Vísir - 14.05.1969, Side 13

Vísir - 14.05.1969, Side 13
V í SIR . Miðvikudagur 14. maí 1969. Þráinn Bertelsson skrifar kvikmyndagagnrýni: Að duga eða drepast (Kill or Cure) Stjómandi: George Poll- ock. Aðalhlutverk: Terry Thomas, Eric Sykes, Lion el Jeffries og Dennis Price. Ensk-amerísk, íslenzkur texti, Hafnarbíó. Aulabárðurinn (The Sucker) Stjómandi: Gerard Oury. Aðalhlutverk: Bourvil, — Louis de Funes íslenzkur texti, Stjörnu- bíó. p óðar gamanmyndir eru ^ býsna sjaldgæfar, en aft- ur á móti er tiitölulega mikið framleitt af miðlungsmyndum, sem tæplega koma áhorfendum til að hlæja, í bezta falli fram- kalla þær einhverja brosgrettu. Þannig er myndin í Stjömu- bíói, miölungsmynd sem hvorki er sériega skemmtileg né sér- lega leiðinleg. Tveir frægir gamanleikarar franskir bera myndina uppi, Bourvil og Louis de Funes. — Þann síöarnefnda munu menn einkum kannast viö sem hinn seinheppna lögregluforingja úr „Fantómas-myndunum". Hann er mun hæfileikameiri kómíker en Bourvil, þótt hvorugur þeirra komist með tærnar þar sem helztu gamanleikarar Frakka hafa hælana, en það em þeir Tati og Pierre Etaix. Söguþráðurinn er ekki þess verður, að hann sé rakinn hér, enda er hann á engan hátt ný- stárlegur. Kvikmyndunin er ekki sérstök, þótt frægur maöur sjái um hana, og litimir eru ijótir. Leiöinlegur ókostur er það, að myndin er sýnd hér með ensku tali, sem hefur verið sett inn á hana. Frummálið hefði átt að nægja úr því að íslenzkur texti fylgir myndinni. ■það er orðiö erfitt að skilja hvers vegna svona gott orð fer af brezkum gamanmynd um, en þær koma hingað hver af annarri og reynast síðan flestar í lakara lagi. Þessi mynd er ekki verri en hver önnur, þótt hún sé í meira lagi rýr í roðinu. Afbragðs grínleikarar leika í henni, en þeir viröast gera það með hangandi hendi, enda er efni myndarinnar ekki þannig að þeir hafi úr miklu að moða. Þegar eigendaskipti urðu að Hafnarbíói var gefið í skyn, að breytinga yrði að vænta í myndavali — til hins betra. Nú er nokkur tími liðinn síðan, og bíóið orðið sæmilega pent að innan, en myndirnar eru engu betri en áður — nema síður sé. Þó gefa plaköt í anddyrinu til kynna, að von sé á fáeinum athyglisverðum myndum, göml- um og nýjum, og vonandi verð- ur það fyrr en síðar, því að af nógu á að vera að taka í myndavali. rtLAC5MERKI - VERDLAUNAGBIPIB VERÐLAUNAPENINGAR , MACNÚS E. baldvinsson 5 X:-’;nr'íllTt- laujívcsi 12 - Slml 2280« fökum aö okkur hvers konar mokstur og sprengivinnu i húsgrunnum og ræs- um. Leigjum 'it loftpressur og víbra ileða -- Vélaleiga Steindórs Sighvats sonai Alfabrekku viö Suðurlands- braut simi 30435 M&ulniíGofu Unga fólkið og atvinnulífið Það er mikið talað um unga menn og ungt fólk, og þá miklu þörf sem sé á því að ungir menn f'i að láta liós sitt skína á sem flestum sviðum Fundir eru haldnir og kröfur gerðar um að ungir menn þurfi að komast til meiri áhrifa sem víðast og i sem mestar og beztar virðingar- stöður, og þá muni færast fersk ari blær um allt okkar athafna- og ekki sízt „ménningarlíf“. En hvernig „byggja" ungir menn sig upp í dag, sem vilja komast áfram og eiga sér ör- ugga framtíð. Þeir hasla sér ekki völl á sviði athafna og atvinnu- lífs: Þeir gera það þá einungis ef þeir geta tryggt sig i skjóli stjórnmálaflokks síns eða því- líks æðra valds. Ungi maðurinn í dag hefur vaðið fyrir neðan sig, og það er ekki almenn löngun til að leggja á sig erfiðleika og áhættu vegna nýrra atvinnugreina. Ýms ar eldri r ’ vinnucreinar dragast saman vegna þess að ungir menn fylla ekki í skörðin, um leið og eldri menn falla frá. — Unga manninum sem leitar út í atvinnulífið í dag er ljóst, að áhættan er víða og ekki er fýsi- legt að tefla á tvær hættur. Þess vegna Ieitar vel menntaður ung ur maður ekki gjaman út í at- vinnulífið og glímir við vanda- mál og erfiðleika, heldur notar aðstöðu sína vegna góðrar menntunar til að fá fasta og trygga stöðu, giarnan hjá hin- um ýmsu umfangsmiklu stofn- unum hins opinbera, svo dæmi sé nefnt. Ungum mönnum þyk- ir tryggara að húa þannig í hag inn, þó laun séu fyrirsjáanlega ekki gífurlega há því þeir vita, að þó stundum gangi vel á öðrum sviðum, er óöryggið svo mikið á flestum öðrum svið- um, að ekki telst heppilegt að eiga framtfð og afkomu sína undir slíku. Unga fólkið metur þægindi og trygga afkomu, en vill ekki þá áhættu og erfiði, sem einkennt hefur þó mest okkar atvinnulíf um langan aldur. Þessi þróun getur gengið of langt, því að ekki má verða flótti frá þeim atvinnuvegum, sem verða þó að standa undir velmegun okkar og öllum hinum „tryggu“ stofn unum. Það þarf að vera hægt frá sjónarhóli unga mannsins að eygja ýmsa möguleika til bjartr ar framtíðar í hringiðu atvinnu- lífsins, því annars verður hrein- lega um samdrátt að ræða. — Atvinnuvegirnir verða að fá stuðning, þegar á móti blæs, svo að ekki Ieggist allt í rústir með nokkru millibili. Hæfileg þró- un er æskilegri en það að sífellt þurfi að byggja unp frá grunni, þegar allt er lagt í rústir. Sú þróun eða stefna, að aldrei megi verða afgangur neins stað- ar verður að hætta. Skattpfning má ekki verða úr hófi fram, því þá verða fyrirtækin stöðugt að- eins á framfæri lánastofnana, illa úr garði gerð og í stöðugu kapphlaupi við launaereiðslur á gjalddaga. Það er jafnvel tómt mál að tala um að auka þurfi eigið fé fyrirtækjanna, þegar engir fá tækifæri til að eign- ast neitt og það telst neikvæð fjárfesting að stofna til nýrra fyrirtækja. Þetta þarf að breyt- ast, og þá yrði kannski von til að ungí fólk hasli sér í ríkara mæli völl í atvinnulífinu með já- kvæðum árangri. Þrándur í Götu. STRÖMBIRC HSKKASSAR STRÖMBERG fiskkassarnir eru nú mest notuðu fiskkassamir í Noregi og víðast hvar annars staðar þar sem fiskveiðar hafa þróazt til framleiðslu gæðavöru. STRÖMBERG kassarnir eru nú þegar í notkun hér á landi við góða reynslu. VERÐ STRÖMBERG KASSANNA ER FRÁ KR. 200 - 850 EFTIR STÆRÐ OG GERÐUM ; UMBOÐSMENN: ASÍUFÉLAGIÐ HF. - HAFNAKSTRÆTI II - REYKJÁVÍH - SBMAR 10620 10388 |

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.