Vísir - 12.04.1969, Síða 1
,/.%W.V.V/.V.VAV.VA%V/.VA'AWW.S%V.V.VA,.W.V1
f:
Ról&gir dagar verkfallsvarða
■ Verkfallsverðir hafa átt
náðuga daga í þessu tveggja
daga verkfalli, sem liðið hef-
ur án þess að til nokkurra
stórtíðinda hafi dregið milli
aðila.
„Þetta hefur veriö svo rólegt,
sem hugsazt getur“, sögöu Iöju
mpnn, þegar blaöamaöur VlSIS
leit inn á skrifstofur þeirra á
Skólavöröustíg 16, en þar hafa
fleiri verkalýðsfélög skrifstof-
ur sínar, bifvélavirkjar, jámiðn
aðarmenn o. fl.
I sama streng tóku járniðnaö
armenn.
Eini vísirinn að deilumáli,
sem járniðnaðarmenn þurftu að
láta til sín taka, var í Straums-
vík hjá Álverksmiðjunni f fyrra
dag. Þegar verkfallsverðir komu
þar við í eftirlitsferð, komu þeir
að þrem þýzkum blikksmiðum
7. síða.
_■_■_■_■_■_■
SKÆRUVERKFOU TIL 5. MAI
Hugmynd Hannibnls um allsherjar-
verkfall 17. apríl úr sögunni
Viðræðunefnd og mið- ins munu nú beina þeim
stjórn Alþýðusambands- tilmælum til verkalýðs-
félaganna, að þau taki
þátt í framkvæmd áætl-
unar um „keðjuverk-
föll“, þannig að félögin
stöðvi vinnu í nokkra
daga í senn, hvert á eftir
öðru í „keðju“.
Á þessi „skæruhernaður" að
standa fram til 5. maí, en þá
verður tekin ákvörðun um frek-
ari aðgerðii. Með þessu er sú
huamynd Hannibals úr sögunni,
að boðað verði allsherjarverkfall
strax hinn 17. aprfl, eða næst-
kcmandi föstudag, sem standa
ætti, unz samningar næðust.
Ýmsir verkalýðsforingjar sner
ust strax öndverðir gegn hug-
mynd Hannibais, og mun Jón
Snorri Þorleifsson, formaður
Trésmiðafélagsins, helzti frum-
kvöðull hugmyndarinnar um
„skæruhemað", sem nú hefur
orðið ofan á.
Drög að sáttatillögu
í athugun hjá
undirnefndum
Sáttafundi lauk klukkan hálf-
sjö f gær, og var ætlunin að und-
irnefndir deiluaðila störfuðu í
gærkvöldi og nú í morgun. í dag
klukkan tvö verður nýr sátta-
fundur. Aðilar létu heldur betur
yfir gangi fundanna og töldu
nú eitthvaö hafa þokazt, þótt
hvergi nærri sjái fyrir endann á
deilunni. Sáttanefnd þreifaöi fyr
ir sér um ýmis atriði, sem orð-
iö gætu til málamiðlunar og
mættu verða uppistaða í sátta-
tillögu, sem borin yrði undir
einstök félög til atkvæðagreiðslu
í einstöku félögum. Það er kom-
ið undir viðtökum, sem þessi at-
riði fá hvort sáttatillaga kemur
fram næstu daga.
Nú er allt talið benda til þess,
að verkföill á einhverjum sviðum
verði daglegir viöburðir næstu
þrjár vikumar, náist ekki samn-
ingar. Iðja hefur boðað verkfall
hjá þremur fyrirtækjum á mánu
dag, og einhver önnur félög
munu væntanlega boða verkföll
næstu daga, sem þá hefjast viku
síðar.
Vísað írá að morgni - kallað
aftur til vinnu um hádegi
Skyndibnð
í Tjörninni
Allt f einu var hann horfinn
af gangstéttinni, en nær jafn-
skjótt gripu sterklegar hendur
upp á brúnina á hlöðnum garð
inum og maðurinn brölti renn-
anJi blautur upp á mannhæðar
háan tjarnarbakkanum. Hann
spýtti frá sér tjarnarvatninu
hæfilegr. blönduðu botnleðju, en
að öðru Icyti var ekki að sjá,
að þetta skyndibað hefði fengið
mikið á hann. Hann slangraði
út tjarnarbakkann og virtist
ekki einu sinni hafa orðið var
við þetta skyndilega baö.
Einu verksummerkin, sem sá
ust þegar nærstaddir áhorfend
ur komu á slysstaðinn, þar sem
maðurinn hafði fallið í Tjörnina,
var myndarlegur vatnspollur á
stéttinni, slóð út hana, hálf-
full vínflaska fljótandi f Tjöm
inni í fylgd með myndarlegri
loðhúfu. Víkingaeðlið virðist
ekki enn aldautt meðal íslend-
Verzlunarmarmafélag Suðurnesja sarndi
um visitölubætur frá 1. marz
Á ýmsu hefur gengið í samn-
ingamálum verzlunarmanna á
Suðurnesjum. 1 nokkrum verzl-
unum var starfsfólki vísað frá
í gærmorgun, þar sem vafi lék á
hví, að samkomulagið, sem gert
var á miðv.d., væri í gildi. Fólk-
ið var svo kallað aftur til vinnu
um hádegi og hefur bví verzlun-
arlíf verið með eðlilegum hætti í
Keflavík.
Samningar tókust milli Verzlun-
armannafélags Suðurnesja og
stjórnar Kaupmannafélags Kefla-
vikur á miðvikud. og hófst vinna í
verzlunum á fimmtudaginn. Samið
var um vísitölubætur frá 1. marz
og gildir samkomulagið í sex mán-
uði.
Kaupmannafélagiö hélt svo fund
í fyrrakvöld, og var þar mættur Sig
urður Magnússon, framkvæmda-
stjóri Kaupmannasamtakanna, en
hann taldi vafamál aö samningarn
ir væru löglegir, eða að þessir aöil
ar hefðu rétt til þess að semja. —
Samkomulagið var síðan fellt á
fundinum með 9 atkvæðum gegn 7.
Morguninn eftir voru svo kaup-
menn í vafa um hvort samkomulag
ið gilti ennþá. Verzlunarmannafé-
lagið hefur hins vegar haldiö sam-
komulaginu til streitu og álítur það
í fullu gildi, enda mun félagið fylgj
ast með því að umsamdar vísitölu
bætur verði greiddar. Verzlunar-
mannafélagið hefur einnig samið
við Kaupfélag Suðumesja og ein-
staka kaupmenn, sem standa utan
Kaupmannasamtakanna.
Iðja og iðnrekend-
ur fresta aðgerðum
® Það er sjaldgæft að fréttaljósmyndarrr gefi sér tíma frá önn
dagsins tii að setja upp sýningu á verkum sínum. Einn þeirra,
Rúnar Gunnarsson, fréttaljósmyndari og kvikmyndatökumað-
ur hjá sjónvarpinu, hefur nú gert þetta. Hann opnaði sýningu
á ljósmyndum sínum í Unuhúsi á fimmtudaginn.
© Á myndinni sést Rúnar vera að hengja upp myndir, en hon-
um til aðstoðar er einn starfsbræðra hans hjá sjónvarpinu.
!••••••
í
I
••••••••••••••••«
Hnuplað
úr kjör-
búð
■— Sjá bls. 6
s>:
•••••••••••••••••••■•••<
Við almenna atkvæðagreiöslu í
Félagi islenzkra iðnrekenda var
samþykkt að veita stjóm félagsins
og þar til kjörinni fimm manna
nefnd, hcimild til að boða verk-
bann á hendur Iðju vegna ákvörð-
unar Iðju um vinnustöövun hjá of-
angreindum fyrirtækjum.
Stjórn Félags íslenzkra iðnaðar-
manna og fimm manna nefndin
samþykktu á fundi i fyrradag að
boða verkbann frá og meö 18. apríl.
Sáttanefnd ríkisins óskaði eftir
fundi með fulltrúum iðnrekenda og
Iðju áður en verkbann væri boðað.
Þar náðist samkomulag milli deilu
aðila um að báðir aðilar frestuöu
aðgerðum um jafnlangan tíma.
Vinnustöðvun Iðju hjá ísaga,
Cassagerð Reykjavíkur og Um-
'úðamiðstöðinni hefur verið
restað um tvo sólarhringa, eða
il miðnættis aðfaranótt mánu-
lags næstkomandi.