Vísir - 21.04.1969, Síða 8
8
V í S IR . Mánudagur 21. apríl 1969.
VÍSIR
CJtgefandi ReyKjaprent h.í
Framkvæmdastión Sveinn R. Eyjó'.fsson
Ritstjóri: Jónas KristjánssoD
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingar: Aðalstræti 8. Símar 15610 11660 og 15099
Afgreiósla Aðaístræti 8. Sími 11660
Ritstjórn Laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur)
Áskriftargjald kr. 145.00 * mánuði innanlands
I lausasölu kr. 10.00 eintakið
Prentsmiðja Visis — Edda h.f.
Móðgaðir menn
Jói sló Sigga og Siggi svaraði í sömu mynt og þá
móðgaðist Jói og fór heim í fýlu.
Þessi saga af barnaleikvellinum er dæmigerð fyrir
ástandið í kjaradeilunni, sem nú stendur yfir.
Ballið byrjaði með því, að boðað var verkfall hjá
þremur völdum fyrirtækjum, sem þjónusta fyrirtæki
í almennum iðnaði og fiskiðnaði. Þessu verkfalli var
svarað með almennu verkbanni í iðnaði, sem koma
átti til framkvæmda viku síðar en verkfallið.
Orsakir verkbannsins eru ekki flóknar. Augljóst er,
að vinnuveitendum kemur mjög illa skæruhernaður
í vinnudeilum. Ef verkfall í fáum fyrirtækjum lamar
smám saman mikinn fjölda annarra fyrirtækja, er bú-
ið að breyta leikreglunum gagnvart vinnuveitendum
og eðlilegt, að þeir snúist til varnar.
Sáttasemjari kallaði báða aðila á sinn fund og fékk
þá til að fresta aðgerðum. Nokkrum dögum síðar var
verkfallið hjá fyrirtækjunum þremur boðað að nýju
og var þá verkbannið einnig boðað að nýju, að und-
angenginni allsherjaratkvæðagreiðslu meðal iðnrek-
enda. Um leið var tilkynnt, að verkbannið yrði aftur-
kallað jafnskjótt og verkfallið yrði afturkallað.
Forustumenn launþega töldu verkbannið móðgun
eins og frægt er orðið og fóru heim í fússi, eins og
Jói af barnaleikvellinum. Sögðust þeir ekki taka þátt
í frekari samningaviðræðum, nema verkbannið yrði
einhliða afturkallað. Við þetta varð hlé á samningum.
Þjóðin horfir agndofa á þennan skrípaleik. Reynsl-
an af verkföllunum í vetur hefur magnað upp mjög
almenna andúð á vinnustöðvunum. Fólk veit, að nú
ríður á, að efnahagur þjóðarinnar komist á réttan kjöl
og að framleiðslan má því ekki stöðvast. Fólk veit, að
báðir aðilar hafa nokkuð til síns máls í deilunni, en
telur ekki ofverk þeirra að ná samkomulagi um nið-
urstöðu í margra vikna samningum.
Menn benda nú í síauknum mæli á ríkisstjómina
og segja: „Þið eruð settir til að stjórna. Ætlið þið að
horfa á þessa dólga leika okkur svona? Allir voru
fegnir í vetur, þegar verkfallið var stöðvað með laga-
boði. Við viljum fá önnur lög núna.“
Lögin í vetur voru sett, þegar sjómannaverkfallið
hafði staðið nokkrar vikur og allir voru orðnir þreytt-
ir á því. Það er erfitt fyrir ríkisstjórnina að koma fram
með lagafrumvarp, fyrr en verkfall hefur staðið nokk-
urn tíma og menn sjá enga aðra lausn. Ef ríkisstjórnin
tekur fyrr í taumana, má búast við, að æsingamenn
reyni að brjóta lögin á bak aftur, einfaldlega með því
að fara í verkfall þrátt fyrir lögin. Framkvæmdavald-
ið er svo veikt hér á landi, að æsingamenn geta farið
sínu fram gegn lögum og rétti, ef almenningsálitið er
ekki eindregið á móti þeim.
En það er von, a.ð fólki finnist það hart, aö móðg-
aðir menn úti í bæ skuli virðast orðnir hinir raunveru-
legu stjórnendur þjóðfélagsins.
29. skoðanakönnun VÍSIS: Á að leyfa sölu áfengs öls hér á landi?
BJÓRINN vinrnr á
■ Maður með „bjórsambönd“, eins og það er kallað, hefur lengi verið öfundaður af náung-
anum hér á íslandi, enda telja margir að lífshamingjan verði varla höndluð nema með
góðum bjór.
■ Það eru margir erlendir menn, sem álíta, að hér sé vart lifað menningarlífi fyrr en við,
höfum fengið bjórinn. Þeir, sem vilja undirstrika þessa skoðun, benda góðfúslega á þá
staðreynd, að öldrykkja var stunduð af kappi á „gullöld“ Islendinga, eða þegar þær bæk-
ur voru skrifaðar, sem víðast hafa borið hróður landsins á erlendri grund, eins og „vit-
amir“ halda fram.
jþaö er ekki vist að Pétur Sig-
urðsson, alþingismaður og
fleiri starfsbræður hans á Al-
þingi hafi ætlað að reyna að
stuðla að nýrri gullöld hér á
landi, þegar þeir báru fram
„bjórfrumvarpið" sitt á dögun-
um. En þeir bentu á möguleika
til að betrumbæta neyzluvenj-
ur þjóðarinnar í áfengismál-
um. Og það er víst líka menn-
ingarmál.
En þaö eru ekki allir sammála
um það, að sterki bjórinn hefði
bætandi áhrif á drykkjuvenjur
íslendinga, Margir eru á móti
bjómum vegna gagnstæðra
skoðana. Þeir álíta bjórinn
hættulegan og aö hann geri ekki
annað, en bætast við það magn
af áfengi, sem íslendingar inn-
byrða þegar.
Bjórfrumvarpið var fellt eins
og flestum er fullvel Ijóst, en
það gerði ráð fyrir þvi, að bjór
málið yrði borið undir þjóðina
sjálfa með þjóöaratkvæða-
greiðslu. Að þessu sinni fáum
við ekki að vita hvemig þjóðin
tæki bjórfrumvarpinu í þjóðarat
kvæðagreiðslu, en með skoðana-
könnun eins og Vísir hefur gert
sínar kannanir er hægt að kom
ast mjög nálægt viðhorfum þjóð
arinnar til vissra málefna. 29.
skoðanakönnun Vísis beindist
þvi að því að kanna afstöðu
fólks til spumingarinnar: „Á að
leyfa sölu áfengs öls hér á
landi?“
Niðurstöðumar sýna að meira
en helmingur eða 51% vill fá
bjórinn. Á rfióti bjómum eru
39%, en 10% eru óvissir í af-
stöðu sinni. Það er ekki vist, að
niöurstöðutölumar væru þær
sömu í þjóðaratkvæðagreiðslu,
jafnvel þó að skoðanakönnun
sé 100% rétt. Kjörsókn er aldrei
algjör, en í þessu máli er óvíst
hvorir myndu mæta betur, þeir
sem eru með bjómum eða á
móti honum.
Það hefði t.d. nokkur áhrif,
hvort kynið sækti slíka þjóð-
aratkvæöagreiðslu betur. Það
kom i ljós, að konur eru nei-
kvæðari gagnvart bjómum en
sem hér segir:
Já...........
Nei..........
Oákveðnir . .
karlmenn. Ef aöeins eru teknir
þeir f þessari skoðunarkönnun er
afstöðu tóku voru 57% með
bjórnum, en 43% á móti. Aftur
á móti vom jafnmargar konur
með og á móti og virðist því
karlmennina þyrsta meir í bjór
inn.
„Málið er að vinna á“, sagði
Pétur Sigurösson i viötali við
Vísi á föstudaginn, um viðtök-
urnar, sem frumvarpið fékk nú á
Alþingi, en fleiri vora því fylgj
andi, að fá botn i þetta mikla
þrætuepli en áður hefur veriö
á hinu háa Alþingi. — Alþingis-
maðurinn getur aftur á móti
ekki hafa vitað, að einnig meðal
þjóðarinnar sjálfrar hefur málið
unnið á.
Vísir kannað; hug þjóðarinnar
til bjórsins fyrir rúmu ári. Niður
stöðumar þá komu blaðamönn
um mjög á óvart, þegar i ljós
kom, að aðeins helmingur þeirra
sem þá tóku afstöðu greiddi
bjómum atkvæði sitt. Nú hefur
þessi tala aftur á móti aukizt i
57%, þ.e. 14% fylgisaukning
á einu ári, — Þetta er eins og
með H-umferðina, sagði einn
blaðamaðurinn, þegar hann sá
niðurstöðumar. Fylgið eykst eft
ir því sem dagurinn nálgast. —
Falleg hugsun en ekki vfst að
hún sé raunhæf.
Þvi er oft haldið fram, að
fólk upp til sveita sé íhalds-
samara, en við hér í þéttbýlinu.
Þessi skoðanakönnun styður
ekki þá staðhæfingu. Bjórinn
hafði álíka fylgi í sveitum lands
ins og hér á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu. Hins v.egar vora færri
á móti bjórnum upp til sveita,
en fleiri óákveðnir. Það kom
raunar í ljós, að heldur fleiri
voru nú óákveðnir i afstöðu
sinni en fyrir rúmu ári, sem
gæti bent til þess, að fólk vegi
nú meir og meti kosti og galla
en láti tilfinningarnar síður ráða
afstöðu sinni.
Yfirleitt virtust þeir, sem af-
stöðu tóku, vera búnir að
mynda sér bjargfasta skoðun á
málinu. „Þaö myndi aðeins
auka á drykkjuskapinn" „Það
123 eða 51%
94 eða 39%
23 eða 10%
VÍSIR gerði sams konar
könnun fyrir rúmn árL
Þá urðu niðurstöður
þessar:
Já......84 eða 46%%
Nei .... 84 eða 46%%
Óákv. .. 13 eða 7% '
ætti að banna allt áfengL" „Ég’
held það sé nógur bjórinn, sem
er fluttur inn til landsins". 1.
þessum dúr svöruðu þeir, sem
voru á móti bjómum.
,,Þaö ætti aö hengja stærstu
Fálkaorðu í heimi á hann Pétur
minn“. „Erum viö einhverjir 7
ára krakkar og kannski meiri-
hluti Alþingis og templarar séu
barnapíur". „Já auðvitað. Það
er fráleitt að leyfa aöeins hluta
þjóðarinnar að drekka bless-
aðan bjórinn". Þannig hljóöuðu
athugasemdir þeirra, sem vora
bjómum fylgjandi.
Flestir svöruðu þó aðeins með
já-i eða nei-i. Flestar röksemd-
ir með og á móti bjórnum hafa
komið svo oft fram og era mönn'
um svo vel kunnar, að sérstakt ’
álit með svari viröist ónauðsyn-
legt. Fjöldi manna hefur gengiö
fram fyrir skjöldu til að lýsa á-,:
liti sínu á bjómum og virðist,
sem nokkur þreyta sé komin
í menn að hampa sínu sjónar-
miöi.
Aö lokum: Siðasta innlegg í
rökfærslu með bjórnum færði
hinn snjalli danski fyrirlesari á
blaðamannanámskeiðinu, Thor-
kild Behrens. Hann upplýsti, að
í Danmörku væru nokkrir menn
hafðir á hæli vegna ofdrykkju
vatns, sem er talin sizt betri of-'
drykkja en ofdrykkja áfengra
drykkja. Hann upplýsti sömu-
leiöis, að maðurinn þyldi ein-
ungis að drekka 5—6 lítra al
vatni á dag áður en nýrun fara
að skemmast (betta gildir
kannski þar sem kalkinníhald
vatnsins er mikið) en aftur á
móti þolir líkaminn auðveldlega
mun meira magn af bjór.
Ef aðeins eru taldir þeir, sem
afstöðu tóku, er niðurstaðan þessi:
Já........57%
..........43%
Niðurstöður úr skoðanakönnun VÍSIS urðu,