hún hafi áöur verið. Nýjar kreddur skjóta upp koll- inum að sögn þeirra — og þær gömlu reynast undarlega lff- seigar og viðlíka ónæmar fyrir allri vísindalegri þróun og kvef- veiran sem enn er þess umkom in að fresta yrði tunglferð henn ar vegna, ef hún vildi það við hafa. Ein af þessum lífseigu kreddum er einmitt talnakredd an. Og svo vill til að hún hefur einmitt nú fengið byr und ir báða vængi vestur í henni Ameríku. Þótt ólíklegt kunni að viröast, einmitt f sambandi við það sem harla lítið virðist koma henni við — olíulindafundi norö ur í Alaska. Árið 1896 hófst gullæðið mikla norður f Alaska, sem bandarfski rithöfundurinn Jack London, lýsti öllum öðrum höfundum bet ur f mörgum af skáldsögum sín- um. Og f þeim skáldsögum gerö- ist hann einmitt frumherji „töff- ara”- stefnunnar í bandarískum bókmenntum, sem Hemmingway sálugi hóf upp í æðra veldi skáld sagnalistar, en það er önn- ur saga, en sem fullyrða má þó að hafi haft meiri áhrif á banda- rfskan og jafnvel vestrænan þenkimáta en nokkuð annað f bókmenntum. Og f ár, 1969, hef- ur annað „gullæði" hafizt norð- ur f Alaska — olíuæðið — sem lýsir sér að flestu leyti svipaö og gullæöið foröum. Sem sagt ’96 og '69! Þama sér maöur það svart á hvítu, segja talnaspek ingarnir. Þar þarf ekki frekar vitnanna við! Reyndar var það í febrúarmán uði árið sem leið, að einn af starfsmönum Atlantic Richfield Co, fann olíulind norður þar, við Prudhoe-flóa á íshafsströnd Al- aska. Fyrir utan það hvað lind þessi viröist auðug, er þaö undar legt viö hana, að hún liggur að- eins nokkur hundruð fetum neö- ar en jarðgassvæði á sömu slóð- um. Ekki mun þó verða hirt um að rannsaka það nánar meö hag- nýtingu gassvæðisins fyrir aug- um, meðan þarna reynist gnægð olíu. Þeir, sem bjartsýnastir eru, telja að þess muni ekki langt að bföa, að Alaska verði auðug- asta rfki í Bandaríkjunum fyrir olíuna, hinir sem líta á þetta af meira raunsæi, álíta að þess verði nokkur bið — það er nefni lega miklum erfiöleikum bund ið að koma þeirri olíu, sem kann að finnast á þessum slóð- um á markaðinn og það verður dýrt. Sennilegast aö leggja verði olfuleiðslu yfir suöurströnd Al- aska, til nálægustu íslausra hafna, og mundi sú leiðsla kosta að minnsta kosti eitt þúsund milljónir dollara. En hvað um það — nú í vetur hafa þegar fundizt 12 „sjálfstæöar“ olíulind ir þar nyrðra á víð og dreif um 800 fermílna freðmýrásvæði. Sér fræöingar telja margt benda til, að þarna muni leynast tvöfalt eða jafnvel ferfalt olíumagn neð- anjarðar, samanborið við olíu- magnið, sem vitað er um f Tex- as. Og olíuæðið er hafiö. Öll stærstu olíufélögin í Bandaríkj unum hafa sent leiðangra norð ur í olíuleit. Þetta eru dýrir leið angrar og vel búnir farartækj- um og rannsóknartækjum, en vegna veðráttu og annarra að- stæðna eru öll ferðalög erfið norður þar. Eins og á árum gull- æðisins, eru kjarkmiklir einstakl inga líka lagðir af stað, miður búnir að sjálfsögðu — og eflaust verða margir þeirra fyrir von- brigðum, eins og gullnemamir gömlu. En ævintýri lyfjafræð- ingsins 1 Fairbanks, Tom Mick- lautech sannar, að þeir geta líka haft heppnina með sér, ef svo ber undir. Hann festi kaup á landi, 4800 ekrur að flatarmáli noröur þar fyrir aðeins 1 dollar ekruna, eða samtals 4800 doll- ara. Þar hefur fundizt olía, og fyrmefnt olíufélag bauð honum 1 milljón dollara út f hönd fyrir landið. Hann sagði nei í fyrstu, en gerði loks sölusamning við félagið í vetur leiö. 2 milljönir dollara í hlutabréfum strax, 1 milljón til . viðbótar, þegar vinnsla hefst og eftir það 25% af öllum vinnsluhagnaði — og er þetta algjört sölumet f olíu- samningum, þar sem menn kalla þó ekki allt ömmu sína. Lyfja- frseðingurinn hyggst samt haída áfram starfi sínu í lyfjabúðinni í Fairbanks. „Maður veit hvað maður hefur, en ekki hvað mað- ur hreppir", segjr hann. Olíuæðið hefur þegar í för með sér aukna atvinnu, aukin við- skipti og alls konar annrfki og verðþenslu í norðurhémöum Al- aska, öldungis eins og gullæðið forðum. Þegar er f undirbúningi að reisa nýja bæi og borgir, und irbúin gerð flugvalla, leiðangrar meö sérstaka gerð dráttarvéla og snjóbíla og snjóskottur halda í slóð gullnemanna gömlu í myrkri heimskautanæturinnar. Verkamenn við byggingu bor- turna fá þama margfalt kaup, samanborið við það, sem tíðkast annars staðar í Bandaríkjunum. Þetta er þó einungis upphaf ið .. Hvort nokkur arftaki Jacks London leynist meðal þessara Ieiðangursmanna, sem svo á eft- ir að gera olíuæðinu svipuð skil f skáldsögum og Jack gerði gull æðinu forðum, er ekki að vita. Hann þyrfti vafalítið ekki að skorta efniviðinn, svo mikið er víst. Og þeir, sem trúa á kreddurn ar samhliöa vísindunum benda á ártölin tvö, ’96 og ‘69. Gall- inn er þó sá, aö þeim verður ekki snúið á fleiri vegu, jafnvel ekki í rafeindaheila ... VÍSINDI - TÆKNI m AUSTURBÆJARBIO Sími 11384. Sfmi 18936. Sfmi 11544. Sími 50184. Tíékmt) á)>akinu Texti: Joseph Stein. Tónlist Jerry Bock Ljóð: Sheldon Harn ick. Þýðandi: Egill Bjarnason Leikstj.: Stella Claire og Bene dikt Árnason. Hljómsveitarstj: Magnús Bl. Jóhannsson . Frumsýning f kvöld kl. 20. Uppselt. Önnur sýning laugardag kl. 20. ÞriSJa sýning sunnudag kl. 20 SlGLAÐIR SÖNGVARAR Sýn. sumjudag kl. 15. Fáar sýninga eftir. Aðgöngumiðasalan opin frá kl. 13.15 til 20. Sími 1-1200 Tigrisdýrið sýnir klærnar Þér er ekki alvara Saga Borgarættarinnar Danskur texti. — Roder Hanin og Margaret Lee. — Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5 og 9. (You must be Joking) fslenzkur texti. Ensk-amerfsk gamanmynd. Michael Callan, Lion Jeffries Denholm Elliott, Bemard Cribb ins. — Sýnd kl. 5, 7 og 9. LAUGARASBIO ORFEUS og EVRYDÍS í kvöld Allra síðasta sýning. YFIRMÁTA OFURHEITT laug- ardag. MAÐUR OG KONA sunnudag Aðgöngumiðasalan f Iðnó er opin frá kl. 14 Sími 13191. Símar 32075 og 38150 The Appa Loosa íslenzkur texti. Aðalhlutverk: Marlon Brando. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð börnum. 1919 — 1969 50 ára Kvikmynd eftir sögu Gunnars Gunnarssonar. tekin á íslandi árið 1919. Aöalhlutverkin leika íslenzkir og danskir leikarar. íslenzklr textar. Sýnd kl. 5 og 9. Það skal tekið fram að myndin er óbreytt að lengd og algjör- lega eins og hún var, er hún var frumsvnd f NKMa Biói. Njósnarinn i nefinu Gamansöm, bandarísk njósna mynd. Sýnd kl. 9. — Bönnuð bömum innan 14 ára. Sími 11475. Leyndarmál velgengni minnar (The Secret c( my Success) Shirley Jones, Honor Black- man og Stella Stevens. — ts- lenzkur texti. — Sýnd kl. 5, 7 og 9.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.