Vísir - 12.08.1969, Blaðsíða 6

Vísir - 12.08.1969, Blaðsíða 6
V í S IR . Þriðjudagur 1" ágúst 1969. VIÐEY í lítil sveit á sundunum Þessir þykku gluggar eru ekki í hofi í Austurlöndum, heldur gluggar Viðeyjarstofunnar, I þá verður sett þykk eik, sem sérstaklega er pöntuð að utan. JJér úti á sundunum liggur lít 1 il eyja, sem lengi hefur ver iö í eyði og hin gömlu hús, sem þar standa, legiö undir skemmd um. Eins og flesta grunar, er hér um Viðey að ræða. Pessi eyja, sem daglega er fyrir augunum á Reykvíkingum, með Viöeyjar stofu og kirkjuna, á sér langa og merka sögu. Fyrir skömmu keypti ríkiö hluta eyjarinnar, á- samt hinum gömlu húsum, og nú er unnið aö þvf aö gera hús- in upp, en þau voru mjög illa farin. En hvaö á að gera við Viðey í framtfðinni? — Um þaö er fólk ekki sammála. Sumir vilja fá þama baðströnd, aðrir tjaldstæði fyrir borgarbúa, enn aðrir ferðamannanýlendu, og þannig mætti lengi telja. Hvað um það, að koma út í Viöey í dag, er eins og að koma upp í sveit. Þarna eru hestar á íeit. og geitahjörð trítlar um flatar, grónar grundimar Á nú- tíma hraðbát tekúr aðeins nokkr ar mínútur að sigla úr Sunda- höfninni til Viðeyjar, en hér áð- ur fyrr var ekki róið til eða frá eyjunni, nema í bezta veðri, því oft gat veriö hættulegt að róa þarna um sundin. Þegar ljósmyndarinn brá sér út í Viðey núna um daginn, tók hann þessar myndir hér á síö- unni, sem sýna okkur hvernig Viðey lítur út í dag. Þessi einkennilega bryggja er frá dögum járn brautarinnar I Viðey. i,jp||pgl .' *' v L ■ ' .......................................................... Sambýíið hjá hrossunum og geitunum er hið bezta í Viðey. Voldugur planki liggur úr fjörunni og upp á eyjuna, en plank- inn er smíðaður til að auðvelda fólki gang upp á eyjuna. Hér eru þeir sem vinna að viðgerðum á húsun um að draga bátinn á land, en þeir sigla dag- lega milli lands og eyjar svo framarlega sem veður er ekki mjög slæmt.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.