Vísir - 09.06.1969, Blaðsíða 2

Vísir - 09.06.1969, Blaðsíða 2
1 2 V1 S IR . Mánudagur 9. júní 1969. Allir í vörn, Skagamenn // // — var skipun þjálfarans, og það reyndist nóg til að ná báðum stigunum gegn Akureyri Akurnesingar með hina harðskeyttu framlínu sína gerðu heldur góða ferð norður til Akureyrar og sigruðu heimamenn í vígi þeirra með 2:1. Þar með hafa Skagamenn tryggt sér toppsætið í deildinni, í bili a.m.k., en svo virðist sem þeir geti í sumar átt von á að vera við það sæti riðnir meira eða minna. Eiginlega virtust Akureyringar ætla að sýna áhorfendum sínum, sem voru fjölmennir, hvemig leika á knattspymu. En enda þótt norðanmenn ættu nær stöðuga sókn fyrstu 15 mín. var hún alltof máttlaus og linkuleg. Akurnesingar nýkomnir úr flug- vélinni eftir langan biðtlma á Reykjavíkurflugvelli, sem undan- farið hefur verið eins og hálfgert félagsheimili islenzkra knatt- spymumanna, vom slakari i þess- um leik en t.d. gegn KR, en þeim tókst þó að skora tvö mörk áður en blásið var til hálfleiks. Fyrra markið kom um 2 min. fyrir leikhlé. Guðjón Guðmundsson skoraði úr vítaspymu og rétt á eftir vaða Akurnesingar upp miðjuna og Matthías skorar 2:0. í byrjun seinni hálfleiks misstu Akumesingar tvo góða brodda úr sókninni. Matthías og Andrés urðu að yfirgefa völlinn, og fyrirskipun Ríkharðar Jónss., þjálfara Akur- nesinga var sú, að hörfa með liðið, verja þau tvö mörk, sem liðið haföi yfir, — þetta tókst. Akureyringar sóttu eftir þetta, en Akumesingar reyndu eitt óg eitt skyndiáhlaup án verulegs árangurs. Hins vegar var pressa Akureyring- anna máttlítil sem fyrr. Það var ekki fyrr en Steingrímur Björnsson sendi boltann fyrir marK- ið að Skúla Ágústssyni tókst naum- lega að setja hælinn í boltann og senda hann í netið þannig. Akureyringar máttu ekk; við ákveðnum Skagamönnum að þessu sinni. Það vantaði kraft og fjör i iiðið, Steingrímur var einna lífleg- astur 1 framlínunni. Skagamenn áttu því skilið að hljóta bæði stigin, sem sannarlega gera þá líklega sem eitt af toppliðunum okkar í 1. deild í sumar. — s. Auglýstu í útvarpinu eftir markverðinum Leikið i Eyjum á laugardagskvöld eftir langa og erfiða bið eftir flugi til Eyja „Við spilum upp á íslandstitiliniT' — segir Rikharður Jónsson „tJr þessu kemur ekkert annað til greina en að spila upp á íslandsmeistaratignina", sagði Ríkharður Jðnsson, þjálfari Skagamanna eftir sigurinn gegn Akureyri í gærkvöldi. „Raunar ætluðum við í sumar að vinna að þvf að byggja upp gðða fulltrúa í deildinni fyrstu árin, — en úr því svo vel hefur gengið, kemur ekki annað til greina en .halda toppsætlnu." „Sú staðreynd að við höfum aðeins fengið á okkur 2 mörk Á 3 leikjum er mjög ánægjuleg, þvf vamarvandamáiið hefur löngum verið efst á baugi hjá okkur.“ B Skyldi það ekki vera eins- dæmi að, auglýst sé eftir mark- verði i 1. deild, sem innan skamms á að vera mættur á leik velli á fjarlægum stað Þetta gerð ist á laugardagskvöldið, Sigurð ur Dagsson heyrði auglýsinguna og mætti á flugvelli. í suma Vals mennina náðist eftir öðrum leið- um, sumir voru farnir að dunda við húsbyggingar eins og t.d. Þorsteinn Friðþjðfsson, en til Eyja var haldið og leikur hðfst um kl. 21.30 um kvöldið. Furðu margir voru mættir til að horfa á. Valsmenn og raunar fleiri álíta að lið, sem þannig hefur beðið heilan dag sé mjög illa fyrirkallað í leik. E.t.v. hefur þetta haft sitt aö segja á Valsliðið, sem var reynd- ar heppið að koma þó með annað stigið úr þessari viðureign við Eyjamenn, sem voru klaufar að skora ekki nema eitt einasta mark, nóg var af tækifærunum. Hermann Gunnarsson, langfrísk- astur Valsmanna, með ágæta yfir- ferð og viljugur 1 bezta lagi, skoraði fyrra markið f þessum leik. Hann lék á vamarleikmann, sem var nokkuð framarlega, og átti síðan greiða leið upp að markinu og skoraði. Þetta var á 28. mfn. Viktor Helgason átti stórkostlegt skot utan af vellinum úr auka- spymum. Skaut hann frá miðju og rétt strauk boltinn þverslá á 37. mín., — en á 39. mfn. lenti boltinn milli stanganna, Mér fannst færið of langt til að hægt ætti að vera að skora, en það gerði hann samt frá miðlfnu úti viö kantinn, lenti boltinn ofarlega í markinu og tókst Sigurði Dagssyni ekki að verja, en áður hafði hann oft varið vel. Senni. lega hefur hann reiknað boltann yfir. Þessi vom einu mörkin í leiknum, en tækifæri Eyjamanna voru fleiri þótt ekki tækist að nota þau. M. a. skaut Viktor þrumuskoti f stöng úr vitaspymu. Leikur Valsmanna fanrist mér ó- þarflega grófur. Talað hefur verið um hörku Vestmannaeyinga, en þeir eru hreinir byrjendur miðað við Válsmenn, sem spörkuðú aftan í hæla manna og sýndu ljótan leik. Langbeztur Valsmanna var Her- mann Gunnarsson og svo Þorsteinn Friðþjólfsson, ekki aðeins f vörn, heldur og í sókn. Viktor var beztur Eyjamanna á- samt Val og Óskari Valtýssyni. Þar eiga Eyjamenn góða tengiliði, sem hægt er að byggja á. Vegna mikillar bleytu á grasvell- inum varð að leika þennan leik á malarvellinum, en veður var annars gott, dumbungur en engin úrkoma. — Alexander. — FERMINGARVEIZLUR • AFMÆLIS- VEIZLUR • BRÚÐKAUPS VEIZLUR FYRIR ÖLL HÁTÍÐLEG TÆKIFÆRI KALT BORÐ, HEITIR RÉTTIR, SÉRRÉTTIR Hringið, og fáið heimsendan veizluseðilinn, þar eru allir okkar vinsælu veizluréttir. tLIÖJ- \$\ STRANDGÖTU 4. SÍMI 501021 MANNHEIM DIESEL Bara fyrir jbtí, sem burfa að komast áfram. Allar stærðir frá 20 til 2200 hestöfl. ■Lr Nliir Fiskveiðar eru eini atvinnuvegur þjóðarinnar, sem skilar raunverulegum arði í þjóðarbúið. REYKJAVIK Vesturgötu 16 . Pósthólf 605 . Sfmar 14680 og 13280 Telon: sturlaugur ryk 57

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.