Vísir - 12.08.1969, Page 16

Vísir - 12.08.1969, Page 16
AUGLÝSINGAR AÐALSTt>CTI 8 SÍMAR 1-16-60 1-56-10 ofl 1-50-99 BOLHOLTI 6 SÍMI 82143 ÖNKUMST ■ v a / FÚór • AUA 5M*Rfl PKNTUN 0G CÓD PJÓNUSTA • r.tniun “ • PJUflUilA • SVANS-PRENT SKEIFAN3-SÍMAR 82605 OG 8I?Í4, " ....... ■' 1 1 ■ ■ Æsa TRYGGING Aukning ferðamanna meiri en í fyrra n i Eyðslugjaldeyririrm skilar sér betur inn, sennilega vegna gengislækkunarinnar, segir Lúðvig Hjálmtýsson, framkvæmdastjóri Ferðamálaráðs □ Það er sannfæring mín að aukning ferða- manna í ár verði ekki minni en í fyrra, en þá var aukningin um 7%, sagði Lúðvíg Hjálmtýs- son, framkvæmdastjóri Ferðamáiaráðs f viðtali við Vísi. — Það er trú mín, að aukningin sé enn meiri en í fyrra, þó að ekki verði fullyrt um slíkt fyrr en seinna, þeg- ar tölur liggja fyrir, hélt hann áfram. I fyrra gáfu ferðamennirnir at sér um 10.5% af heildarverð- mætum útfiutningsins eða 562.6 milljónir króna í gjaldeyri. Er þarna miöað við það, sem þeir eyða í fargjald, í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli og eyðslueyri eða þann hluta eyðslueyris, sem skilar sér inn í banka, en Lúð- víg segist sannfærður um, að allur gjaldeyririnn skili sér ekki inn. — Samkvæmt gjaldeyr isskilunum eyddi hver ferðamað ur hér í fyrra að meðaltali 3652 kr., en í ár virðast gjald eyrisskilin ætla að verða miklu meiri. Gjaldeyrisskilin fara að mestu leyti eftir því, hve mikið svarta markaðsbrask er með erlendan gjaldeyri í landinu. T, d. var ekki skilað nema 193 krónum á hvern ferðamann 1950, en síð- an hefur þessi tala verið mjög breytileg. Hún jókst mjög áriö 1961, þegar gjaldeyririnn haföi veriö gefinn frjáls, jókst úr 247 kr. 1959 í 1900 krónur 1961. Bandaríkjamenn voru fjöl- mennastir ferðamanna í fyrra um 15 þúsund talsins eða 37.8% af öllum ferðamönnum. Næstir komu Danir 11.2%, en síðan Þjóðverjar 10.5%, Bretar 9,8% og Sviar 7%. Útlit er fyrir, aö hlutföllin verði svipuð í ár. Fnnjbd lokað á Austfjörðum — gengur illa að gera við vegina Heldur gengur illa aö gera við vegaskemmdirnar á Austfjörðum, vegna mikillar bleytu, og er veg- urinn frá Str.itishvarfi að Núpi á Berufjarðarströnd -'veg ófær og Suðurfjarðavegur milli Stöðvar- fjarðar og Bre:ðdalsvíkur einnig lok aður Þá eru mjög slæmir kaflar á veginum í Álftafirði og Hamars- firði. Alls staðar er verið að vinna að viðgerðum, og standa vonir til að hægt verði að gera jeppafært um Suðurfjarðaveg í kvöld eða fyrramálið, samkvæmt upplýsing- um Vegagerðarinnar í morgun. Rerðamenn á Regina Maris ganga frá borði í gær. Flestir þeirra fðru að skoða Gullfoss og Geysi, en hópur brá sér alla Ieið til Kulusuk á Grænlandi. Einn dag á Islandi — flugu til Grænlands Það er heldur sialdgæft að farþegar á skemmtiferöaskipi, sem stendur aðeins við í höfn- inni í einn dag, noti tímann til að bregða sér til Grænlands, en það gerðist bó í gær. 20 af 250 farbegum skemmtiferða- skipsins Regina Maris flugu með Flugfélaginu í gær til Kul- usuk á Grænlandi, en hinir 230 farþegarr.ir brugðu sér að skoöa Gullfoss og Geysi á meðan, sam kvæmt upplýsingum sem Ragna Samúelsson hjá Ferðaskrifstofu rikisins gaf blaðinu í morgun. Sagði Ragnar að fyrr í sumar hefði hópur af skemmtiferða- skipi flogið til Grænlands, en þá hafði skipið tveggia daga við dvöl. í þessar ferðir er pantað bæði ytra, og um borð f skemmtiferðaskipunum. N-Víetnamar og Víet- cong hefj< Norður-Víetnamar og Víet- congliðar hófu mikla sókn í morgun með sprengju- og eld- flaugaárásum á yflr 120 bæi og herstöðvar og sérþjálfaðar á- rásarsveitir ruduust inn í mikil- væga bæi og var barizt þar á götunum. Líkur eru nokkrar fyrir, að þéssi sóknarlota eigi að ná hámarki eftir viku eöa 19. ágúst, en þá eru 24 i stórsókn ár liðin frá valdatöku Ho Chi Minh, en 2. september 1945 var hann op- inberlega settur i embætti sem for- seti N-V, Árásirnar í nótt voru á bæi og herstöðvar út um allt S-Víetnam (sjá nánar f frétt á 7, síðu). Allt herlið og lögreglulið Suður- Víetnam hefur fengið fyrirskipun um að vera við öllu búið og öll heimfararleyfi hermanna stöðvuð. Hreindýraveiðin hafin — Leyft að skjóta 600 dýr • Hreindýraveiöin er rétt að hefjast og eru nokkrir menn komnir austur íil þess aö undirbúa veiðiferðii;. Koma þessir menn bæði úr Reykjavík og annars staöar af landinu. Leiðangrarnir eru enn ekki lagðir af stað, eitthvað hefur ver- ið svipazt um eftir dýrunum. Hafa þau fá fundizt enda þoka og leið- inda veður fyrir austan þessa dag- ana. Veiðitímabilið stendur frá 7. ág- úst til 20. september og má skjóta 600 hreindýr á þeim tíma. Kostar það fimm hundruð krónur að skjóta hvert dýr. Hreindýrin komu ekki mikið frar.i til byggða á síöastliönum vetri og má því búast við að þau séu nokk- uð Iangt inni á afréttunum. Veiði- svæðið er allt á fjárrekstrarlönd- um bænda þar eystra og eru þeir lítt hrifnir af þessum veiðiskap. om J. Lomnes, frá fyrirtækinu Johns-Manville, en það fyrirtæki mun rannsaka gæði borkjama- sýnishoma á rannsóknarstofum sínum ytra. Yfirumsjón meö verkinu af hálfu ráðuneytisins hefur ungur jarðfræðingur, Kjartan Thors, haft með hönd- um. Perlít er glerkennt afbrigði af Iíparíti, ólífrænt og ágætt ein- angrunarefni. Það er eftir þenslu notaö bæði til blöndunar i steypu og múrhúðun, svo og í létt-steypuveggi og einnig sem síunarefni, svipaö og kísilgúr. Unnið að rannsókn perlusteinsins • Svo kann að vera, að meiri verðmæti leynist í jarð veginum íslenzka en nú er kunnugt um. Það hlýtur því ævinlega að vera nokkurs virði, að kosta fé til jarðvegs rannsókna, ef leiða kynni til þess, að áður ókunn verðmæti gætu komið að notum. Þessa dagana er unnið að rannsókn um á perlusteinsskriðum í Loðmundarfirði á Austur- landi, en einungis þar og við Prestahnúk á Suð-Vestur- Iandi er kunnugt um stór perlusteinssvæði, þótt ein- hver vottur hafi fundizt all- víða. Sjö manna flokkur með jarö- ýtu og tvo jarðbora hefur að undanförnu dvalizt þar eystra við sýnishornatöku á vegum Iðn aðarmálaráðuneytisins. Auk þess hefur verið með í förinni bandarískur jarðfræðingur, Eld- JARÐVEGSUMRÓT í LOÐMUNDARFIRÐI Hér á myndinni er stærri borinn að verki í einum skurðanna sem gerðir hafa verið í Loðmundar- firði. Á myndtnni sjást m.a. bandaríski jarðfræð ingurinn E. J. Lomnes (á bakkanum til vinstri) þá Brynjólfur Ingólfsson, ráðuneytisstjóri Iðnaðarmálaráðuneytisins, Kjartan Thors, verkstjóri og Hrólfur Ingóll'sson, bæjarstjóri á Seyðisfirði.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.