Vísir - 26.09.1969, Page 8

Vísir - 26.09.1969, Page 8
8 V1SIR . Föstudagur 26. september 1969. VISIR Útgefandi: Reykjaprent h.f. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Evjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoöarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingar: Aðalstræti 8. Símar 15610, 11660 og 15099 Afgreiðsla: Aðalstræti 8. Sími 11660 Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 145.00 á mánuði innanlands í lausasölu kr. 10.00 eintakið Prentsmiðja Vísis — Edda h.f. Félagsmálaborgin Margs konar og gífurleg vandamál einkenna allar stórborgir heims. Mörg þessara vandamála eiga ræt- ur sínar í borgunum sjálfum, en önnur eru innflutt, því að stórar borgir hafa alltaf tilhneigingu til að soga til sín vandamál, sem myndazt hafa utan þeirra. En hvernig sem þessi vandamál eru til orðin, þá er það eitt meginverkefna stjórna þessara borga að fást við þau. Sums staðar erlendis eru félagslegu vandamálin svo geigvænleg, að enginn mannlegur máttur virðist geta hamlað gegn þeim. Fræðilega séð er Reykjavík komin í tölu stórborga, því að íbúar Reykjavíkursvæðisins eru orðnir nokkuð yfir hundrað þúsund. Samt hefur Reykjavík ekki við jafnerfið félagsleg vandamál að stríða og hliðstæðar borgir erienais hafa almennt. Þetta stafar af því, að borgarstjórn Reykjavíkur hefur lengi látið sig félags- leg vandamál borgaranna miklu skipta. Erlendir sér- fræðingar, sem hafa ráðgazt við borgaryfirvöld um þessi mál, hafa lofað framtak borgarstjórnarinnar í félagsmálum. Fyrir tveimur árum gekkst meirihluti sjálfstæðis- manna í borgarstjórn fyrir róttækri nýskipan félags- mála í borginni. Með henni var stefnt að því að sam- eina þjónustu borgarinnar á þessu sviði og efla hana eins ört og tilkoma hæfra sérfræðinga leyfði. Mið- punktur hins nýja starfs er hin svonefnda fjölskyldu- meðferð. Hún byggist á þeirri staðreynd, að marg- vísleg félagsleg vandamál eru samtengd innan ramma fjölskyldunnar. Fátækt og drykkjuskapur foreldra leiðir til þess, að börnin lenda á glapstigum. Með fjöl- skyldumeðferðinni er ráðizt á þessi vandamál í einu lagi. Á grundvelli þessarar stefnu hefur verið komið á fót fóstrunarkerfi og komið upp fjölskylduheimilum fyrir munaðarlaus börn. Unnið er að lækningastöð fyrir börn með geðræn vandamál, sem slæmt um- hverfi og uppeldi hefur skapað þeirm Enn eru mál drykkjusjúklinga í deiglunni og einnig hafa verið könnuð vandamál ógiftra mæðra og unglingahópa. Verkefnin, sem framundan eru, virðast vera ótæm- andi, en þau hafa þegar verið tekin föstum tökum. Árangurinn mun smám saman koma í Ijós. Stefna sjálfstæðismanna í borgarstjórn hefur verið að hjálpa hinum ógæfusömu til sjálfshjálpar og reyna að mynda skilyrði þess, að menn lendi ekki í ógæfu. í stað hins gamla framfærslukerfis er stefnt að virkri og fyrirbyggjandi andspyrnu gegn þjóðfélagslegu böli. En þetta er einmitt sú stefna, sem verið er að taka upp í þeim erlendum stórborgum, sem lengst þykja vera komnar á þessu sviði. Og það merkilega er, að þessar aðgerðir borga sig, því að þeir peningar, sem fara í þær, margborga sig aftur á öðrum sviðum í þjóðfélaginu. Reykvíkingar geta vissulega verið stoltir af fram- taki sínu í félagsmálum. A laska-æ vin týríð Tjegar það ótrúlega fyrirbæri er farið að gerast hér aftur, að fólk flýr landið og flyzt jafn- vel hundruðum saman til Ástra- líu, koma upp í hugann minn- ingar um merkismann, sem var uppi á síðustu öld og kom mjög við sögu hinna miklu mann- flutninga þá til Ameríku. Það var Jón Ólafsson, sem gerðist einn helzti Ameríku-agentinn og starfaði nokkur ár með stærsta útflutningsstjóranum, Sigfúsi Eymundssyni. Um nokkurt skeið seldu þeir ár eftir ár yfir þús- und manns farseðla til Ame- ríku. Það var óneitanlega mikil blóðtaka fyrir þessa litlu þjóð og Jón Ólafsson hlaut mikið á- mæli fyrir þaö að teyma fólk úr landi, fyrir það var litið á hann sem hálfgildings ættjaröar- svikara. En hann svaraði þessu til: „Það eru margir ættjaröarvinir, helztir þeir sem lifa á öðrum og ekki þurfa sjálfir að vinna sér brauð, eða sem hafa náðug og feit embætti, sem hafa mikiö á móti útflutningi fólks héðan af landi. Landið líður við þaö, segja þeir, það þarf á öllum sín- um kröftum að halda! Ég vil heldur vita nokkrar þúfur mykjulausar og óræktað- ar á íslandi og nokkra Islend- inga í sæld og velgengni frjó- semdar og frelsis í Ameríku, heldur en aö vita sömu þúfna- kollana grænka á sumrin und- an góðum áburði og sömu Is- lendingana í sulti og seyru, éymd og volæði örbirgöar o,<> ófrelsis hér heima í landinu." Sjálfsagt endurtekur sama sagan sig, sömu vandamálin, þó í minni stíl séu, sömu ásakanim ar um óþjóðrækni þeirra, sem yfirgefa gamla landið og sömu mótrökin, að það sé lítill vandi að vera þjóörækinn fyrir þá sem sitja í feitu embætti, kannski í tveimur, þremur embættum samtímis, eins og víst er e'nn algengt hér, meðan atvinnuleys- ingjar og fátæklingar 20.’áldar- innar hrökkva úr landi. Jgn þó er það af öðru sérstöku tilefni sem ég vil nú minn- ast Jóns Ólafssonar. Jfann var ekki aðeins Ameríkuagent og gróðabraskari meö flóttafólk. Hann var líka merkilegur hug- sjónamaður, hann barðist fyrir því, að íslenzkir vesturfarar sameinuðu kraftana ogi- stofn- uðu íslenzkt lýöveldi, þar sem nýtt þjóðfélag með íslenzkri tungu og íslenzkri menningu gæti risið upp, í stað þess að vesturfararnir hópuðust í hið enskumælandi fjölbýli í W'nni- peg og Dakota, þar sem þeir yrðu bráðlega kaffærðir og breyttust í Westur-lslendinga. Það var hin mikla hugsjón Jóns, að íslenzkir vesturfarar ættu að flytjast í hópum norður til Alaska, sem Bandaríkin höfðu nýlega keypt af Rússum, en vissu síðan ekkert hvað þeir áttu að gera við þetta lands- svæði. Þá bjuggu aðeins nokkr- ir tugir hvítra veiðimanna í þessu víðlenda hemskauts- landi. Tókst Jóni að vekja áhuga bandarískra stjórnarvalda á þessari hugmynd sinni og var Hvað nú, — ef Alaska-draumur Jóns Ólafssonar heföi rætzt? hann sendur f leiöangur norður eftir til að kanna landkosti. Honum fannst landið dásamlegt, — mér finnst, að hér sé gott að eiga heima. Honum fannst hann vera í hlutverki Garðars Svavarssonar og ritaöi áróðurs- bækling fyrir hugsjón sinni. Hann vjldi gð hluti íslenzku þjóðarinnar tæki sig upp úr eymdinni á Atlantseyjunni og fylgdi fordæmi. landnámsmann- anna. „Ég spyr, hvort feður vor- ir elskuðu meira ættjörö sína eða frelsið, þegar þeir flýðu eignir sínar og óðöl. Þeir flýðu til að sjá því borgið, sem var meira virði, — frelsi og þjóö- emi.“ /~hg hugsjón hans var hvorki V-F meira né minna en það, aö í Alaska risi upp íslenzkt Kyrrahafsveldi. „Þegar sjó- mennskuþjóð eins og íslend- ingar festu fót í landi, þar sem timbur kostar ekki annað en aö smíða úr því, er líklegt, að þeir mundu skjótt veröa ein fræg- asta siglingaþjóð og ná undir sig Kyrrahafsverzluninni, sem er verk fyrir hundruð þúsunda, jafnvel milljónir manns.“ Lítill árangur varð af þessum háleitu hugsjónum Jóns Ólafs- sonar. Áróður hans hafði þær verkanir einar, að tveir eða þrír Islendingar fluttust þangað norður og lifðu sem einmanaleg- ir veiðimenn f greniskógunum. Það var hlegið að þessari heimsku Jóns, talið fáránlegt að setjast að á þessum afskækli heimsins, sem var álitinn ör- reytisland túndru og sífrera. Það var skemmtilegra að flyfckj- ast í Notre Dame og Portage- stræti í Winnipeg og geta farið um hverja helgi á böll í west- ur-íslenzku bindindisfélögunum, vinna í gatnagerð fyrir 6 dollara á mánuði. Þannig hjaönaði hugmyndin meðal annars af því að Alaska var álitið snautt og einskis nýtt land. Samt er það nú óneitanlega skemmtilegt að velta því fyrir sér, hvemig farið hefði ef Al- aska-hugsjón Jóns Ólafssonar hefði komizt í framkvæmd. Nokkrum árum síðar fannst gull í Klondyke svo landiö byggðist meira en áður og þó var íbúatalan lengi vel aðeins fáeinar tugþúsundir. Með gull- fundinum kom fyrst i ljós, að það var ekki eins fátækt og menn höfðu haldið. l^n þó er það ekki fyrr en nú á síðustu tveimur árum, sem ljós er farið að renna upp fyrir mönnum, að Alaska er að náttúrugæðum eitt allra auð- ugasta landi í heimi. Það sem nú hefur gerzt þar er einfald- lega það, að fundizt hafa ein- hverjar auðugustu olíulindir í heiminum. Það var í janúar 1968 sem borunarmenn komu fyrst niöur á olíuna. Er það álit manna, að þær séu auðugri en olíulindirnar í Arabíu, sem tækniveröldin hefur nú lifað á í meir en aldarfjórðung. Vegna þessa er allt að kom- ast á fleygiferð í Alaska. Þeir erfiðleikar eru viö olíuvinnsluna, að olíusvæðiö er á noröurströnd- inni, sem snýr aðeins út að Pól- > <■ i ‘i 'bV/MfUU>,

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.