Vísir - 28.06.1969, Blaðsíða 5

Vísir - 28.06.1969, Blaðsíða 5
VÍSIR . Laugardagur 28. júní 1969. TalaB við Einar Guðjohnsen, framkvæmda- st/óra Ferbafélags Islands, sem gefur leiö- b&mngar um viðleguútbúnað og mat i tjaflaferðk Prímusinn gildir ennþá í útilegum. Gúmmístígvél eru nauð- synleg í okkar landi '|VM byrjar hásumartiminn og um leiö tími ferðalaganna. Búast má viö þar, að óvenju margir ferðist nú innanlands, en innanlandsferðirnar hafa átt vaxandi fylgi að fagna á undan förnum árum. Einkum hefur á- hugi á öræfaferðum, ferðum um óbyggðir landsins aukizt. Kvennasíðan fékk Einar Guð- johnsen framkvæmdastjóra Ferðafélags íslands til þess að gefa nokkrar leiðbeiningar varð- andi útbúnað og mat í fjalla- ferðir. Ferðafélag íslands hefur margar slíkar ferðir á vegum sínum bæði helgarferðir og lengri feröir og Einar er þraut- reyndur feröamaöur, einn i hópi þeirra manna er þekkja öræfi ís lands hvað bezt. — Maturinn skiptir auövitaö mikiu máli, þegar hugsað er tii ferðaiaga, segir Einar. — Smekk urinn er misjafn en yfirleitt hafa feröalangar fremur með sér dósa og pakkamat, sem nægir að hita upp heldur en mat, sem þarf að búa til. I helgarferðirn- ar hafa flestir með sér smurt brauö og eða einhvern kjötmat, sem hefur verið soðinn heima, t.d. soðiö hangikjöt. Ef fólk vill fá sér eitthvað heitt, þá getur það hitað sér einhvern drykk, svo ekki sé minnzt á súpurnar, sem eru mjög gott feröanesti hvort heldur sem þær eru úr dós eða pakka. Það sama gildir fyrir lengri ferðirnar og ýmsir hafa þá með sér brauð til að smyrja og ofanálegg en þar sem brauðið endist ekkj mjög lengi er gott að hafa með sér kex, sem tekur við, þegar brauö ið þrýtur. Af drykkjarvörum má nefna kaffi, te, kakó, kókómalt og einhvers konar ávaxtasafa, sem má Wanda. Hins vegar ætti fólk að forðast það að hafa með sér gosdrykki í flöskum, sem þyngir farangurinn að nauðsynja lausu og er til trafaia, þegar flöskurnar eru tæmdar. Ný mjólk endist ekki lengi, en þeg ar hún er höfð í farangrinum er betra að hafa hana í fernum en hyrnum, sem eru ómögulegar á ferðalögum. Til lengri dvalar má nota þurrmjólk eða niður soðna mjólk sem er ágæt. Á- vexti er ágætt að nota, bæði nýja og niðursoðna, sítrónúr t.d., sem eru mjög svalandi. í lengri gönguferðir frá dval- arstað er gott að hafa með sér súkkulaði appelsínur eöa sítr- ónur og margir hafa meö sér súkkulaöi og rúsínur í poka sem þeir hafa blandað saman áöur en í ferðina var haldið. í apótekum má fá þrúgusykurtöflur eða þrúgusykurduft, sem gengur beint inn í blóðið og gefur orku strax, ef fólk er orðið þreytt eft ir langa göngu. Þrúgusykurinn er öðru nafni kallaður glukose. Margir hafa með sér gastæki í útilegu en þau eru mjög hand- hæg og létt, en stéinolíuprím usinn er alls ekki úreltur og er miklu þægilegri í tjaldi .þar sem hann hitar meira út frá sér. Maöur ve'* hvaö maður hefur mikið brennsluefni þar sem fólk aftur á móti vill verða uppi skroppa með gas, þegar verst gegnir f feröurn okkar leggjum viö alltaf til steinolíu, því að ó- mögulegt er að hafa han^ innan um annan farangur. Vindsængur er nauðsynlegt að hafa, það er svo miklu þægi- legra en að Hggja á berum tjald botninum og ef velja á svefn- poka eru fiður. eða dúnpokarn ir beztir. Gömlu, vatteruðu pok- 44 arnir sem voru mikið í umferð eru kaldari og leiðinlegri í með- ferð, þótt sumir kunni ágætlega við sig í þeim. Svo er ágætt að hafa teppi og það eru býsna margir, sem hafa sængina sína meðferðis. Þeir sem sjaldan fara I þessar ferðir og vilja ekki nota svefnpoka geta sparað sér út- gjöld með því að sauma saman teppi eins og poka og liggja í þassu með sængina ofan á sér. Nauðsynlegt er að hafa ullar fatnað ‘með sér, ullarsokka, peysu síðar nærbuxur, ullarvettl inga, ullarhúfu. Það er betra að hafa hlýjan fatnað með og þurfa e'kki að nota hann heldur en að hafa hann ekki, þegar þörf er á. — Hlífðarfatnaður er nauðsynlegur regnfatnaður eða vindheldir stakkar því næðingur getur orð ið nokkuð hvimleiður. Hvað skó fatnaði viðkemur eru lág gúmmistigvé! yfirleitt mjög nauðsynleg í okkar landi og svo þarf auðvitað létta skó með. Til gönguferða eru gúmmfstígvélin góð eða Iéttir og liprir skór. Þeir sem eiga áttavita ættu alltaf að hafa hann með sér og fólk ætti að venja sig á það að hafa með sér vegakort hvort heldur sem það kýs stórt kort eða landshlutakort. bað gefur hlutunum mikið gildi. Hvað snertir sjúkrakassa er gott að hafa höfuðverkjartöfl- ur og fyrst og fremst skyndi- plástur. - Þetta er í megmdráttum það sem Einar hafði að segja ferða löngum í stuttu máli. að við- bættu því, að ekki sakar að á- ætla daglega neyzlu og skipu- leggia ferðaútbúnaðinn og ganga frá honum i góðan tima áður en lagt er af stað i feröalagið. s. b. ® Notaðir bílar til sölu Höfum káupendur að VcII:swagen og Land- Rover bifreiðum gegn staðgreiðslu. Volkswagen ’57 Volkswagen 1500 ’67 Volkswagen ’63 Volkswagen microbus árg. ‘65. Volkswagen sendiferðabíl ’62 Land-Rover ’64 dísil Land-Rover ’66 bensín. > Land Rover 1967, bensín. Land-Rover 1968, bensín. Land-Rover ’65 bensín Land-Rover ’65 dísil Toyota Corona árg. ’68. Renault R-8 ’64 Renault R-4 ’63 Við bjóðum seljendum endurgjaldslaust afnot af rúmgóðum og glæsilegum sýningarsal okkar. AUGLÝSING Til rafmagnsnotenda í Reykjavík og nágrenm Kópavogi, Hafnarfirði og á Suðurnesjum. Vegna tenginga í spennistöðinni við Geit- háls verður straumur rofinn á 130 kíióvolta línunn.i frá Sogi frá laugardagsmorgni 28. þ.m. fram á sunnudag þann 29. þ.m. Meðan á aðgerðum þessum stendur, verður um takmarkað rafmagn að ræða, og eru raf- magnsnotendur hvattir til þess að draga sem mest úr rafmagnsnotkun. Sérstaklega vænt- um við aðstoðar húsmæðra við að lækka álags toppa á suðutímum með takmörkun á notkun eldavéla og dreifingu á suðutíma. Ef slíkar ráðstafanir nægja ekki, verður að grípa til skömmtunar á rafmagni, þannig að straumur verður rofinn um V2 klst. til skiptis hjá notendum yfir mesta álagstoppa. Reykjavík, 27. júní 1969. Rafmagnsveita Reykjavíkur, Rafmagnsveitur ríkisins Rafveita Hafnarfjarðar Landsvirkjun. Leiklistarskóli Þjóðleikhússins Nýir nemendur verða teknir inn í fyrsta bekk Leiklistarskóla Þjóðleikhússins næsta haust. Inntökupróf fara fram í lok áeptember. Um- sóknir skulu sendast til þjóðleikhússtjóra fyr- ir 1. sept. n.k. Ennfremur skal umsækjandi senda afrit af prófskírteini frá framhaldsskóla heilbrigðisvottorð og meðmgeli’ frá leiklistar- kennara. Þjóðleikhússtjöri Sími 21240. HEKLA 1 if Laugavegi 170-172

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.