Vísir


Vísir - 21.04.1969, Qupperneq 1

Vísir - 21.04.1969, Qupperneq 1
Nýtt sáttaboð — meiri kjarabætur SÁTTANEFND lagði fram nýtt sáttaboð um helgina, sem gerir ráð fyrir meiri kjarabótum til launþega en var í fyrri tillögum. Sáttaboðið er ekki að svo komnu í formi beinnar sáttatillögu, en er í athugun hjá deiluaðiíum. Vor í lofti Hlýindi síðustu daga eru á góðri leið með að sannfæra menn um að vorið jé komið. — Lóan er komin og menn farnir að hlusta eftir kríu á moi-gungöngu sinni. Suðlægir vindar hafa hresst við vetrarföl stráin. Brumhnappar roðna á trjám og menn ganga bros- andi til vinnunnar á morgnana. í t’ag má búast við gróðrarskúr- um fyrir austan fjall. Ef til vill berst Uömn af þeim skúrum hingaö vestur yfj'r heiði. — Síðan má bú- asU-við honum austlægum með 'kvöldinu. — Kaldari, norðlægur vindur vekur okkur trúlega í fyrra- málið. Það er í svipuðu formi og fyrri tillögur, en gert er ráð fyrir hag- stæðari tölum fyrir verkafólk, svo sem hærri prósentuhækkun grunnkaups. Fundur verður í dag klukkan tvö, og munu að- 10. síða. Tómatar og Danskir stúdentar með réttlætiskennd, reykbombur og gamla tómata Danskir háskólastúdentar gáfu Laxness beztu auglýsinguna Halldór Laxness og frú arháskóla og sluppu Sonning-verÖIaunin við Sonning komust bæði inn um hliðardyr á Hafn þannig við reyksprengj- ur, egg, tómata og flösk- ur, sem þutu yfir höfð- um annarra þátttakenda í hátíðarhöldum á laug- ardaginn, þegar Halldóri Laxness voru afhent hátíðlega athöfn. Stúdentar við Hafnarháskóla höfðu skorað á Laxness að af- þakka verðlaunin, en þegar þaö bar ekki árangur voru skipulögö mótmæli við Hafnarháskóla. Tilgangur aðgeröanna var að mótmæia notkun „brask-fjár“ og nýtingu á húsnæöisvandræö- um Kaupmannahafnar sögöu hinir 1—3000 stúdentar, sem voru mættir til leiks, en eng- um mótmælum var beint gegn Halldórj Laxness persónulega. Nokkrir íslenzkir stúdentar voru mættir til leiks. Og meðan fiölarar í salnum spiluðu strengjakvartett í c-moll opus 18 númer 4 eftir Beethoven til að lyfta hugum þeirra, sem voru viðstaddir verölaunaaf- hendinguna varð allt vitlaust fyrir utan. Stúdentar geröu til- ISH- 10. síða. w.v, jr Islenzkur læknir skorar Bretadrottningu á hólns Frú Sonning og Halldór Laxness virtust ekki láta mótmælin á sig fa og landi okkar virðist heldur ekki óhress, þrátt fyrir „peninga utan úr geimnum“. 0 Hennar hátign, Elísa- bet n., Bretadrottn- ing hefur verið skoruð á hólm af einum afkom- enda hinna sönnu vík- inga, en af hólmgöng- unni hefur þó ekki orð- ið. „Ekki inn í tjaldið, Skúli. Þetta er fyrir blöðin gert, — leyfðu blaðamönnunum aö sjá“, kölluðu einvígisvottar Víga- Skúla Thoroddssens til hans, þegar hann gekk inn í tjald Dymoks höfuðsmanns austur við Búrfell í gær, líklega til þess að skora einvígiskappa drottningarinnar á hólm fyrir hennar hönd, en því miður varð Skúli læknir ekki við beiðni fé- laga sinna, og enginn er því til frásagnar um, hvaö þeim fór á milli. Stuttu síðar komu báðir út úr tjaldinu og höfuðsmaðurinn gekk með undirforingjum sínum til skrafs og ráðagerða, áður en hann héldi í könnunarflug um æfingasvæðið. Skúli gekk einnig til sinna manna til skrafs og ráöagerða og eftir eilítið tví- »->- 10. síða. — Ungkommar strengdu islenzka fánann yfir bvera götu til þess crð hefta ferð ungra sjálfstæðismanna á Keflavikurflugvóll Lögreglumaður úr Kópavogs- lögreglunni, Guðjón Ásberg, fót- brotnaði í átökum, sem urðu á veginum sunnan við Kópavogs- brúna í fyrradag. Hópur úr Tý, félagi ungra siálfstæðismanna i Kópavogi, ætlaði að þiggja boð um að skoða mannvirki á Kefla- víkurvelli og var á leið suður í Iangferðavagni frá varnarlið- inu, begar nokkrir unglingar úr hörðustu klíkum vinstri manna í Kópavogi stilltu sér þarna upp á veginn. hófu upp íslenzka fán- ann og strengdu hann á milli sín þvert yfir götuna og stóðu þann- ig í veginum fyrir bílnum. , Gekk á orðaskiptum fyrst í stað og reyndu ferðalangarnir að sann færa hópinn á götunni um að þarna væru þeir að brjóta umferðarlögin og þaðan af verra. Þeir kærðu sig kollótta og dró til ófriöar, þegar lögreglan kom á vettvang. Uröu þar pústrar og stimpingar, því aö þessir vegavarömenn vildu ekki víkja svo auðveldlega. Þá var kom in löng bílaröð beggja vegna. For- sprakkar Týs löttu sína menn til átaka, en þó munu einhverjir hafa skorizt í leikinn og varð um tíma mikið þóf þarna á götunni meöan óþolinmóðir vegfarendur létu flaut una ganga og skildu ekkj upp né niður í þessum umferöarhnút. Á endanum tók lögreglan mestu ólátaseggina í sína vörzlu, en þá lá einn lögreglumanna slasaöur og kom í ljós aö hann var fótbrotinn. Tildrög að þessu slysi lágu ekki fyrir í morgun, en lögreglan er að kanna þetta mál, Islenzki fáninn fékk slæma meö ferð í stimpingunum og var hann borinn skítugur og troðinn af hólmi.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.