Vísir - 26.06.1969, Page 1
G j aldey riss jóðurinn
kominn yfir milljarð
■ Gjaldeyrissjóðurinn okkar er
orðinn 1065,00 miiijónir kr.
Þetta er engin smáræðis upp-
hæð, þegar haft er f huga, að
hann varð aldrei „meiri“ en um
tveir milljarðar á blómaskeiði
sfnu fyrir 1967.
Gjaldeyrisstaðan batnaði um 152
Imilljónir króna i maí-mánuði. í
sama mánuði í fyrra versnaði hún
um nær 200 mitljónir á gamla geng
inu. Hefur staðan batnað um rúm-
ar 750 milljónir frá áramótum.
i: . : :
I maí-mánuði var 227,6 milljón
kr. halli á vöruskiptum. Er það
aðeins minna en í fyrra. Innflutn-
ingur minnkaði um 120 milljónir
miðað viö maí í fyrra, en útflutn-
ingur minnkaði líka um 100 milljón
ir. Vöruskiptajöfnuðurinn hefur
verið óhagstæður frá áramótum um
1.088,8 milljónir, en var óhagstæð-
ur um 1.323,2 milljónir á sama
tíma í fyrra. Innflutningur vegna
álverksmiðjunnar og Búrfells er
um 430 mitljónum meiri f ár en
var í fyrra, og verður að taka það
með í reikninginn.
Innflutningur í maí var 842,8
milljónir og útflutningurinn 615,2
milljónir. Frá áramótum hefur inn
flutningurinn numið 3.848,0 millj-
ónum og útflutningurinn 2.759,2
mitljónum.
Bati gjaldeyrisstöðunnar í mai
er „hreinn", þar eð engin stórlán
munu hafa komið mn í mánuðin-
um.
Stöðvast flugflotinn aftur?
— 27 flugumsjónarmenn kunna að boða
verkfall i dag — viðræður við flugmenn
hernaðarleyndarmál
■ 1 flugmálum okkar er allt .,veikinda“ starfsmanna. Þórð
enn í óvissu. Vera má, að ur Óskarsson, ritari Félags
flotinn stöðvist aftur á næst- flugumsjónarmanna, sagði í
unni vegna verkfalla eða morgun, að ákvörðun yrði
væntanlega tekin í dag, hvort
boða skyldi verkfall hinna 27
félagsmanna. Væri sú ákvörð
un komin undir því, hvort
„flugfélögin fengjust til að
byrja viðræður í alvöru“ um
kjaramál flugumsjónarmanna.
Þetta verkfaíl mundi stöðva
flugið ef af yrði.
Stjóm Félags flugumsjónar-
manna hefur fengið heimild hjá
meðlimum til að boða verkfall.
Þórður sagði, að þeir gerðu eng-
ar kaupkröfur og Iítið bæri á
milli. Hann taldi, að bráöabirgða
lög kynnu að verða sett, vrði af
verkfallinu.
Samtímis standa yfir stöðug-
ar leyniviðræður milli flug-
manna og flugfélaganna um
kjaramál flugmanna og flugvél-
stjóra. Magnús Björnsson starfs-
mannastjóri hjá Flugfélaginu
sagði í morgun, að þær væru
„top secret“, sem ef til vill má
þýða sem „hemaðarleyndarmál".
Magnús sagði, að þeim væri þó
óheimilt að semja meðan málin
eru fyrir gerðardóminum, nema
þá um vinnutíma og slíkt. Að-
spurður sagði hann. að sér væri
ekki „kunnugt um", að flugfé-
lögin hefðu gefið dómstólunum
upp lista yfir þá flugmenn, sem
„veikir" voru á dögunum.
Læknadeilan á Húsavik á lokastigi:
Yfirlækninum sagt upp
— Samstarf milli hans og yngri læknanna tókst ekki
Daníel Daníelssyni, sjúkrahús-
lækni á Húsavík hefur nú sam-
kvæmt ákvörðun stjómar sjúkra-
[ hússins verið sagt upp störfum.
Mun þá vera endir bundinn á ára-
Ianga deilu lækna á Húsavík vegna
læknamiðstöðvar á staðnum, en
þau mál hafa lengi veriö á döfinni.
Daníel Daníelsson hefur lengi verið
sjúkrahúslæknir á Húsavík.
Fundur í sjúkrahússtjórninni var
haldinn í fyrradag, þar sem ákvörð
unin um uppsögn Daníels var tek-
in. Aðdragandi málsins er sá, að
margir aðilar á Húsavík hafa barizt
fyrir þvf, að læknamiðstöð væri
komið upp á Húsavík. Töldu þeir,
að aðeins með því fyrirkomulagi
væri kaupstaðnum og hinu stóra
læknishéraði í nágrenninu verið
séð fyrir viðunandi læknisþjónustu.
í samræmi viö það var sett reglu-
gerð í apr^l s.l. þar sem gert var
ráð fyrif>*að allir læknar á staðn-
Nauthólsvík — skilti heilbrigðiseftirlitsins, sem tilkynnir lokun.
Nauthólsvíkin lokuð til
sjóbaða í allt sumar
— gerlamagn sjávarins komið yfir 'óryggistakmarkið
NAUTHÓLSVÍKIN verður
lokuð í allt sumar til sjóbaða
vegna þess; að gerlamagn í’
sjónum er komið yfir það ör-
yggismark, sem talið er hæfi-
legt.
Blaðið hafði samband við Þór-
hall' ‘ Halldórsson hjá borgar-
læknisembættinu, sem sagði að
fram hefði komiö eftir rannsókn
ir á sýnishornum af sjó í Naut-
hólsvik aö sjórinn væri ekki ör-
■.•.V.V.V.V.V.’.V.
uggur gerlalega séð og væri
fólki því ráölagt að synda ekki
í sjónum. Hefur skiltum þess
efnis verið komið fyrir í Naut-
hólsvíkinni. Gerlamagnið í sjón-
um kemur frá frárennslisrörun-
um, sem leiða allt um kring út
í Sjó — en þó ekkl í Nauthóls-
víkina sjálfa. F.ru þetta frá-
rennslisrör bæði frá Reykjavík
og Kópavogi. Sjórinn í Naut-
hólsvíkinnl sé það mengaöur, að
borgarlæknisembættið vilji setja
þessar reglur til að vera öruggu
megin.
Stefán Kristjánsson, íþrótta-
fulltrúi skýrði blaðinu frá því,
að þrátt fyrir það að sjóböð
megi ekki stunda í Nauthólsvík-
inni verði þar haldið við sól-
baðsflötum og vörður er hafður
þar alla daga á tímabilinu 1—7.
Fólk sæki þangað mikið til sól-
baða og verði því komið upp
skýlinu fyrir sóldýrkenur og
öllu haldið viö.
um, Gísli G. Auðunsson, héraðs-
læknir Ingimar Hjálmarsson, að-
stoðarlæknir á sjúkrahúsinu og
Daníel Daníelsson, sjúkrahúslækn-
ir, myndu allir ganga í allra verk,
þannig að ekki væri um lögboðaða
verkaskiptingu mill'i þeirra að
ræða, þó svo að hún gæti skapazt.
Allir hefðu aðstöðu á sjúkrahús-
inu, og færu allir til vitjana í hér-
aðinu. Daníel hefur ekki viljað taka
þátt í þessu samstarfi um lækna-
miðstöð, með þeim afleiðingum, að
honum hefur verið sagt upp störf-
um, eins og fyrr greinir. Nýút-
skrifaður læknakandidat, Guð-
brandur Þ. Kjartansson, mun vænt
anlegur til Húsavíkur næstu daga
og taka til starfa við læknamið-
stöðina á staðnum.
Þessi deila á Húsavík er reyndar
spegilmynd þess skoðanaágrein-
ings, sem uppi er milli yngri lækn-
anna, með læknamiðstöðvarhug-
myndir og eldri lækna, sem vilja
viðhalda yfirlækniskerfinu, a.m.k.
sumir þeirra. Telja hinir yng.i, að
með því að hafa læknisþjónustuna
í formi læknamiöstöðva sé læknun-
um gert auðveldara fyrir að mennta
sig frekar. Eins og af ofangreindu
má sjá hefur þetta sjónarmið nú
sigrað á dramatískan hátt á Húsa-
vík.
Verkfall í Straums-
vík 1. júlí?
Sveinafélag byggingarmanna í
Hafnarfirði hefur boðað verkfaU f
Straumsvík 1. júlí, hafi samningar
ekki tekizt. Þetta verkfall er bund-
ið við Straumsvík eina.
Stefán Rafn, formaður meistara-
félags byggingarmanna í Hafnar-
firði, sagði í morgun, að aðeins
sé eftir að ganga frá samningum
við húsa. og húsgagnasmiði þar í
bæ. Samið hafi verið við aðra sveina
í byggingariðnaðinum. Málið hefur
verið í höndum sáttasemjara og
einn fundur verið haldinn. Verkfall-
ið í Straumsvík mun hins vegar
stöðva alla byggingarmenn þar.
Stefán sagði, að meistarar hygð-
ust svara verkfallsboðuninni, og
kæmi verkbann til greina.
Kaup byggingarmanna hefur ver
ið nokkru hærra í Hafnarfirði en
í Reykjavík, Sagði Stefán, að gert
hefði verið ráð fyrir því f samn-
10. síða.
Farþeginn á
aurhlífinni
Fullsetin bifreið meö einum far-
þega „utanborðs" var stöðvuð er
henni var ekið niður Skóiavörðu-
stíg og Bankastræti í nótt sem leið.
Gaf ökumaðurinn þá skýringu, að
ekki hefði verið rými fyrir þann,
sem á aurhlff bifreiðarinnar sat,
inni í bílnum, og við þetta athæfi
væri ekkert athugavert, þar sem
rólega hefði verið ekið og umferð
lítil. Við nánari athugun kom í
1 jós,- áð ökumaður hafði ekki öku-
skírteini. Það mun óalgengt að
bifreiðar með „utanborðs“farþega
jséu mikið á ferli, en ekkert er
nýtt undir sólinni.