Vísir - 12.08.1969, Síða 2

Vísir - 12.08.1969, Síða 2
VI S IR . Þriðjudagur 12. ágúst 1969. KJÆRBO SIGURSTRANGLEGUR EN MARGIR ÓGNA VELDI HANS lslandsmeistarinn í golfi, Þorbjöm Kjærbo frá Keflavík, er einn þeirra, sem helzt eru taldir koma til greina að ná ís- landsmeistaratitli í ár, en á morgun hefst keppnin í meistara- flokki á Grafarholtsvellinum. Reyndar má búast við aS Þor- bjöm fál harða keppni eins og oft er á islandsmótum, — og ails ekki útilokað að sú keppni komi frá einhverjum þeirra keppenda, sem augu manna beinast e.t.v. ekki svo mjög að í augnablikinu. Gunnlaugur Ragnarsson úr Golfklúbbl Reykjavíkur hefur á æfingum aö undanfömu komiö inn með ágæta hringi, og sama má segja um Gunnar Sólnes. Margir hugsa um Óttar Yngva- son, en hann hefur lítt sézt á æfingum aö undanfömu. Þá er ekki svo mjög vitaö um hvernig Pétur Bjömsson og Óiafur Bjarki Ragnarsson koma út, en báðir em harðir keppnismenn. 1 dag hefst keppnin í unglinga flokki og kvennaflokki, en kari- ar keppa klúbbakeppnina, en í henni taka þátt f golfklúbbar Reykjavíkur, Suðurnesja, Akur- eyrar og Vestmannaeyja, Goif- klúbburinn Keilir og Nesklúbb- urlnn, en að auki eru Húsvíking ar og Akurnesingar með fulltrúa á mótinu að þessu sinni, og koma 6 Akurnesingar til keppni. Völlurinn í Grafarhoiti er í sæmilegu standi, en rigningarn- ar f sumar hafa reynzt heldur slæmar fyrir völlinn. Alls keppa 140 golfmenn og konur í Grafarholti næstu daga. Keppnin í meistaraflokki verður 72 holur, hefst hún á morgun, en lýkur á laugardag. Leiknar em 18 holur dag hvern. 22100 FIMM skipta með sér vinnings- fjárhæðinni í getraununum, — kr. 22100 koma I hlut hvers og eins, en vinningshafarnir eru frá Kefla- vík Akranesi, Kópavogi, Hellu og Reykjavik. Þaö var rangt í gærdag í get- raunaúrslitunum að úrslit Derby C. og Burnley hefðu orðið 0:1, — þau voru 0:0, en þetta stafaöi af mis- sögn I brezkum útvarpsstöðvum að sögn starfsmanna Getrauna. Vita- spyrna ruglaöi þuli og fréttamenn ytra i ríminu, hún hafði ekki verið dæmd mark eins og þeir héldu. Island með Englandi, Póllandi og Belgíu í riðli Á þingi Evrópu-og Miðjarðarhafs- deildar Alþjóðakörfuknattleikssam bandsins, sem haldið var I Alex- andríu 27. til 30. júni sl., var skip að í riöla í undanrásum EM ungl- ingalandsliða. Úrslitakeppnin verður háð I Grikk landi á tímabilinu frá 15. til 30. ágúst 1970. 12 lið taka þátt í út- slitakeppninni, þ.e. núverandi Evrópumeistarar, Sovétríkin svo og Grikkland, sem heldur keppnina en þessi tvö lið komast f úrslitakeppn ina án forkeppni. Um hin tfu sæt- in verður keppt í fimm riðlum og komast tvö efstu liðin í hvomm riðli f úrslitakeppnina. Hlutgengir til þessarar keppni em piltar sem fæddir em eftir 1. janúar 1951 og ekki hafa leikið með landsliði fullorðinna. íslandi hefir verið falið að sjá um framkvæmd eins riðilsins og er það mikill heiður fyrir KKÍ. Aðeins eitt Norðurlandanna hefir áður séð um framkvæmd riðilsins f EM ungl ingalandsliða, en það er Finnland árið 1966. Undanrásimar skulu fara fram á tímabilinu 1. marz til 1. maí 1970 og hefir KKÍ f hyggju að hér verði keDpt um páskana. Riðlaskiptingin er þessi: A. Vestur-Þýzkaland. V-Þýzkaland Austurríki, Finnland, Frakkland, ftalfa, Holland. B. Svissland. Svisland, Búlgarfa, ísrael, Svfþjóð, Júgóslavía. C. Rúmenía. Rúmenfa, Egyptaland Tékkóslóvakía, Túnis. D. fsland. fsland, England, Pólland, Belgia. E. Lúxembourg. Lúxembourg, Spánn, Ungverjaland, Tyrkland. Þjálfari fslenzka unglingaliðsins er Helgi Jóhannsson og formaður unglinganefndar KKf er Þorsteinn Hallgrímsson. Æfingar unglingalandsliðsins liggja nú niðri um hrfð, en verða teknar upp aftur f haust og verður þá væntanlega fleiri piltum boðið að sækja æfingarnar, heldur en þeim sem æfðu undir landsleikina við Dani s.l. vor. Útreikningar voru rangir — og KR aðeins 6 stigum á eftir IR — KR gæti mögulega náð upp mismuninum i fimmtarþrautinni ■ LJtreikningar reiknimeistar- anna á Reykjavíkurmótinu í frjálsum íþróttum revndust ekki alls kostar réttir. Þegar allt mót- iS var yfirfarið reyndust þrjár dömur í 100 metra grindahlaupi vera þar f sinni 4. grein þann daginn. Höfðu þeim verið reikn uð stig af misgáningi. Við þetta lækkaöi mjög veldi fR miðað við það, sem tilkynnt hafði verið. Mismunurinn reyndist aðeins 6 stig. ÍR hefur 229 stig, KR hefur 223 og Ármann 138 stig. Möguleiki er því fyrir hendi að KR vinni keppnina, en þá verða KR-ingar að taka á honum stóra sínum í síðustu greininni, fimmtar- þrautinni, sem vart mun fara fram úr þessu, fyrr en einhverntíma i september, því framundan eru mörg og mikil mót í frjálsum íþróttum, m. a. bikarkeppnin. rtLAGSNURKI - VERDLAUNA.CR1PIR VERDLAUN APENINC AR iMagnús E. Baldvinsson 1 l»ug»n|l 11 - llml 1110« * AUGLÝSINGAR ADAisnoen i SÍMAR MMO 1-56-10 og 1-50-99 Kerlingarfjöll! Unglinganámskeið fyrir 15 ára og eldri. Gjald 3900 kr. 15.—20 ágúst. Fyrir 14 ára og yngri — Gjald 3300 kr. 20.—25. ágúst. 25.—30. ágúst Innifalið í námskeiðsgjaldi: Ferðir frá og til Reykjavíkur. Dvöl í þægilegum skíðaskálum, fæði, nesti á báðum leiðum, skíðakennsla fyr- ir byrjendur og lengra komna. — Aðgangur að skíðalyftu — Leiðsögn á gönguferðum — Kvöldvökur með leikjum, söng og dansi. — Uplýsingar og miðasala hjá Hermanni Jóns- syni úrsmið, Lækjargötu 4, sími 19056. Skíðaskólinn í Kerlingarfjöllum. Einmanalegt hlaup ■ Einn síðasti íslandsmeistarinn í frjálsum íþróttum í ár siglir hér áfram að settu marki, Halldór Guðbjörnsson í gærkvöldi í einmanalegu 3000 metra hindrunarhlaupi á Mela vellinum. Hlaupið átti að réttu lagi að fara fram á Laugar- vatni, en þar er engin vatnsgryfjan til að láta hlaupið fara fram við löglegar aðstæður. Tíminn — 10 mínútur og 9 sek- úndur. WILTON TEPPIN SEM ENDAST 0G ENDAST EINSTÆÐ ÞJÓNUSTA! — KEM HEIM TIL YÐAR MEÐ SÝNISHORN. — TEK MÁL OG GERI BINDANDI VERÐTILBOÐ YÐUR AÐ KOSTNAÐARLAUSU! NÝ MYNSTUR, PANTIÐ TÍMANLEGA. Daníel Kjartansson . Sími 31283 Einnigáferð er trygging nauðsyn. Hringið-17700 ALMENNAR TRYGGINGAR"

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.