Vísir - 28.06.1969, Blaðsíða 4
fossanna með því að hreinsa far-
veginn og stemma þannig stigu
við frekari eyðileggingu fossbrún
arinnar. Vatninu var veitt til
kanadíska hlutans sem sést fjærst
á myndunum.
Það gegnir ekki sama máli um
stefnn Bandaríkjamanna og ís-
Niagara-foss-
arnir burrir
Meira en 17 millj. rúmm. vatns
runnu um ameriska hluta Nigara-
fossanna á hverri mínútu þang-
að til snemma í júní, en þá var
sett stífla i ána. Jarðfræðingar
eru að reyna að varðveita fegurð
lendii(ga í þessum efnum. Þar
vestra eru það ferðamenn og pen
ingar, sem skipta máli en hér
er það eitthvað annað, sem vakir
fyrir mönnum. Spurningin er,
hvort láta eigi náttúruna i friði.
Falleg
ar
skíðabrekkur
Snjórinn er löngu horfinn af
öllu láglendi, enda komið fram
yfir Jónsmessu og sumarleyfi
efst f hugum flestra íslendinga.
Það er all misjafnt, hvert menn
fara ti! þess að lyfta sér upp og
flýja hversdagsleikann. Sumir
setjast upp í bíla sína og láta
hjólin ekki hætta að snúast fyrr
en fríið er úti. Aðrir ferðast til
Spánar til þess að krækja í sum-
arauka fyrir peningana, sem þeir,
nurluðu saman í vetur. Síðan eru’
enn aðrir, sem vilja fá sér vetrar
auka og leggja þeir flestir leið
sína upp í Kerlingarfjöll. Þar er
skíðaskóli eins og alþjóð veit og
ætíð margt um manninn. Hver
veit nema þar sé að finna lands-
lag svipað því á myndinni, til
þess að renna sér í?
FélS þér fslanzk gólftoppl frá«
YBPMtf EgatSBsaP
llltíma
TEPPAHÚSIÐ
Ennfremur.ódýr EVLAN teppl.
Sporlð tíma og fyrirhöfn, og verztið á einum sfað.
SUÐURLANDSBRAUT10. REYKJAViK PBOX1311
Spáin gildir fyrir sunnudaginn
29. júní.
Hrúturinn, 21. marz—20. apríl.
Þetta getur orðið þér góö og
skemmtileg helgi, ef þú einurjg
is gætir þess aö undirbúa það,
sem þú tekur þér fyrir hendur,
eins vel og þér er unnt — og
gera ráð fyrir nokkrum töfum.
Nautið, 21. apríl—21. maí
Skemmtileg helgi, en ef til vill
ekki beinlínis vel fallin til hvild
ar i venjulegum skilningi. Ef þú
ferð í eitthvert ferðalag, er lík-
legt að þú komir þreyttur heim,
en hafir skemmt þér vel.
Tv u arnir, 22. maí—21. júní.
Helgin mun einkennast af ann-
ríki, en miklar líkur benda til
að hún geti orðiö skemmtileg
engu að síður. Feröalög á landi
ig'eta haft nokkrar tafir í för
með sér, sem ekki verða séðar
fyrir.
Krabbinn, 22. júní—23. júli.
Þetta getur orðið skemmtileg
helgi, ef þú Iætur ekki smátafir
ergja þig um of og gerir ekki
of miklar kröfur til þeirra, sem
þú umgengst eöa veröa sam-
ferðamenn þínir.
Ljóniö, 24. júli —23. ágúst.
Farðu mjög varlega ef þú stjórn
ar farartæki, einkum skaltu var
ast að treysta gætni þeirra, sem
þú mætir í umferðinni. Heima
fyrir getur helgin einnig orðið
einkar ánægjuleg.
Meyjan. 24. ágúst—23. sept.
Þú virðist eiga það mikið undir
öðrum hvernig helgin verður, og
getur nokkuð brugöið til beggja
vona. Ekki virðist þó nein hætta
yfirvofandi, en faröu engu að
síður gætilega í hvívetna.
Vogin, 24. sept.—23. okt.
Maður nokkur, sem þú þekkir
ekki sérlega náið, virðist géta
sett svip sinn að verulegu leyti
á þessa helgi, og á mjög jákvæð
an hátt að því er helzt verður
séð. Skemmri ferðalög ánægju
leg.
Drekinn, 24. okt.—22. nóv.
Taktu ekki þátt í neinum tví-
sýnum ævintýrum um þessa
helgi, en gakktu sem bezt frá
öllum undirbúningi, einkum í
sambandi við ferðalög, og áætl
aðu rúman tíma vegna ófyrirsjá
anlegra tafa.
Bogmaðurinn, 23. nóv.—21. des.
Eitthvað, sem þú hefur gert ráð
fyrir eða treyst, getur brugðizt
á síðustu stundu og óneitan-
lega valdið nokkrum vanbrigð-
um. Farðu gætilega í Vmferö-
innl* einkum á vegum úti.
Steiúgeitin, 22. des.—20. jan.
Ef þú einungis hefur hóf á öllu,
er h'klegt að þetta verði
skemméjleg helgi. Eitthvað já-
kvætt |etur meira að segja
gerzt, $em gerir þér hana
skemmtilfga eftirminnilega.
Vatnsberihn, 2*. jan.—19. febr.
Það lítur relzt út fyrir að þér
nýtist ekki helgin sem þú vildir,
og ef til viil gerir nokkurt eirð
arleysi þar vart við sig. Að
ööru leyti verður allt heldur at-
burðalítið.
Fiskarnir, 20. febr.—20. marz.
Þetta getur orfiið mjög skemmti
leg helgi, þó *ki gerist neinir
stóratburðir. Qættu þess að
hafa vaðið fyrir neðan þig hvað
allan undirbúni*g snertir, og
leggja snemma af stað, ef i
það fer.