Vísir - 26.09.1969, Side 13

Vísir - 26.09.1969, Side 13
I V í SIR . Föstudagur 26. september 1969. Um „fjárdrátt og fjárhættuspil4* '17'egna bréfs frá „C. E.“, sem „Vísir“ birti á íþróttasíðunni fimmtudaginn 18. september sl. undir fyrirsögninní: „Fjárdráttur og fjárhættuspil í íþróttafélagi", vill stjóm félagsins „Skandinavisk Boldklub Reykjavík" (S.B.R.) hér með koma eftirfarandi á fram- færi við blaðið til birtingar og til nauðsynlegrar leiðréttingar á vill- andi upplýsingum, sem fram koma í umræddri grein. Stjóm S.B.R. telur sig hafa ör- uggar upplýsingar um það, að fjallaö er um starfsemi þessa félags ‘í greininni og einnig um það, hver hefur gefið þær upplýsingar, sem fram koma þar. Stjóm S.B.R. er algjörlega sam- mála um það, að ýmsar þær upp- lýsingar, sem fram koma í grein- inni, eru mjög ýktar eða beinlínis villandi, þegar Iitið er á starfsemi félagsins í dag, og einnig, að grein- in er skrifuð 1 þeim anda, að um beina árás á félagið og starfsemi þess sé að ræða að áliti stjórnar- innar. Þessar staðhæfingar skulu hér rökstuddar með eftirfarandi upp- lýsingum um starfsemi félagsins í dag. Félagið starfar samkvæmt félags- lögunum innan vébanda íþrótta- bandalags Reykjavíkur með þeim skuldbindingum og kostum, sem það hefur ( för með sér. . í lögum félagsins segir um til- gang starfseminnar: „Tilgangur fé- iagsins er: 1) Með íþróttastarfsemi að efla vináttu og samstarf meðal hérbúandi ungra Skandínava inn- 1 byrðis og jafnaldra íslendinga. 2) Með því að standa fyrir ferðalög- um og kvöldvökum með kvik- myndasýningum og fyrirlestrum um íslenzk málefni aö koma fé- lagsmönnum í tengsl við og auka þekkingu þeirra á íslenzkri náttúru, menningu og þjóö“. Síðasti aðalfundur félagsins var haldinn h. 10. apríl sl. og var þá núverandi stjóm, endurskoðendur og allar nefndir kjömar aö fullu á löglegan hátt. Starfsemi félagsins síðan þá hefur í stórum dráttum verið sem hér segir: 1) Fyrir flest mánaðamót hefur verið gefin út skrá yfir starf- semi félagsins þann mánuð, sem fór í hönd og skráin send öllum félagsmönnum. 2) Haldnar hafa verið samkomur í leigðu húsnæði á Laufásvegi 16 á hverju fimmtudagskvöldi með mismunandi dagskrá svo sem kvik- myndasýningum, umræöum um fé- lagsmál, ýmsum skemmmtiatriðum, félagslegri samveru o. fl. 3) Á mánudagskvöldum hafa verið spilakvöld með borðtennis, skák og ýmsum spilum, en alls ekki fjárhættuspil, sem hefur verið algjörlega bannað. 4) Á þriðjudagskvöldum í ágúst var reynt að stofna til handknatt- leiksæfinga þrisvar sinnum í röð, en þátttakan reyndist vera of lítil til þess að árangur næðist og var því hætt við það aftur. 5) Ferðalög fyrir félagsmenn hafa verið farin á vegsm féiags- ins um helgar yfir sumartimann. Hefur þá verið farið til Snæfells- ness, ‘Esju, Þórsmerkur, Borgar- fjarðar, Heklu og Hítarvatns. Fimm feröalög til viðbótar voru áætluð, en þátttakan í þeim reynist vera of lítil (innan við 10 manns). 6) Á öðrum helgum hefur verið unnið í sjálfboðavinnu við bygg- ingu skíðaskála félagsins við Lækj- arbotna .Skáli þessi er byggður án nokkurra utanaðkomandi styrkveit- inga og er langt kominn að vera fullbyggður. 7) Skemmtikvöld og böll á laug- dagskvöldum hafa verið haldin ca. einu sinni í mánuði, þar af nokkr- um sinnum í skíðaskála félagsins með varðeldum og samsöng. 8) Félagið hefur tekið þátt í hinni árlegu gróðursetningu trjáa í Heiðmörk í júnímánuði, en fyrir þeirri starfsemi standa þrjú nor- ræn og dönsk félög í Reykjavík. 9) ' íþróttaiðkanir aðrar en ofan- greindar hafa ekki verið í sumar, en áætlað er að hefja vikuleg æf- ingakvöld í badminton i vetur eins og verið hefur á vetrum undanfar- in ár. Varðandi ásakanir þær, sem fram koma í greininni um fjárdrátt ým- issa meölima er það aö segja, að reikningar félagsins voru lagðir fram á aðalfundi h. 9. janúar sl„ yfirfarnir og samþykktir af end- urskoðendum félagsins (ekki nú- verandi endurskoðendum). Einn fé- lagsmaður var þá í skuld við fé- iagið fyrir þátttöku í einu ferða- lagi. TU skuldar. þessarar var stofnað með fullri vitund og.sam- þykkt þáverandj stjórnar og sam- þykkti aðalfundurinn þetta einnig. Um aðrar skuldir félagsmanna eða annarra við félagið er ekki að ræða í dag. Yfirlit yfir reikningshald féiags- ins (endurskoöað) er sent árlega til Íþróttabandalags Reykjavíkur til endurskoðunar samkvæmt félags- lögum. Varöandi þann „kjarna" félags- manna, sem greinarhöfundur ræðir um og sem hknn telur hafa bolað burtu hinum gömlu endurskoðend- um, er það að segja, að núverandi stjóm telur sig vita hverja um ræðir, og enginn þeirra á sæti í stjórninni, í dag. Nýi endurskoðandinn, sem sér- staklega er rætt um í greininni er löglega kosinn á sl. aðalfundi fé- félagsins. Hann hefur verið félags- maður í meira en 18 ár og oft kos- inn í stjórn. Hann héfur verið mjög virkur í starfi fyrir félagið og unn- iö því mjög mikið gagn um árin, enda hefur einn endurskoðandinn frá því í vetur sl. (greinarhöfund- ur?) gefið svofellda skriflega yfir- lýsingu um þennan mann: „Skrif- að til (nafngreining): „Ég held ég hafi rétt til á vegum S.B.R. aö færa þér mjög miklar þakkir fyrir þá stórkostlegu vinnu, sem þú hefur útfært fyrir S.B.R. í öll þau mörgu ár, sem þú hefur verið ferðaleiðsögumaður, formaður og drífandi afl innan starfsemi S.B.R. Ef öll sú vinna fyrir S.B.R. sem þú hefur útfært af frjálsum vilja, ætti að greiðast í peningum, þá mundir þú vera mjög ríkur maður. Beztu framtíðaróskir með mörgum þökkum. C. E.“.“ Þetta var skrifað í febrúar 1966. Varðandi upplýsingar í greininni um fjárhættuspil á félagsfundum er það að segja, að það hefur aldrei verið mikið og hefur veriö algjör- lega bannað í tíð núverandi stjórn- ar. Styrkveitingar úr sjóðum I.B.R. til félagsins samkvæmt venjuleg- um reglum nema árlega fáeinum þús. kr. Um aðra styrki úr opin- berum sjóðum hefur ekki veriö að ræða á undanförnum árum. Með því að koma ofangreindum upplýsingum á framfæri i blaðinu er það von stjórnar S.B.R. að les- endur blaðsins geti lagt sanngjarnt mat á starfsemi félagsins. Núver- andi stjórn félagsins telur sig í alla staði hafa reynt að starfa sam- kvæmt stofnskránni og þeim fyrir- mælum, sem þar eru sett fram. Stjórn S.B.R. HÚSGACNAVIKA ‘ 18,- 28. SEPTEMBER í ÍÞRÓTTAHÖLLINNI í LAUGARDAL OPIN VIRKA DAGA KL. 16 - 22 LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA KL. 14-22 SÝNING A GÆÐAMERKTUM HÚSGÖGNUM OG INNRÉTTINGUM EINNIG EFNI. AKLÆÐUM. GLUGGATJÖLDUM OG TEPPUM - 13 J^Wtál&iGöúi I Nokkur orð um óviðiirkvæmilegan kosningaundirbúning Furðulegasta þjóðlifsmynd kemur fram í kosningaundirbún ingi suður í Hafnarfirði, þar sem verið er að kanna, hvort heim- ila eigi vínveitingar i nýju veit- ingahúsi á staðnum. Bæjarstjórn treystir sér ekki til að taka á- kvörðun £ viökvæmu máli en vís ar til álits meirihluta almenn- ings, sem nú á að kanna með kosningu eða skoðanakönnun, eins og aðferðin er nefnd, um hvort leyfa eigi vínveitingar í bænum, en framkvæmdin virð- ist með sama sniði og venjuleg kosning. Kosningaundirbúningur inn er nú í algleymingi og hefur tekið á sig allt hið neikvæða við fyrirkomulag almennra kosn inga. Það er reynt að hræra upp i hugum fólks með viðbjóðsleg- um áróðri á báða bóga, og sleg- ið er á viðkvæma tilfinninga- strengi. Fundahöld, biaðaútgáfa og áróður af flestu tagi er hafð- ur í frammi af ótrúlegustu at- hafnasemi. Meira að segja hafa verið opnaðar kosningaskrifstof- ur. Sá hónur stækkar óöum sem fyliist viðbióði á þessum furðu- legu vinnubrögðum. Ekki þarf að efa aö báðir aðilar telja sig vera að vinna að því, sem al- menningi er fyrir beztu. Von- andi væru sömu aðilar jafnfús- ir að vinna að almenningsheill i ýmsu öðru tiiviki. Kosningar eru nauðsyn í þjóð félagi sem hefur lýðræði í há- vegum, og oft getur verið nauð- syn að kanna hug almennings til viðkomandi mála. 1 slfkum til fellum þarf að vera til opinber aðili eða viðurkennd aðferð til skoðanakönnunar til að kanna hug almennings til ákveðinna mála. Þá hefði bæiarstjóm Hafn arfjarðar getað snúið sér til þessa viöurkennda aðila eða hag nýtt sér viðurkennda aðferð til skoðanakönnunar, en losnað við Ieiðinlegan kosningaundirbúning með baknagi og nöldri. Hvorki hefði þurft að opna kosn- ingaskrifstofur né gefa út blöð. Alla þá fjármuni og orku hefði mátt nota til hagnýtari og skemmtilegri hluta, enda mý- mörg verkefni óieyst þar sem annars staðar. Það er furðulegt hve deilur um áfengismál þurfa ætíð að taka á sig afkáralega mynd. Á við það jafnast ekkert nema ef væru prestskosningar. Prests- kosningar hafa alit of oft haft yfir sér heldur ókristilegan blæ, og eins er um deilu sem þessa 1 Hafnarfirði, það er því líkast sem deiluaðilar séu undir jafn- vel annarlegum áhrifum. Þaö verða að teijast mistök, að slík mál skuli ekki vera leyst eða ákvörðuð á annan hvorn veginn, eins og hver önnur, án þess að til komi óviðurkvæmileg kosningaátök, eins og nú á sér stað. Vafalaust skiptir mikiu minna máli fyrir daglegt bæjarlff hvem ig þessu máli kann að reiða af, og miklu minna í húfi en látið er í veðri vaka. Menningarspjöll- in eru jafnvel meiri í þeim úlfa- þyt, sem upp er vakinn, en í eftirköstunum, hvernig sem þau kunna að verða. Vonandi verða allir aðilar jafnfúsir til að vinna gegn áfengisbölinu eftir kosn- ingar, sem núna fyrir þessar furðulegu kosningar, því Hafn- firðingar eiga þegar við sitt á- fengisböi að strfða, eins og önn- ur samfélög. Um bölið virðast allir sammála. Það er því frem- ur deilt um aðferðir til að hafa áhrif á venjur samborgaranna. Hins vegar er og verður þeirri spurningu vafalaust ósvarað, hvort hægt verði að hafa áhrifin einhliða með boðum og bönnum. Þrándur í Götu. LEIGAN s.f. Vinnuvelar til leigu Stauraborar Slípirokkar Hitablásarar Litlar Steypuhrœrivélar Múrhamrar m. borum og fleygum Rafknúnir Steinborar Vatnsdœlur ( rafmagn, benzín ) Jarðvegsþjöppur Rafsuðutœki HÖFDATUNI4 - SiMI 23-480 ÞJONUSTfl Húsaviðgerðaþjónustan í Kópavogi auglýsir Steypum þakrennur og berum i þéttiefni. Þéttum sprung- ur í veggjum, svalir, steypt þök og Kringum skorsteina með beztu fáanlegum efnum. Einnig múrviðgerðir, leggj- um járn á þök, bætum og málum. Innanhússviðgerðir. breytingar, þakmálun. Gerum tilboð, ef óskað er. Sími 42449 milli kl. 12 og 1 og eftir kl. 7 á kvöldin. Menn með margra ára reynslu. HELLUR í GANGSTÉTTIR terasa og á veggi, hleðslusteinar, garðtröppur, mikið úr- val. Leggjum stéttir og veggi. — Uppl. í síma 36704 á kvöldin. — Hellusteypan, Vesturbænum, á horni Starhaga og Ægissíðu. PÍPULAGNIR Skipti hitakerfum. Nýlagnir, viðgerðir, breytingar á vatns- leiöslum og hitakerfum. Hitaveitutengingar. Þétti heita og kalda krana. Geri við wc-kassa. Sími 17041. — Hilmar J. H. Lúthersson, pipulagningameistari. HUSEIGENDUR — HÚSBYGGJENDUR Steypum upp þakrennur, þéttum steypt þök og þak- rennur, einnig sprungur i veggjum með heimsþekktum nylon-þéttiefnum. Önnumst alls konar múrviðgeröir og 1 snyrtingu á húsum, úti sem inni. — Uppl. i síma 10080. BÓLSTRUNIN BARMAHLÍÐ 14 Klæði og geri við bólstruð húsgögn. Fliót og vönduð vinna. Úrval áklæöa. — Svefnsófar til sölu á verkstæðisverði. Bólstrunin Barmahllö 14, simar 10255 og 12331. Nýjung—bílastæði Bifreiðaeigendur. Höfum opnað bón og þvottastöð að Sölvhóls götu 1 (portið). Leigjum bílastæði gegn dag- grgiðslum og mánaðargreiðslum. Uppl. í síma 16454 eftir kl. 19.30 á kvöldin og á staönum. BÓN & ÞV0TTUR Sölvhólsgöfu 1

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.