Vísir - 09.06.1969, Blaðsíða 9

Vísir - 09.06.1969, Blaðsíða 9
V1SIR . Mánudagur 9. júní 1969. 9 Lárviðarsveigur, hringur og heiðursskjal — tákn frelsis, tryggðar og lærdóms ■ Leigðu sér herbergi á Hótel Sögu og lærðu hagfræði. „Nokkrir nemendur í við- skiptadeild leigðu sér í vetur herbergi á Hótel Sögu til þess að tala saman um hagfræði," segir Guðmundur. ,-,Héldu þeir herberginu hluta vetrar. Þetta sýnir, að mikil þörf er á að að- staða skapist við deildina fyrir ,,seminör“, umræður og athug- anir. Mér finnst of mikið um að prófessorar flytji fyrirlestra en of fáir eru við æfingar." — Er viðskiptadeildin ,,rusla- kista“ Háskólans? — Ég tel, að íslenzkir stúd- entar hafi heilbrigöa skynsemi ekki síðri en gerist annars stað- ar. Þó skortir þá æfingu viö að leysa ýmis verkefni. Ástandið hefur batnað mikið. Það var talsverður urgur í Uppsölum. Sumum stúdentum fannst við kennararnir kenna úreltar og „kapitalistfskar" kenningar og vildu fá meira af Karli Marx. Á Islandi bólar lítið á þessu. í Svíþjóö hefur verið komið á kennslu í hagfrseðj í umræðu- formi, þar sem boðið er til við- ræðna jafnvel æstustu Maóistum og öðrum vinstri sinnum. Aukin áhrif stúdenta eru nauðsynleg, vegna þess að þeir verða. er- námi lýkur, að taka afleiðing- unum af því, hvernig og hvað þeir hafa lært. Hins vegar veröur þetta að vera raunhæft. Til dæmis má ekki koma að því, að stúdentarnir semji sjálfir kennslubækurnar, sem þeir eiga að læra. ■ Sænskur prófessor hefur 96.000 kr. á mánuði. — Hvað veldur því, Guð- mundur, að þú ert kominn heim til starfa, þegar þú gætir fengið miklu meiri tekjur erlendis? — Ég geri ráð fyrir. að það séu land og þjóð, og svo er nóg af verkefnum hér, sem þarf að vinna. í fræöilegu tilliti skiptir stöðugt minna máli. hvar í heiminum maður er, vegna bættra samgangna. Prófessor í Svíþjóð hefur hins vegar um 96.000 íslenzkar krónur á mán- uði það er vel á aðra milljón á ári að minnsta kosti. Annars þýðir ekkert að hugsa um launin, heldur verður maður að berjast áfram, og þá tekst það. — Hvaða verkefni hefur þú helzt. auk prófessorsstöðunnar? — Ég hef unnið nokkuð á vegum iðnaðarmálaráðuneytis- ins til dæmis í sambandi við EFTA og athuganir á olíu- hreinsunarstöö o.fl. Þá hef ég hugsað mér að skrifa sögu hag- fræðikenninga á fslenzku, þar sem íslendingar eru svo áhuga- samir um sögu. Einnig mun ég kynna mér ýmsar aðstæöur hér náið svo sem fasteigna- markaðinn og lánamarkaðinn. Það er mikill kostur við kennslu f hagfræði hér, að vilji maður kenna nýja gre'n eða nýja bók, þá þarf það ekkj að fara í gegn um allt skrifstofu- kerfið eins og gera verður hjá Svíum. i Ég ætla að vera áfram hér á Isiandi. ■ Ný sannindi í hagfræði. í ritgerð sinni, sem fjallar um framleiösluskilyrði viö ó- Guðmundur Magnússon með doktorsritgerð sína & ensku. Guðmundur Magnússon prófessor við viðskiptadeild Háskól- ans varð fyrstur íslendinga til þess að ljúka doktorsprófi I hagfræði við háskóla á Norðurlöndum. Fyrir viku fékk Guð- mundur doktorsnafnbót við Uppsalaháskóla. Þar Ijúka menn ekki slíku prófi dag hvern. Um 400 innrituðust í deildina í haust, en venjulega lýkur aðeins einn stúdent doktorsprófi ár hvert. Hér er þvi um mikinn heiður að ræða fyrir mann um þrítugt, enda hlaut hann umbun nokkra: lárviðarsveig sem tákn freisis, hring, er táknar tryggð, og loks auðvitað heiðursskjal á latínu, sem merki um lærdóm ísiendingsins. Guðmundur hóf kennslustörf við Uppsalaháskóla árið 1962 og má nú kenna þar sem dósent til æviloka, nánast hvað sem hann vlll og hvenær sem hann vill. í fyrra hlaut hann prófessorsembætti við viðskiptafræðideild Háskóla fslands og kennir þar síðan. — I þessu stutta viðtali við Guðmund Magnússon er aðeins tæpt á hagspeki hans en annars spjall- að við hann almennum orðum við þessi tímamót. VIÐTAL DAGSINS er við Guðmund Magnússon, prófessor fyrsta islenzka hagfræðidoktorinn frá Norðurlöndum vissu, komst prófessor Guð- mundur að niðurstöðum, sem ekki höfðu verið settar fram áður af hagfræðingum. Ritgerð- in, þykk bók. er einkar stærð- fræðileg og óskiljanleg öðrum en innvígðum. ’Líklegt er talið, að rannsókn hans muni vekja athygli meðal hagfræðinga um heim allan. Kom það fram i máli gagnrýnanda viö doktors- vörn í Uppsölum, að ritgerðin mundi örva marga til frekari rannsókna á óvissuatriðinu v!ð ákvörðun um framleiðslumagn. — Hvernig geturðu lýst þess- arj ,,óvissu“? — Ég get tekið sem einfalt dæmi þaö, sem kalla mætti tveggja stiga óvissu: Bóndinn þarf til dæmis að rækta gras en veit ekki, hver uppskeran verður. Hann þarf að nota gras- ið handa skepnum og veit ekki, hvernig gæði grassins verða eða frálagiö. Helzt þyrfti hann að geta gert sér greirt fyrir hvoru tveggja. þegar hann sáir, en það getur hann ekki. Þess vegna verður hann að fresta vissum ákvöröunum, til dæmis hversu marga gripi hann vill setja á, þangað til hann veit um uppskeruna. í mörgum dæmum hefur á- kvörðun ' framleiöandans ekki áhrif á þaö, sem óvissuna skap- ar. Til dæmis skiptir það vænt- anlega litlu um veðráttu, hvort sáð er í litinn eða stóran akur. Hins vegar skiptir það máli i öðrum dæmum, hvort framleið- andi notar nýjustu tækni eða ekki og hefur áhrif á það, hversu mikil óvissa ríkir f framleiðsl- unni. Ég rannsakaði .sérstaklega ó- vissuatriðið varðandi magn framleiðslunnar, en það hefur áð ur ekki verið athugað nákvæm- lega. Óvissa um vöruverð hefur hins vegar verið athuguð fræði- leöa. Þá athugaði ég þetta sér- staklega,með tilliti til áhrifa á eftirspurnina eftir vinnuafli, sem búast má við að verðj f flestum tilfellum minni við skilyrði ó- vissrar framleiðslu en þegar full vissa ríkir. ■ Gagnsemi? — Hversu hagnýtar eru rann- sóknir þínar og niðurstöður? — Þetta er fræðileg rann- sókn, ekki byggð á raunhæfum tölum, sem gengið er út frá. Ég get gert fyrlr framleiðanda áætlun um væntanlegan ágóða og á' ettu, sem hann tekur á sig. Svo þarf framleiðandinn sjálfur að taka ákvörðun um hvemig hann vegur saman á- hættu og ágóða. Hann verður að afhjúpa sitt áhættumat, sem er ákaflega einstaklingsbundið. Þetta á til dæmis við um á- kvörðun okkar um, hvort við e!gum að taka upp stóriðju eða ekki, „Margra stiga áhættan" verður meiri. þegar til dæmis hafin er niöursuða. Þá er ekki aðeins um að ræða gömlu á- hættuna: hversu mikið veiöist. Við bætist óvissan um, hvemig gengur að 'óða n:ður. auk þess sem niöursuðuverksmiðjan tek- ur að sjálfsögðu einnig áhætt- unni, að Iítið veiðist. Ef við tök- um meðaltal fiskafla áranna frá 1960, sjáum við glöggt, hversu mikil óvissan er. en einnig mik- ill ágóö!. ef vel aHast. Ef gengið er út frá þvi, að menn hafi and- ■"'ð á áhættunni, bá mundu marg- ir vilja hafa öruggari afkomu og minni ágóða. Ef stóriðja minnkar áhætt- una án þess að minnka næðal- gróðann of mikið, þá ættl hún að borga sig. Mat þjóðarinnar ætti að koma fram á Alþirtgi, sem ákveður hvort ráðast.skuli I stóriðjuná. Þá meta þipgm^nn þessi atriði, ágóðann og áhætt- una og komast að niðurstöðu. H. H. □ Léleg póstþjónusta. Ég starfa í sama húsi og sjón varpið hefur aðsetur. í sama húsi er rekin póstþjónusta. — Eölilega þarf að ioka þeirri stofn un einhvern hluta sólarhrings- ins, því starfsliðið þarf auðvitað að hvílast. — Skrifstofan lok- ar klukkan fimm eða á sama tíma og flestar aörar skrifstofur. Nú brá svo viö um daginn, að ég þurfti að póstleggja bréf og ætl- aði auðvitað að gera það á póst- skrifstofunni. Rúmlega fimm kom ég að dyrum póstþjónust- unnar, en þar var lokað. Gott og vel. Þá ætlaði ég bara að stinga bréfinu i póstkassa, en þá kom i Ijós að enginn póstkassi er við þessa póstþjónustu. Ef til vil! finnst póstþjónustunni það óviö eigandi að setja kassa utan á hús, en þetta hlýtur að koma sér illa fyrir marga. Gamall maður á Laugaveginuvn. S □ Látum opinbera starfsmenn fá verkfallsheimild. Opinberir starfsmenn eru allt af að heimta verkfallsrétt. Ég er einn þeirra manna sem tafar- laust vilja veita þeim hann. Svo vil að við semjum við þá og ger- um það fljótt Dg vel. Næsta skref ið yrði síðan að losa um öll þau hlunnindi, sem þeir hafa. Þá kæmi að þvf, að sumir færu að vinna fyrir kaupinu sínu og við fengjum áreiðanlega fleiri út í atvinnulífið. Þeir vilja verk- fallsrétt. Allt í lagi. „Vær sá god“. En látum þá svo standa fyrir sínum málum. Ég álft að við myndum spara millj. árlega við þetta og þyrftum ekki eins stóra bagga að bera. G.Þ. □ Fáum ekki að setja niður kartöflur. Ég er svo aldeilis hissa á borg aryfirvöldunum, að leyfa ekki fólki, sem áhuga hefur, að setja niður kartöflur. Auglýst var, að fólki yrði leyft, að setja niöur kartöflur í landi Korpúlfsst. og sóttu margir um. Nú kemur það upp úr kafinu, að það voru mis tök að auglýsa það. vegna þess hve fáir komast þar að. Það er því mikið vandamál, að leyfa fólki að rækta sínar eigin kart- öflur. Ég álít að nægar Iand- spildur séu jafnvel innan borgar takmarkanna, sem hægt væri að nýta undir kartöflurækt. En þeir sem nenna og vilja fá það ekki vegna þröngsýni nokkurra manna. Þetta þarf eð endur- skoða. Kartafla. HRINGIÐ í SlMA 1-16-60 KL13-15

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.