Vísir - 09.06.1969, Side 8

Vísir - 09.06.1969, Side 8
8 KHB& ■aM—ayi m.Tfc.taaáSfc^rtiÁn-iSr^M. . I VISIR Otgefandi Reyicjaprent ö.t Framkvæmdastjón Sveinn R. Eyjólísson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H Jóhannesson Auglýsingar: Aðalstræti 8. Símar 15610 11660 og 15099 Afgreiðsla: Aðaistræti 8. Símt 11660 Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 145.00 x mánuði innanlands [ lausasölu kr. 10.00 eintakið Prentsmiðja Visis — Edda h.f. Skólafólk fær vinnu Atvinnuhorfur skólafólks voru mjög slæmar í vor. Fyrir aðeins mánuði var tala atvinnuleysingja enn um 1200 manns og von var á 8000 skólanemendum á vinnumarkaðinn. Það var von, að ugg setti að mönn- um, því að framhald á skólanámi margra efnah'tilla únglinga er algerlega háð atvinnumöguleikum þeirra. IVIenn spurðu sjálfa sig: Hvernig í ósköpunum á að veita þessum fjölda vinnu við gagnlegar fram- kvæmdir? En opinberir aðilar, einkum ríkisstjórnin og stjórn Reykjavíkurborgar, hafa tekið málið föstum tökum. Ýmsar aðgerðir þessara aðila hafa dregið mjög mikið úr vandanum. Hinar almennu aðgerðir ríkisstjórnar- innar gegn atvinnuleysi í landinu hafa að sjálfsögðu áhrif á atvinnu skólafólks eins og annarra. Og ríkisstjórnin hefur sérstaklega lagt fram rúrpar 11 milljónir króna til að auka atvinnu skólafólks. Fé þetta gengur til framkvæmda sveitarfélaganna, með því skilyrði, að þau leggi í sama skyni jafnstóra upphæð á móti. Reykjavíkurborg reið fyrst á vaðið og veitti um fimm milljónum króna sérstaklega til að auka atvinnu skólafólks. Jafnframt hefur borgin ákveðið að ganga enn lengra og afla sérstakra lána til sumarfram- kvæmda til að euka atvinnu skólafólkS. Má nú vænta þess, að/ tleiri sveitarfélög fylgi í eftir, og hafa sum þegar gert það. Þessar aðgerðir hafa gengið fljótt og vel. Pólitískir æsingamenn ætluðu að nota sér vandræði skólafólks til að slá sig til riddara með ýmsum sýndartillögum. En þeir misstu af lestinni, því að aðgerðirnar voru þá þegar komnar í fullan gang. Ósigurinn og von- brigðin komu vel í ljós á síðasta borgarstjórnarfundi. Fleira verður skólafólki til hjálpar á þessu sumri. Grundvöllur atvinnulífsins er nú mun traustari en var á sama tíma í fyrra og vinnuaflsþörfin meiri. Og svo hafa nemendur sumra skóla sjálfir skipulagt aðgerðir, vinnuleit og vinnumiðlun, og jafnvel undir- búið rekstur sjálfstæðra fyrirtækja eins og dæmið um garðyrkjufélag kennaraskólanema í Ölfusi sýnir. Á þennan hátt hafa margir skólanemar getað bjarg- að sér sjálfir án aðstoðar hins opinbera. Þetta sýnir sjálfstraust og framtaksvilja unga fólksins og hrek- ur illspár um, að allur dugnaður r úr þjóðinni. Vegna alls þessa hefur atvinna skólafólks aukizt mjög mikið. Ástandið er nú allt annað en fyrir nokkr- um vikum, þegar talað var um, að jafnvel yfir 1000 skólanemar fengju ekki vinnu í sumar. Þá var t.d. talað um, að helmingur menntaskólanema yrði at- vinnulaus, en nú er sú tala komin niður fyrir 20% og fer lækkandi. Hin hagstæða þróun sést bezt á því, að ekki nema rúmlega 200 skólanemar eru á atvinnuleysisskrá í Reykjavík, þar sem erfiðleikarnir eru éinna mestir. Menn höfðu búizt við miklu hærri tölum. Allt bendir nú til þess, að þorri íslenzks skólafólks fái vinnu. Skagamenn lifa nú mikið blómaskeið. Akranes í Met í bæjarframkvæmdum Rætt við Jón Ben Ásmundsson, bæjarritara ■ Akranes er ekki lengur lítið fiskveiðipláss. Á öffáum árum hefur iðnaður sprottið þar upp og dafnað og það ekki aðeins í kringum sementsverksmiðjuna. Nú vinna um 500 manns við iðnað ýmiss konar, en aðeins 300 við fisk. Það er blómi í athöfnum á Akranesi um þessar mundir. Bæjar- stjórn ræðst í tugmilljóna framkvæmdir, sem sennilega er algert „met“, enda keppnishugur í Skagamönnum. — Og svo unnu þeir KR-inga um daginn. íl ■ Tugmilljóna framkvæmdir. Við spurðum Jón Ben Ás- mundsson bæjarritara, um helztu framkvæmdirnar á Skaga. Hann minntist fyrst á sjúkra- húsið. Hin nýja sjúkrahúss- bygging á að vera 3 hæðir og var ein tekin í notkun í haust og reyna á að ljúka annarri í sumar. Á sjúkrahúsinu eru nú 60 sjúkrarúm og viðbótin, sem jokið er við er 31 rúm. Þar eru handlækna- og lyfjadeild. iþróttahús eru auðvitað í smíð um á Skaganum, hvorki meira né minna en 3.200 fermetrar. Fyrsta hluta er lokiö, um fjórð- ungi hússins. I sumar á að vinna fyfir 4—5 milljónir króna. Einu sinni var áætlað, sagði bæjarritari, aö húsið kost- aði 30 milljónir en síðan hefur margt breytzt. Það er feikna- kraftur í íþróttamálunum þessa dagana. Verið er að laga íþrótta- völlinn, ljúka við hlaupabrautir o. fl. Bókasafn er í byggingu, búið að steypa það upp og nú á að ljúka við að setja í það glugga og þess háttar. Húsið er 320 fermetrar og á að kosta 6—8 milljónir. Þrjár milljónirnar eru komnar í það. og ein skal fara í sumar. Þá stendur bærinn í hafnar- framkvæmdum. Setja skal grjót- garð á milli bryggjanna og vinna fyrir milljón í sumar. Á Garðagrundum er risið nýtt og „flott" Ibúöahverfi einbýl- ishúsa. Svo eiga þeir Akurnes- ingar auövitað met í steyptum götum. Hátt í helmingur gatna- kerfisins hefur verið steyptur. Þeir vilja fá „stóra borinn“ í sumar og halda áfram að leita að heitu vatni. í fyrra var lokið við holu. Borað var niður á 1400 metra dýpi, og var hitinn 186 stlg. Þá dreymir um hita- veitu fyrir allan bæinn. ■ Pólitísk eining um fjárhagsáætlun Fjárhagsáætlun bæjarins er upp á 42 milljónir króna. 30 millj. koma inn í útsvör og svo auðvitað áðstöðugjöldin o. fl. ' Mesta bróðerni var milli flokka um áætlunina, og sagði Jón. að hún hefði verið afgreidd ein- róma í bæjarstjórn. Annars stjórnar á Akranesi meiri hluti Sjálfstæðis- og Alþýðuflokks- manna. Sjálfstæöisflokkurinn hefur 4 fulltrúa, Alþýöuflokkur 2, og sameiginlegur listi Framsóknarflokks og Alþýðu- bandalags fékk 3 í síðustu kosningum. Bæjarstjóri er Björgvin Sæ- mundsson, sem áður hafði verið bæjarverkfræðingur um sbeið. ; Framsóknarmaðurinn Daníel Ágújtínusson er enn sem fyrr mikill „persónuleiki" á Skaga þótt ekkj sé hann lengur bæj- arstjóri. ■ Iðnaðarbær. íbúarnir eru 4.200, og hefur hjakkað nokkuð í sama farinu um árabil. Aðalvandamálin eru brottflutningar. „Við missum framhaldsskólafólk, “ segir bæj- arritari. „Þá þurfum við meiri léttan iðnað fyrir unga fólkið og líka fyrir eldri konu.“ Akranes hefur oröið iðnaðar- bær á örfáum árum. Þótt allt sé talið með fiskveiðum: frysti- húsin, fiskverkun og bátamir, þá er starfsfólk í iönaði orðiö miklu fleira en £ fiski. Þessi þróun heldur áfram. Af iðnaði má nefna skipasmíð- ar, sementsverksmiðjuna, fata- iðnað, prjónaskap, bifvélavirkj- un og fleira. í sementsverksmiðjunni vinna nú á annað hundrað manns og annaö eins við skipasmíðar. Hátt í 100 vinna á trésmíðaverk- stæöpm, sé allt talið, þar af um 50—60 á tveimur þeim stærstu. í bígerð er að koma nú upp prjónastofu, og sútunarverk- smiðjan er aftur komin í gang og gengur vel. „Það hefur verið mikil at- vinna hér undanfarið,“ segir Jón Ben.Ásmundsson að lokum. „Mest atvinnuleysi var um 200 um stuttan tíma, en nú em þrfr eða fjórir skráðir. Fiskveiðar hafa verið góðar, og mikið líf er komið í framkvæmdir." - H. H.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.