Vísir - 26.09.1969, Side 1
VISIR
59. árg. — Föstudagur 26. september 1969. — 211. tbl.
Hækki markið, styrkist
pundiS og íslenzka krónan
— segir hagfræðingur Seðlabankans. Engin kauphræðsla hér
• Hækkun gengis þýzka marks-
ins mundi stuíMa að því a'ð
styrkja brezka pundið og þá jafn
Söfnuðu pening-
um til jólugjafu
Þeir voru hressir og kátir
strákarnir, sem Vísir hitti niður
í bæ í gær. Enda hafði salan
gengið vel hjá þeim. í atvinnu-
leysinu höfðu þeir gripið til þess
ráðs til að safna f gjafasjóð fyrir
jólin, að selja ýmsa hluti, sem
þeir áttu í fórum sínum. Höfðu
þeir „standard“ verð á hlutun-
um, 10 krónur fyrir þessa fínu
leður-buddu og þarna var líka
fyrsta jólabókin á markaönum,
fyrir aðeins 10 krónur.
Strákarnir í „búðinni“ sinni.
Fáir á Nei-
fundinum
• Andstæðingar vínleyfisins
efndu til almenns borgarafundar i
Bæjarbfói í gærkvöldi til umræðu
um kosningarnar á sunnudaginn
kemur.
Fundarsókn var minni, en menn
höfðu vænzt en allfjörugar umræð-'
ur urðu á fundinum og urðu marg-
ír til þess að kveða sér hljóðs,
og þar á meðal einnig greinilegir
fylgjendur vínleyfisins, sem töluðu
máli þess og hlutu ekki síðri undir-
tektir en hinir.
Fundurinn lét sitja við umræður
einar, og gerði enga ályktun.
Á bls. 9 birtast sjónarmið beggja
aðila i viðtölum við forvígis-
menn úr hvorum flokki — Já
og Nei.
Langar mest til að
flengja þá alla saman
— segir oddviti Grimseyinga um starfsmenn hafnamálastjórnar
0 Við megum ekki gera það
sem okkur langar mest til
— og það er að flengja þá alla
saman, sagði Alfreð Jónsson,
oddviti í Grímsey, þegar Vísir
hringdi í hann til þess að for-
vitnast um hafnarframkvæmd-
irnar á staðnum. — En þar hef-
ur í sumar verið unnið að nýj-
um 90 metra löngum sjóvarnar-
garði og fieiri endurbótum á
höfninni.
Það er yfirstjórn hafnarmála sem
á inni þessar „trakteringar" hjá
Grímseyingum fyrir þennan hafnar-
gerð, sem hálfnaö er að byggja í
Grímseyjarhöfn.
— Það má segja það já, að hér
sé urgur í mönnum og við segjum:
Því fór sem fór, aö ekki var farið
að okkar ráðum. Hafnargarðurinn
var ekki byggður, þar sem við vild
um hafa hann.
Hafnargarðurinn átti að klárast í
haust, en tvö stórbrim, sem hafa
gengið yfir í sumar hafa brotiö
framan af garðinum og tafið fram-
kvæmdina og gert hana kostnaðar
samari að sjálfsögðu. — Viö spurð
um Alfreð, hvort hann héldi aö
garðurinn stæði af sér veturinn?
— Ekki lofa ég því. — Það stend
ur nær æðri máttarvöldum aö lofa
því.
framt íslenzku krónuna,“ sagði
Kristinn Haiigrímsson, hagfræð-
ingur Seðiabankans í morgun.
„Ég sé ekki, að við þyrftum að
breyta okkar gengi á neinn hátt,
nema hvað hækkun marksins
þýðir auðvitað lækkun krónunn-
ar gagnvart markinu einu.
Það mundi stuðla að því, að við
minnkuðum innflutning frá
Þýzkalandi og ykjum útflutning
þangað. Hér er þó ekki um há-
ar upphæðir að ræða. Talað er
um, að markið kunni að verða
hækkað um nálægt 5 af hundr-
aði.“
„Þetta er algjörlega pólitískt mál
í Vestur-Þýzkalandi“, sagði Krist
inn ennfremur. „Willy Brandt og
Schiller vilja láta hækka gengið og
telja, að verölagið muni fara hækk
andi eftir kosningar, verði gengið
ekki hækkað. Kiesinger og kristi-
legir demókratar eru andvígir hækk
un. Segist Kiesinger stena að stöð-
ugu verðlagi en muni sjá til þess
að svo verði. Kristilegir demó-
kratar eiga mikið bændafylgi, og
bændur mundu tapa á hækkun."
Þá sagði hann, að þróun í gjald-
eyrismálum Breta hefði verið hag
stæð, og teldu þeir sig ekki þurfa
aö breyta gengi pundsins.
„Nei, það var engin hræðsla“,
sagði verzlunarstjórinn í Heklu,
einn þeirra verzlunarmanna, sem
blaðið hringdi í í morgun, til að
vita hvort fréttimar af þýzka mark
inu hefðu náö aö hafa áhrif á ís-
lenzka markaðinn, þá aöallega heim
ilistækjasöluna.
Sömu söguna var að segja hjá
öörum fyrirtækjum, sem blaðið
hafði samband við nema einu, ekki
bar á því að sala ykist í gær og
var ekkert óvenjulegt við hana.
Hins vegar hefur sala á heimilis-
tækjum verið góð undanfarnar vik
ur eins og hún er yfirleitt á haust
in.
— Eg slapp með smáhruflu á höndunum, sagði Heiðar Skarphéð-
insson, bílstjóri á Snæfellsnesrútunni, en hann varð að aka vagn-
inum framrúðuiausum í bæinn alia leið frá Hvanneyri.
Rúðubrot á þjóð-
vegum stóraukast
— Verkfræðingur ytra að kynna sér þessi mál
• Það gustaði heldur betur um
Snæfellinga á leið í bæinn
í gær. Steinhnullungur, sem
skauzt undan hjólbarða bifreið-
ar á þjóðveginum við Hvann-
Fékk pókergróðann í gúmmítékkam
— Arðbær spilanótt fékk óvæntan endi i Landsbanka
■ Maður nokkur kom inn í
Austurbæjarútibú Lands-
bankans fyrir stuttu og ætla-
aði að Ieysa út nokkrar ávís-
anir, samtals að upphæð kr.
170.000, en ávísanirnar voru
allar gefnar út af sama manni
og á sama reikning.
En við athugun kom í ljós,
að á reikningnum voru innistand
andi aðeins um 3000 kr., sem
hrukku auðvitað skammt. Lög-
reglunni var gert viðvart og leit
að skýringa hjá manninum, sem
ætlaði að leysa ávisanirnar út,
en hann kvaðst fyrst hafa feng
ið þær greiddar fyrir bifreið,
sem hann hafði selt útgefanda
ávísananna.
Síðar skýrði hann svo frá, að
hann hefði setið að spilum
heima hjá ávísanaútgefandan-
um og hafði hann unnið mest
af þessum peningum af honum
í tveggja manna póker. Þeir
höfðu báðir veriö við skál.
Málið er nú í frekar: rannsókn
en handhafi ávísananna er mað-
ur, sem gegnir föstu starfi og
hefur sitt framfæri af því.
eyri small af miklum krafti í
framrúðu Snæfelisnesrútunnar
og mölbraut rúðuna.
• Sérleyfishafi, Helgi Pét-
ursson, sendi að langferða-
bíl til þess að taka við farþeg-
unum, en bílstjórinn varð að aka
bílnum rúðulausum í bæinn og
var æði veðurbarinn þegar þang-
að kom.
Rúöubrot með þessum hætti hafa
færzt mjög í aukana í umferöinn-
úti um land. Fjöldi dýrra framrúöa
eru brotnar eftir sumarið. Vegna
þessa er nú í gangi athugun é
þessu vandamáli. Þeim Jóni Birgi
Jóiissyni, verkfræðingi hjá Vega-
gerðinni og Bjarna Kristjánssyni,
skólastjóra Tækniskólans hefur ver
ið falið að kanna þessi rúðubrot og
er Jón meðal annars þeirra erinda
að kynna sér slík mál í Noregi
um þessar mundir. •