Vísir - 15.03.1969, Síða 4

Vísir - 15.03.1969, Síða 4
I H AI jpn Söngvarinn, Chilly Charles Azna vour leikur um þessar mundir í kvikmynd, sem á að bera heitið, The Games. Unnið er að gerð myndarinnar í Róm og hér sést söngvarinn á rölti við Colosseum leikvanginn, en hann á að leika þolhlaupara. Oft er það gott, sem gamlir kveða, og því líklega eitthvað til í þvf, að menn eigi aldrei að gefa frá sér alla von, eins og Jack Wheeldon, sem fyrir stuttu fékk ókunnuga dúfu í heimsókn í dúfnakofann sinn, en gat aldrei flæmt hana á brott þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Að lokum skrifaði hann alþjóða samtökum dúfnaeigenda og sendi þeim númerið, sem hann fann á fóthring, dúfunnar. Hugsazt gat, að hinn rétti eigandi hefði til- kynnt hvarf dúfunnar. Jú, mikið rétt, stóð í svari sam- takanna. Við eigum hérna níu ára gamla tilkynningu frá þér sjálf- um, þar sem þú segist hafa týnt þessari dúfu. Þá fyrst áttaði Jack sig á því, að þetta var dúfan, sem hann fyrir níu árum hafði sleppt lausri til reynslu. „En þar sem hún kom ekki til baka, gaf ég upp alla von um að sjá hana nokkum tima framar og fleygði skiölunum með upplýsingunum um hana,“ sagði Jack. * A1 Tiberg er reyndur flugmaður stafandi hjá Eastem Air Lines, og hefur verið flugstjóri í 26 ár. Þrátt fyrir þetta leið honum í flugferð, sem hann fór um daginn milli New York og New Orleans, ekki ósvipað og í fyrstu flugferð sinni. Við hliðina á honum sat aðstoðarflugstjórinn, sonur hans Robert. og aftur í hjá farþegunum var flugfreyjan á þönum, dóttir hans Susan. Þetta var í fyrsta skipti, sem leiðir þeirra allra þriggja lágu saman. Prinsinn illa þokkaður í WALES Honum brugguð banaráð af Walesbúum og samsærismenn handteknir — Ef ég slepp við að fá rotna tómata og úldin egg í höfuðið, þá bjarga ég mér áreiöanlega, sagði Charles Bretaprins í viðtali í BBC nýlega og átti þá viö hátíöina í Caerinarvon-kastala í júlí n. k„ en þá stendur til að útnefna hann prinsinn af Wales, sem er sá titill, er prinsar Bretaveldis hafa borið venjulega til þessa. En þeim i Wales er eitthvað uppsigað við Charles prins og töluverð andúðaralda hefur risið gegn útnefningunni þar í héraði. Þjóöemissinnuð öfl, sem stefna aö þvi, að Wales-héraö verði látið laust undan áhrifavaldi Englands, hafa vakið upp þessa andúð. Prins inum hefur jafnvel verið hótað lífláti og upp hefur komizt um samsæri niu manna, sem voru handteknir eftir að hjá þeim fund- ust sprengiefni og vopn, auk leyndarskjala um áætlanir til hindmnar útnefningu prinsins. Margt bendir því til þess að hátíðahöldin í júlí verði sögu- leg. Fram til þessa hefur prinsinn aðeins heimsótt Wales vel varinn í fylgd vopnaðra Ilfvarða. En vegna þessa samsæris og jafnvel annarra, sem upp hefur komizt um, er nú allt í óvissu um, hvort verður af skólaveru prins- ins í háskólanum í Aberrystwytch eins og upphaflega hafði verið ráögert. Menn búa sig undir hið versta, vegna hátíðarhaldanna í júlí, vegna þess sem á undan er geng- ið. Talið er að þjóðernissinnar í Wales hafi komið sér upp leyni legum her, sem verði beitt í við- leitni samtakanna til þess aö koma í veg fyrir útnefninguna. Hann hefur hikk.. J •? hikstað.. í.. hikk .. sjö ár James McKay hefur snúið sér til yfirvaldanna í Edinborg og beöið þau hjálpar í vanda sínum, — hann vil fá bata á hiksta, sem hefur þjáð hann i sjö ár. Hann hefur upplýst, milli þess sem hann hikstaði, að hann hafi reynt öll læknisráð og húsráð, m. a. hefur hann leitað til kvenna, sem kunna ráð við flestu. Frá því 1962 hefur hann aldrei verið laus viö hikstann lengur en eina klukkustund í senn, ekki Ódýrustu sjálfvírleu þvottavélarnar SKÓLAVÖRÐU5TÍG la. SlMARiI372SOG 15054 * Charles prins í fylgd meö ungri stúlku á leið í samkvæmi, en myndin er tekin, þegar brezku blöðin fylgdust sem gleggst með umgengni hans við veikara kynið. — Nú blasa við honum öllu óþægilegri samskipti við fólk. heldur á nóttinni. Ógnar hann nú gildandi „heimsmeti". Samkvæmt Guinness’ Book of Records á Jack O’Leary metiö. Hann hikstaði í Los Angeles frá 13. /júní 1948 til 1. júní 1956. Hann fékk um 60 þús. uppástung ur frá almenningi um hvernig hann gæti sigrazt á hikstanum. Aöeins eitt þeirra kom að gagni: Að biöja til heilags Júdasar, sem sér um vonlaus tllfelli. það hreif. ii-inni Sprautum vinyl-IeSurilkl á toppa og mælaborð. Gefur bílnum nýtt úliit. Fæst nú f 7 litum. STIRNIR SF. DUGGUVOG11 - SÍMI33895 82120 H rafvélaverkstædi s.melsteds skeifan 5 Tökum aö okkur: ■ Mótormælingar ■ Mótorstillingar 3 ViðgerðÍT á rafkerfi dýnamóum og störturum. '’I Rakaþéttum raí- kerfið /arahlutir á . taðnum sgpgíi I SÍMI 82120 tgfp BIAFRA 15-lðmarz 1969 Skrifstofa Hverfisgötu 4 Símar 14700 og 22710

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.