Vísir - 28.06.1969, Blaðsíða 3

Vísir - 28.06.1969, Blaðsíða 3
VI SI R . Laugardagur 28. júní 1969. 3 tmm Þau læra hestamennsku. 55 Strákarnir eru alltaf kaboj leik Ég kemst á bak sjálfur Hjartarson og vera 10 ára. „Þú ert ef til vill vanur hestum?" „Nei, nei. En ég kemst alveg á Reiðskóli á Alftanesi heimsóttur J hverju andliti mátti sjá gleði og áhuga. Sumarið og kátín- an speglaðist í hverju auga. Það var eins og að koma i annan heim, að heimsækja reiðskólann á Álftanesi, sem Æskulýðsráö Kópavogs stendur fyrir. Við ókum út nesið, fram hjá Görðum og svipuðumst um eftir reiðmönnunum. Úti á Hafnar- firði reri karl til fiskjar upp á gamla mátann, klæddur gul- strokk með færi í hendi En hin um megin fjarðarins stóð tákn nýja tímans, álverksmiðjan og virtist hún hálfdrungaleg með Keili, stílhreinan og háan í bak- sýn. En nú ókum við fram á reið- fólkið, sem sat hið keikasta í hnökkunum, þó að stuttir fætur næðu sums staðar vart niður í ístöðin. Er við höfðum fylgt þeim nokkra stund stigu þau af baki við lágreistan skúr, og hér skyldi áö og nestið tekið upp. Börnin tóku vel í það, að tekn- ar væru af þeim nokkrar mynd- ir. Snöruðust flest þau eldri i hnakkinn aftur, en þeim minni gekk ekki jafnvel. „Heyrðu manni,“ kallaði stuttur snáði til okkar. „Viltu hjálpa mér á bak?“ Jú, það var sjálfsagt, „en ertu ekki hræddur?" „Nehei,“ og nú var það hann, sem leit niður til mín. Við snerum okkur að þeim næsta. „Á ég að hjálpa þér?“ ..Nei', þakka þér fyrir. Ég get sjálfur," svaraði drengurinn og klappaöi hestinum hinn róleg- asti. Hann kvaðst heita Axel Annetta litla. bak sjálfur, þó aö það sé dálítið hátt.“ Kennararnir, Lilja Jónsdóttir og Guömundur Birkir Þorkels- son, höfðu mörgu að sinna. „Sjáðu til Hermann minn. Það eru tvö ístöð og það þarf að stytta í báðum“, fékk einn að heyra, sem kominn var á bak og náði aðeips í annað ístaðið. Nokkuð utarlega í hópnum hittum við unga ljóshærða stúlku f rauðri úlpu. „Ég heiti Ann- etta Ingimundardóttir“, svaraði hún, er við spuröum hana að nafni. „Nei, ég ekkert hjædd. Pabbi á hes’ta og hefur oft leyft mér að fara á bak. Jú annars. Ég er svolítið hrædd, þegar hestur- inn skvettir upp rassinum. Svo eru strákarnir alltaf í kaboj-leik og láta dálítiö illa.“ Lilja Jónsdóttir, sagði okkur aö skólinn ætti að standa til 5. júlí og aö innan skamms færðu þau sig með hestana af Álftanes inu til Kjóavalla, sem eru skammt fyrir bfan Rjúpnahæð. „Þar ætliim við að kenna krökk- unum eitthvað um gang og þá fá þau, að fara heldur hraðar en nú.“ „I skóianum eru um 60 böm og skiptum við þeim I þrjá hópa. Fyrsti flokkurinn kemur ssss, . I , Ært1. - * > i bíl klukkan 8.30 á morgnana og sá síöasti fer um sjöleytiö". Þegar við spuröum Guðmund Birki, hvernig hann kynni við starfið svaraði hann því til, að þetta væri mjög lifandi og oft kæmu skemmtileg atvik fyrir. „En hvar gátuð þiö fengið öJl þessi hross?“ „Lilja á hér nokk- ur, en faðir minn, Þorkell Bjarna son, lét okkur hafa tuttugu og fimm. Kom ég hingað með /þau austan frá • Laugarvatni. Þegar skólanum lýkur, ætla ég með þá sömu leið, en stanza á Þing- völlum, því aö þar á að halda kappreiðar um aðra helgi. En þetta eru auðvitað ekki kapp- reiðahestar, sem hér eru, Þetta eru allt hross við þeirra hæfi.“ Nú var lokið viö nestið og bíll inn kominn með nýjan hóp, full an af eftirvæntingu. En þau sem heim fóru hafa sennilega haft nóg til að segja pabba og mömmu, er heim var komið. Kennaramir hófust handa að hjálpa þeim nýkomnu við að leggja á og hrossin stóðu hin rólegustu á meöan, þrátt fyrir ærslin og fjörið. Axel kvaðst ekki vera smeykur. Lilja og Birkir ásamt hinum ungu knöpum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.