Vísir - 14.10.1969, Blaðsíða 2
húSuS meS hinu sterka og
óferðarfallega RILSAN
(NYLON 11)
FramleiSandi:
STÁLIÐN HF., Akureyri
Söluumboð: ÓÐINSTORG HF. Skólavörðustíg 16, Reykjavík
V í S I R . Þriðjudagur 14. október 1969.
Glímuæf-
ingar hjá
Víkverjum
Æfingar Umfl. Víkverja eru
hafnar. Kennslan fer fram í
iþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar
við Lindargötu og er kennt á
mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum milli kl. 7 og 8 alla
dagana.
Yngri deild masti aðeins á mánu-
dögum og föstudögum.
Aðalkennari er Kjartan Berg-
mann Guðjónsson, en með honum
kennir Kristján Andrésson.
Ársþing
Glímu-
sambands
íslands
Ársþing Glímusambands íslands
verður haldið f Bláa salnum á
Hótel Sögu í Reykjavík sunnudag-
inn 19. október n.k. og hefst kl.
10 árdegis.
• Það er líf og fjör f Skautahöllinni. Þar þarf ekki að spyrja um veður, menn renna sér áhyggjulaust um gólfið á skautum,
jafnvel í glaðasólskini og hita.
„Rangur aðili ákvað leikstaðinn
— segja Breiðabliksmenn og kæra leikinn gegn Akureyri
„Ummaeli Einars Hjartarssonar
dómara í Vfsi fyrir helgina komu
okkur mjög á óvart,“ segja
Breiðabliksmenn úr liðinu, sem
lék á Akureyri um fyrri helgi.
„Einar hlýtur að hafa séð, að
i-ogi var sá, sem lá í grasinu
eftir áreksturinn við Eyjólf.“
Breiðabliksmenn segja Loga
hafa fallið illa og hafa ekki verið
staðinn upp, þegar skot Magnúsar
Jónatanssonar hafi riðið af. Þeir
segjast og í engum vafa um að
Ejólfur hafi verið sá brotlegi í
þessu tilviki. Eftir leikinn var Logi
meiddur eftir þennan árekstur og
var ekki fyllilega búinn aö ná sér,
þegar hann fór aftur utan til náms.
Kæra er nú formlega komin
fram vegna leiksins, ekki vegna
þessa atviks, enda er úrskurður
dómara hverju sinni einhlítur,
heldur vegna þess að Breiðabliks-
menn vilja meina að rangur aöili
hafi kveðið upp úr með það hvar
leikurinn skyldi fara fram, þ.e.
á heimavelli annars aðilans, á
Akureyri.
Segja þeir að niðurröðunamefnd
hafi ákveðið að setja leikinn á
nyrðra í stað þess að láta leika á
hlutlausum velli. Segja þeir þetta
brjóta í bága við gildandi reglur,
þar eö mótanefnd KSl eigi ein að
ákveða hvar leikir fara fram.
Mótanefnd mun hins vegar hafa
verið óstarfhæf þessa stundina,
2/3 nefndarmanna, þ.e. tveir af
þrem, voru erlendis þegar skera
þurfti úr þessu viðkvæma máli.
Nú er beðið eftir ákvörðun dóm-
stóla af eftirvæntingu, enda ekki
aö vita nema þessi lið tveggja af
stærstu kaupstöðum landsins þurfi
enn einu sinni að bítast um 1.
deildarsætið.
Bondarsjuk setti nýtt
heimsmet 75.48
Rússinn Bondarsjuk bætti heims-| Aþenuleikunum var 74.68. Metið
met sitt í sleggjukasti um helgina, j var sett á frjálsíþróttamóti í heima-
kastaði 75.48, en met hans frá | bæ Bondarsjuks.
LEIGAN s.f
Vinnuvélar til leigu
Litlar Steypuhrœrivélar
Múrhamrar m. borum og fleygum
RafknOnir Steinborar
Vatnsdœlur (rafmagn, benzín )
Jarövegsþjöppur Rafsuðutœki
Víbratorar
Stauraborar
Sfípirokkar
Hitablásarar
hofdatuni a
SIMI23480
Verzlunarhúsnæði
Á bezta stað viö Laugaveg er til leigu ca. 260 fermetra
verzlunarhúsnæði frá 15. nóvember til 1. apríl. Tilvalið
fyrir jólamarkaö og útsölur eftir áramót. Um leigu til lengri
tíma gæti einnig verið að ræða.
Upplýsingar í síma 25417.
LJÓSASTILUNGAR
Bræðurnir Ormson hf.
Lágmúla 9. Sími 38820.
(Beint á móti bensfnstöö BP viö Háaleitisbr.).
Skauta-
höllin
gefur
skólafólki
afslátt
Skautahöllin er nú opin alla
virka daga frá kl. 14—23 en
sunnudaga kl. 10—23.
Á næstunni hefjast námskeið
fyrir börn og unglinga á aldrinum
6—10 og 10—14 ára, leiðbeinendur
verða þær Elísabet Gunnlaugsdótt-
ir og Unnur Eyfells. Elísabet mun
leiðbeina yngri flokknum en Unnur
þeim eldri. Námskeiðin verða
annan hvem dag og er kennt frá
kl. 13—15 en 1 augardaginn kl.
10—12. Tekur hvert námskeið
2 vikur. Fyrsta námskeiðið hófst
á mánudag 13. okt.
Tímar frá kl. 10-12 á morgn-
ana er ætlaður fyrir hina ýmsu
skóla á suðurlandssvæðinu og
þurfa forsvarsmenn skólanna áð
láta vita með dags fyrirvara ef
skólar eöa bekkjadeildir vilja fá
þann tíma. Veittur verður 30% af-
sláttur af gjaldi og skautaleiga er
þá ókeypis.
Brátt verða teknir upp sér timar
sem eingöngu eru ætlaöir fullorðnu
fólki og verða þeir eitt kvöld I
viku til að byrja með.
Síðar í vetur verða væntanlega
einhverjar sáautasýningar roeð
þekktu listaskautafólki.
Um 8000 þús. unglingar sækja
nú skautahöllina í hverjum mán-
uði.
Skautahöllin býður upp á fjöl-
skyldu- og afsláttarkort og er þá
veittur upp í 40% afsláttur frá
venjulegu gjaldi.
Sími Skautahallarinnar
er 84370.