Vísir - 12.04.1969, Side 4
Skíðahótelin í Ölpunum sögð hreiður
siðspiliingar
,Lolitos-klúbbar" og „skiðavændi'
Pere Yapp er hneykslaður, e!nk-
um á skandinavískum stúlkum.
Skíðatíminn í Alpafjöllum er á
hæsta stigi. Menn segja, að
þrennt dragi fólk þangað: snjór,
skíði og syndin. Þetta segir að
minnsta kosti prestur einn, sem
gefur eftirfarandi lýsingu á
ástandinu: „Svallveizlur eru í
tízku, og þeir hæddir, sem sýna
einhverja sjálfsvirðingu. Það
mundi nísta fólk í hjartastaö, ef
ég segði frá ýmsu því, sem fólk
skriftar fyrir mér“.
Þetta segir séra Yapp. Ummæli
hans koma í framhaldi af hneyksi
ismáli, er sautján ára stúlka
Giselle, fannst nakin liggjandi á
götunni viö skíðahótel eitt, al-
blóöug. Giselle hafði þegið boð
í „partí“ ásamt mörgum öðrum
ungum stúlkum. Eldri gleðimenn
stóðu fyrir veizlunni og fengu
stúlkurnar til að afklæðast. Þeg-
ar Giselle vildi ekki skríða um
á fjórum fótum með hinum, var'®"
hún lamin af reiðum félögum og
henni fleygt út nakinni.
I flestum skíöahótelunum leik-
ur fólk sér viö makaskipti, klæð-
ist „topplausum“ eða „botnlaus-
um“ klæðum og neytir eiturlyfja.
Hið nýjasta er „Lolitos-klúbbar".
Þar komu ríkar, miðaldra konur
nokkrum yngismönnum fyrir í
gistihúsi einu og áttu meðlimir
klúbbsins greiðan aðgang að
þeim. Málið komst upp og var
þaggað niður, þegar einn þess-
ara „Lolitos" reyndi aö kúga fé
út úr 46 ára bandarískri ekkju.
í Austurríki bar það til tíðinda,
að kaþólski biskupinn í Innsbruck
æskti þess, að skíðakennarar
yrðu leystir frá sínum ,,siðlausu“
samningum. Stúlkur, sem kenndu
þar á skíði höfðu beinlínis fallizt
á, að deila sæng með nemendum.
Annars eru þessar „skíðakonur"
nokkuð nýtt fyrirbæri. Karlmenn
hafa yfirleitt annazt kennsluna,
en biskupinn hafði einnig áhyggj-
ur vegna aðgangsharöra eldri
kvenna. Einn skíöakennarinn
kvaðst áreiðanlega hafa sofið í
öllum hótelrúmum í sínu skíða-
þorpi eftir að hann hafði kennt
þar í fjögur ár.
Klerkar eru sammála um, að
skandinavískar og brezkar stúlk-
ur séu verstar allra.
Leikarar við Konungiega leikhúsið
neita að leika nektaratriði
Lítur
Hinn þekkti bandariski „fram-
úrstefnumaður“, leikstjórinn Tom
O’Horgan og þýðandinn Elsa
Gressvhafa skapað ólgu í Konung
lega leikhúsinu danska. Leikhús-
stjórinn og leikararnir sjálfir hafa
neitað gjörsamlega að setja á svið
nektaratriði í síðasta leikriti sýn-
ingartímabilsins, „Tom Paine“
Frumsýning verður hinn 13. apríl.
Leikhússtjórinn hefur jafnvel
strikað yfir margar setningar og
orð þýðingarinnar, sem honum
ofbauð. Elsa Gress hefur hugsað
sér að mótmæla þessu athæfi á
einhvern hátt, þegar frumsýning-
in er afstaðin. '
„Mér hefðu ekki komið þessi
viðbrögð á óvart, hefðu þau orð-
ið í Bandaríkjunum," segir leik-
stjórinn Tom O’Horgan, „en ég
hefði ekki búizt við þessu í landi
svona
út
58
ára?
Þetta er málverk brezka málarans William Blake, sem gaf hug-
myndina um nektaratriðið.
sem er talið eitt hiö frjálslegasta
í heimi. Breytingarnar á þýöing-
unni eru þó ekki mikilvægar fyrir
sýninguna, og fer slíkt mjög eft-
ir tungumálinu hverju sinni.‘‘
Nektaratriði, sem leikarar höfn-
uðu, var innskot, þar sem Willi-
am nokkur Blake kemur til sög-
unnar. Blake var þekkt enskt
skáld og málari og raunar dul-
spekingur, uppi á nítjándu öld-
inni. Til að tjá hina sérstæðu list
hans hugöist Tom O’Horgan láta
nokkra leikara koma fram nakta.
Þannig hefur verið farið að viö
sýningar verksins áður, bæði £
London, París og New York.
Leikkonan Ellen Staal segist
hafa veriö spurö og orðiö að
neita. „Hefði mér verié gefin mál-
efnaleg skýring, til dæmis að
sýningin færi út um þúfur, ef ég
klæddist búningi í lit líkamans,
í staö þess að koma fram strípuð,
þá heföi ég látið mig. Við feng-
um engar skýringar, sem vörð-
uðu listrænt gildi verksins“. Ekki.
kom til algers verkfalls leikar-t.................*........................................................
anna, því að leikhússtjórinn greip*
í taumana og stöðvaöi frekari •
umræður. •
Tom O’Horgan er Bandaríkja-J
maður og kunnur fyrir hæfileika*
sína til að brjóta niður múra 2
hleypidóma. Danski leikarinn*
Troels Mölier Pedersen, einn«
þeirra, sem neituðu aö komaj
fram naktir, segir, að þetta eigi •
alls ekki við í Danmörku. Slíkir J
fordómar eigi þar engar rætur ogj
þess vegna alveg ástæðulaust að»
leika nakinn þar f landi. J
Hversu margar eru
þær ömmurnar, sem
„halda sér“ svona vel
58 ára gamlar? — Frú
E. M. Kernick frá
Leicester, Bretlandi,
telur, að þessi ljós-
mynd af sér geti sýnt
öðrum „stelpum‘< yfir
fimmtugt, að þær geta
enn litið vel út. Sum-
ar táturnar í „mini“
ættu að athuga sinn
gang, áður en þær
fara að monta sig
yfir aldri sínum.
m
■ \ 1
m
ifei/i.'.-V:
' ->£
w.flí'
VEGGFOÐUR
Gollllísar - llegollísar
Golfdúknr - Filttenw
Málninoarvörur
*
Fagmenn
fyrir hendi
ef óskaS er
KLÆÐNING HF.
LAUGAVEGI 164, SIMI 21444.
r
á eldhús-
innpéHingum, klæða-
skápum, og sðtbekkjum.
Fljöfi og göð afgreiðSIau
Geram fðsfi fiilb., leítið uppl.
Y/'
HúsoaönaverkslæOi ÞÓRS oo EIRÍKS
| Suðarvogi 44 - Sfml 31300