Vísir - 14.05.1969, Page 9

Vísir - 14.05.1969, Page 9
9 V 1 S I R . Miðvíkudagur 14. maí 1869. biwih winwrtf—iuiwwbhi Aflamet og óviss afkoma Vetrarvertíð, sem gerði suma ríka og aðra fátæka □ Það væri eitthvað meira en lítið bogið við þetta, ef afkom- an væri ekki góð eftir svona vertíð, sagði aflakóngur Suð- urnesja, Þórarinn Ólafsson, skipstjóri á Alberti frá Grind; 9 vík, þegar Vísir hringdi til hans í gær. □ Hásetarnir hans eru komnir með hátt í 200 þúsund í hlut eftir vertíðina. Margur hefur orðið að láta sér nægja minna. VTertíðin í vetur er metvertíð hvað aflamagn snertir í mörgum verstöðvum. Og heild- araflinn yfir landið er sennilega með því allra mesta, sem borizt hefur á land á vetrarvertíð til þessa. Þó byrjaöi vertíðin hér suðvestanlands ekki fyrr en rösk um mánuði seinna en venjulega. Bróðurparturinn af vertíðarafl anum veiddist við vestanveröa suðurströndina í marz og apríl. Þangað sótti allur vertíðarflot- inn frá suðvestanlandshöfnun- um og stærri Vestfjaröa og Breiðarfjarðarbátar voru meira að segja komnir þangaö meö net sín, þegar á leið. Óvenjulegur afli togveiðibáta fyrir Noröur- og Norðaustur- landi hefur einnig gert stórt strik í þessa vertíð. Þar hafa Norðlendingar sótt sér björg í bú norður undir fsröndina. Þessi afli hefur komið i veg fyrir at- vinnuleysi nyrðra og eystra og er nú svo komiö að þar er víð- ast hvar fólksekla fremur en at- vinnuleysi. Þrátt fyrir þennan mikla afla eru margir útvegsmenn og sjó- menn uggandi um sinn hlut. ’%7'ið spurðum Þórarin Ólafs- ’ son, hvað hann héldi að bát ur þyrfti aö fiska til þess að bera Báturinn bundinn í vertíðarlok. ■ y -Í..V >/ ■ . ' ',-y. Það er komið lokahljóð í sjómenn. Sumir eru búnir að taka upp netin og í gær var víða verið að þvo lestarfjalirnar uppi á bryggjum. sig á vertíð miðaö við eðlilega netaeyðslu. — Þeir eru ekki öfundsveröir á stærri bátunum, sem hafa ekki fiskaö yfir 600—700 tonn sagði hann. Auðvitað fer þetta eftir fleiru en netaeyöslunni. Olían er orðin óskaplega dýr, til dæm is. Þessir stærri bátar, sem stór kostlegar erlendar skuldir hvíla á, þurfa að fiska alveg óhemju til þess aö bera sig. Viö erum búnir að eiga þenn an bát okkar í þrjú ár. Á þeim t-íma er hann búinn að hækka um 4 milljónir í verði. — Það þanf talsvert til þess aö hafa upp í svona nokkuöí Viðhorfið er auövitaö allt ann að á minni bátunum, sem eru kannski skuldlitlir og ódýrari í rekstri en þessir stærri. Það hefur yfirleitt veriö góð- ur fiskur, sem komið hefur á land, sagði Þórarinn. Matið á lifandi blóðguðum fiski hefur verið betra en I fyrra, að minnsta kosti hjá okkur. Hins vegar viröist vera þegjandi sam komulag um það hjá þeim í fiskimatinu, aö refsa okkur fyrir dauðblóðgaðan fisk. rindavík er aflahæsta ver- st iðin í vetur. Þar voru á lokadag komin á land rúm 35 þúsund tonn, sem er 7 þúsund lestum meira en í fyrra. — Þar lönduðu að staðaldri 55 bátar, en sum kvöldin komu þar að allt upp í 75 skip, þegar hrotan var sem mest. í Vestmannaeyjum voru þann 11. maí komin á land rúm 30 þúsund tonn um þrem þúsund lestum meira en í fyrra. Hæsti báturinn, Sæbjörg var með ná- lægt 1650 lestum þann 11. og það er meiri afli en nokkurn tíma hefur tengizt á einn bát á vetrarvertíö. f Sandgerði lönduðu að staðaldri 40 bátar og heildarafl inn var á lokadag orð:nn á 14. þúsund lestir, þrem 'til fjórum þúsund lestum meiri en í fyrra. 1 Keflavík yar heildaraflinn oröinn svipaður og í fyrra um lokadag, eða um 15 þúsund lest ir og á Akranesi var heildarafl- inn oröinn um þúsund lestum meiri eða nálægt 9 þúsund lest- ir en var rúm 8 þúsund við ver- tíðarlok I fyrra. Hér er aðeins um grófár á- gizkanir að ræöa, vegna þess að 11. maí er nú oröið ekki skráður lokadagur nema á almanakinu. Hásetar eru víðast hvar skráðir á vetrarvertíð fram til 15. maí og þá verður vertíðaraflinn gerð ur upp í flestum verstöðvum. Þó að Reykjavíkurbátar hafi landað miklu af afla sínum í ver stöövunum suöur með sjó, í Þor- lákshöfn og Grindavík var svip- að aflamagn komiö á land í Reykjavík á lokadag og á sama tíma í fyrra, eða 7077 lestir. Verst hafa Breiöafjaröar og Vestfjarðabátar farið út úr þess- ari vertíð, en þar barst miklu minni afli á land en undanfam ar vertíðir. Stærri bátarnir fóru suður fyrir Reykjanes, þegar ieið á vertíðina og lönduðu afla sínum þar syðra, svo að atvinna var minni en hún hefur verið í mörg ár yfir vetrartímann þar vestra. Jjegar á heildina er litiö er þessi vetrar vertíð samt ein- hver hin gjöfulasta, sem menn muna. um mánaðamót var heild arafli bátaflotans orðinn 181,364 lestir, en var á sama tíma í fyrra 156.079 lestir. Auk þess komu á land 166. 449 lestir af loðnu í vetur og er þaö bezta loðnuvertíðin til þessa, sem kunnugt er. Verðmæti bátaaflans þessa þrjá mánuði er kominn yfir einn miiljarð. Einhve^ ætti því aö veröa ríkari eftir úthaldið. — En þeir munu líka til, sem þykjast fátækari, eftir þessa ver- tíð, en þegar hún hófst. 1 USEðEIB HHBtt | □ Röng uppsetmng umferðarljósa Hver ber ábyrgðina á upp- setningu umferöarljósa hér í höfuðborginni? Af hverju eru þau ekki sett upp í samræmi við umferöarmerki. Tökum lítið dæmi úr umferðinni, þar sem umferðarljós eru notuð, gatna- mót Miklubrautar og Löngu- hlíðar. Ef ökumaður ekur Miklubraut til austurs og ætlar aö beygja norður Lönguhlíð, þá ber honum skylda til aö færa sig yfir á yztu akbraut. Fyrir ofan hann hanga tvö samhliða Ijósker. Á það Ijósker, sem hægra megin er kemur grænt Ijós, en ökumaðurinn má ekki aka áfram. Hann verður aö bíða eftir því, að grænt ljós komi á ljóskerið vinstra megin. Þá tekur hann beygjuna og ekur þá yfir gatnamótin með bæði grænt og rautt ljós yfir þaki bifreiðar sinnar! Engar örvar eru í þess- um umferðarljósum, því hug- myndin virðist víst vera sú, aö rugla ökumenn eitthvaö í rím- inu. Er ekki oröið tímabært að endurskoða þessi blessuðu um- feröarljós okkar höfuöborgar- búa. Hér á íslandi eru notuö ensk umferðarljós og hafði Englendingur yfirumsjón með uppsetningu þeirra. Þaö var farið eftir honum í einu og öllu, en ekki reglugerðinni. Kynnið ykkur reglugeröina um um- ferðarmerki, 32. grein. Betra er að hafa engar reglur heldur en að brjóta þær. „ökumaður, sem fer eftir umferðarmerkjum". . BíjS' □ Endurskoðið efnis^ val ykkar. Dagblöðin í Reykjavík eru alltaf að skrifa um alla mögu- lega hluti og taka myndir á strætum og gatnamótum við öll tækifæri. Fyrir skömmu var ég stadd- ur á hljómleikum, sem Tónlist- arskólinn stóð að. Kom þar fram nemendahljómsveitin á- samt nokkrum einleiksnemend- um. Meöal þeirra sem komu fram var ung stúlka 19 ára sem lék einleik á fiðlu, sem lið í brottfararprófi og piltur, 19 ára lék einnig einleik á klari- nett. Því skrifa blöðin ekki um þetta og birta myndir? Músík-unnandi af yngri kynslóðinni. P.S. Það er veriö að tala um slæman smekk okkar únga fólksins, en er það nokkuð undarlegt? Við heyrum og sjá- um vart annað en lélegt ,,pop“ f blöðum, sjónvarpi og útvarpi. □ Góður þáttur ITryggva Helgasonar — Ég var svo lánsöm að geta hlýtt á erindi Tryggva Helgason- s ar í hljóðvarpinu fyrir skömmu. 1 Þaö er ekki.á hverjum degi, aó slíkur maður, sem Tryggvi er, tali í hljóðvarp. Erindi hans var mjög fróðlegt og skemmtilegt. Á mínu heimili, t. d., hefur fólk- ið aldrei verið eins einhuga við að hlýða\,og vil ég koma með þá tillögu, að erindið verði endur- tekið og veit ég með vissu að þar mæli ég fyrir marga. Tóta. Hringið í sísna 1-16-60 kB. 13-15

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.